Morgunblaðið - 20.03.2003, Side 17
ÍRAKSDEILAN
16 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLIR vissu, að þessi dagur myndi
renna upp, en samt kom hann yfir
fólk eins og þjófur á nóttu. Fram að
þessu hafði allt verið einhvern veg-
inn svo óeðlilega eðlilegt en það
breyttist síðastliðinn þriðjudag. Ótt-
inn lýsti skyndilega úr hverju andliti,
fólk horfði með skelfingu fram á veg-
inn og velti því fyrir sér hvernig því
myndi reiða af, hvort það kæmist lífs
af úr hildarleiknum.
„Úrslitakostir Bandaríkjamanna
eru fáránlegir,“ sagði Ahmad Hass-
an er hann vann að því að tæma
dekkjaverslunina sína til að varn-
ingnum yrði ekki stolið í skjóli stríðs-
átaka. „Þeir vissu, að það var ekki
hægt að verða við þeim. Þeir vildu
bara stríð.“
Þungum vélbyssum hefur verið
komið fyrir víða í Bagdad, við stjórn-
arbyggingar og í sandpokavirkjum,
og daglega fara þar fram mótmæla-
göngur, sem stjórnarflokkurinn,
Baath-flokkurinn, hefur skipulagt.
Stærsta gangan var í Mansour-
hverfinu en þar eru flest erlendu
sendiráðanna og heimili margra
frammámanna í flokknum. Ungt fólk
með Kalashnikov-riffla í hendi og
miðaldra og gamlar konur með
skammbyssu á lofti kyrjuðu yfirlýs-
ingar um, að þau myndu fórna lífi
sínu fyrir Saddam. „Já, við munum
berjast,“ sagði Aliya Ali, tæplega
fimmtug kona, sem mætt var með
Tamöru, 10 ára gamla dótturdóttur
sína.
Vilja frið
Margar göngur af þessu tagi hafa
verið farnar á síðustu vikum en
gangan í Mansour-hverfinu var
óvenjuleg að því leyti, að nú vissi fólk
að stundin var að renna upp.
Mohammed Fayak, tæplega sex-
tugur maður, var með Kalashnikov-
riffil, sem hann hefur átt frá því hann
var 19 ára og notaði í Persaflóastríð-
inu fyrsta, milli Íraka og Írana.
Kvaðst hann ætla að nota hann aftur
til að verja landið en lagði um leið
áherslu á, að hann vildi frið, „ekki
bara fyrir okkur, heldur allan heim-
inn“.
Þessar yfirlýsingar benda ekki til,
að fólk leggi mikinn trúnað á það,
sem George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði um bjarta framtíð Íraks að
stríði loknu. Á móti kemur, að því er
ekki frjálst að segja hvað sem er, en
þegar Bush talar um að bola burt
„einræðisherranum“ og koma á lýð-
ræði í Írak heyrir fólk sprengjugný-
inn í fjarska. Bandaríkjamenn kunni
að hafa ýmsar ástæður fyrir barátt-
unni gegn Saddam, en velferð írasks
almennings sé ekki ein af þeim.
Því virðist almennt trúað í Írak, að
markmið Bandaríkjastjórnar séu
tvö: Að tryggja sér yfirráð yfir ol-
íunni og skipa málum í Miðaustur-
löndum með þeim hætti, sem henni
líkar best.
Sumir segjast ekki trúa því, sem
er að gerast. Hvernig í ósköpunum
geti staðið á því, að herveldi eins og
Bandaríkin skuli vilja ráðast á
þriðjaheimsríki í órafjarlægð með
það að yfirvarpi, að það eigi gereyð-
ingarvopn, sem ógni Bandaríkjun-
um?
„Ástæðan er stöðugt að breytast.
Nýjasta skilyrðið er, að forsetinn fari
úr landi,“ sagði gamall maður fyrir
utan verslun í Mansour. Hann hafði
keypt einn kálhaus og hafði áhyggjur
af því, að hann skemmdist ef raf-
magnið færi af borginni. „En það
skiptir kannski engu máli. Þeir munu
sprengja allt í tætlur hvort eð er.“
„Ég hata það, sem er svart“
„Ég hef ekki sofið í heila viku,“
segir listamaðurinn Maher Samarai
um leið og hann horfir yfir Tígris-
fljót frá Hawar-listasafninu. „Ég hef
áhyggjur af brúnum, húsunum, fal-
legu byggingunum, öllu því, sem hef-
ur verið byggt upp eftir 1991. Borgin
er eins og hvít dúfa og nú ætla B-52-
sprengjuflugvélarnar að koma og
sverta hana. Ég hata það, sem er
svart.“
Sjúkrahúsin rýmd
Breska ríkisútvarpið, BBC,
greindi frá því í gær að mikill viðbún-
aður væri á sjúkrahúsum í Bagdad.
Reynt væri að rýma sjúkradeildir til
að unnt yrði að taka við særðum. Þá
hermdu fréttir að nokkuð væri um að
ófrískar konur hefðu á undanliðnum
dögum farið fram á að börn þeirra
yrðu tekin með keisaraskurði til að
losna við að liggja á fæðingardeildum
þegar átökin hæfust.
Á milli draums og veruleika
Kvíði og ótti eru tilfinningarnar,
sem ráða ríkjum í Bagdad. Borgin er
eins og lömuð vegna yfirvofandi
árása og vegna 30 ára harðstjórnar
Baath-flokksins. Það hnussar hins
vegar í Samarai og vinum hans þegar
minnst er á yfirlýsingu Bush um að
„frelsunin“ sé í nánd. „Þeir ætla að
brenna allan skóginn til að ná ref-
inum. Það er mín skoðun,“ segir
Samarai.
