Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 2
STOFNAÐ 1913 77. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Látlaus
Óskar
Stjörnurnar taka tillit til
ástandsins í Írak Fólk 52
Breyskur húsbóndi og snjall
vinnumaður Listir 27
Fjölbreyttur
fróðleikur
Á nýjum vef er að finna fræðsluefni
um fjöruna og hafið Menntun 29
Púntila og
Matti
FRAKKAR fóru í gær
hörðum orðum um ráða-
menn í Bretlandi, sem
undanfarna daga hafa
gagnrýnt afstöðu
franskra stjórnvalda í
Íraksmálinu harkalega.
Sögðust ráðamenn í Par-
ís vera „leiðir og í miklu
uppnámi“ vegna ummæla
sem ráðherrar í bresku
ríkisstjórninni hefðu látið
falla, en Bretar kenna Frökkum um að ekki
tókst að ná samstöðu í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna um nýja ályktun í málinu.
Dominique de Villepin, utanríkisráðherra
Frakklands, hringdi í starfsbróður sinn, Jack
Straw, í gær til að lýsa óánægju með ummæli
sem féllu í umræðum í breska þinginu í
fyrradag. Sagði Tony Blair forsætisráðherra
sjálfur við það tækifæri að honum hefði þótt
„sorglegt“ að fylgjast með Jacques Chirac
Frakklandsforseta hóta að beita neitunar-
valdi í öryggisráðinu hvað sem tautaði og
raulaði. Sagði Blair að hörð afstaða Frakka
hefði lamað SÞ og gert það að verkum að
diplómatískar lausnir á málinu reyndust ekki
mögulegar. Virtist Blair gefa í skyn að ef
Frakkar hefðu ekki hagað sér með þessum
hætti hefði mátt komast hjá stríði.
Chirac og Blair hittast í dag
Franskir embættismenn sögðu ummæli
Blairs og annarra ráðherra, sem tóku til máls
í breska þinginu, ekki ýkja vinsamleg um
vinaþjóð og samstarfsríki á vettvangi Evr-
ópumála. Er líklegt að þessi deila Frakka og
Breta muni setja svip sinn á fund Chiracs og
Blairs í dag, en þeir hittast þá á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í Brussel.
Frakkar
æfir út
í Breta
París. AFP.
Ósáttir við ummæli
sem féllu í umræðum
á breska þinginu
Dominique
de Villepin
Margir Írakar flúðu Bagdad í
gær, af ótta við yfirvofandi
sprengjuárásir á borgina. Aðrir
voru í óða önn að birgja sig upp af
nauðsynjavörum og hugðust koma
sér fyrir á öruggum stað áður en
hernaðaraðgerðir bandamanna
hæfust. Þegar skyggja tók minnti
Bagdad helst á draugaborg, að
sögn fréttamanna Associated
Press, því hvarvetna höfðu menn
lokað öllum gluggahlerum, viðbún-
ir hinu versta. Víða gat að líta
vopnaða liðsmenn öryggissveita
stjórnvalda og báru sumir Kal-
ashnikov-riffla en aðrir báru
sprengjuvörpur og enn aðrir hríð-
skotabyssur. Jafnvel umferðarlög-
reglan bar hjálma og skotvopn í
gær, að sögn AP.
Fresturinn rann út í nótt
Bush fundaði með helstu ráð-
gjöfum sínum í gærdag, m.a. Dick
Cheney varaforseta, Donald
Rumsfeld varnarmálaráðherra,
Colin Powell utanríkisráðherra og
Condoleezzu Rice þjóðaröryggis-
ráðgjafa. Þá ræddi hann lengi við
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, í síma. Talið var fullvíst að
Bush myndi ávarpa þjóð sína um
leið og aðgerðirnar væru hafnar en
ekki var öruggt að Bandaríkja-
menn létu til skarar skríða í gær.
Saddam boðið hæli í Bahrein
Einungis nokkrum klukku-
stundum áður en fresturinn, sem
Bush Bandaríkjaforseti gaf Sadd-
am og sonum hans til að yfirgefa
Írak, rann út bauðst Hamad, kon-
ungur Bahrein, til að veita Saddam
öruggt skjól svo koma mætti í veg
fyrir hernaðarátök.
Saddam hefur hins vegar heitið
því að hann muni ekki yfirgefa land
sitt og Tariq Aziz, aðstoðarforsæt-
isráðherra Íraks, sagði á frétta-
mannafundi að ekki kæmi til
greina að verða við kröfum Bush.
„Við erum reiðubúin til að berjast,
tilbúin til að takast á við árásarað-
ilann og erum fullviss um sigur,“
sagði hann. Aziz hafði boðað blaða-
mannafundinn til að bera til baka
orðróm, sem fór á sveim í gær, um
að hann hefði flúið land.
Sprengjum varpað
á skotmörk í Írak
Um þrjú hundruð þúsund bandarískir og breskir her-
menn biðu þess í nótt að fá skipun um að ráðast á Írak
Bagdad, Kúveit-borg, Washington, Manama. AFP, AP.
