Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 45
HILMAR Þórlindsson, handknatt-
leiksmaður hjá Cangas á Spáni –
fyrrverandi leikmaður hjá Gróttu/
KR og Stjörnunni, verður ekki lán-
aður til liðs í annarri deildinni eins
og til stóð. Hilmar er kominn til
Cangas á ný og sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann ætlaði
að vera áfram hjá félaginu og
reyna að ná sér góðum af meiðsl-
unum sem hafa þjakað hann und-
anfarnar vikur.
„Það er auðvitað ljóst að ef ég
get ekki spilað hér í Cangas vegna
meiðsla þá get ég ekkert frekar
spilað með hinu liðinu. Ég verð því
hérna áfram og reyni að ná mér
góðum af þessum meiðslum sem
eru að verða ansi þreytandi,“ sagði
Hilmar.
Hann lék fjóra leiki í haust með
liðinu en hefur ekkert getað leikið
síðan þá utan tíu mínútur á móti
Ademar Leon í lok febrúar.
„Sjúkraþjálfarinn sagði að ég væri
tilbúinn í þann leik en bæði ég og
þjáflarinn vorum ósammála honum.
En hann vildi endilega að ég próf-
aði og það var auðvitað tómt rugl
og gekk ekkert upp, ég lék í ein-
hverjar tíu mínútur,“ sagði Hilmar,
sem stefnir að því að ná síðustu sex
leikjum liðins í vor en síðasta um-
ferðin er 24. maí.
MASSIMO Moratti, forseti Inter í
Mílanó, sagði í gær að það væri ekki
rétt að Inter væri tilbúið að kaupa
David Beckham frá Manchester
United. Heldur væri sá orðrómður
að hann hafi hitt Victoria, eiginkonu
Beckham, til að ræða við hana um
komu þeirra hjóna til Ítalíu, rangur.
NORSKA knattspyrnuliðið Lyn,
sem Teitur Þórðarson þjálfar og
Helgi Sigurðsson og Jóhann B. Guð-
mundsson leika með, hefur ákveðið
að leika heimaleiki sína á hinum
fræga Bislett-leikvangi í stað Ulle-
vaal þar sem liðið hefur leikið heima-
leiki sína undanfarin 70 ár en Ulle-
vaal er þjóðarleikvangur Norð-
manna og landsliðið leikur þar sína
leiki. Há vallarleiga er ástæða þess
að Lyn hefur ákveðið að yfirgefa
Ullevaal.
ÓLAFUR Stefánsson er í 15. sæti
á listanum yfir markahæstu leik-
menn í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik. Ólafur hefur skorað 126
mörk fyrir Magdeburg og marka-
hæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni
en næstur á eftir honum er Frakkinn
Joel Abati með 118 mörk. Danski
landsliðsmaðurinn Lars Christian-
sen, Flensburg, er markahæstur í
deildinni með 212 mörk, Kórerumað-
urinn Kyung-Shin Yoon hjá Gumm-
ersbach er annar með 187 mörk og
Jan Filip, Nordhorn, þriðji með 176.
EINAR Karl Hjartarson, Íslands-
meistari í hástökki, hafnaði í 17. sæti
í hástökki á bandaríska háskóla-
meistaramótinu í frjálsíþróttum inn-
anhúss sem fram fór í Fayetteville í
Arkansas um helgina. Einar stökk
2,09 m og var nokkuð frá sínu besta,
en Íslandsmet hans í hástökki innan-
húss er 2,28.
CHRIS Iwelumo leikur að öllum
líkindum ekki meira með Stoke á
leiktíðinni. Þessi 24 ára gamli fram-
herji meiddist á hné í leiknum við
Sheffield United um helgina auk
þess sem hann á við meiðsl að stríða í
mjöðm.
THOMAS Sørensen, landsliðs-
markvörður Dana í knattspyrnu, er
á meðal þeirra leikmanna sem settir
verða á sölulista í vor falli Sunder-
land úr ensku úrvalsdeildinni eins og
flest bendir til. Félagið ætlar að selja
nokkra leikmenn til að skera niður
kostnað en það verður af miklum
tekjum við fall úr úrvalsdeildinni,
einkum vegna minni tekna af sölu
sjónvarpsréttar frá kappleikjum.
AÐRIR leikmenn Sunderland sem
reynt verður að selja eru m.a. Kevin
Phillips, Claudio Reyna og Emerson
Thome.
PATRICK Vieira verður klár í
slaginn með Arsenal gegn Valencia í
Meistaradeildinni annað kvöld, en
hans var sárt saknað er Arsenal lék
við Blackburn á laugardaginn.
FÓLK
FIMLEIKAFÓLK úr Gerplu
hafði mikla yfirburði á Ís-
landsmótinu í þrepum íslenska
fimleikastigans sem fram fór
um helgina. Keppt var í átta
mismunandi þrepum og sigr-
uðu keppendur frá Gerplu í
öllum flokkum og það sem
meira var af þeim 22 sem kom-
ust á verðlaunapall voru 18
verðlaunahafar úr Gerplu.
