Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16
Óskarsverðlaunaleikarnir
Nicolas Cage og Meryl Streep
fara á kostum í myndinni. Frá höfundum
og leikstjóra „Being John Malkovich“.
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
RadíóX
1/2 Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
Aukasýningar vegn
a fjölda áskoranna
SV MBL HK DV
HJ MBL
SG Rás 2
Radio X
Kvikmyndir.com
HK DV
ÞÞ Frétta-
blaðið
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
2Tilnefningar til Óskarsverðlaunabesti leikari í aukahlutverki: Christopher WalkenBesta Tónlist - John Williams
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
7 Bestamyndársins BestileikstjóriRoman Planski Besti leikari íaðalhlutverki:Adrian Brody
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
1/2 SK Radíó X
Kvikmyndir.com
Lækkað verð!
Miðaverð kr. 750.
Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem BESTA ERLENDA MYNDIN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.15 OG 8. B. I. 16.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um
allan heim með þeim Edward Norton (Fight Club,
American HistoryX), BarryPepper (Saving Private R-
yan, GreenMile) og Philip Seymour Hoffman (Red
Dragon, Boogie Nights)
Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður..
gætir þú gjörbreytt lífi þínu?
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.
1/2 H.L. Mbl.
1/2
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
DÁVALDURINN Paul
Royter er væntanlegur
hingað til lands og mun
skemmta um land allt frá
og með 25. mars er hann
treður upp í Stapanum,
Keflavík. Royter er búinn
að vera í þessum bransa í
þrjátíu ár. Hann lærði við
American Institute of Hyp-
nosis í Irvine í Kaliforníu
og hefur ferðast í öll heimsins horn
með sýningu sína. Þar fær hann
fólk úr salnum upp á svið til sín og
með krafti dáleiðslunnar fær hann
það til að fremja alls kyns hunda-
kúnstir. Miðaverð er 1900
kr. og fer sala fram við
þjónustuborð Smáralind-
ar. Auk þess að koma fram
í Stapanum verður Dá-
valdurinn í Vetrargarði
Smáralindar 26. mars,
Sjallanum Akureyri 27.
mars, Hótel Húsavík 28.
mars, á Sauðárkróki 29.
mars, Hótel Valaskjálf,
Egilsstöðum 30. mars, Íþróttahús-
inu á Ísafirði 31. mars, á Ólafsvík 1.
apríl, aftur í Vetrargarðinum 2. og
3. apríl og svo loks í Vestmanna-
eyjum, 4. apríl.
Þekktur kanadískur dávaldur heimsækir Ísland
Syngur amma eins
og Britney?
HÁTÍÐIN SXSW í Austin í Texas, eða South by South-
west, hefur undanfarin ár haft á sér orð fyrir að vera ein
skemmtilegasta og metnaðarfyllsta tónlistar- og kvik-
myndahátíð sem haldin er. Henni lauk á sunnudag en á
meðan hljómsveita þar voru hinar alíslensku d.u.s.t.,
Ensími og Singapore Sling. SXSW er líka kvikmyndahá-
tíð en sá hluti hennar átti tíu ára afmæli í ár. Meðal
mynda sem vöktu eftirtekt er Kofakvillinn eða Cabin Fe-
ver eftir Eli Roth. Roth bjó á Íslandi um hríð og fékk hér
hugmyndina að myndinni sem er hryllingsmynd af gamla
skólanum og fjallar um hættulegan húðvírus.
Í dagblaðinu The New York Times um helgina var
fjallað lofsamlega um myndina og sagt að Roth hafi vakið
mikla kátínu í pallborðsumræðum eftir miðnætursýn-
ingu á myndinni og ræddi meðal annars um veru sína
hér, en hann bjó um tíma nálægt Selfossi. Útskýrði hann
fyrir blaðamönnum að þar hefði hann komist í tæri við
sjaldgæfan húðsjúkdóm sem hefði orðið kveikjan að
myndinni. Einnig kom fram í máli Roth að sá er hefur
dreifingarréttinn á myndinni hér á landi vildi ólmur
koma hingað til lands og frumsýna myndina á Selfossi,
hvar fræinu hryllilega var sáð á sínum tíma.
Hryllingsmyndin Kofakvillinn vekur athygli
Eli Roth (til vinstri) leikstýrir sínum mönnum í kvik-
myndinni Kofakvillanum.
Selfoss í kvik-
myndasöguna
ÞAÐ sem er svo yndislegt við
rokkið er hversu síbreytilegt það er.
Í eyrum andsnúinna er það alltaf
sama ræflarokkið en sannir rokk-
hundar þrífast á þessum breyting-
um. Tónleikarnir á Gauknum síðast-
liðinn fimmtudag voru sannarlega
rokktónleikar, háværir og hressileg-
ir. Þar komu fram þrjár ólíkar rokk-
sveitir sem allar eiga þó sammerkt
að vera talandi dæmi um vissar
áherslubreytingar sem átt hafa sér
stað undanfarið í rokkinu.
