Morgunblaðið - 20.03.2003, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.03.2003, Qupperneq 18
ÍRAKSDEILAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 17 Með byltingarkenndri tvíþættri tækni, sem sótt hefur verið um einkaleyfi* á, eykur Expandex™ formúla fyrirferð augnháranna - gerir þau allt að 300% þykkari. Speed-Meter Brush™ sveigjuburstinn, straumlínulagaður og undralipur, rennir sér í augnhárabeygjurnar með ofurskammt af lit. Formúla eitt fyrir ótrúleg augnhár. Svartur, brúnn, blár og fjólublár. *Í Bandaríkjunum og á heimsvísu. Þykk augnhár á ofurhraða Nýtt: MagnaScopic Maximum Volume Mascara Kringlunni, snyrtivörudeild, sími 568 9300 Hagkaup Spönginni, Smáralind og Akureyri. Estée Lauder ráðgjafi verður í Hagkaup Kringlunni fimmtudag kl. 13-18, föstudag kl. 13-18 og laugardag kl. 12-16. MÉR FINNST skrítið og yfir því einhver óraunveruleiki að vera hér í Miðausturlöndum þessa mánuð- ina. Í nálægð við grimmdarlegt og vandlega skipulagt stríð, sem er eins og öll stríð háð undir fölskum formerkjum. Sagt að það eigi að reka harðstjóra frá völdum og koma í veg fyrir að veröldin farist vegna þeirra gereyðingarvopna, sem Saddam Hussein hefur falið einhvers staðar í eyðimörkinni sinni. Og til að koma á lýðræði í Miðausturlöndum. „Ég sé nýtt blómaskeið renna upp,“ var haft eftir Cheney og Bush og ég verð að viðurkenna, að það fór ekkert minna en hrollur um mig í hlýjunni hér. Það hefur ekki borið mikið á lýðræðisást þeirra félaga í aðdraganda þessa stríðs þar sem menn munu deyja og almennir borgarar lenda á flótta og börn bíða skaða af á sál og lík- ama. Og svo á ég að lýsa „stemmn- ingunni“ við þessar aðstæður og þá verður maður hreinlega kjaftstopp. „Stríð milli tveggja vondra manna“ „Þetta er stríð milli tveggja vondra manna, Bush og Saddams,“ sagði sýrlenskur kunningi minn, sem ég ræddi við í síma á miðviku- dag til að spyrja hann um stemmn- inguna þar í landi. Hann sagði, að andrúmsloftið hefði snöggbreyst í Sýrlandi síðustu vikuna, fram að þeim tíma hefði almenningur virst mjög tregur til að trúa því að átök- in skyllu á. Nú virtist stríð óum- flýjanlegt og hann sagði, að loft væri lævi blandið í Sýrlandi og út- lendingar væru greinilega smeykir og lítið á ferli. Ekki sagðist hann þó halda að ástæða væri til að ótt- ast að á þá yrði ráðist enda hefði lögregla og her viðbúnað og væru áberandi hvarvetna. „Það virðast allir heilvita menn þeirrar skoðunar að hætta sé á að hryðjuverk verði framin í Banda- ríkjunum og Bretlandi þegar stríð- ið hefst. Hvernig getur Bush for- seti þá sagt, að hann sé að fara í þetta stríð til að tryggja öryggi Bandaríkjanna og allra friðelskandi þjóða? Og hvernig stendur á því að forsvarsmenn stríðsins blaðra sí- fellt um lýðræðisástina og nauðsyn á því að koma á lýðræði í Írak og helst öllum Miðausturlöndum – og þessir sömu menn eru að blása til orrustu án þess að hafa pólitískan meirihluta í neinum alþjóðastofn- unum og meirihluti jarðarbúa er andvígur. Svoleiðis lýðræði er skrítið í laginu.