Morgunblaðið - 18.03.2003, Side 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRJÁR tvítugar stúlkur hafa í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra verið
dæmdar til greiðslu 30 þúsund króna
sektar vegna fíkniefnabrots. Stúlk-
urnar þrjár voru ákærðar fyrir að
hafa 1,71 gramm af tóbaksblönduðu
hassi í bifreið sem þær voru í og var
stöðvuð á Ólafsfjarðarvegi í desem-
ber á liðnu ári. Einnig voru þær
ákærðar fyrir að hafa skömmu áður í
sameiningu neytt hassefna í bifreið-
inni.
Tveir karlmenn hafa einnig verið
dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands
eystra til greiðslu 37 þúsund króna
sektar vegna fíkniefnabrots, þeir eru
á þrítugsaldri. Einn karlmaður til,
um þrítugt, var og dæmdur til að
greiða 30 þúsund krónur í sekt fyrir
að hafa fíkniefni undir höndum.
Karlarnir þrír voru handteknir í bíl á
Akureyri síðastliðið sumar og hafði
einn þeirra í fórum sínum 0,1 gramm
af amfetamíni en hann hafði keypt
0,5 grömm af efninu í miðbæ Akur-
eyrar. Annar hafði keypt 1 gramm af
amfetamíni og var með 0,13 grömm
af því á sér en sá þriðji var með 1,72
grömm af hassi í sínum fórum þegar
hann var handtekinn. Efnið var gert
upptækt.
Um 200
þúsund
í sektir
BJÖRN Snæbjörnsson, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju,
sagði að gjaldþrot Íslandsfugls í
Dalvíkurbyggð væri mikið áfall en
lang flestir 45 starfsmenn fyrirtæk-
isins eru félagsmenn í Einingu-Iðju.
„Þar fyrir utan hefur atvinnuástand
á Dalvík ekki verið verra í mörg ár
en þar eru rúmlega 30 manns á at-
vinnuleysisskrá í dag.“
Björn sagði að atvinnuástandið á
Dalvík hefði allajafna verið gott og
frekar vöntun á fólki en hitt. Hann
sagði að ef þetta yrði niðurstaðan
með Íslandsfugl og fyrirtækið ekki
reist við aftur, gæti atvinnulausum í
bæjarfélaginu fjölgað upp í 60–70
manns.
„Það er þá fjöldi á atvinnuleys-
isskránni sem menn hafa ekki séð
áður í sveitarfélaginu, nema þá í
stoppi vegna verkfalla sjómanna.
Þetta er því mikið áfall, því þarna
eru tæplega 10% félagsmanna okk-
ar á Dalvík að missa vinnuna.“
Einnig hafa nokkrir Akureyringar
verið í vinnu hjá Íslandsfugli. Björn
sagði að starfsfólk hefði verið í
vinnu í gær mánudag og í dag
þriðjudag, við að bjarga verðmæt-
um – en með framhaldið væri mikil
óvissa.
Atvinnuástandið
í Eyjafirði slæmt
Björn sagði að atvinnuástandið í
Eyjafirði væri almennt mjög slæmt
og aðeins Grenivík stæði upp úr en
þar væri frekar vöntun á fólki. Um
síðustu mánaðamót voru rúmlega
350 manns á atvinnuleysisskrá á
Akureyri og hafði fjölgað um 17 frá
mánuðinum á undan og um rúmlega
50 frá sama tíma í fyrra. Í Dalvík-
urbyggð og Ólafsfirði voru rúmlega
30 manns á atvinnuleysisskrá um
síðustu mánaðamót og hafði fjölgað
á skránni á báðum stöðum frá mán-
uðinum á undan. Hins vegar eru
mun færri á skrá í Ólafsfirði nú en á
sama tíma í fyrra og munar þar
rúmlega 20 manns.
