Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
frá 27.510 kr.
á mánuði í 3 ár
Innifalið: Leiga til 36 mánaða,
akstur allt að 20.000 km á ári,
auka dekkjagangur, umfelgun,
smur- og þjónustueftirlit
samkvæmt þjónustubók.
frá 25.924 kr.
á mánuði í 3 ár
Innifalið: Leiga til 36 mánaða,
akstur allt að 20.000 km á ári,
auka dekkjagangur, umfelgun,
smur- og þjónustueftirlit
samkvæmt þjónustubók.
Sævarhöfða 2a · sími 525 9000 · bilheimar@bilheimar.is · www.bilheimar.is
Komdu í Bílheima og kynntu þér Opel á rekstrarleigu!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
6
4
1
3
Það þarf nú líka að gefa þessum villuráfandi gamlingjum eldnsöggt kikk í hausinn með
þeirri Bláu, Davíð minn.
Fjallað um feminisma
Að vekja og
efla umræðuna
KvenréttindafélagÍslands er meðmorgunverðar-
fund nk. fimmutdag
20.mars klukkan 8.30 á
Grand hótel. Fundurinn
fjallar um feminisma, hvað
í honum felst og hvaða
hlutverki hann gegnir í
jafnréttisbaráttunni. Yfir-
skrift fundarins er Femin-
ismi til frambúðar og í
henni felst, að sögn Þor-
bjargar Ingu Jónsdóttur
formanns Kvenréttinda-
félags Íslands, að femin-
ismi eigi bæði að vera hluti
af lífi okkar í dag og í fram-
tíðinni. „Þannig er KRFÍ
með yfirskrift fundarins að
segja að feminismi hafi
ekki aðeins verið verkfæri
og aflvaki kvenréttinda-
baráttu á síðustu áratugum, held-
ur sé mikið starf enn óunnið á
sviði jafnréttismála og þar komi
feminismi til góða eins og áður,“
segir Þorbjörg.
– Hver er annars tilgangur
fundarins og hverjar verða helstu
áherslur hans?
„Tilgangur fundarins er að
vekja og efla umræðu um femin-
isma og jafnréttismál almennt.
Kvenréttindafélag Íslands hefur
unnið að jafnréttismálum hér á
landi síðan 1907 og er það mat
þeirra sem starfa innan Kvenrétt-
indafélagsins að mikil þörf sé
ennþá fyrir félag sem vinnur að
réttindamálum kvenna og jafn-
réttismálum. Þótt mikið hafi
áunnist í jafnréttismálum frá
stofnun KRFÍ þá eru konur eng-
an veginn komnar með sömu rétt-
indi og stöðu og karlar í þjóðfélag-
inu. T.d. eru heildartekjur kvenna
samkvæmt skattframtölum að-
eins 20–30% af tekjum karla, það
eru mjög fáar konur í æðstu stöð-
um hjá atvinnufyrirtækjum og
auk þess eiga konur mun minna af
eignum en karlar. Þannig er ekki
hægt að segja að jafnrétti sé náð.
Þar til það næst er brýn þörf fyrir
áframhaldandi jafnréttisumræðu,
eða eins og einkunnarorð Kven-
réttindafélagsins segja, „…þar til
jafnrétti kynjanna næst.“
– Hverjir taka til máls á fund-
inum?
„Á fundinum verður Þorgerður
Einarsdóttir, lektor í kynjafræð-
um við HÍ, með framsögu um fem-
inisma og Edda Jónsdóttir al-
mannatengslafulltrúi frá tikin.is
með erindi um hægri feminisma.
Þá er gert ráð fyrir umræðum eft-
ir framsöguerindi.“
– Er meðbyr með feministum
þessi misserin?
