Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ólafur Jónas Sig-urðsson verk- stjóri fæddist í Reykjavík 8. nóvem- ber 1934. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. mars 2003. Foreldrar hans voru Esther Helga Ólafsdóttir, f. 30. september 1900, d. 16. desember 1973, og Sigurður Pétur Guðbjartsson bryti, f. 10. desember 1900, d. 29. ágúst 1959, þau voru ættuð frá Þing- eyri og Hrauni á Ingjaldssandi. Systkini Ólafs eru: 1) Lára Inga, f. 11. júlí 1922, d. 12. febrúar 2003. 2) Bára, f. 1. mars 1928, d. 31. maí 1982. 3) Halldóra, f. 24. mars 1936. 4) Jónas, f. 4. ágúst 1937. 5) Helga, f. 11. nóvember 1940. Hinn 6. mars 1954 kvæntist Ólaf- ur Jónas eftirlifandi eiginkonu sinni Auði Gunnarsdóttur, f. 20. nóvember 1934. Foreldrar hennar voru Gunnar Kristinsson, f. 23. september 1913, d. 11. janúar 1982, og Svanhildur Guðmundsdóttir, f. 4. apríl 1912, d. 28. apríl 1996. Börn 1960, dætur þeirra eru Halla Guðný, f. 15. nóvember 1981, Elísa- bet Helga, f. 6. febrúar 1990, og Ólafía Auður, f. 6. janúar 1998. 5) Esther Helga fulltrúi hjá Europay, f. 31. mars 1964, maki Georg Sverr- isson, f. 9. nóvember 1956, börn þeirra eru Viktor Þór, f. 10. desem- ber 1987, Sverrir Ólafur, f. 30. mars 1994, og Eva Björg, f. 2. maí 1996. 6) Gunnar Guðmundur, starfsmað- ur Kassagerðarinnar, f. 15. septem- ber 1965, dóttir hans fyrir hjóna- band er Tinna Líf, f. 27. ágúst 1987, maki Linda Hilmarsdóttir, f. 2. des- ember 1967, dætur þeirra eru Auð- ur Kristín, f. 9. nóvember 1993, Melkorka Mist, f. 23. júlí 1995, Alexandra Aagot, f. 23. júlí 1995, d. 23. júlí 1995, Ísabel Diljá, f. 24. júní 1998, og Alexandra Von, f. 4. apríl 2001. Ólafur Jónas ólst upp í Reykjavík og fór ungur að árum að vinna sem léttadrengur og messi á farþega- skipinu Heklu við hlið föður síns. Í átta ár vann hann við útkeyrslu og lagerstörf hjá heildsölunni Skjald- berg. Í nóvember 1961 hóf hann störf hjá Kassagerð Reykjavíkur, fyrst við útkeyrslu og lagerstörf og síðan sem verkstjóri. Hann lét þar af störfum 31. desember 2001 vegna aldurs eftir 40 ára starf. Útför Ólafs verður gerð frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ólafs og Auðar eru: 1) Svanhildur María, skólastjóri Korpu- skóla, f. 13. desember 1953, maki Eðvarð Ingólfsson, f. 26. júní 1950, synir þeirra eru A) Sigmar Þór, f. 26. mars 1972, sambýlis- kona Margrét Frið- riksdóttir, f. 16. ágúst 1972, dætur þeirra eru Aðalheiður María, f. 3. september 1991, og Emelía Rán, f. 24. október 1994. B) Ólaf- ur Páll, f. 24. júlí 1978. 2) Sigurður Pétur, fjárgæslumaður hjá Landsvirkjun, f. 13. mars 1956, maki Agnes Steinarsdóttir, f. 9. febrúar 1959, börn þeirra eru Arn- ór, f. 13. október 1979, Ólafur Jón- as, f. 26. september 1982, og Sig- urbjörg, f. 21. ágúst 1986. 3) Lára Inga, bókari hjá Flugfélaginu Atl- anta, f. 8. júlí 1960, maki Ólafur Bjarni Pétursson, f. 22. apríl 1959, börn þeirra eru Ómar Örn, f. 26. mars 1980, og Auður, f. 9. október 1982. 