Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 61
Morgunblaðið/Alfons Finnsson Bátsverjarnir af Röstinni sem björguðust í gær, Gestur Már Gunnarsson og Bergsveinn Gestsson, móðurbróðir hans, við komuna á Rif á áttunda tímanum í gærkvöldi. „ÞETTA er minn stærsti dagur á loðnu- vertíð og er ég búinn að vera í þessu frá árinu 1966,“ sagði Helgi Jóhannsson, skipstjóri á loðnuskipinu Siku, við Morg- unblaðið en hann bjargaði tveimur báts- verjum af Röst SH-134, sem sökk á svip- stundu úti fyrir Svörtuloftum á Snæfellsnesi síðdegis í gær. Mennina sak- aði ekki og kom björgunarskipið Björg til móts við Siku og flutti þá til hafnar á Rifi. Bátsverjarnir, sem eru frændur frá Stykkishólmi, voru í skýrslutökum hjá lögreglunni í Ólafsvík fram eftir kvöldi og samtal náðist ekki við þá af þeim sök- um. Er þeir komu í land á Rifi sögðu þeir fréttaritara Morgunblaðsins að þeir hefðu verið á leiðinni með Röst til Reykjavíkur, þegar óhappið varð, þar sem búið var að selja trilluna þangað. Röst var 30 tonna trébátur, smíðaður hér á landi fyrir þremur áratugum. Loðnuskipið Siku bjargaði bátsverjunum af Röst SH úr sjávarháska „Minn stærsti dagur á loðnuvertíð“  Mannbjörg/12 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga OPINBER heimsókn forseta Íslands, Ólafs Ragn- ars Grímssonar, til Slóveníu hófst í höfuðborg landsins, Ljúbljana, í gær. Var forseta og fylgd- arliði hans vel tekið, en Íslendingar urðu meðal fyrstu þjóða heims til að viðurkenna sjálfstæði Slóveníu árið 1991. Ólafur Ragnar og heitkona hans, Dorrit Moussaieff, skoðuðu m.a. miðbæ Ljúbljana í gær í fylgd Peters Krecic, forstjóra Arkitektúrsafnsins. Þjóðirnar tvær eiga sitt hvað sameiginlegt, þar á meðal jarðhita, og eru fulltrúar frá íslenskum orkufyrirtækjum með í för til að kynna Slóvenum hvernig Íslendingar nýta jarðhita. Vonast forseti Íslands til að viðræður orkufyrirtækjanna og slóv- enskra stjórnvalda verði til þess að skapa grund- völl að samvinnu í framtíðinni. Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir Opinber heim- sókn forseta til Slóveníu hafin  Slóvenía/6 GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra sagði á blaðamannafundi í gær að oft væri kvartað yfir að skattleysismörk væru of lág á Ís- landi. Sú fullyrðing stæðist hins vegar ekki nánari skoðun því skattleysismörk væru óvíða hærri en hér á landi. Miðað við tölur OECD frá árinu 2000, væru skattleysismörk á Ís- landi mun hærri en á hinum Norð- urlöndunum, Bretlandi og flestum Evrópulöndum. Þannig byrjuðu Svíar að greiða skatta þegar tekjur þeirra hefðu náð 6.000 krónum íslenskum, en Íslending- ar þegar tekjurnar næðu 6.000 sænskum krónum eða um 60.000 íslenskum. Munurinn væri tífald- ur miðað við árið 2000. Skattleys- ismörk á Íslandi hefðu síðan hækkað enn fram til ársins 2003 líkt og sést á meðfylgjandi töflu. Meðalskattbyrði hjóna hvað lægst á Íslandi Geir sagði að há skattleysis- mörk og hóflegir tekjuskattar yllu því að íslenskar fjölskyldur greiddu lágt hlutfall tekna sinna í tekjuskatta. Einnig yrði að taka tillit til þess að til viðbótar við tekjuskatta greiddu einstaklingar í mörgum OECD-ríkjum ákveðið gjald af launum sínum til al- mannatrygginga, sem þekktist ekki hér á landi. Þau gjöld væru þegar inni í skatthlutfallinu og al- mannatryggingar greiddar af fjárlögum. Meðalskattbyrði hjóna með tvö börn í OECD-ríkjunum miðað við meðaltekjur árið 2001 væri hvað minnst á Íslandi. Hlutfallið hér er innan við 15% en tæplega 40% hjá dönsku meðalhjónunum.  Skattbyrði/Miðopna 5(E!"# -F//.* &'.. ?7.* .= //.* .* :7+,% 6+.* ...* .* .*G          (.7//%=.