Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 34 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ K æri Tony, Mig langaði til að skrifa þér lítið bréf, svona af því að í gær leit allt út fyrir að þið George mynduð gefa skipun um að árásin á Írak skyldi hafin í nótt sem leið. Mig langaði til að skrifa þér, Tony, því að þú hefur verið eitt- hvað svo grár og gugginn þessa síðustu dagana. Taldi að þú þyrftir kannski á uppörvun að halda. Ég veit að vísu ekki hvort má túlka þetta bréf mitt sem uppörvun; en þú mátt allavega vita að fjöldi fólks ber til þín traust og hefur á þér trú, hvað sem líður vandræðum þínum í þinginu sl. þriðjudag. Það sér auðvitað hver maður að atburðir lið- inna vikna hafa tekið á þig. Skyldi engan undra, það hefur jú verið sótt að þér úr öllum áttum og auk þess getur það varla verið létt verk að fyrirskipa hernaðaraðgerðir, sem vitað er að gætu kostað þúsundir manna lífið. Slíka ákvörðun tekur enginn maður með bros á vör, allra síst maður með jafnsterka siðferð- iskennd og þú. Ég segi nú bara; megi guð lofa að allt fari á besta veg, úr því sem komið er. Megi ykkur takast að ljúka þessu stríði á sem fæstum dögum og að mannfall verði eins lítið og kostur er. Gættu þó að því, að með þessu er ég ekki að segja að ég sé sam- mála ákvörðunum þínum. Ég er raunar sammála mörgu því sem Robin Cook, samstarfsmaður þinn til margra ára, sagði í þinginu á mánudagskvöld, þegar hann til- kynnti afsögn sína úr ríkisstjórn þinni. Ég einfaldlega hef miklar efasemdir um þetta stríð. Sá á hins vegar kvölina sem á völina, og ég er sannarlega feginn að vera ekki í þínum sporum, Tony minn. Eftir stendur hins vegar að ég ber virðingu fyrir þér og dóm- greind þinni. Þú hefur sýnt á þeim sex árum sem eru liðin síðan þú settist í stól forsætisráðherra að þú ert vel meinandi maður – ein- hvern veginn efast maður aldrei um að þinn „móralski kompás“ sé á réttum stað. Það er huggun harmi gegn að þú sért einn foringjanna í þessu stríði; eins gott að einhver sé til staðar til að halda aftur af og hafa vit fyrir stóra séffanum, hon- um George. Tony, þú komst sem ferskur andblær eftir stöðnunina sem ein- kenndi síðustu valdaár íhalds- manna. Fáir hafa gert meira til að ná samkomulagi milli stríðandi fylkinga á Norður-Írlandi en þú. Aðgerðirnar sem þú fyrirskipaðir ásamt Bill, hinum bandaríska, í Kosovo voru umdeilanlegri, en þú mátt vita að ég er meðal þeirra sem tel þig þar hafa breytt rétt við erfiðar kringumstæður. Það breytir þó ekki því að eng- inn hugsandi maður stendur við hliðarlínuna og fagnar því er ráða- menn valdamestu ríkja heims ákveða að efna til stríðs. Þetta veit ég að þú skilur. Þú hefur líka borið tilhlýðilega virðingu fyrir þeim sem eru ósammála stefnu þinni; sannarlega er ekki hægt að gagn- rýna þig fyrir að hafa ekki rætt málið við þjóð þína og fyrir að hafa ekki reynt að sannfæra hana um nauðsyn hernaðaríhlutunar. Þú hefur að vísu kosið að taka kúrs í andstöðu við afstöðu meginþorra almennings, en um það snýst víst forysta í stjórnmálum; að þora að leiða, í stað þess að elta. Vona bara að þú hafir rétt fyrir þér. Því miður er ekki hægt að segja það sama um ráðamenn í mínu eig- in landi og um þig; ákvörðun þeirra um stuðning við áform Bandaríkj- anna datt af himnum ofan sl. þriðjudag. Hversu réttmæt sem afstaða þeirra er þá hefðu þeir gjarnan mátt eiga meiri díalóg við þjóð sína um þessi mál. En ég ætlaði ekki að tala við þig um Davíð og Halldór. Ég ætlaði að segja þér að ég trúi því sannarlega að þú teljir þig vera að gera hið