4) Björg Sigrún, skólaritari Korpuskóla, f. 11. mars 1962, maki Erlendur Traustason, f. 16. apríl Elsku pabbi, það er sárt að sitja hér og skrifa um þig minningargrein. Þessa dagana hefðir þú átt að vera með okkur öllum og mömmu að standsetja nýju íbúðina sem þið mamma fluttuð í laugardaginn 8. mars sl. Þú hlakkaðir svo til að flytja og eyða síðustu æviárunum við hlið mömmu og við báðum öll og vonuðum að slíkt gæti orðið að þið fengjuð a.m.k. tíu ár saman í friði og ró frá vinnu og amstri hversdagsins. En þú varst orðinn veikari en nokkurt okkar vildi trúa enda deyja pabbar ekki. Í mínum huga ert þú þó ekki farinn frá okkur heldur aðeins fluttur á annað tilverustig þar sem þú heldur áfram að fylgjast með okkur, styrkja og vernda ásamt ömmu Löllu, Bubbu og öllum hinum sem farin eru. Minningarnar hrannast upp, bæði þær sem ég man sjálf og einnig það sem þið mamma sögðuð okkur. Þið kynntust ung, 16 ára, en þá fór mamma í skemmtiferð með farþega- skipinu Heklu þar sem þú varst að vinna sem messi. Það varð ást við fyrstu sýn og alla tíð síðan. Þú sagðir oft bæði við mömmu og okkur að þú værir alveg jafnástfanginn af henni og fyrst þegar þú hittir hana. Þið vor- uð óaðskiljanleg og samhent í öllu sem þið tókuð ykkur fyrir hendur, sjálfum ykkur nóg og þurftuð á eng- um öðrum að halda. Það hefur verið yndislegt og lærdómsríkt að fylgjast með ást ykkar og hvernig þið hafið gefið af henni til barna, tengdabarna, ættingja og vina. Saman áttuð þið ást, þolinmæði og kraft sem birtist í óþreytandi um- hyggju og aðstoð ykkar við bæði börn, tengdabörn, barnabörn, barna- barnabörn og foreldra ykkar áður en þeir dóu og síðast en ekki síst í aðstoð ykkar og umhyggju fyrir „gömlun- um“ í Fellsmúlanum, ömmu Löllu og Bubbu, allt þar til þær fóru yfir móð- una miklu. Saman fóruð þið og „göml- urnar“ í leikhús, út að borða, í styttri ferðalög og bíltúra og skemmtuð ykk- ur mjög vel. Allt þetta tölduð þið al- veg sjálfsagt og ekki þakkarvert, það væri hluti af lífinu að við mannfólkið hugsuðum hvert um annað á óeigin- gjarnan hátt. Það varð stutt á milli ykkar systk- inanna, þín og ömmu Löllu, aðeins mánuður. Þið hafið alla tíð verið óað- skiljanleg, annaðhvort hist eða talað daglega saman í síma, en mér finnst nú að þið hefðuð getað sleppt því að deyja saman líka, en það er mín eig- ingirni. Ég veit og trúi að bæði amma Lalla og Bubba ásamt öðrum ættingj- um hugsa vel um þig hinum megin á Þrastarstíg 9. Við hin hérna megin höfum fundið fyrir ykkur síðustu daga á margvíslegan hátt og vitum að þið eruð með okkur og styrkið okkur og verndið. Við systkinin, tengda- börn, barnabörn og barnabarnabörn höfum myndað skjaldborg um mömmu og munum vernda hana, styrkja og elska eins og þú hefðir gert og gerir enn. Þín dóttir Svanhildur. Elsku pabbi minn, nú kveð ég þig með sárum söknuði. Mér var það mik- ils virði og forréttindi að fá að kynnast þér. Þessar síðustu stundir sem við áttum með þér voru ljúfsárar og eru þær geymdar í hjarta mínu um alla framtíð en jafnframt voru þessar stundir okkur öllum huggun í sorg- inni, að fá að vera hjá þér og kveðja þig. Hvíl þú í friði, minn elskulegi pabbi. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Þín Björg Sigrún (Bubba). Elsku pabbi og afi. Í óvæntar stefnur oft örlögin venda, og örvænting grípur þá mennina köld. Svo örskjótt um kvöld var þín ævi á enda, er örendur féllstu frá ástvinafjöld. Ég sit hérna einmana og syrgi þig hljóður, og sendi þér bæn þegar dagurinn dvín. Þú varst mér fjársjóður fagur og góður, faðir minn, ég sárt sakna þín. (Höf. ók.) Þinn sonur Gunnar Guðmundur Ólafsson og fjölskylda. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað.) Þessir síðustu dagar síðan tengda- pabbi kvaddi þennan heim hafa verið ákaflega erfiðir fyrir alla fjölskyld- una. Minningarnar hrannast upp og margs er að minnast. Ég kynntist Óla og Auði fyrir 26 árum, þá aðeins 17 ára gömul. Þegar ég hitti þau í fyrsta sinn fannst mér þau alltof ungleg til að eiga öll þessi börn. Ástæðan var nú reyndar sú að þau hittust aðeins sex- tán ára gömul og fóru snemma að koma sér upp fjölskyldu. Mér fannst þau alltaf svo ástfangin og ánægð með hvort annað. Allur þeirra frítími fór í það að vera samvistum við hvort annað og fjölskylduna – það var þeirra áhugamál, þau þurftu ekki meir. Óli þurfti alla tíð að vinna mikið til að framfleyta þessari stóru fjölskyldu og taldi það ekki eftir sér. Hann var ánægður ef nóg var að bíta og brenna og best leið honum þegar öll börnin og barnabörnin voru komin í kring um hann og hver talaði í kapp við ann- an. Þá átti hann nú til að sofna í stóln- um með allan hópinn í kringum sig og sagði að það væri svo gott að sofa við malið. Ég var ung þegar ég missti pabba minn og þegar ég kynntist þessari nýju fjölskyldu var mér tekið þannig að mér fannst ég hafa eignast nýjan pabba. Óli tók utan um mig og sagði hátt og skýrt að það þýddi ekkert fyr- ir hann Sigga að koma með aðra konu í fjölskylduna. Hann var alveg ein- staklega bóngóður og ekki var nú sagt nei við soninn ef hann þurfti að fá lánaðan bílinn til að heimsækja kær- ustuna. Stóru stundirnar í lífi Óla var að kalla alla fjölskylduna í mat um jól- in og naut hann sín þar við að elda og töfra fram dýrindis steikur sem hann var búinn að leggja alla sína alúð og metnað í að gera sem best. Hann var höfðingi heim að sækja og stóðu dyrn- ar ætíð opnar fyrir gesti. Ein jólin lenti hann í því að kaupa kjöt sem reyndist alls ekki gott. Hann var al- veg niðurbrotinn maður í langan tíma á eftir og jólin voru bara ónýt og tal- aði hann um þetta í mörg ár . Ég hef oft dáðst að því hve Óli og Auður voru samrýnd í öllu sem viðkom fjölskyld- unni. Þau höfðu mikinn metnað fyrir hönd barna og barnabarna og auðvelt var fyrir alla að koma til þeirra og ræða málin og segja frá sínum draumum því þau hvöttu alltaf við- komandi til að láta drauma sína ræt- ast og sögðu ætíð: – Þú uppskerð það sem þú sáir. Enda studdu þau við bakið á börnum sínum á meðan þau voru í skóla með því skilyrði að þau sýndu árangur. Heimili þeirra var opnað fyrir tengdabörnin og við öll látin finna hversu velkomin við vor- um. Það hefur verið erfitt að horfa á Óla svona mikið veikan þessar síðustu vikur og við héldum alltaf í vonina um að hann myndi ná heilsu og komast í nýju íbúðina þar sem þau hjónin ætl- uðu að eyða saman ævikvöldinu. Þau voru búin að hlakka til þess tíma í mörg ár. Óli barðist þessi síðustu ár við ýmsa sjúkdóma og oft voru erfiðir tímar en lífsviljinn var mikill og þrjóskan en því miður verður stund- um ekki við neitt ráðið þrátt fyrir all- ar tækniframfarirnar. Elsku tengdamamma, börn og af- komendur, ég veit að þið eigið erfitt núna og það verður tómarúm hjá okk- ur öllum en við munum ylja okkur við góðar minningar um yndislegan eig- inmann, föður, afa og langafa og þökkum fyrir öll árin sem við fengum að