Ef gerð er heiðarleg tilraun til að
henda reiður á einhverjum rauðum
þræði í breytingum sem þessar ann-
ars ólíku sveitir hafa gengið í gegn-
um kemur fyrst upp í hugann orðið
tilfinning, svo kraftur, melódía og
tilraunagleði. Um leið mætti alhæfa
að fyrir vikið sé rokkið á margan
hátt að verða aðgengilegra en oft áð-
ur, og á ég þar sérstaklega við það
sem hingað til hefur þótt í harðari
kantinum. Þetta sýndu allar sveit-
irnar á umræddum tónleikum, Brain
Police, Hell is for Heroes og Mínus,
því einhvern tímann hefðu þær þótt
tormeltar og láta harkalega í eyrum.
Fyrst á svið var Brain Police, sú
rokksveit íslensk sem mest er látið
með um þessar mundir, sbr. verð-
launahátíð X-ins, sem á jú að vera
„eina radíóið sem rokkar“. Og vissu-
lega er sveitin á réttri leið, orðin
skuggalega þétt og loksins komin
með rétta söngvarann. Enn sem
komið er vantar þó nokkuð upp á
frumleikann eins og glögglega mátti
heyra á tónleikunum, þar sem andi
gömlu gruggaranna í Screaming
Trees og Soundgarden sveif helst til
þungt yfir vötnum – nokkuð sem
sumum þykir reyndar bara hið besta
mál.
Hell is for Heroes er bresk sveit
sem á sér fortíð í indírokkinu en
virðist hafa „frelsast“ með tilkomu
At the Drive-In og Refused, líkt og
svo margar aðrar breskar rokksveit-
ir um þessar mundir – minniháttar
sena er nú grasserandi í landi tjall-
anna þar sem í fararbroddi eru
sveitir á borð við Hundred Reasons
og A. Hell is for Heroes er kannski
ögn myrkari en þær sveitir en samt
ekki nærri því nógu hættuleg til að
hrífa mann. Hugmyndirnar eru
vissulega margar mjög frambæri-
legar og krafturinn fínn á köflum en
lagasmíðarnar standa enn sem kom-
ið er ekki undir þessum krafti og
rödd Justins Schlosbergs virkar og
fullveikburða, þótt sannarlega skorti
hann ekki tilfinninguna.
Annars er ómögulegt að segja,
kannski er Hell is for Heroes hið fín-
asta band og á barmi þess að gera
allt vitlaust. Málið er bara að hún
var í þeirri vandasömu og hreint
ekki öfundsverðu stöðu að vera á
sviði næst á undan Mínus. Þar fara
sannarlega heljarinnar hetjur. Líkt
og Brain Police er Mínus nú í
miðjum klíðum að taka upp plötu og
ef dregin verður ályktun af þessum
tónleikum erum við að tala um að
þriðja plata Mínuss verði ekkert
minna en tímamótaverk. Þvílíkar
framfarir, þvílík frjósemi! Virkir
rokkhundar hafa tekið eftir kúvend-
ingu þeirri sem orðin er á tónlist
þessarar öflugustu rokksveitar sem
fram hefur komið hérlendis um ára-
bil. Án þess að hafa misst snefil af
orku eða háska virðist sem sveitin
hafi tekið út vissan þroska – nauð-
synlegur öllum hljómsveitum – og er
fyrir vikið farin að búa til mun fjöl-
breyttara og hugmyndaríkara rokk
sem dregur dám af upphafinu, Big
Star og Stooges, um leið og það er
eitthvað alveg nýtt. Á tónleikunum
sýndi Mínus líka að besta íslenska
lag síðasta árs, „Romantic Exorc-
ism“, var engin hundaheppni heldur
er meira slíkt að fæðast. Svo er
þetta líka orðin svo mikil hljómsveit,
karakterinn svo sterkur, allir liðs-
menn með sinn afgerandi sjarma;
Frosti og Bjarni stoðin, Bjössi
trommari drifkrafturinn og Krummi
besti frontur sem hljómsveit getur
haft, fæddur rokkkóngur í hlébarða-
skyrtunni sinni. Og ef það var ekki
nóg þá er nettur Gene Simmons líka
genginn í bandið í líki Þrastar, nýja
bassaleikarans, sem bauð upp á
sýnikennslu á öllum alvöru rokk-
frösum og -töktum sögunnar. Frá-
bær liðsauki það.
Það var mikið rokk á Gauknum á
fimmtudaginn var, rokk í þremur
birtingarmyndum; Brain Police úti á
eyðimörkinni og Hell is for Heroes í
tilfinningaflækju. Hetjurnar voru
Mínus, sveit sem ráðið getur hvort
hún stefnir til himins eða heljar.
Heljarinnar
hetjur
TÓNLEIKAR
Gaukur á Stöng
Hell is for Heroes/Mínus/Brain Police
Tónleikar sem fram fóru fimmtudaginn
13. mars á Gauki á Stöng. Fram komu ís-
lensku hljómsveitirnar Brain Police og
Mínus og breska sveitin Hell is for
Heroes.
Morgunblaðið/Árni TorfasonHell is for Heroes: Nægar tilfinningar, lítil hætta.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Árni Torfason
Rokkkóngurinn Krummi, kominn úr hlébarðaskyrtunni.