“ Eitthvað á þessa leið segja menn hér í Óman, í Sýrlandi og Jórdaníu og eru hálfpartinn búnir að sætta sig við, að stríðið sé í þann veginn að skella á. Það er engin „panik“ eða tryllingur í fólkinu á þessu svæði, það veit að það hefur ekkert um þetta að segja og hvaða rökum sem það beitir eru þau jafnóðum vegin og léttvæg fundin – ef það er þá hlustað á þessar raddir. Bush Bandaríkjaforseti ætti að hafa þjáðst af krónískum hiksta lengi en það umtal er blávatn mið- að við það, sem menn segja um hann þessa dagana í Miðaustur- löndum. Og mönnum verður varla láð það. Að stofna til stríðs á þeim sérstæðu og vafasömu forsendum, sem þeir höfðingjarnir gefa sér, er að margra mati algerlega ófyrir- gefanlegt og forkastanlegt. „Brjálaður trúar- ofstækismaður“ „Svo er Bush að tala um trúarof- stækismenn múslima og sjálfur er hann ekkert annað en brjálaður, kristinn trúarofstækismaður. Hann talar eins og hann hafi fengið vitr- un frá guði og ég hef heyrt að hann telji sig ræða við guð sinn áður en hann fer að sofa á kvöldin og guð hafi sagt honum að frelsa heim- inn,“ sagði ómanskur, opinber starfsmaður og almennt bæta menn gjarnan við, að tal Banda- ríkjaforseta sé oft svo einfeldnis- legt og beri vott um svo mikinn skort á almennum vitsmunum, að það sé ógurlegt að maður á slíku stigi hafi öll þessi völd. Óttast afleiðingar stríðsins Kannski er gremjan ekki lengur mest vegna þessa yfirvofandi stríðs, segja menn. Að sumu leyti er kannski eins gott að þetta ger- ist. En það, sem fjölda margir eru uggandi um, er hversu mikið skort- ir á að hjálpar- og mannúðarstarf hafi verið unnið eins og Banda- ríkjamenn hétu þó. Þótt Rauða kross-liðar og liðs- menn Rauða hálfmánans og ýmsar hjálparstofnanir hafi lagt nótt við dag undanfarið til að reisa búðir fyrir nokkur hundruð þúsunda flóttamanna við landamæri Íraks og Sýrlands, landamæri Íraks og Jórdaníu og í þriðja lagi við landamæri Íraks og Írans, þá stendur fjárskortur þeim fyrir þrif- um. Alls konar framlög, sem lofað hafði verið, meðal annars frá Bandaríkjunum, til að setja í þetta verk og önnur, sem lúta að eft- irstríðsaðgerðum, hafa ekki verið greidd. Hvað er svo næst á dagskrá, segja menn, Íran eða Sýrland. Afg- anistan er gleymt og þó er allt í fári þar. Ég held, að fáir trúi því í augnablikinu, að ekki verði haldið áfram í krossferðinni. Svo byrjar stríðið bráðum og stemmningin hér á svæðinu – hvernig er hún? Vonleysi. Óend- anlegt vonleysi og djúp hryggð. Vonleysi og djúp hryggð Reuters Írakar brenna brúðu í líki Bush Bandaríkjaforseta í Bagdad. Almenningur í araba- ríkjunum skilur ekki röksemdirnar fyrir árás á Írak, segir Jóhanna Kristjónsdóttir, sem nú er í Óman. Segir hún, að margir líti sömu augum á Bush Bandaríkja- forseta og múslímska trúarofstækismenn. ANDSTÆÐINGAR stríðs í Írak sátu í gær um embætt- isbústað Johns Howards, for- sætisráðherra Ástralíu, til að mótmæla þeirri ákvörðun hans að um 2.000 ástralskir hermenn tækju þátt í hernaðinum gegn stjórn Saddams Husseins. Grænfriðungar lokuðu aðal- inngangi forsætisráðherrabú- staðarins í Canberra með því að hlekkja sig við hlið og bíla. Howard varð því að fara út bak- dyramegin til að komast í þing- húsið sem er nálægt bústað hans. Forsætisráðherrann reiddist þegar mótmælendurn- ir komu í veg fyrir að hann gæti notað bíl sinn og sagði við einn þeirra: „Ég hef rétt á að hafa skoðun eins og þú.“ Um 70% Ástrala eru andvíg stríði í Írak án stuðnings ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna og Howard hefur sætt harðri gagnrýni stjórnarandstæðinga á þinginu fyrir að verða við beiðni Bandaríkjastjórnar um að leggja til herlið. Stjórnar- andstaðan segir að þetta sé í fyrsta sinn sem Ástralar taki þátt í „árásarstríði“ gegn landi sem hefur ekki ráðist á þá eða bandamenn þeirra. Ástralía Setið um bústað for- sætisráð- herrans Sydney. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.