vera samvistum við hann. Barnabörnin Arnór Bjarki, Ólafur Jónas og Sigurbjörg þakka besta afa í heimi fyrir allar samverustundirnar og kveðja afa með miklum söknuði. Agnes Steinarsdóttir. Nú er ljósið dagsins dvín, þótt dauðinn okkur skilji, mér finnst sem hlýja höndin þín hjarta mínu ylji. Myndin þín hún máist ei mér úr hug né hjarta. Hún á þar sæti uns ég dey og auðgar lífið bjarta. Þótt okkur finnist ævin tóm er ástvinirnir kveðja, minninganna mildu blóm mega hugann gleðja. (Ágúst Böðvarsson.) Í dag kveð ég elskulegan tengda- föður minn, Ólaf Jónas Sigurðsson, með söknuði og þakklæti fyrir allt sem líf hans gaf mér og fjölskyldu minni. Ég bið góðan Guð að vaka yfir tengdamóður minni og styrkja í hennar miklu sorg. Sofðu rótt, nafni minn. Ólafur Bjarni Pétursson. Óli, vinur minn og mágur, hefur kvatt þetta líf svo alltof, alltof fljótt og eftir sitjum við sorgmædd og ósátt. Erfið veikindi liðinna mánaða eru að baki en Óli hafði verið á sjúkrahúsi að mestu síðan um áramót. Hann var svo duglegur, ætlaði sannarlega að vinna þessa lotu eins og hinar fyrri en því miður tókst það ekki. Alla leguna var sama æðruleysið og allan tímann sama hugsunin, að komast aftur heim. Óli og Auður höfðu nýlega flutt af Grýtubakkanum þar sem þau höfðu búið yfir 30 ár en Óli minn náði aldrei að flytja inn í nýju íbúðina, því miður. Þegar ég fyrst kom inn í fjöl- skyldu Óla var það heimili ykkar Auð- ar sem ég kom á. Þið tókuð svo vel á móti mér og ég fann hversu velkomin ég var, síðan þá eru liðin mörg ár en vinátta okkar hefur alltaf verið söm og allar stundir sem við höfum átt saman hafa verið gleðistundir. Við vorum svo heppin að eiga sam- an eina kvöldstund á heimili okkar nú fyrir stuttu er Óli fékk að fara heim um stund, það var yndislegt og núna finnst mér dálítið einkennilegt að svona lokaðist þessi hringur sameig- inlegra stunda í þessu lífi, fyrsta heimsókn mín til ykkar en síðasta heimsókn þín til okkar. Óli var vinur ÓLAFUR JÓNAS SIGURÐSSON Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HÓLMFRÍÐUR ÞORVALDSDÓTTIR aðalbókari, Arnartanga 17, Mosfellsbæ, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 18. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigvaldi Friðgeirsson, Þorvaldur Flemming Jensen, Solveig Barbro Asmussen, Ríkharður Flemming Jensen, Elva Björk Sigurðardóttir, Aðalsteinn Þór Guðmundsson, Hrönn Þorsteinsdóttir, Áróra Kristín Guðmundsdóttir og ömmubörn. Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HENNÝ DRÖFN ÓLAFSDÓTTIR, lést á heimili sínu mánudaginn 17. mars. Útför hennar fer fram frá Landakirkju laugar- daginn 22. mars kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Samtök gegn sjálfsvígum, reikningur nr. 314-26-59, kt. 690998-2707, í minningu sonar hennar, Sveins Péturs- sonar. Pétur Sveinsson, María Pétursdóttir, Aðalheiður Pétursdóttir, Friðjón Jónsson, Erla Björg Pétursdóttir, Þórey Guðmundsdóttir, Guðni Þór Pétursson, barnabörn, tengdamóðir og aðrir aðstandendur. Pétur Sveinsson María Pétursdóttir, Aðalheiður Pétursdóttir, Friðjón Jónsson, Erla Björg Pétursdóttir, Gísli Elíasson, Sigurður Freyr Pétursson, Þórey Guðmundsdóttir, Guðni Þór Pétursson, barnabörn, tengdamóðir og aðrir aðstandendur Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.