BRESKAR og bandarískar herþotur vörp-
uðu sprengjum á skotmörk í suður- og
vesturhluta Íraks í gær en þessar aðgerðir
þóttu þó ekki nauðsynlega til marks um að
stríð við Írak væri formlega hafið. Um
þrjú hundruð þúsund bandarískir og
breskir hermenn biðu hins vegar gráir
fyrir járnum við landamæri Íraks, reiðu-
búnir að láta til skarar skríða þegar
George W. Bush Bandaríkjaforseti gæfi
fyrirskipun um árás. Fresturinn sem
Bandaríkjaforseti hafði gefið Saddam
Hussein Íraksforseta og sonum hans til að
hverfa í útlegð rann út klukkan eitt að ís-
lenskum tíma í nótt. Engin merki voru þá
um að forseti Íraks hefði farið að kröfu
Bush. Allsherjarárás var því talin geta haf-
ist á hverri stundu. „Ég tel að andstæð-
Íraksdeilan/16–21
ingur okkar hafi enga hugmynd um hvað
bíður hans,“ sagði Gary Crowder, yfirher-
fræðingur bandaríska flughersins, seint í
gær. Að sögn bandarískra embættismanna
voru loftárásirnar gerðar á stórskotalið og
eldflaugakerfi Íraka í suður- og vestur-
hluta landsins. Voru vopnakerfi þessi sögð
ógnun við liðsafla bandamanna sem í nótt
bjóst til innrásar í landið.
svo virðist sem býsna fagmann-
lega hafi verið að verki staðið,“
sagði hann.
Talsmaður brezku sendinefnd-
arinnar hjá ráðherraráðinu
greindi frá því að hlerunarbún-
aðurinn hefði einnig beinzt að
símum hennar. Staðfesti hann að
búnaðurinn sem fannst hefði
beinzt að símum alls um „hálfrar
tylftar“ sendinefnda. Áður höfðu
embættismenn staðfest að símar
frönsku og þýzku sendinefndanna
hefðu verið hleraðir.
að baki þessum hlerunartilraun-
um, en háttsettir embættismenn í
Brussel sögðu ekkert hafa komið
fram sem gæfi ástæðu til að full-
yrða neitt um það.
„Ég neita því að við höfum
fundið út úr því hver sé ábyrgur
fyrir þessu, hvort það voru
Bandaríkjamenn, Rússar, Kín-
verjar, eða einhverjir aðrir. Við
höfum sett rannsókn í gang,“
hafði AFP eftir ónafngreindum
embættismanni ráðherraráðsins.
„Rannsóknin stendur enn yfir en
ÖRYGGISÞJÓNUSTUMENN í
höfuðstöðvum Evrópusambands-
ins greindu frá því í gær, að ólög-
legur símahlerunarbúnaður hefði
fundizt í herbergjum nokkurra
sendinefnda í aðalbyggingu ráð-
herraráðs sambandsins í Brussel,
þ.á m. Frakklands og Þýzkalands.
Sérboðaður leiðtogafundur ESB
fer fram í byggingunni í dag og á
morgun, þar sem Íraksmálið verð-
ur efst á baugi.
Í franska blaðinu Le Figaro var
fullyrt að Bandaríkjamenn stæðu
Hlerað í höfuðstöðvum ESB
Brussel. AFP.
„Í FYRRADAG tókst á milli 50 og 100
almennum stjórnarhermönnum úr
íraska hernum að komast yfir til okk-
ar. Þeir voru heppnir því stuttu áður
höfðu nokkrir íraskir hermenn reynt
að flýja yfir en íraski herinn skaut á þá
á flóttanum og sendi síðan þyrlur á eft-
ir þeim til þess að skjóta þá niður. Þeir
voru allir drepnir. Þeir skjóta umsvifa-
laust á þá sem hlaupast undan merkj-
um,“ sagði bróðir Tishk T. Karim
Mahmood í samtali við Morgunblaðið
en Tishk er frá Kúrdistan í Norður-
Írak og hefur lengi búið hér á Íslandi.
Þeir bræður segja almenna íraska
hermenn engan áhuga hafa á að berj-
ast fyrir Saddam Hussein, þeir muni
gefast upp við fyrsta tækifæri.
Skjóta um-
svifalaust
á liðhlaupa
Elta uppi og skjóta/4
SKRIÐDREKAR Bandaríkjahers
stefndu í gær að landamærum
Íraks en meginþorri herliðs
Bandaríkjanna og Bretlands er í
Kúveit, við því búinn að ráðast á
Írak. Miklir liðsflutningar stóðu
yfir í allan gærdag, þrátt fyrir
sandstorm í eyðimörkinni á
landamærum Íraks og Kúveits.
Sögðu talsmenn Bandaríkjahers
að átján íraskir hermenn hefðu
þegar gefist upp við landamæri
Íraks og Kúveits.
Líklegt þykir að á fyrstu tveim-
ur sólarhringunum muni sprengj-
um verða látið rigna á skotmörk í
Írak, einkum höfuðstöðvar Lýð-
veldisvarðarins, sérsveita Sadd-
ams Husseins Íraksforseta, loft-
varnir Íraka og helstu samskipta-
stöðvar.
AP
Miklir liðsflutningar við landamærin