Morgunblaðið - 20.03.2003, Page 44
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 43
Myndatextar víxluðust
Myndatextar víxluðust á tveimur
myndum með grein Braga Ásgeirs-
sonar, Skyndisýn af Færeyjum, í
blaðinu í gær. Réttir textar fylgja
hér myndunum. Beðist er velvirðing-
ar á þessu.
Hannað af Álfasteini
Vegna fréttar í blaðinu á þriðju-
dag um gjafir í tengslum við undir-
skrift álsamninga á Reyðarfirði skal
það leiðrétt að steinlistaverkið sem
Fjarðabyggð gaf Alcoa var hannað
af öllu starfsfólki Álfasteins ehf. en
ekki Pétri Erni Hjaltasyni einum.
Beðist er velvirðingar á þessu mis-
hermi.
Zakarías Heinesen: Mjørki.
Bárður Jákupsson: Grjótljóð I.
LEIÐRÉTT
Fyrirlestraröð um fötlunarrann-
sóknir Vilborg Jóhannsdóttir, lekt-
or við Kennaraháskóla Íslands, flyt-
ur erindið Aukin gæði þjónustu:
Þróun mælikvarða á árangur í fé-
lagslegri þjónustu við fólk með fötl-
un, föstudaginn 21. mars kl. 12–13, í
stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands og
er hann öllum opinn. Erindið er
byggt á niðurstöðum starfendarann-
sóknar sem unnin var á árunum
1999 – 2001. Megintilgangur hennar
var að draga fram lykilþætti við mat
á gæðum þjónustu. Í því samhengi
var sjónum beint að sjálfsmati í fé-
lagslegri þjónustu við fólk með fötl-
un og um leið starfsvettvangi rann-
sakanda.
Aðstandendur sósíalíska frétta-
blaðsins Militant standa að mál-
fundi á morgun, föstudaginn 21.
mars kl. 17.30, í Pathfinder bóksöl-
unni Skólavörðustsíg 6 b (bakvið).
Yfirskrift fundarins er: Allt herlið
heim strax! – Stöðvið árás heims-
valdasinna á fullveldi Íraks.
Á MORGUN
Guðrún G. Bergmann heldur
námskeið fyrir konur síðustu
helgina í mars. Námskeiðið kallar
hún „Gerðu það bara“ og fjallar
um leiðir til árangurs í lífi kvenna
og ber sama heiti og bók sem kom
út eftir Guðrúnu fyrir síðustu jól.
Námskeiðið verður haldið í Gisti-
heimilinu Brekkubæ á Hellnum,
þar sem þátttakendur gista í
tveggja manna herbergjum með
baði meðan á dvöl þeirra stendur.
Á námskeiðinu er fjallað um ásætt-
anleikann, kannaðir möguleikar til
breytinga og skoðað hvað það er
sem heldur konum í viðjum vanans
o.fl. Skráning á námskeiðið er á
gudrun@hellnar.is en nánari upp-
lýsingar er að fá á www.hellnar.is.
Námskeið í ljósmyndun fyrir
byrjendur og lengra komna verð-
ur haldið í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi helgina 5. og 6. apríl,
kl. 13–17 báða dagana. Farið verð-
ur í aðalatriðin í myndatöku og
mynduppbyggingu og kennt að
nota myndavélina og alla fylgihlut-
ina. Auk þess verður farið í grunn-
atriðin í ljósmyndatækninni. Leið-
beinandi á námskeiðinu er Pálmi
Guðmundsson. Skráning og allar
nánari upplýsingar er hægt að fá á
vefsíðunni www.ljosmyndari.is.
