Morgunblaðið - 20.03.2003, Qupperneq 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLABRAUT Flensborgar-
skóla var opnuð með formlegum
hætti sl. laugardag en frá áramót-
um hafa fjórtán nemendur stundað
nám við hana. Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra var við-
staddur opnunina og kynnti sér
starfsemina. Hann opnaði m.a. fjöl-
miðlaver nemenda í fjölmiðlatækni
og frétta- og upplýsingavef fjöl-
miðlabrautarinnar: www.gaflari.is.
Þá undirrituðu Lúðvík Geirsson
bæjarstjóri og Einar Birgir Stein-
þórsson skólameistari samning á
milli Hafnarfjarðarbæjar og Flens-
borgarskóla um útvarpssendingar
frá bæjarstjórnarfundum en fund-
irnir eru sendir út á tíðninni fm
96,2. Mun fjölmiðlabrautin hafa
umsjón með útsendingunum.
Skólinn var opinn gestum og
gangandi á laugardag og fjölmarg-
ir lögðu leið sína þangað. Í
kennslustofum voru kennarar með
margvíslegar kynningar. Þá söng
kór skólans og leiklistarfélagið var
með uppákomu. Deginum lauk með
verðlaunaafhendingu í Stærð-
fræðikeppni grunnskólanna.
Að sögn Einars Birgis Steinþórs-
sonar skólameistara er venjan sú
að nemendur skólans taki þriggja
anna grunnnám og að því loknu
geta þeir valið um nokkur sérsvið.
Fjölmiðlun er eitt þessara sérsviða
og tekur eina önn miðað við fullt
nám. Þá er gert ráð fyrir að nem-
endur á fjölmiðlabraut taki eitt ár í
starfsþjálfun. Til viðbótar geta
nemendur bætt við sig völdum ein-
ingum og lokið þannig stúdents-
prófi.
Sjónvarpsútsend-
ingar innan tíðar
Einar Birgir segir að í framtíð-
inni verði væntanlega opnað á að
nemendur geti bætt við sig frekara
námi á brautinni að lokinni fjórðu
önn án þess að fara í starfsnám.
Hann segir viðbrögð nemenda
við hinni nýju fjölmiðlabraut vera
ákaflega góð. Auk þess sem nem-
endur sjá um að reka fréttavef og
útvarpsstöð er fyrirhugað að hefja
sjónvarpsútsendingar á næstunni.
„Við reiknum með að við getum
farið að sjónvarpa innan ekki svo
langs tíma,“ segir Einar Birgir.
Tækjakostur sjónvarpsstöðvar
skólans mun byggjast á grunni
gömlu Almiðlunar í Hafnarfirði.
„Við fengum mikið af tækjum og
búnaði þaðan,“ segir skólameistari.
Nemendur sjá um rekstur
fréttavefjar og útvarps
Morgunblaðið/Kristinn
Fjórtán krakkar hafa stundað nám við fjölmiðladeild Flensborgarskóla frá
áramótum þrátt fyrir að hún hafi fyrst verið tekin formlega í notkun sl.
laugardag. Hér eru það Sigrún Björg Aradóttir, Hlynur Hrafn Hallbjörns-
son, Unnar Örn Ólafsson, Marteinn Einarsson og Sunna Elín Sigurðar-
dóttir sem reyna sig sem fjölmiðlafólk.
Hafnarfjörður
Fjölmiðlabraut Flensborgarskóla formlega opnuð
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson borg-
arfulltrúi vonast til að hægt verði að
grafa upp fornminjar af botni Elliða-
vatns. Hann lagði tillögu fyrir Skipu-
lags- og bygginganefnd um málið í
síðustu viku fyrir hönd sjálfstæðis-
manna sem var samþykkt og var
henni vísað til menningarmálanefnd-
ar til nánari skoðunar.
Fornminjar, sem taldar eru frá
árinu 900 og benda til þinghalds, hafa
áður fundist á Þingnesi við Elliða-
vatn. Minjarnar voru rannsakaðar
fyrst árið 1841 af Jónasi Hallgríms-
syni, skáldi, og síðast árið 1984 af
Þjóðminjasafninu.
Samkvæmt Sögu Reykjavíkur – í
þúsund ár er talið að Kjalarnesþing
hafi verið á Þingnesi. Þar kemur einn-
ig fram að Kjalarnesþing hafi líklega
verið háð fram á 10. öld eða lengur
samkvæmt síðustu rannsóknum.