„Það er meðbyr með feminist-
um þessi misseri, a.m.k. meðal
þeirra aðila sem hafa látið sig
jafnréttismál skipta. Það er auk-
inn áhugi, sérstaklega meðal
kvenna á að vinna að jafnréttis-
málum og veitir ekki af vegna
þeirra vandamála sem er enn við
að eiga á þessu sviði. Þennan
aukna áhuga má m.a. sjá í stofnun
nýrra félaga og umræðuvettvanga
um feminísk sjónar-
mið, s.s. Bríeturnar,
tikin.is, tölvupóstlista
um feminisma og Fem-
inistafélagið. Aftur á
móti teljum við hjá
KRFÍ að meiri áhuga
vanti hjá stjórnvöldum og al-
menningi til að fjalla um jafnrétt-
ismál og einnig skilning á því að
jafnréttisbaráttunni er alls ekki
lokið. Við höfum oft fengið spurn-
inguna til hvers er Kvenréttinda-
félagið ennþá til? Það er auðvitað
vegna þess að jafnréttið er ekki
enn orðið og mikið verk óunnið, þó
svo stórum áföngum hafi verið
náð í þá átt á síðustu árum, t.d.
með nýjum fæðingarorlofsdögum
og hlutfalli kvenna á Alþingi við
síðustu þingkosningar.“
– Hvað er dæmigerður femin-
isti?
„Ég tel að hinn dæmigerði fem-
inisti sé einstaklingur sem hefur
skilning á því að réttlæti felst í
jöfnum rétti og tækifærum fyrir
bæði kynin og að það sé í þágu
samfélagsins alls að konur hafi
jafna möguleika á við karla. Því
það er aðeins með að fullnýta
þeirra hæfileika og getu sem við
getum náð því fyrirmyndarþjóð-
félagi sem við viljum auðvitað öll
búa í.“
– Hver verða helstu baráttu-
tæki feminista í náinni framtíð?
„Það er aldrei gott að gefa upp
hernaðaráætlunina alla fyrirfram,
en það sem við stefnum að er við-
horfsbreyting bæði meðal stjórn-
valda og almennings. Þannig
hljóta helstu baráttutækin að vera
opinber umræða, hvort sem er í
fjölmiðlum eða með ráðstefnum
og fundum. Til að koma á raun-
verulegu jafnrétti þurfa allir að
viðurkenna að það sé nokkuð sem
við höfum ekki náð ennþá og að
taka höndum saman og ákveða
virkar aðgerðir til að komast að
þessu markmiði.“
– Svona í lokin, segðu okkur
eitthvað sögulegt um KRFÍ.
„Kvenréttindafélag Íslands var
stofnað 27. janúar 1907 og átti þar
af leiðandi 95 ára afmæli á síðasta
ári. Kvenréttindafélagið er vett-
vangur fyrir jafnréttisumræðu og
hefur það að markmiði að jafna
stöðu karla og kvenna,
bæði lagalega og að ná
fram raunverulegu
jafnrétti. Félagsmenn í
KRFÍ eru alls um 700
en auk þess eru fjöl-
mörg félög með aðild að
KRFÍ. KRFÍ lýtur 13 manna
stjórn. Þar af eru 8 kosnir á aðal-
fundi sem haldinn er ár hvert, til
tveggja ára í senn, en fimm eru til-
nefndir af þeim flokkum sem sæti
eiga á Alþingi hverju sinni. Þann-
ig er tryggt að starfið sé þverpóli-
tískt og unnið í þágu jafnréttis án
tillits til stjórnmálaskoðana.“
Þorbjörg Inga Jónsdóttir
Þorbjörg Inga Jónsdóttir er
formaður Kvenréttindafélags Ís-
lands frá mars 2001 og í stjórn
frá 1999. Hún er hæstaréttar-
lögmaður og rekur lögmanns-
stofuna Lagaþing. Í forsvari fyr-
ir Kvennaráðgjöfina undanfarin
5 ár sem er ókeypis lögfræði- og
félagsráðgjöf fyrir konur. Sam-
býlismaður er Ólafur Kristinsson
og eiga þau tvö börn, Kristínu
Arndísi 5 ára og Jón Kristin sem
er 8 mánaða.
Aldrei gott
að gefa upp
hernaðar-
áætlunina