Gjaldþrot Íslandsfugls í Dalvíkurbyggð mikið áfall
Atvinnuástandið hefur
ekki verið verra í mörg ár
NOKKUR erill var um helgina
hjá lögreglunni á Akureyri sem
einkum tengdist dýrkun Bakk-
usar. Skráðar eru átta kærur
fyrir ölvun á almannafæri,
þrjár líkamsárásir og fimm
ökumenn voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur.
Tilkynnt var um átta eigna-
spjöll og tvö minniháttar fíkni-
efnamál komu til kasta lögregl-
unnar. Sjö umferðaróhöpp
urðu um helgina og í tveimur
þeirra urður minniháttar
meiðsl. Fimm ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Erill hjá
lögreglu
UM ÁTTATÍU manns á öllum aldri
komu saman á Ráðhústorgi á Akur-
eyri á sunnudagskvöld og mótmæltu
yfirvofandi árás
Bandaríkjanna á Írak. Aðgerðin
var þáttur í alþjóðlegum mótmælum
sem fram fóru í um 130 löndum
klukkan 19 að staðartíma. Mótmælin
voru þögul en kveikt var á friðar-
kertum til að sýna samstöðu gegn yf-
irvofandi stríði.
Mótmæltu
stríði
ÞRÍR urðu efstir og jafnir í ung-
lingaflokki á Akureyrarmóti yngri
flokka í skák, en það fór fram um
helgina. Þetta voru þeir Ágúst
Bragason, Davíð Arnarson og Jón
Birkir Jónsson, allir með 7 vinninga
af 8 mögulegum. Þeir munu tefla
aukakeppni um titilinn.
Ólafur Ólafsson varð efstur í
drengjaflokki, hlaut 5 vinninga af 8.
Auðunn Skúta Snæbjarnarson varð
annar með 4 vinninga og Eyþór
Gylfason fékk 3 vinninga. Alexander
Arnar Þórisson varð efstur í barna-
flokki, fékk 10 vinninga af 10 mögu-
legum, þá komu Mikael Jóhann
Karlsson með 8 vinninga og Steinar
Marínó Hilmarsson með 7,5 vinn-
inga. Í telpnaflokki varð Tinna
Skúladóttir í fyrsta sæti með 5 vinn-
inga af 10 og þá Bergdís Bjarnadótt-
ir.
Akureyrarmót yngri
flokka í skák
Þrír efstir og
jafnir í ung-
lingaflokki
♦ ♦ ♦
SKRIFAÐ hefur verið undir fram-
haldssamning vegna verkefnis sem
snýst um að þróa rafræna lyfseðla,
en það voru þeir Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra og Tómas Her-
mannsson framkvæmdastjóri Doc-
.is sem skrifuðu undir. Verkefnið
hófst árið 2001, en meginmarkmið
þess er að kanna hagkvæmni raf-
rænna lyfseðla, öryggi þeirra og
öryggisþætti hugbúnaðarins, veita
læknum og lyfjafræðingum fagupp-
ýsingar um lyf og lyfjamál um leið
og þeir aðstoða sjúklinga og að
gera heilbrigðisstarfsmenn meðvit-
aðri um lyfjakostnað og stuðla
þannig að því að hagkvæmustu
leiða verði leitað í lyfjameðferð
sjúklinga. Þátttakendur í verkefn-
inu eru Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri, Heilsugæslan á Akureyri,
Lyfja, Lyf og heilsa, Doc, verkefn-
isstjórn íslenska heilbrigðisnetsins
og Eyþing.
Niðurstöður tilraunaverkefnis
sem unnið var á Húsavík þóttu gefa
tilefni til áframhaldandi tilrauna og
skoðunar á kostum og hagkvæmni
rafrænna lyfseðla og því verður
haldið áfram með þetta verkefni, en
stefnt er að því að því verði end-
anlega lokið 30. júní á komandi
sumri.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
við verkefnið nemi 5 milljónum
króna.
