Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 35 FASTEIGNASALAN GIMLI – GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 • FAX 570 4810 TRAUST ÞJÓNUSTA Í 20 ÁR ÁRNI STEFÁNSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR GIMLI GIMLI SÉRHÆÐIR SILUNGAKVÍSL- SÉRHÆÐ Í TVÍ- BÝLI Vorum að fá í sölu gullfallega 153,6 fm efri sérhæð í tvíbýli með aukarými í kjallara (stórt svefnherb., baðherb. og þvottahús í kjallara) og 31 fm bílskúr. Stofa og borðstofa, arinn í stofu. Sérlega rúm- góð svefnherbergi. Upptekin loft. Glæsilegt útsýni. Áhv. húsbr. og byggsj. 4,2 millj. Verð 20,3 millj. 4RA HERBERGJA GALTALIND - LAUS STRAX Vorum að fá í einkasölu 4ra herb. alls 106,9 fm endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli. Tvennar svalir. Fallegt útsýni. Lyklar á Gimli. Áhv. 5 millj. húsbr. Verð 14,9 millj. ÞINGHÓLSBRAUT - KÓPAV. Nýtt á skrá. Vel skipulögð 63 fm risíbúð í tvíbýli á þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherbergi og stofa. Búið er að endurn. ofna og ofna- lagnir ásamt rafmagnstöflu. Kubbaparket og flísar á gólfi. Verð 9,9 millj. Áhv. 6,5 millj. STÓRARGERÐI - LAUS STRAX Nýtt á skrá. Falleg og mikið endurnýjuð 106 fm 4ra herb. endaíbúð með glæsilegu út- sýni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og stór stofa. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting í eldhúsi og parket á öll- um gólfum nema eldh. Búið er að endurn. járn á þaki ásamt gler í íbúð. Verð 13,1 millj. Áhv. 4,5 millj. LYKLAR Á GIMLI. 3JA HERB. NJÖRVASUND + BÍLSKÚR LAUS STRAX Nýtt á skrá. 89 fm íbúð með sérinngangi auk 28 fm bílskúrs. Innan íbúðar eru 3 svefnherbergi og stofa. Búið er að endurn. ofnalagnir, járn á þaki. 10 ára gamalt. Verð 11,6 millj. KLAPPARSTÍGUR - LYFTUHÚS- NÆÐI Sérlega falleg og rúmgóð 3ja herb. íbúð á 3. h. í lyftuhúsnæði. Á gólfum eru fal- legar steinflísar og parket. Í heild sérlega falleg og rúmgóð íb. í húsi byggðu 1992. Húsvörður sér um allt daglegt viðhald á húsinu. Verð 16,8 millj. Áhv. 10,0 millj. KAUPENDALISTI GIMLI Höfum verið beðnir að útvega ákveðnum kaupendum eignir í eftirtöldum hverfum: Einbýli á Reykjavíkursvæðinu allt að kr. 35 millj. Vantar 2ja íbúða hús á stór-Reykja- víkursvæðinu. Verð allt 30,0 millj. Sérbýli í Kópavogi eða Garðabæ allt að kr. 25-30 millj., sérhæð, par/raðh. eða einb. Lágmark 110 fm í vesturbæ. Verð allt að 25,0 millj. Íbúð á svæði 104 eða 108. Verð allt að 14 millj. Raðhús á einni hæð í Árbæjarhverf- inu. Höfum fjölda kaupenda á skrá að öllum stærðum eigna. Vinsamlegast hafið samband við Grétar, Sveinbjörn eða Hákon. Hafðu samband, það kostar ekkert. SÍÐUSTU tólf ár hefur Sjálf- stæðisflokkurinn leitt ríkisstjórn undir styrkri forystu Davíðs Odds- sonar. Á þessum tólf árum hefur náðst gríðarlegur árangur á Ís- landi. Verðbólgan var beisluð og festa komin á ríkisfjármál. Ríkisstjórnin hefur hafið nýtt hagvaxtarskeið með mikilli upp- byggingu og niðurgreiðslu skulda. Kaupmáttur, eftir