eina rétta í þeirri stöðu sem nú er komin upp. Ég þarf ekki að vera sammála þér, en ég ber allavega virðingu fyrir því að fyrir þessu hefur þú sannfæringu. Að þú hafir hag allra íbúa heims- ins þrátt fyrir allt í fyrirrúmi. Hið sama get ég ekki sagt um vin þinn, hann George. Mér finnst George alls ekki hafa farið fram í Íraksmálunum – eða öðrum mál- um – með þeim hætti að maður geti borið til hans mikið traust. Eiginlega er ég stundum bara svo- lítið hræddur við George. Ég veit það á við um fleiri. Ég þarf ekki að segja þér, þú veist það eins vel og ég, að það er djúpt á vantraustinu sem fjöldi fólks ber til George. Sjálfsagt ertu sammála mér um að það eitt, að stór hluti íbúa heimsins treystir ekki forseta valdamesta ríkis heimsins, er slæmt. Einkum og sér í lagi þegar hann er nýbúinn að til- kynna um stríð eins og það sem nú er að hefjast. Slíkur maður verður að njóta trausts. Ég skil auðvitað að árásin 11. september 2001 sitji enn í Banda- ríkjamönnum. En sjálfum finnst mér eins og þeir búi til rök til að ná fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Þeir hafa til dæmis – til að réttlæta aðgerðir gegn Írak – reynt að tengja saman Írak og al-Qaeda, samtökin sem stóðu fyrir árás- unum 11. september, en ekki verið sannfærandi í þeim málflutningi. Ég heyrði Robin Cook líka lýsa þeirri skoðun að þú hefðir aldrei þurft að lenda í þeirri stöðu sem þú ert nú, að þurfa að senda unga, breska menn í stríð, ef Al Gore hefði verið dæmdur sigur í forseta- kosningunum í Bandaríkjunum haustið 2000. Að við værum ekki á leið í stríð ef Bush hefði ekki orðið forseti. En skítt með Al Gore, ef aðeins þú, kæri Tony, værir leiðtogi hins frjálsa heims, en ekki George! Nema hvað. Allt framansagt ætti auðvitað að skýra hvers vegna fólk eins og ég leggur allt sitt traust á þig, minn kæri Tony. Þú verður að hafa hemil á George, þú verður að tryggja að þetta fari ekki allt til fjandans. Ábyrgð þín er mikil. Ég vona að þú standir undir henni. Ég treysti á þig, Tony Það er huggun harmi gegn að þú sért einn foringjanna í þessu stríði; eins gott að einhver sé til staðar til að halda aft- ur af og hafa vit fyrir stóra séffanum, honum George. VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ÞAÐ dylst víst engum hve staða Íslands í umheiminum hefur gjör- breyst á einum áratug eða svo. Al- þjóðavæðingin er á hvers manns vör og hún snertir alla þætti þjóð- lífsins. Þar vega þó mest viðskiptin, efnahagsleg undirstaða þjóðfélags sem flytur meira út af framleiðslu sinni en flestar aðrar þjóðir. Þátt- taka okkar í alþjóðavæðingunni í efnahagslegu tilliti hefur tekist vel vegna þess að það fór saman, að EES-samningurinn kom til fram- kvæmda og mörkuð var alhliða heillavænleg stefna í efnahagsmál- um. Pólitískur og efnahagslegur stöðugleiki voru forsenda aðgerða, sem hafa leyst þjóðfélagslegan kraft úr læðingi í opnu alþjóðlegu umhverfi með þátttöku í frjálsum innri markaði ESB að undirstöðu. Að mörgu hefur þurft að gæta á skömmum tíma og hér skal vikið að miklum breytingum og þróun utan- ríkisþjónustunnar í ráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar sl. tvö kjör- tímabil. Tilefni skrifa minna eru ósanngjörn ummæli um uppbygg- inguna og störfin í utanríkisþjón- ustunni, sem stundum heyrast. Má þar taka sem dæmi orð sem féllu í sjónvarpsþætti í sl. viku hjá þeim Guðmundi G. Þórarinssyni, verk- fræðingi og fyrrv. alþingismanni, og Jóni Magnússyni, lögmanni. Þó senn fari að fjúka yfir spor mín á þeim vettvangi, stendur utanríkis- þjónustan mér nærri og því