Morgunblaðið - 18.03.2003, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 9
úrskeiðis hjá flutningabíl með elds-
neytisfarm í göngunum gæti það
haft hræðilegar afleiðingar. „Eng-
inn mannlegur máttur gæti grípið
mikið til varna ef eitthvað slíkt
gerðist og afleiðingarnar yrðu mikl-
ar.“
Hann segir að til þessa hafi bæj-
aryfirvöld ekki fengið mikil við-
brögð frá dómsmálaráðuneyti við
BÆJARRÁÐ Akraneskaupstaðar
hefur skorað á dómsmálaráðherra
að banna bensín-, olíu og gasflutn-
inga um Hvalfjarðargöng. Þetta er
í þriðja sinn sem bæjarráð ályktar
um málið og segir Gísli Gíslason
bæjarstjóri að sama viðhorf sé uppi
í Borgarbyggð. Í dag eru eldsneyt-
isflutningar um göngin bannaðir
frá hádegi á föstudegi til hádegis á
mánudegi og aðra frídaga þegar
mikið er um ferðalög.
„Það er sjónarmið þessara sveit-
arstjórna að það sé skynsamlegra
að flytja olíu og bensín með öðrum
hætti en í gegnum göngin. Við höf-
um líka bent á að það hefur ekki
verið bannað að flytja gas í gegnum
göngin þótt það hafi ekki ekki verið
framkvæmt af olíufélögunum,“ seg-
ir Gísli. Nefnd á vegum dómsmála-
ráðuneytisins hefur skilað áliti um
málið. Vill hún takmarka eldsneyt-
isflutninga enn frekar, en leyfa þá
áfram á ákveðnum tímum. Gísli
segir að Akraneskaupstaður og
Borgarbyggð vilji þó ganga enn
lengra og banna flutningana algjör-
lega.
„Bílar sem olíufélögin nota í
þessa flutninga eru í fínu lagi og
öryggisatriða er gætt í hvívetna.
Hins vegar benda menn á að afleið-
ingar slyss væru langt yfir því sem
menn fá ráðið við. Ætli það sé ekki
skynsamlegra að gefa ekki færi á
því að slíkt gæti komið upp,“ segir
Gísli og bendir á að færi eitthvað
fyrri áskorunum um að banna elds-
neytisflutninga. „Við höfum vitað
að það hefur verið unnið að þessu
en málið hefur gengið ansi hægt
fyrir sig. Menn hafa beðið lengi eft-
ir því að nefnd sem var skipuð skil-
aði niðurstöðu, nú þegar þessi nið-
urstaða liggur fyrir finnst mönnum
heldur súrt að ekki skuli tekið á
málinu í framhaldinu,“ segir Gísli.
Vilja banna eldsneytisflutn-
inga um Hvalfjarðargöng
Morgunblaðið/Júlíus
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur skorað á dómsmálaráðherra að banna
bensín-, olíu og gasflutninga um Hvalfjarðargöng.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur staðfest ákvörðun sýslu-
mannsins í Reykjavík um kyrrsetn-
ingu fasteignar í eigu Guðmundar
Franklín Jónssonar, verðbréfasala í
New York. Kyrrsetning var gerð að
kröfu Lífeyrissjóðs Austurlands.
Kröfur lífeyrissjóðsins byggðust
á því að árið 1999 hafi sjóðurinn
gefið út skuldabréf til 10 ára að
andvirði tæplega 88 milljóna króna
sem Guðmundur sé skuldari að.
Skuldabréfin hafi verið tryggð með
handveði í Handsali hf. sem síðar
hafi verið breytt í Burnham Int-
ernational á Íslandi hf. Guðmundur
átti 40% hlut í Burnham og var
stjórnarformaður.
Haustið 2001 afturkallaði fjár-
málaeftirlitið starfsleyfi Burnhams
og var félagið í kjölfarið tekið til
opinberra skipta. Lífeyrissjóður
Austurlands gjaldfelldi bréfin og
sendi Guðmundi greiðsluáskorun í
desember og óskaði jafnframt eftir
því að fasteignin yrði kyrrsett,
enda tæki birting á áskoruninni
mánuð. Af hálfu Guðmundar var
því m.a. haldið fram að sjóðnum
hafi verið óheimilt að gjaldfella
bréfin og af þeim sökum ætti að
fella niður kyrrsetningaraðgerð
sýslumanns. Á það féllst Logi Guð-
brandsson, héraðsdómari, ekki og
staðfesti aðgerðina. Lögmaður líf-
eyrissjóðsins var Hulda Rós Rú-
riksdóttir hdl. en Guðjón Ármann
Jónsson hdl. var til varnar.
Kyrrsetningaraðgerð
sýslumanns staðfest
Nýr listi
www.freemans.is
Í ferðalagið
Mikið úrval af bolum, stuttbuxum,
bermúdabuxum og kvartbuxum
Str. 36—42 og 44—56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
Svartar og bláar
dragtir úr polyester
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardag frá kl. 10-14.
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
Vorfatnaður
Frábært
úrval
Str. 36-52 (S-3XL)
Þri 18/3: fylltar paprikur &
hvítlaukskartöflur m/fersku
salati hrísgrjónum & meðlæti
Mið 19/3: rauðrófupottur &
kartöflukrókettur m/fersku
salati hrísgrjónum og meðlæti
Fim 20/3: suður-amerískur pottréttur
m/fersku salati hrísgrjónum og
meðlæti
Fös 21/3: dahl & samósur & dahl &
samósur m/fersku salati
hrísgrjónum & meðlæti
Helgin 22/3 & 23/3: grískt & gómsætt
Mán 24/3: spínatlasagna & fleira gott
Matseðill
www.graennkostur.is
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán. - fös. kl. 10-18,
lau. kl. 10-14
Ný sending
sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
í mörgum litum og góðum stærðum.
Einnig leðurtöskur
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Glæsilegur rúskinns- og ferðafatnaður
Fataprýði Verið velkomnar
FERMINGARGJAFIR
Gullsmiðja Hansínu Jens
Laugaveg 20b, v/ Klapparstíg, sími 551 8448Laugavegi 63, sími 551 4422
Glæsilegt úrval
Sumarfrakkar
með og án hettu
Nýtt
kortatímabil
Útsölulok
kvenfataverslun, Skólavörðustíg 14,
sími 551 2509.
Góðar dragtir 44-46
Stakir jakkar 44-48
Síðir kjólar og silkisjöl
Ýmislegt fleira vandað og gott
Afsláttur 60-80%