Blaðamaðurinn Saad Hadi segir,
að Bagdad sé ekki eiginleg borg:
„Hún er einhvers staðar á milli
draums og veruleika. París og Lond-
on eru raunverulegar borgir en þeg-
ar minnst er á Bagdad kemur sagan
sjálf á móti okkur. Kannski þeir ætli
nú að bæta einhverju nýju við hana.“
„Þeir munu
sprengja
allt í tætlur“
LAT/Carolyn Cole
Fullorðnar konur lýstu yfir stuðningi sínum við Saddam Hussein í mótmælagöngu í Mansour-hverfinu í Bagdad.
Kvíði og ótti eru tilfinningarnar sem
ráða ríkjum í Bagdad og margir segj-
ast ekki trúa því sem er að gerast
LAT/Carolyn Cole
Eigandi leðurvöruverslunar í Bagdad býr sig undir stríðið með því að setja
límband á rúðurnar. Þá er minni hætta á, að glerið sópist um allt.
Bagdad. Los Angeles Times.
’ Þeir ætla aðbrenna allan skóginn
til að ná refinum. ‘
YFIRMAÐUR leyniþjónustu
bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins, DIA, segir að líkur séu á því að
margir íraskir hermenn gefist upp
fljótlega eftir að stríð hefst í Írak
þar sem ýmislegt bendi til þess að
einn viðamesti „sálfræðihernaður“
sögunnar hafi borið tilætlaðan ár-
angur.
„Við erum undir það búnir að her
Íraks veiti harða mótspyrnu og
verði skipulegur í aðgerðum sín-
um,“ sagði Lowell E. Jacoby, yfir-
maður DIA. „Það eru samt mjög
raunverulegar líkur á því að mót-
spyrnan snarminnki fljótlega eftir
að stríðið hefst.“
Bandaríkjaher hefur útvarpað
áróðri gegn stjórn Saddams Huss-
eins og varpað niður 14 milljónum
dreifirita yfir sunnanvert Írak til að
hvetja íraska hermenn til að berjast
ekki fyrir „spillta“ stjórn Saddams.
Þeir hafa einnig verið hvattir til
þess að beita ekki sýkla- eða efna-
vopnum og kveikja ekki í olíulindum
og varaðir við því að þeir kunni að
verða saksóttir gerist þeir sekir um
stríðsglæpi.
Bandarískar flugvélar vörpuðu
niður 360.000 dreifiritum í fyrradag
eftir að George W. Bush Banda-
ríkjaforseti flutti sjónvarpsávarp
þar sem hann hvatti íraska her-
menn til að veita ekki mótspyrnu og
sagði að þeir myndu fá „skýrar leið-
beiningar“ frá Bandaríkjaher um
hvað þeir þyrftu að gera til að kom-
ast hjá því að ráðist yrði á þá.
„Ekki hægt að knýja
fram hollustu“
Jacoby sagði líklegt að þessi
skilaboð hefðu áhrif á framgöngu
hermannanna í stríðinu. Reynslan
af einræðisstjórnum sýndi einnig að
fólk væri ekki tilbúið að fórna lífi
sínu fyrir þær þegar á reyndi. „Það
kemur að þeim tímapunkti að fólk
hættir að hræðast stjórnina og
harðstjórana og bregst við nýjum
aðstæðum, vegna þess að það er
ekki hægt að knýja fram hollustu,“
sagði Jacoby. „Það er hægt að
knýja fram undanlátssemi, en ekki
hollustu.“
Embættismenn í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu segja að
íraskar hersveitir, þeirra á meðal
sex deildir Lýðveldisvarðarins, úr-
valssveita Írakshers, hafi farið úr
herstöðvum sínum og dreift sér um
Írak. „Þeir eru að reyna að komast
klakklaust í gegnum fyrstu árás-
ina,“ sagði einn embættismann-
anna.
Komið hafa fram vísbendingar,
sem hafa m.a. fengist með símahler-
unum og tölvunjósnum, um að sál-
fræðihernaðurinn hafi dregið kjark
úr hermönnum og írösku yfirstétt-
inni, að sögn leyniþjónustumanna.
Þeir skírskotuðu einnig til frétta í
breskum fjölmiðlum um að nokkrir
íraskir hermenn hefðu farið yfir
landamærin til að gefa sig á vald
breskum hermönnum í Kúveit en
þeir hafi verið sendir aftur til Íraks.
Bandarísku embættismennirnir
segja þó að ekki hafi komið fram
neinar ótvíræðar vísbendingar um
að heilu hersveitirnar séu að búa sig
undir að gefast upp.
Jacoby sagði að Íraksher legði
mesta áherslu á að efla loftvarnirn-
ar í Bagdad og nágrenni og búist
væri við því að dyggustu stuðnings-
mönnum Saddams í hernum yrði
falið að verja höfuðborgina.
Ekki eru taldar miklar líkur á því
að Íraksher geti skotið niður banda-
rískar herflugvélar þar sem loft-
varnavopn þeirra eru orðin úrelt.
Flugmennirnar þurfa þó að fljúga
vélunum hátt yfir Bagdad og það
gæti orðið til þess að sprengjuárásir
þeirra yrðu ekki eins nákvæmar og
ella. Loftvarnir Íraka gætu einnig
orðið til þess að Bandaríkjaher
forðaðist að láta þyrlur fljúga lágt
yfir Bagdad, þannig að erfitt yrði að
veita hermönnum sem berjast í
borginni stuðning úr lofti.
Líkur á að íraskir her-
menn gefist fljótlega upp
Sálfræðihernaðurinn sagður bera tilætlaðan árangur
Washington. The Washington Post.
’ Það er hægt að knýja fram
undanlátssemi
en ekki hollustu. ‘
Reuters
Íraskir hermenn í Bagdad lýsa stuðningi við Saddam Hussein.