fer fjarri að ég vilji að ósanngjarnri gagnrýni í garð ráðuneytisins eða ráðherrans sé látið ósvarað. Guð- mund hef ég þekkt lengi og á ekki von á að deila við hann um augljós hagsmunamál. Jón, sem ég þekki ekki, hef ég heyrt manna best út- skýra í sjónvarpi að landslög hafi breyst alfarið til mesta batnaðar við innleiðingu allra EES-gjörninga fjórfrelsisins. Ég hefði því haldið, að lögmaðurinn fagnaði því líka að kollegar mínir á sendiráðinu í Brussel og ráðuneytið og þá ekki síður fulltrúar annarra ráðuneyta og ríkisstofnana hafa í EES-málinu lyft grettistaki í þjóðarhag. Þetta langstærsta sendiráð okkar er að sjálfsögðu kostnaðarsamt og vona ég að menn sjái að þar er fé vel varið. Þegar Halldór Ásgrímsson tók við þessu ráðherrastarfi fyrir átta árum, erfði hann þær vanrækslu- syndir að frá þeim tíma að ég kom í utanríkisþjónustuna, einum þrjátíu árum áður, höfðu verið opnaðar sendiskrifstofur í lágmarki við al- þjóðastofnanir og eitt sendiráð, þ.e. í Kína. Það er fyrir það að þakka að nú eru allar fastanefndirnar við alþjóðastofnanirnar mannaðar með tilliti til þess að nýta aðild Íslands og gæta hagsmuna okkar. Horft er fram á við um að vinna að setu okkar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Og auðvitað þurfti að bæta við nýjum sendiráðum. Japan er í efnahagslegu tilliti annað stærsta land heims og stórmark- aður fyrir okkur. Tókýó er mjög dýr borg, ef ekki sú aldýrasta. Var það röng ákvörðun frá sjónarmiði hagkvæmni að bíta í það súra epli og kaupa þetta fokdýra sendiráð í stað þess að borga himinháa húsa- leigu? Það má þá alltaf selja fast- eignina og taka hinn kostinn. Og ætla að umræddur 300 fm móttöku- salur á nýja sendiráðinu í Berlín verði ekki kærkomin aðstaða til að kynna útflutning, ferðaþjónustu og íslenska list. Ég vona bara að þarna verði góður flygill. Án þess að gera úttekt á þeim málum öllum vil ég fullvissa fólk um, að það er líka rétt hagsmunagæsla að vera með virka sendiráðsstarfsemi í Helsinki og Ottawa, svo dæmi séu nefnd. Það er einfaldlega í fleiri horn að líta og við því var brugðist. Það getur verið að ég hafi mis- skilið eitthvað í umræddri sjón- varpsumræðu, en ég held þó, að því hafi verið haldið fram, að þessi um- svif okkar gætu sem mest farið fram í tölvupóstsamskiptum. Mitt hugmyndaflug nær ekki til þess að skilja hvernig slíkar sendingar frá óþekktu fólki ættu að ná til við- bragða réttra aðila og hafni ekki í einhverri bréfakörfu. Hitt er svo annað og meira mál, að íslenska ut- anríkisþjónustan stenst trúlega mæta vel allan samanburð í sam- bærilegri notkun tölvutækninnar, þ.m.t. í svokölluðum bréflausum samskiptum með gríðarlegri mið- lægri skjalavistun, fjarfundatækni og heimasíðurekstri. Varðandi það síðastnefnda verður það þá að fá að flakka með, að þegar við hófum þá starfsemi í Washington og skrá- settum iceland.org voru þá aðeins eitt eða tvö önnur sendiráð þar með heimasíður, sem eru ótrúlega öflugur upplýsingagjafi. Breytingar og stækkun utanrík- isþjónustunnar hefur verið með þeim hætti að þessi störf eru með ólíkindum afkastameiri og skilvirk- ari en fyrr. En þó þetta kosti í heild vissulega mikið fé, og þá sér- staklega þegar um dýrar fjárfest- ingar er að ræða, er kostnaðurinn við utanríkisþjónustuna þó ekki umfram það 1% af heildarútgjöld- um á fjárlögum, sem mig minnir að verið hafi fyrr í tíðinni. Þá má væntanlega segja að utanríkisþjón- ustan fylgi eðlilega í vexti þjóð- félagsins. Halldór Ásgrímsson hefur gegnt starfi utanríkisráðherra lengur en nokkur starfsbræðra hans í Evrópu eða Norður-Ameríku og staðið dyggilega vörð um hagsmunamál Íslands. Á hans vakt hefur utanrík- isþjónustan verið í góðum höndum með að geta svarað kalli nýs tíma. Utanríkisþjónustan á breyttum tímum Eftir Einar Benediktsson „Breytingar og stækkun utanríkis- þjónust- unnar hefur verið með þeim hætti að þessi störf eru með ólíkindum afkastameiri og skilvirkari en fyrr.