Stjórnendaskóli Háskólans í
Reykjavík stendur fyrir námskeið-
inu „Verðmat fyrirtækja og hluta-
bréfa“. Hvernig hámarka stjórn-
endur virði fyrirtækis síns? Fjallað
er um þá þætti sem skipta mestu
máli varðandi verðmat á fyr-
irtækjum og hlutabréfum. Nám-
skeiðið er ætlað stjórnendum, end-
urskoðendum, sérfræðingum,
lögfræðingum og ráðgjöfum. Leið-
beinandi á námskeiðinu er Sig-
urður Erlingsson, forstöðumaður
alþjóðaviðskipta hjá Landsbanka
Íslands. Námskeiðið fer fram í Há-
skólanum í Reykjavík, 3. hæð,
þriðjudaginn 25. mars kl. 8.30
–12.30. Hámarksfjöldi þátttakenda
er 15 manns. Skráning á nám-
skeiðið fer fram í síma eða á vef-
setri Stjórnendaskóla HR,
www.stjornendaskoli.is.
Á NÆSTUNNI
Nýr vefur um stjórnmál Í gær,
miðvikudag, var opnað nýtt vefsvæði
um stjórnmál og kosningar á slóð-
inni www.stjornmal.net. Á vefsvæð-
inu er kosningakerfi þar sem hægt
er að skoða niðurstöður skoð-
anakannana og sjá hvernig flokkar
og framboð koma út. Þá er hægt að
sjá hvaða frambjóðendur ná sæti
samkvæmt hverri könnun og hverjir
eru næstir inn. Einnig geta not-
endur sett inn sínar eigin tölur og
látið kerfið reikna út niðurstöður
kosninga samkvæmt þeim.
Á vefsvæðinu verður m.a hægt að
kynna sér stefnu og málflutning
framboðanna, m.a. kosningastefnu-
skrá allra flokka, upplýsingar um
frambjóðendur og áherslur þeirra í
kosningabaráttunni.
Í fréttatilkynningu segir að þver-
pólitískur hópur fólks sem hefur
áhuga á stjórnmálum og kosningum
standi að baki Stjórnmál.net.
Ungliðaþing VG á Akureyri verður
haldið helgina 21.–23. mars. Brottför
verður frá Reykajvík, föstudaginn
21. mars kl. 17. Móttaka verður í
kosningamiðstöð VG á Akureyri,
Hafnarstræti 94 kl. 23 á föstudags-
kvöld. Steingrímur J. Sigfússon tek-
ur á móti gestum og kynnir dagskrá
helgarinnar. Á laugardag hefst dag-
skrá kl. 10 með kynnisferð í Háskól-
ann á Akureyri. Frambjóðenda-
fundur ungliða verður í kosninga-
miðstöð VG. Erindi halda: Kolbeinn
Óttarsson Proppé, 1. sæti í Suður-
kjördæmi, Þórey Edda Elísdóttir, 2.
sæti í Suðvesturkjördæmi, Hlynur
Hallsson, 3. sæti í Norðaustur-
kjördæmi og Drífa Snædal, 3. sæti í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Að
loknum erindum verða pallborðs-
umræður. Fundarstjóri: Katrín Jak-
obsdóttir, formaður UVG. Fyrirtæki
á Akureyri verða heimsótt og síðan
er sameiginlegur kvöldverður. Kl.
21.30 verða Tónleikar gegn stríði í
Ketilshúsi. Brottför til Reykjavíkur
verður kl. 11, sunnudaginn 23. mars.
Skráning í ferðir frá Reykjavík á
uvg@uvg.vg.
Frambjóðendur Framsókn-
arflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi, þau Magnús Stefánsson,
Kristinn H. Gunnarsson, Herdís Sæ-
mundardóttir og Eydís Líndal Finn-
bogadóttir, ásamt Guðna Ágústs-
syni, landbúnaðarráðherra og Siv
Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra
verða á Hvanneyri í dag, fimmtu-
daginn 20. mars. Þau munu m.a. fara
á vinnustaði. Þá verður haldinn
fundur í Félagsheimilinu Breiðablik
í Eyja- og Miklaholtshreppi kl. 14 í
dag. Fundurinn haldinn af Bún-
aðarsambandi Vesturlands.
