Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 46
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 45
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Verkstæði
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Áratuga reynsla tryggir gæðin
Allar viðgerðir á fjarskiptabúnaði
Setjum öll tæki í bílinn þinn
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
Sig
ur
ðu
rH
ar
ða
rso
n,
ra
fe
in
da
vir
ki
ALÞJÓÐLEGI barnaleikhúsdagur-
inn verður haldinn 20. mars í þriðja
sinn. Með honum er vakin athygli á
því miklvæga hlutverki sem leikhús-
ið hefur að gegna í lífi ungra áhorf-
enda og leikhúsfólks.
Alþjóðlegi barnaleikhúsdagurinn
er haldinn að frumkvæði ASSITEJ
International – alþjóðasamtaka um
barna- og unglingaleikhús. Með
samskiptaneti sem tengir saman
þúsundir leikhúsa og einstaklinga
um allan heim hvetur ASSITEJ leik-
húslistamenn sem vinna að leiksýn-
ingum fyrir börn og unglinga að slá
hvergi af listrænum kröfum í starfi
sínu. ASSITEJ leitast við að sam-
eina ólíka menningarheima og kyn-
þætti í baráttu fyrir friði, jafnrétti,
umburðarlyndi og menntun.
Í tilefni dagsins telja Samtök um
barna- og unglingaleikhús á Íslandi
(Íslandsdeild ASSITEJ) rétt að
vekja sérstaka athygli á þeim fjölda
barnaleiksýninga sem í boði eru um
þessar mundir.
Hér á landi eru starfandi nokkur
atvinnuleikhús sem sérstaklega
sinna börnum og unglingum, má þar
nefna Brúðubílinn, Leikbrúðuland,
Leikhús í tösku, Leikhúsið tíu fing-
ur, Möguleikhúsið, Sjónleikhúsið,
Strengjaleikhúsið, Stopp-leikhópinn
og Sögusvuntuna. Auk þess hafa
önnur atvinnuleikhús einnig boðið
upp á sýningar fyrir börn og má
benda á að í vetur hafa m.a. verið í
gangi barnasýningar á vegum Þjóð-
leikhússins, Leikfélags Reykjavíkur,
Leikfélags Akureyrar, Drauma-
smiðjunnar, Á senunni og Hafnar-
fjarðarleikhússins auk fjölda áhuga-
leikfélaga um land allt.
Sýningar sem íslensk leikhús
bjóða upp á fyrir börn skipta því tug-
um ár hvert og er þar um að ræða
óvenju hátt hlutfall íslenskra verka.
Margar þessara sýninga fara ekki
hátt í almennri umræðu, eru gjarnan
sýndar í grunn- og leikskólum án
þess að vera auglýstar opinberlega
eða vekja athygli fjölmiðla. Fjöldi
áhorfenda á þessar sýningar er þó
síst minni en á sýningar fyrir full-
orðna, þótt áhorfendurnir sjálfir séu
lægri í loftinu. Þá hafa barnaleikhús-
in öðrum fremur sinnt áhorfendum
utan höfuðborgarsvæðisins, en
margir fyrrgreindra leikhópa fara
reglulega í leikferðir um landið.
Það má því með sanni segja að ís-
lenskt barnaleikhús sé öflugt og lif-
andi og á fleygiferð inn í framtíðina
með áhorfendum sínum.
PÉTUR EGGERZ,
formaður Samtaka um barna- og
unglingaleikhús á Íslandi.
Alþjóðlegi
barnaleikhús-
dagurinn
Frá Pétri Eggerz
NÝLEGA tóku
krakkarnir í 7.I
í Snælandsskóla
þátt í verkefninu
Dagblöð í skól-
um. Að lokinni
verkefnaviku með dagblöð í
kennslutímum komu þau í skoð-
unarferð á Morgunblaðið ásamt
kennara til að fá nánari innsýn í
hvernig hlutirnir
ganga fyrir sig
hjá Morgun-
blaðinu. Morg-
unblaðið þakkar
7. I kærlega fyr-
ir komuna og vonar að heimsókn-
in hafi orðið þessum hressu
krökkum bæði til gagns og gam-
ans.
Morgunblaðið/Golli
HALLGRÍMSKIRKJA er opin alla
daga frá kl. 9 til kl. 17 til persónu-
legrar bænagjörðar. Á hádegi , kl.
12.15 (mánud.-föstud.) eru kyrrðar-
og bænastundir í kirkjunni með
lestri Passíusálma, píslarsögu
Krists og bænagjörð.
Friðarstundir
í Neskirkju
FRIÐARSTUNDIR verða haldnar
virka daga (mánud.-föstud.) í há-
deginu kl. 12-13 frá og með mið-
vikudeginum 19. mars til föstu-
dagsins 28. mars. Friðarstundirnar
eru haldnar vegna yfirvofandi
styrjaldar í Írak og eru hugsaðar
þannig að fólk geti átt kyrrð-
arstund í kirkjunni, tendrað kerta-
ljós, íhugað og beðið.
Kl. 12.15 hvern dag veður leikið á
orgel, lesið úr ritningunni og farið
með bæn og er áætlað að þessi þátt-
ur taki 10-15 mínútur.
Morgunblaðið/Ómar
Bæn fyrir friði í
Hallgrímskirkju
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp-
ur undir stjórn Kára Þormar organista.
Kaffi og með því eftir sönginn. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a. www.domkirkjan.is
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Orgelleikur, passíusálmalestur.
Léttur málsverður í safnaðarheimili að
stundinni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri-
borgarastarf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (bridsaðstoð).
Vinafundir í febrúar og mars. Spjallfund-
ur kl. 14 með sr. Tómasi og Þórdísi þjón-
ustufulltrúa. Kaffi á eftir.
Landspítali – háskólasjúkrahús, Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Sigurfinn-
ur Þorleifsson.
Langholtskirkja. Kl. 10–12 foreldra- og
ungbarnamorgunn. Söngstund með Jóni
Stefánssyni. Umsjón hefur Ágústa Jóns-
dóttir. Kaffisopi. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu
í anddyri.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel
kirkjunnar frá kl. 12–12.10. Að stund-
inni lokinni er léttur málsverður á kostn-
aðarverði í safnaðarheimilinu. Einfalt,
fljótlegt og innihaldsríkt. Samvera eldri
borgara kl. 14. Gerðubergskórinn heim-
sækir okkur og gleður með söng sínum.
Umsjón Samverunnar í höndum Þjón-
ustuhóps kirkjunnar, kirkjuvarðar og
sóknarprests. Alfa-fundur í safnaðar-
heimilinu kl. 20. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi.)
Neskirkja. Nedó, unglingaklúbbur, kl.
17. 10. bekkur og eldri. 8. og 9. bekkur
kl. 19.30. Munda og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 22.
mars kl. 14. Ásgeir Jóhannesson, ráð-
gjafi og fyrrverandi forstjóri, spjallar um
fjármál eldri borgara og gefur góð ráð.
Kaffiveitingar. Þátttaka tilkynnist í síma
511 1560 milli kl. 10 og 13 til föstu-
dags. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Breiðholtskirkja. Biblíulestrar kl. 20–22
á vegum Leikmannaskóla kirkjunnar og
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra sem
bera heitið Ábyrgð og frelsi í boðun ritn-
ingarinnar. Kennari er sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur og dr. theol.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, Leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Alfa 2
kl. 19. Vinsamlega látið vita um þátt-
töku. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Starf fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára. Æskulýðsfélag í
Grafarvogskirkju fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22
fyrir 9. og 10. bekk. Á leiðinni heim.
Þekktir leikarar og skáld lesa Passíu-
sálmana kl. 18.15–18.30.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænarefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhyggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skráð í bænabók kirkj-
unnar af prestum og djákna. Boðið er
upp á molasopa og djús að lokinni
stundinni í kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Op-
ið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl.
17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. Barnastarf Lágafells-
kirkju, kirkjukrakkar, er í Varmárskóla í
dag fyrir 6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9
ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís
djákni. TTT-starf Lágafellskirkju er í dag,
fimmtudag, kl. 16. Mikið fjör, mikið gam-
an. Allir krakkar á aldrinum 10–12 ára
velkomnir. Safnaðarstarf Lágafells-
kirkju. Æskulýðsstarfið Sound. Æsku-
lýðshópurinn okkar er með fundi alla
fimmtudaga kl. 17. Frábær hópur fyrir
frábært ungt fólk í 8.–10. bekk. Safn-
aðarstarf Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu.
Sr. Kristján Björnsson.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
KFUM & K. Enginn fundur í kvöld vegna
sameiginlegs fundar sl. þriðjudag.
Fíladelfía. Samverustund eldri borgara í
dag kl. 15. Allir velkomnir og takið með
ykkur gesti. filadelfia@gospel.is.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í kapellu kl. 12. Léttur hádegis-
verður á vægu verði í Safnaðarheimili
eftir stundina.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.15
krakkaklúbbur, 4. og 5. bekkur. Kl.
19.30 söngæfing fyrir unglinga. Kl.
20.30 unglingasamvera.
Safnaðarstarf