Á mótinu fengu aðeins þeir
að keppa sem staðið höfðu sig
best á fyrri mótum vetrarins,
þannig að aðeins þeir kepptu
sem hafa staðið sig best í
skylduæfingum í vetur.
Mikill áhugi var á mótinu og
segjast forsvarsmenn fimleika
ekki muna eftir því að áhorf-
endur hafi þurft frá að hverfa,
en fullt var út úr dyrum í
íþróttahúsi Bjarkar.
Nágrannarnir í Reykjanesbæ,Keflavík og Njarðvík, hafa fjór-
um sinnum mæst í deildinni í vetur og
er staðan úr þeim leikjum þannig að
Keflavík hefur sigrað í þremur og
Njarðvík einum og hefur Keflavík
gert 59 stigum meira en Njarðvík.
„Keflavík byrjaði leiktímabilið
mjög vel og var þá með jafnsterkt lið
og ÍS og KR í fyrra. Þær voru full-
mannaðar á meðan mörg önnur lið
voru með meidda leikmenn og án er-
lends leikmanns. Þær unnu stóra
sigra en ég held það hafi ekki gert
þeim neitt gott því á sama tíma og
þær stóðu nokkuð í stað bættu önnur
lið við sig þegar menn náðu sér af
meiðslum.
Keflavík er með mjög öflugan og
stóran hóp. Sonja Ortega er mikill
liðsmaður og spilar vel sem slíkur en
það sem vantar hjá Keflavík er ein-
hver sem liðið getur leitað til þegar
taka þarf af skarið eins og undir lok
jafns leiks. Þær brenndu sig til dæm-
is á þessu í bikarúrslitaleiknum á
móti okkur og það gæti komið þeim í
koll í úrslitakeppninni – þó varla á
móti Njarðvík í undanúrslitunum.
Ég held að Keflavík vinni Njarðvík
2:0 og það meira að segja nokkuð
auðveldlega. Þó er rétt að geta góðr-
ar frammistöðu Njarðvíkurstúlkna í
síðasta leik liðanna sem endaði 81:71.
Þrátt fyrir hátt skor tókst Njarðvík
að hanga í Keflavík lengi vel, en ég
held að í þessum leikjum muni Kefla-
víkurstúlkur pressa Njarðvikinga
stíft og það stenst Njarðvík ekki,“
segir Ívar um nágrannaslaginn á
Suðurnesjum.
KR loks að ná fullum styrk
KR og Grindavík hafa einnig mæst
fjórum sinnum í deildinni og þar er
staðan jöfn, 2:2, en KR gerði tveimur
stigum meira í viðureignunum.
„Þessi viðureign verður jafnari en
hin en ég held samt að KR vinni 2:0
líkt og Keflavík. Þetta fer þó mjög
mikið eftir því hvað erlendi leikmað-
ur Grindvíkinga, Yvonne D. Shelton
gerir. Allur leikur Grindvíkinga fer í
gegnum hana, sama hvort það er
vörnin, sóknin, sendingar eða hvað
það nú er. Það er bæði styrkur Grind-
víkinga og veikleiki,“ segir Ívar.
„KR er sterkasta varnarliðið í
deildinni og ég held að þeim takist að
stöðva Shelton og Grindavíkurstúlk-
urnar. Shelton nær ekki að sækja
eins mikið inn í teiginn og hún vill því
þar eru Hanna Kjartansdóttir og
Jessica Stomski og þær eru báðar
mjög góðar í vörn.
Það má segja að KR sé loksins
núna að ná fullum styrk þótt enn
vanti dálítið upp á það hjá Grétu [M.
Grétarsdóttur], en hún hefur verið
meidd og það hefur sett svip sinn á
hana. Hana vantar ennþá fullan styrk
og það getur verið slæmt fyrir KR.
Það sem KR vantar helst er einhver
sem ógnar með skotum fyrir utan og
þar er Gréta sterk sé hún í formi er
hún leikmaður sem KR þarf nauð-
synlega að hafa.
Hanna hefur leikið mjög vel að
undanförnu og einnig Stomski sem er
öflugur leikmaður. Þá hefur Hildur
[Sigurðardóttir] leikið frábærlega
eftir að Stomski kom til liðsins og
virðist finna sig best þegar einhver
stór og sterk er inn í teignum. Ég
held að KR-stúlkur hafi það 2:0 en
það verður erfiðara fyrir þær en
Keflavík á móti Njarðvík,“ sagði Ív-
ar.
Hilmar áfram
hjá Cangas
Miklir
yfirburðir
hjá
Gerplu
Morgunblaðið/Sverrir
Kristín Blöndal, fyrirliði Keflavíkurliðsins, í leik gegn ÍS á dögunum.
KR og Keflavík
mætast í úrslitum
„ÉG held það verði KR og Keflavík sem mætast í úrslitum. Bæði lið-
in vinna væntanlega 2:0 í undanúrslitunum, Keflvíkingar þó á auð-
veldari hátt en KR,“ segir Ívar Ásgrímsson, þjálfari kvennaliðs ÍS,
um úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik sem hefst í kvöld með leik
KR og Grindavíkur. Keflavík og Njarðvík mætast síðan annað kvöld.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS, spáir í úrslitakeppni kvenna