Á morgun föstudagurinn 21. mars
kl. 20.30 opnar B listinn kosn-
ingaskrifstofu sína í Framsókn-
arhúsinu að Suðurgötu 3 Sauð-
árkróki. Frambjóðendur munu
ávarpa gesti. Léttar veitingar og
óvæntar uppákomur verða.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð heldur smiðju í dag, fimmtudag
kl. 20.30 að Ingólfsstræti 5. Yf-
irskrift hennar er: Menntun og
rannsóknir á Íslandi. Frummæl-
endur verða: Sverrir Jakobsson for-
maður Hagþenkis og Thuy Ngo
kennari. Allir velkomnir.
STJÓRNMÁL
Sími 545 1200 I Netfang: ns@ns.is I www.ns.is
Ísland og ESB
Neytendasamtökin efna til ráðstefnu um Ísland og Evrópusambandið og
hagsmuni neytenda í dag, fimmtudag kl. 13.00-16.30 á Grand Hótel
Reykjavík við Sigtún. Aðgangur er öllum opinn án endurgjalds og boðið
verður upp á kaffiveitingar. Ráðstefnan verður send út á heimasíðu
Neytendasamtakanna, www.ns.is.
Setning: Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Ávarp: Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstj. í viðskiptaráðuneytinu.
Hverju hefur Evrópusamvinnan skilað íslenskum neytendum?
Framsögumaður: Jón Magnússon hrl. og fyrrverandi
formaður Neytendasamtakanna.
Hver er framtíð EES í ljósi stækkunar Evrópusambandsins?
Framsögumaður: Árni Páll Árnason hdl.
Hver er staða neytenda í Evrópu framtíðarinnar?
Framsögumaður: Felix Cohen, forstjóri hollensku
neytendasamtakanna, Consumentenbond.
Hverju hefur Evrópusambandsaðild og upptaka evrunnar
breytt fyrir finnska neytendur?
Framsögumaður: Sinikka Turunen, forstjóri finnsku
neytendasamtakanna, Suomen Kuluttajaliitto.
Kaffihlé.
Matvælamarkaðurinn og neytendur – verð og vöruframboð,
hverju breytir Evrópusambandsaðild fyrir íslenska neytendur?
Framsögumaður: Ari Skúlason, hagfræðingur og
framkvæmdastjóri Aflvaka.
Fjármálamarkaðurinn og neytendur, hverju breytir
Evrópusambandsaðild fyrir íslenska neytendur?
Framsögumaður: Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Búnaðarbankans.
Niðurstöður skoðaðar með neytendagleraugum.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.
Ráðstefnustjóri: Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur.
Ráðstefna um
hagsmuni neytenda
G
A
R
Ð
A
R
G
U
Ð
JÓ
N
S
S
O
N
/
M
Á
T
T
U
R
IN
N
O
G
D
Ý
R
Ð
IN
0
3
.0
3
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PA
20
62
4
0
3/
20
03
www.spar.is
Fundarefni:
1. Sk‡rsla stjórnar um starfsemi Sparisjó›sins sí›astli›i›
starfsár.
2. Lag›ir fram endursko›a›ir reikningar Sparisjó›sins fyrir
sí›astli›i› reikningsár.
3. Tillaga um n‡jar samflykktir Sparisjó›sins.
4. Ákvör›un um grei›slu ar›s.
5. Kosning sparisjó›sstjórnar.
6. Kosning löggilts endursko›anda/ endursko›unarskrifstofu.
7. Ákvör›un um flóknun til stjórnar.
8. Önnur mál.
A›göngumi›ar a› fundinum ver›a afhentir stofnfjáreigendum í
afgrei›slu sparisjó›sins í Borgartúni 18 svo og á fundarsta› og
hefst afgrei›sla fleirra flar kl. 15:00.
Stjórnin.
A›alfundur
A›alfundur Sparisjó›s vélstjóra ver›ur haldinn föstudaginn
21. mars kl. 16.00 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 Reykjavík.