*% 3'# <4(, ( Skattleysismörk eru hvað hæst á Íslandi STJÓRN SPRON barst í gær til- kynning um væntanlegt framboð og krafa um hlutbundna kosningu, þ.e. listakosningu, til stjórnar sparisjóðsins frá Pétri Blöndal. Pétur segir að með framboðinu sé verið að gæta hagsmuna stofnfjár- eigenda. Viljum að stofnfjáreigendur geti fengið sanngjarnt verð „Við sem að þessu stöndum vilj- um að stofnfjáreigendur geti fengið sanngjarnt verð fyrir stofnfé sitt, eins og vonir stóðu til á síðasta sumri, en þær vonir rættust ekki. Við erum að bjóða upp á valkost, svo stofnfjáreigendur geti valið nýja menn í stjórn. Það er auðvitað ekki nema eðlilegur þáttur í lýð- ræðinu. Hvati að þessu framboði eru símhringingar og tölvuskeyti frá fjölda stofnfjáreigenda,“ segir Pétur. Að sögn Jóns G. Tómassonar, stjórnarformanns SPRON, er þetta í fyrsta skiptið í rúmlega 70 ára sögu sparisjóðsins sem þetta gerist. Hann segir að gert sé ráð fyrir þessum möguleika bæði í lög- um og reglum SPRON og því muni þessi kosning fara fram. Snýst um framtíð sparisjóðsins Aðalfundur SPRON verður haldinn næstkomandi miðvikudag. Jón segir að stjórn SPRON hafi vitað af því að til hafi staðið að fram kæmi ósk um hlutbundna kosningu til stjórnar sjóðsins, og því hafi stjórnin verið búin að und- irbúa lista sem boðinn verður fram til stjórnarkjörs. Listinn sé boðinn fram með fulltingi stjórnarinnar og starfsmannafélagsins. Á listan- um eru: Jón G. Tómasson, Hildur Petersen, Árni Þór Sigurðsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ari Bergmann Einarsson. Jón segir að stjórn SPRON telji að þetta mál snúist um framtíð sparisjóðsins og sjálfstæða starf- semi hans og framþróun á kom- andi árum. Vöxtur og góð arðsemi af slíkum rekstri sé besta trygg- ingin sem stofnfjáreigendur fái fyrir góðum arði. Stjórnin muni gera tillögu um það á aðalfund- inum í næstu viku að greiddur verði 18% arður af stofnfjárbréf- um, framreiknuðum, og auk þess 5% verðlagsuppfærsla sem sé heimilt samkvæmt lögum. Raun- ávöxtun verði því samtals 23%, verði tillaga stjórnarinnar sam- þykkt. Jafnframt hafi verið unnið að því að kanna möguleika á verð- mætaaukningu í viðskiptum með stofnfjárbréf, en stjórnin vilji fara að réttum lögum í því efni. Tveir listar í kjöri til stjórnar SPRONÁRNI Kristjánsson,píanóleikari og fyrr-verandi tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, er lát- inn, 96 ára að aldri. Árni fæddist á Grund í Eyjafirði 17. desember 1906 og stundaði tónlistarnám í Berlín og Kaupmanna- höfn á árunum 1923 til 1932. Hann hóf kennslu við Tónlistar- skólann í Reykjavík árið 1933 og gegndi jafnframt stöðu skóla- stjóra skólans frá 1936 til 1956. Hann var aðstoðarskóla- stjóri frá 1956 til 1959 og var sama ár ráðinn tónlistarstjóri Ríkisút- varpsins. Gegndi hann því starfi til 1975. Á ferli sínum hélt Árni fjölda tón- leika hérlendis sem erlendis sem einleikari og kom einnig fram með öðrum tónlistarmönnum. Þá hljóð- ritaði hann mikið af píanóleik sínum fyrir útvarp og lék inn á eina hljóm- plötu. Árni gegndi fjölda annarra starfa og sat m.a. í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Bandalags íslenskra listamanna. Þá stofnaði hann Fé- lag íslenskra tónlistar- manna og var formað- ur félagsins um skeið. Hann sinnti einnig ritstörfum og annaðist m.a. útgáfu á verkum Matthíasar Jochums- sonar. Þá liggur eftir hann ritgerðasafnið Hvað ertu tónlist, sem kom út 1986. Einnig þýddi hann og skrifaði bækur um öndvegistón- skáld, nú síðast bók um Beethoven, sem kom út á síðasta ári. Árni hlaut margskonar viðurkenningar fyrir störf sín og var m.a. sæmdur hinni íslensku fálkaorðu þrívegis. Eftirlifandi eiginkona Árna er Anna Guðrún Steingrímsdóttir. Þau eignuðust þrjú börn og eru tvö þeirra á lífi. Árni Kristjánsson píanóleikari látinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.