“ Höfundur er fv. sendiherra. NÚ stendur yfir undirskrifta- söfnun gegn lögleiðingu fíkniefna, hið þarfasta framtak sem vonandi nær til tugþúsunda í landi okkar þar sem viti borið fólk lætur í ljós ótvíræðan vilja sinn til að sporna við þeim ókjörum. Raunar spyr maður sig að því, hvort hennar sé virkilega þörf, hvort heilbrigð skynsemi og heilbrigð lífssýn geti verið svo á flæðiskeri stödd hjá einhverjum, að þeim detti slík lög- leiðing í hug, en svarið því miður það, að ótrúlega margir virðast ganga með öll skilningarvit harð- frosin gagnvart afleiðingunum. Einfeldningsleg rökin um ofsa- gróða fíkniefnasala og að betra sé að hafa þetta uppi á borðinu og í dagsljósinu og því eigi undan að láta eru svo fráleit, að maður freistast stundum til að halda að annarlegir hagsmunir séu að baki. Ef við yfirfærum þetta á annað með sömu fráleitu fullyrðingunum þá ættu auðvitað engar lagatak- markanir að vera til, engar haml- andi aðgerðir gegn hvers konar af- brotum s.s. ölvunarakstri og raun- ar sjálfsagt að hafa bara engin lög í landi sem takmarka „athafna- frelsi“ fólks. Sú undraröksemd er notuð enn einu sinni og er svo sem alþekkt í svo mörgum málum, að af því að eitthvað er vandamál og enginn neitar því og af því að of margir lenda í skelfilegum málum út af brotum á löggjöfinni að ógleymdri sjálfri neyzlunni, þá sé bara bezt að gefa öllu lausan tauminn og láta undan vandamálunum í stað þess að snúast gegn þeim og freista þess að vinna bug á þeim. Málið er aðeins það að tilslökun- in, „frelsið“, leiðir aðeins af sér margföldun vandamálanna og um slíkt eru ótalin dæmi eða þykir mönnum ekki sem vandinn sé nógu stór eða hvað? Hamlandi aðgerðir, vandað laga- umhverfi eru nefnilega helzt til halds þegar snúast þarf gegn vanda sem þeim, er af fíkniefn- unum stafar og vissulega er nú þegar ægilegur. Það var t.d. athyglisvert í vand- aðri alþjóðlegri rannsókn sem ný- lega var birt um fjölda þeirra sem falla í valinn árlega af völdum vímuefna, þar sem tóbakið er mik- ilvirkast örlagavalda, en áfengið fylgir í humáttina, að þar kemur fram sú athyglisverða staðreynd að hamlandi aðgerðir m.a. varð- andi aðgengi hafi meiri áhrif til góðs en fræðslu- og forvarnarstarf og er þó engan veginn gjört lítið úr því. Ekki síður mundi þetta eiga við um hin ólöglegu fíkniefni enda væri löggjafinn með lögleiðingu þeirra að lýsa því yfir að neyzla þeirra væri sjálfsögð og beina þeim skilaboðum alveg sér í lagi til unga fólksins sem enn er þá á mót- unarskeiði að fyllsta velþóknun löggjafans fylgi þar með. Bindindissamtökin IOGT lýsa yfir fullum og óskoruðum stuðn- ingi við þessa þörfu undirskrifta- söfnun og skora á almenning að sýna óþurftaröflunum vilja þjóð- arinnar í þessum efnum. Látið eindreginn vilja í ljós með undirskrift ykkar og stuðlið þann- ig að skilaboðum til þeirra sem ráða að láta í engu að vilja þeirra sem hyggjast beina æskunni á braut fíkniefna, því bak við fag- urgala „frelsis“hjals þeirra býr fláttskapurinn einn. Látið vilja ykkar í ljós Eftir Helga Seljan „Látið ein- dreginn vilja í ljós með undirskrift ykkar.“ Höfundur situr í stjórn IOGT á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.