skatta, hefur aukist um þriðjung frá 1994, eða í níu ár samfleytt. Á þessum tíma hafa skattar og vextir lækkað og á móti hafa barnabætur og persónu- skattur hækkað og persónu- skatturinn nú að fullu millifær- anlegur milli hjóna. Hvernig er þetta hægt? Jú, með lágri verð- bólgu ár eftir ár skapast stöðug- leiki sem gerir það að verkum að hægt er að lækka álögur hins op- inbera. Hér á Íslandi er efnahags- legur stöðugleiki, eins og best ger- ist hjá þeim þjóðum sem við svo gjarnan berum okkur við. Til marks um þetta má sjá að erlend fyrirtæki sjá sér hag í að starfa hér á landi. En til hvers er þá verið að minn- ast á þetta, ef allt hefur verið svona gott? Jú, gallinn er sá að fólk á mínum aldri, fólk sem er að koma yfir sig þaki og hefur verið að vaxa úr grasi sl. tíu ár, man ekki eftir því hvernig var hér á Ís- landi þegar verðbólgan réð öllu. Þegar foreldrar minnar kynslóð- ar voru að hefja búskap var allt öðruvísi umhorfs hér á landi. Þá var Ísland ekki eitt af ríkustu löndum heims. Þá gat fólk ekki treyst á að afborganir skulda væru þær sömu mánuð eftir mánuð. Þá var ekki sá aðgangur að lánsfé sem er í dag. Frelsið var ekki það sama. Uppbyggingin á Íslandi sl. ár hefur verið gríðarlega hröð og mikil og það er í eðli okkar Íslend- inga að aðlagast fljótt og vel. Af þeim sökum finnst okkur að hlut- irnir hafi alltaf verið þarna, en svo er ekki. Það skiptir öllu máli að Sjálf- stæðisflokkurinn leiði næstu rík- isstjórn. Vinstristjórnir á Íslandi hafa alltaf verið dæmdar til að tapa. Engin þeirra hefur haldið út heilt kjörtímabil. Síðasta vinstri- stjórn rýrði lífskjör. Hækkun skatta, kaupmáttarskerðing, mikil verðbólga og sundrung voru ein- kenni þeirrar ríkisstjórnar. Þjóðin var mun fátækari þegar vinstri- stjórnin 1988–1991 var við völd. Þá voru tækifærin ekki þau sömu og í dag. Það á almennt við um vinstri- stjórnir á Íslandi að þær halda ekki eins vel um fjármálin, ríkisút- gjöldin aukast og samhliða hækka skattarnir. Af fréttum að dæma undanfarið, þegar verið er að blekkja almenning með því að hækkun skatta hafi átt sér stað í tíð núverandi ríkisstjórnar, mætti halda að fréttamenn væru ekki í sama veruleika og við hin. Og þeg- ar vinstrimenn tala um sömu „skattahækkanir“ mætti halda að þeir væru byrjaðir að gefa okkur vísbendingar um stöðuna eftir nokkur ár, komist þeir að. Þeir eru komnir fram úr sér. Lélegir spá- dómar það. Ég vara við því að vinstrimenn fái tækifæri. Ég vara jafnframt við því að þeim verði gefinn kostur á að taka frá þjóðinni þann ávinning sem ríkisstjórnir Davíðs Oddsson- ar hafa fært henni. Sjálfstæðisflokkurinn er kjöl- festan í íslenskum stjórnmálum. Tryggjum að svo verði áfram. „Tækifæri dagsins, draumar forfeðranna“ Eftir Ingvar P. Guðbjörnsson „Síðasta vinstristjórn rýrði lífs- kjör.“ Höfundur er frambjóðandi í 10. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi. GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.