Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 22
LANDIÐ
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLIR nemendur Laugargerð-
isskóla tóku þátt í árshátíðinni sem
haldin var nýlega. Nemendurnir
settu upp leikritið ,,Dýrin í Hálsa-
skógi“ eftir Thorbjörn Egner í eilít-
ið styttri útgáfu. Steinunn Páls-
dóttir tónlistarkennari annaðist
útsetningu og fluttu nemendur
einnig tónlist við leikritið. Fjöl-
mennt var á sýningunni og gestir
frá flestum bæjum í sveitinni enda
árshátíðin orðin fastur liður í
menningarlífi Eyja- og Miklaholts-
hrepps.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Dýrin í Hálsaskógi í
Laugargerðisskóla
Eyja- og Miklaholtshreppur
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturla
Böðvarsson, skipaði í haust nefnd
sem gera átti úttekt á framtíð ferju-
rekstrar yfir Breiðafjörð með hlið-
sjón af þáverandi vegáætlun og
ferðaþjónustu. Nefndin skilaði nið-
urstöðum í janúar og þar voru lagðar
til ýmsar breytingar. Í kjölfarið skip-
aði ráðherra þriggja manna verkefn-
isnefnd til vinna nánar úr tillögun-
um. Nefndina skipa: Sigurbergur
Björnsson, Gunnar Gunnarsson og
Kristján Vigfússon.
Ákveðið hefur verið í tilrauna-
skyni að fjölga ferðum yfir Breiða-
fjörð yfir vetrartímann. Ferðum
verður fjölgað um tvær á viku og
brottfarartímar hafa verið sam-
ræmdir. Ný áætlun tekur gildi 15.
mars. Ferjan Baldur fer alla daga
nema þriðjudaga og föstudaga frá
Stykkishólmi kl. 13.30 og frá Brjáns-
læk kl. 17. Á föstudögum og þriðju-
dögum verða farnar tvær ferðir á
dag og er þá farið frá Stykkishólmi
kl 9 og 15.45 og frá Brjánslæk kl.
12.30 og kl. 19. Eins og fyrr segir er
um tilraun að ræða til að bæta þjón-
ustu við Vestfirðinga.
Þá er verkefnisnefndin að kanna
kaup á nýrri ferju til siglinga yfir
Breiðafjörð með það markmið að
auka flutningsgetuna og stytta sigl-
ingatímann yfir fjörðinn. Til skoðun-
ar er ferja í Noregi sem kemur til
greina. Ferjan heitir Skudenes,
smíðuð árið 1978 og er 900 tonn og 80
metra löng. Hún flytur þrisvar sinn-
um fleiri bíla en Baldur, eða um 60,
og tekur um 300 farþega. Siglinga-
tíminn styttist meira en 20% og yrði
ferjan tvo tíma og 20 mínútur yfir
Breiðafjörð.
Pétur Ágústsson, útgerðarstjóri
Sæferða, sem annast rekstur Ferj-
unnar Baldurs, segist vera orðinn
langeygur eftir niðurstöðum um
ferjukaupin og menn séu að falla á
tíma. Tíminn fram að sumaráætlun
styttist og þó að ekki þurfi að gera
mikið við Skudenes til að uppfylla ís-
lenskar kröfur er alltaf eitthvað sem
þarf að gera, bæði fyrir skipið og svo
hafnaraðstöðu á Brjánslæk og í
Stykkishólmi. Pétur segist verða var
við mikinn áhuga hjá sínum við-
skiptavinum fyrir nýrri ferju. Það
verði mikill munur fyrir farþega að
ferðast með stærri ferju og hún muni
skipta miklu máli fyrir ferðaþjón-
ustuna á þessu svæði. En málið er
enn á borði verkefnanefndarinnar.
Bætt þjónusta Baldurs
með fjölgun ferða
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Ferðum ferjunnar Baldurs fjölgar úr 7 ferðum á viku í 9 ferðir og er áhöfn
Baldurs ánægð með að geta veitt betri þjónustu. Á myndinni er áhöfnin
með skipstjóra sínum, Þresti Magnússyni.
Stykkishólmur
NOKKRIR útgerðarmenn og útgerð-
arfyrirtæki hafa gefið Heilbrigðis-
stofnuninni í Vestmannaeyjum mjög
fullkomin rannsóknartæki til maga-
og ristilspeglunar.
Það var að frumkvæði Bjarna Sig-
hvatssonar f.v. útgerðarmanns sem
kom að máli við Útvegsbændafélag
Vestmannaeyja og fór þess á leit við
það, að það tæki við söfnunarlista og
uppgjöri söfnunar þeirrar sem hann
stóð fyrir meðal núverandi og fyrr-
verandi útvegsbænda í Vestmanna-
eyjum. Fram kom í gjafabréfi að
heildarverðmæti gjafarinnar er
5.567.015 kr. Það var Hjörtur Krist-
jánsson sérfræðingur í lyflækningum
við Heilbrigðisstofnunina í Vest-
mannaeyjum sem tók við gjöfinni og
þakkaði hann, fyrir hönd stofnunar-
innar, gefendum rausnarskap þeirra.
Útgerðarmenn í Vestmanna-
eyjum gefa sjúkrahúsinu
Morgunblaðið/Sigurgeir
Nokkrir gefenda afhenda gjöfina á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Vestmannaeyjar
SMALAMENN úr Borgarfirði,
ásamt tíkinni Tátu Klementínu,
hafa síðustu þrjár helgar farið
inn á Sanddal og Mjóadal, sem
liggur inn af Norðurárdal að
sýslumörkum Dalasýslu, til að
freista þess að ná eftirlegukind-
um sem vitað var um á þessu
svæði. Á móti þeim komu þrír
menn vestan úr Miðdölum í Dala-
sýslu. Samtals náðu þeir tuttugu
kindum í þessum þremur smala-
ferðum. Ekki gekk það átaka-
laust, enda kindurnar styggar
eftir útileguna. Hjalti Vésteinsson
frá Fellsenda í Miðdölum lagði
sig í hættu við að síga í björg til
að sækja kindur og tókst það með
miklum ágætum.
Kindurnar komu víða að, úr
Norðurárdal, Stafholtstungum og
Þverárhlíð í Mýrasýslu og úr Mið-
dölum.
Það fylgir fólksfækkun í sveit-
unum að fjallskil ganga illa mið-
að við það sem áður var þegar
smalað var á hverjum bæ.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Smalamennirnir Sigurður Ólafsson Borgarnesi, Guðmundur Finnsson
Varmalandi og Hlynur Klemenzson Dýrastöðum komu af fjalli úr síðustu
smalamennsku með nokkrar kindur. Alls heimtust 20 kindur af fjalli.
Fundu 20 kindur á fjöllum
Borgarfjörður
ÞAÐ er mikið verk að hirða vel um
sauðfé en jafnframt ánægjuleg vinna
að gefa fénu fóðrið sitt á garðann.
Þau Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir
og Haraldur Sveinsson á Hrafnkels-
stöðum urðu fyrir þeirri erfiðu
reynslu að þurfa að skera niður fjár-
stofn sinn fyrir tveimur árum vegna
riðuveiki eftir árangursríka áratuga
ræktun.
Nú í haust fengu þau um 350 lömb
úr N-Þingeyjarsýslu sem dafna vel.
Á myndinni er Jóhanna Bríet að
jafna heyi á einum garðanum.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds
Gefið á garðann
Hrunamannahreppur