Í máli Guðlaugs Þórs vegna götu-
nafna í Norðlingaholti kom fram að
uppgröftur á vegum Þjóðminjasafns
Íslands hafi hafist árið 1981. Þá voru
greindar 15–18 búðir á yfirborðinu og
fleiri eftir að gröftur byrjaði. Þær eru
flestar sambærilegar rústum á öðrum
þingstöðum en talið er að elstu hlutar
þeirra séu frá árinu 900 en staðurinn
hafi verið í notkun til ársins 1200.
Alþingi undirbúið á Þingnesi
Guðlaugur segir að margt bendi til
þess að undirbúningur að stofnun Al-
þingis hafi verið á Þingnesi og þar af
leiðandi megi halda því fram að vagga
þingræðis á Íslandi sé á Þingnesi.
Starfsmenn á vegum Þjóðminja-
safnsins skoðuðu fornminjarnar síð-
ast árið 1984 en í framhaldi af því fór
staðurinn undir Elliðavatn.
Guðlaugur vonast til að hægt verði
að grafa upp fornminjarnar og gera
þær aðgengilegar almenningi. Ljóst
er þó að eigi að leita fornminjanna er
nauðsynlegt að lækka vatnsyfirborð-
Elliðavatns. „Ég tel það mikilvægt að
við höldum í heiðri sögu okkar og
menningu og ef þessar heimildir sem
ég hef leitast við að kynna mér eru
réttar þá erum við hér inni á höfuð-
borgarsvæðinu með stórmerkar
minjar og mjög merkilegar útfrá sögu
þjóðarinnar og lýðræðisins,“ sagði
Guðlaugur Þór.
Fornminjar á
botni Elliðavatns
grafnar upp?
Elliðavatn
GUÐMUNDUR Liljar Pálsson og
Björn Ágústsson voru önnum kafnir
við það á þriðjudag að höggva til
grjót í bæjarhlið á Seltjarnarnesi á
bæjarmörkunum við Eiðsgranda.
Þeir eiga ærið verk fyrir höndum því
til stendur að hlaða upp grjótgarð á
mörkum Seltjarnarness og Reykja-
víkur en fyrst þarf að höggva til ís-
lenskt grágrýti í hann.
Í spjalli við blaðamann sagði Guð-
mundur að hann áætlaði að hleðslan
tæki um mánuð og átti hann von á að
fleiri hendur kæmu til hjálpar þegar
líða færi á. Umhverfis grjótgarðinn
verða grasbrekkur og þar sem hann
verður hæstur mun svo blasa við
upplýst skilti sem á stendur Sel-
tjarnarnesbær stórum stöfum. Það
er fyrirtækið Björn og Guðni, skrúð-
garðyrkjumeistarar, sem innir verk-
ið af hendi fyrir Seltjarnarnesbæ.
Morgunblaðið/RAX
Grágrýti höggvið í hlaðið bæjarhlið
Seltjarnarnes
REISBÍLAR ehf. hafa sótt um leyfi
til að reka akstursbraut fyrir körtu-
bíla að Lyngási í Garðabæ. Bæjarráð
gerir ekki athugasemdir við umsókn-
ina en sýslumaðurinn í Hafnarfirði
óskaði eftir umsögn þess um málið.
Reisbílar hafa rekið körtubraut í
Njarðvík síðan í júlí árið 2000 og segir
í umsókninni að engin slys hafi orðið á
fólki á þeim körtum sem þar eru
boðnar til leigu.
Vilja setja upp
körtubraut
Garðabær
FRÁVEITUÚTRÁS frá Sjávargötu í
Bessastaðahreppi hefur farið í sund-
ur undir grjótgarðinum norðan hverf-
isins. Fram kemur á heimasíðu sveit-
arfélagsins að verið sé að undirbúa
viðgerð og endurbætur og verður
verkið unnið á næstunni. Segir að
opna þurfi grjótgarðinn og leggja
nýja lögn undir hann, auk þess sem
tengingar á lögninni innan við garð-
inn verði bættar með fjölgun brunna.
Lögn frá
Sjávargötu
í sundur
Bessastaðahreppur
www.forval.is
Kynning á sumarlitunum
15%
kynningarafsáttur IÐUFELLI
föstudaginn 21. mars
!
" #
$ !% &
!
!
'
(! !
"!
#*+,
-
!!#
!
).#!'
.!
!! "
# $
% &' $
()
/01 2
#
/03
/04 ('25
6$'
/78 +$ !6
!! #"!# /8 *#
"!
/0 *#"!.#
9815::)8;5::
'
(#
!
'
6
"!!.
!
.