Hagkvæmni rafrænna lyfseðla skoðuð
Morgunblaðið/Kristján
Skrifað undir framhaldssamning um rafræna lyfseðla, f.v. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra, Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Ey-
þings, og Tómas Hermannsson, framkvæmdastjóri Doc hf.
SAMNINGUR um rekstur og uppbyggingu
Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri
var undirritaður í flugstöðinni í gærmorgun af
þeim Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra
og Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra. Samn-
ingurinn gildir til ársins 2008 en tilgangur
hans er að styðja við uppbyggingu mannvirkja
á vegum miðstöðvarinnar í í því skyni að efla
iðkun vetraríþrótta fyrir almenning og íþrótta-
fólk. Framkvæmdafé á samningstímanum er
um 360 milljónir króna, þar af er framlag rík-
issjóðs 180 milljónir króna. Meðal verkefna
sem ráðist verður í á næstu árum er uppsetn-
ing nýrrar lyftu í Strýtu, ný togbraut verður
sett upp í Hjallabraut og eins verður nýrri
barnalyftu komið upp. Flóðlýsing verður aukin,
aðbúnaður fyrir vetraríþróttir fatlaðra bættur,
sem og aðstaða fyrir brettafólk og vél-
sleðamenn. Loks verður aðstaða til vetr-
aríþrótta í Kjarnaskógi bætt og tækjakostur í
Skautahöllinni aukinn.
Samningur um rekstur Vetraríþrótta-
miðstöðvar Íslands var einnig endurnýjaður við
þetta tækifæri, en menntamálaráðuneyti og
Akureyrarbær standa sameiginlega að rekstri
miðstöðvarinnar.
Loks var undirrituð viljayfirlýsing þess efnis
að á samningstímanum verði unnið að stofnun
vetraríþróttabrautar við Verkmenntaskólann á
Akureyri, sem tilraun til þriggja ára. og er
stefnt að því að starfsemi hennar hefjist næsta
haust.
Uppbygging sem nýtist landinu öllu
Menntamálaráðherra sagði fjölda ferða-
manna leggja leið sína í höfuðstað Norðurlands
yfir vetrartímann til að stunda skíði í Hlíð-
arfjalli og njóta þeirrar menningar sem bærinn
hefði upp á að bjóða. Uppbygging undanfar-
inna ára hefði því ekki einungis nýst heima-
mönnum og nágrannabyggðarlögum heldur
landinu öllu. Uppbygging vetraríþrótta-
miðstöðvarinnar á Akureyri yrði því raunveru-
legur valkostur fyrir unnendur vetraríþrótta í
samanburði við alþjóðlega skíðastaði.
Menntamálaráðherra sagði það einnig
ánægjulegt að skrifa undir viljayfirlýsingu um
að stefna að stofnun vetraríþróttabrautar við
VMA. „Ég er þess fullviss að þörf er fyrir slíka
námsbraut og tíminn mun leiða í ljós að hér
hefur verið stigið stórt skref í þjálfun ungra
afreksmanna í vetraríþróttum sem mun skila
okkur lengra á alþjóðavettvangi.“
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri kvaðst
þess fullviss að samningurinn um Vetr-
aríþróttamiðstöðina, rekstur hennar og upp-
byggingu myndi skila Akureyri fram á veginn.
Miðstöðin þjónaði fleirum en Akureyringum og
Eyfirðingum og með aukinni uppbyggingu yrði
hún ferðamannaparadís sem þjónaði landinu
öllu.
Samningur um rekstur og uppbyggingu Vetraríþróttamiðstöðvar
Nýjar skíðalyftur og betri
aðstaða til vetraríþrótta
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjöldi fólks var á skíðum í Hlíðarfjalli um
helgina í fallegu veðri og góðu skíðafæri. Eins
og sést á myndinni er ekki mikill snjór í fjallinu
en aðstæður engu að síður alveg ágætar.
Morgunblaðið/Kristján
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri undirrita
samninginn í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli.