Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 47
DAGBÓK
46 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Breki, Andromeda og
Saturnus koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Remo Viking kemur í
dag. Baltimar Notos
Goðafoss og Arnarfell
fara í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9-12
opin handavinnustofa,
kl. 9-12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.45-10
helgistund, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13-16.30 opin smíða-
og handavinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9-
9.45 leikfimi, kl. 9-12
myndlist, kl. 9-16
handavinna, kl. 13 bók-
band.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga.
Fimmtudagur: Kl. 13
tréskurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15-16 bóka-
spjall, kl. 17-19 æfing
kór eldri borgara í
Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8-16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9-12
íkonagerð, kl. 10-13,
verslunin opin, kl. 13-16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Kl. 9 opin handa-
vinnustofa, kl. 14 söng-
stund.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9, aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, leirmunagerð
og glerskurð-
arnámskeið, kl. 13 spil-
að.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 söngtími.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna. Kl. 15
bingó.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Hrafnkell
Helgason heldur áfram
kynningu á Sturlungu í
dag, fimmtudag, kl.
14.30 í Garðabergi.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 11 búta-
saumur, kl. 13 leikfimi
karla, boccia,málun og
bútasaumur, kl. 19.30
Félagsvist í Garðaholti
í umsjá Kvenfélags
Garðabæjar.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Aðal-
fundur félagsins kl. 14.
Venjubundin dagskrá
og veitingar.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.05 og 9.50 leik-
fimi, kl. 10.50 leikfimi,
kl. 9.30 klippimyndir,
kl. 12.30 vefnaður, kl.
13 gler- og postulíns-
málun, kl. 17 myndlist,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13
og bridsnámskeið kl.
19.30.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opin.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13-16 handa-
vinnustofan opin,
kl. 13 brids.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur, og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 9.05 leikfimi, kl.
9.55 stólaleikfimi, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, 13.30 félagsvist.
Korpúlfar Grafarvogi,
samtök eldri borgara,
hittast á fimmtudögum
kl. 10, aðra hverja viku
er púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16.45 opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 13-
16.45 leir, kl. 10-11
ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9.15-
15.30, handavinna, kl.
10-11 boccia, kl. 10.15-
11.45 enska, kl. 13-14
leikfimi, kl. 13-16 kór-
æfing og mósaik.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9. 30 gler-
skurður og morg-
unstund, kl. 10 boccia
æfing, kl. 13 hand-
mennt og spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl.
19.30 tafl.
Kristniboðsfélag
Kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Fundur kl. 17 í
umsjá Birnu Jóns-
dóttur.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13. Skráning
kl. 12.45, spilamennska
hefst kl. 13.
Kvenfélag Kópavogs
heldur aðalfund í kvöld
kl. 20 í Hamraborg 10,
2. hæð.
Í dag er fimmtudagur 20. mars,
79. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Í kærleika sínum ákvað
hann fyrirfram að veita oss sonar-
rétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans
og náð, sem hann lét oss í té
í sínum elskaða syni.
(Ef. 1, 5.-7.)
PÁLL Pétursson fé-lagsmálaráðherra
var ekki kátur með það,
sem kom fram í skýrslu
starfshóps um húsnæð-
isvanda láglaunafólks í
Reykjavík, að biðlistar
hefðu lengzt eftir að fé-
lagslega húsnæðiskerfið
var lagt niður.
„Það er fjarstæða að
halda að leiguíbúðaskort-
urinn sé vegna þess að
Íbúðalánasjóðurinn var
settur á fót og breytt um
húsnæðiskerfi,“ segir
Páll. „Skorturinn kemur
fyrst og fremst af því að
það eru miklir fólksflutn-
ingar utan af landi og
þar sem fólk getur ekki
losnað við eignir sínar
þar leitar það á leigu-
markað hér. Í öðru lagi
eru hjónaskilnaðir þann-
ig að fjölskylda sem
komst af með eina íbúð
þarf allt í einu á tveimur
að halda,“ sagði Páll hér
í blaðinu 10. marz síðast-
liðinn. Af þessu verður
ekki annað ráðið en að
bæði búferlaflutningar til
höfuðborgarinnar og
hjónaskilnaðir hafi færzt
mjög í vöxt.
JÓHANNA Sigurðar-dóttir alþingismaður
rengir þessar skýringar
ráðherrans í pistli á vef-
síðu sinni. „Í gögnum
sem ég óskaði eftir frá
Hagstofu eru báðar þess-
ar kenningar ráðherrans
um ástæður húsnæð-
isskorts efnalítils fólks
hraktar. Ráðherrann
gerir sig hlægilegan með
svona yfirlýsingum,“ seg-
ir Jóhanna. „Í gögnum
frá Hagstofu um búferla-
flutninga milli lands-
byggðar og Reykjavíkur
1991-2002 kemur fram
að á árunum 1991-1994
voru að meðaltali á þess-
um árum 685 aðfluttir
umfram brottflutta. Á ár-
unum 1995-1997 voru að-
fluttir umfram brott-
flutta 1156. Frá árinu
1998 þegar félagslega
húsnæðiskerfið var lagt
niður og fram til ársins
2002 að báðum árum
meðtöldum voru aðfluttir
umfram brottflutta til
Reykjavíkur 652 eða
helmingi minni en árin
1995-1997 þegar fé-
lagslega húsnæðiskerfið
var í gildi.Tölur frá Hag-
stofu sýna líka að lög-
skilnaðir síðustu 4 árin
eða frá 1998 þegar fé-
lagslega húsnæðiskerfið
var lagt niður eru að
meðaltali þessi ár 513 á
ári en ef tekið er með-
altal áranna 1991-2001 er
meðaltal lögskilnaða á
ári 515. Hvergi í siðuðum
löndum kæmist ráðherra
upp með að segja fólki
ósatt um ástæður neyðar-
ástands í málaflokki sem
hann er ábyrgur fyrir.“
TÖLUR Jóhönnu erusannfærandi. Hins
vegar er hún á villigötum
í eftirsjá sinni eftir fé-
lagslega húsnæðiskerf-
inu. Kerfið, sem Jóhanna
átti sinn þátt í að búa til,
gekk sér til húðar. Það
stuðlaði m.a. að því að
fólki tókst aldrei að kom-
ast út úr félagslega hús-
næðinu, sem því var af
góðum hug beint í, og
inn í húsnæði á almenn-
um markaði. Nýrra
lausna er þörf.
STAKSTEINAR
Skilnaðir, búferlaflutn-
ingar og húsnæðismál
Víkverji skrifar...
KONUM í ábyrgðarstöðum erstundum í fjölmiðlum hrósað
sérstaklega fyrir að ala upp börn
meðfram vinnunni. Það er dregin
upp mynd af þeim sem einhvers kon-
ar afrekskonum eins og uppeldis-
hlutverkið sé þeim erfiðara en öðr-
um konum. Sjaldan er þó reiknað
með tekjuhliðinni í þessu samhengi
en sjónum einkum beint að tíma-
leysinu sem háir þeim. „Hvernig
ferðu eiginlega að þessu?“ eru þær
spurðar aftur og aftur. Ef spurn-
ingin væri umorðuð yrði hún:
„Hvernig hefurðu tíma til að lifa lífi
þínu?“ Og þær svara með smáræðu
um gildi skipulagningar. Lítið er um
að þær breyti inntaki spurning-
arinnar með svari á borð við: „Þetta
er ekkert mál, maður. Launin sem
fylgja stöðunni minni gera mér kleift
að lifa allsnægtalífi með fjölskyld-
unni og ég er hæstánægð. Þú ættir
bara að vita hvað það er auðvelt að
reka fjölskyldu og heimili þegar
maður er með almennilegar tekjur.“
Víkverji lítur ekki það sem neinn
hetjuskap að sinna ábyrgðarstöðu
og ala upp börn, og líklega ekki
þessar konur heldur. Það er hins
vegar alltaf verið að reyna að gera
einhverjar hetjur úr þeim. Það er
ekki þeim að kenna.
x x x
VÍKVERJI hirti ekki um að látasetja rautt x aftan við símanúm-
erið sitt í síðustu símaskrá til að fæla
burt símsölufólk. Ekki er víst að það
hefði dugað því jafnvel þeir sem
„bólusettu“ sig gegn þessari plágu fá
ekki einu sinni frið. Ef fleiri sím-
sölumenn hringja í Víkverja á næst-
unni ætlar hann að beita áhrifaríku
„sýklalyfi“ sem svokallaðir menn-
ingarruglarar í Bandaríkjunum hafa
þróað. Sagt var frá þessu í Morg-
unblaðinu í síðustu viku. Það felst í
að biðja símsölumanninn um heima-
símann hans og segjast munu
hringja í hann eitthvert kvöldið ef
mann langar til að kaupa eitthvað.
„Góða kvöldið, Magnús? Blessaður.
Er ég nokkuð að trufla þótt ég
hringi á matmálstíma? Mig langaði
bara til að athuga hvort þú ættir
nokkuð hnífaparasett og góða slysa-
tryggingu á tilboðsverði?“
x x x
GRÍÐARLEGAR fjarvistirgrunnskólabarna vegna veik-
inda vöktu athygli Víkverja í vik-
unni. Þau fá víst engar bólusetn-
ingar gegn inflúensu enda of ung
fyrir slíkt. Víkverji finnur til með
börnunum og óskar þeim góðs bata.
En er virkilega ekki hægt að verjast
smiti með einhverjum húsráðum?
Gott er víst að þvo sér oft um hend-
urnar á meðan flensan geisar, en
hvað segja læknarnir um vítamín-
neyslu, vatnsdrykkju og síðast en
ekki síst sykurbann? Það hefur víst
lamandi áhrif á ónæmiskerfið að éta
sykur, þar með talið gos, kökur og
sælgæti. Víkverji er að bara að velta
þessu fyrir sér.
Reuters
Er enn á tali hjá símsölumanninum?
ÉG HEF heyrt mikið
kvartað undan því hvað við
eldri borgarar værum
þungur baggi á samfélag-
inu.
Fólk veltir heilmikið
vöngum yfir því og allir
virðast sammála um það.
Ég vil benda á eða spyrja,
hver er baggi á hverjum?
Eldri borgarar eru afar
og ömmur þeirra sem eru á
miðjum aldri og kvarta
undan þeirri byrði að sjá
fyrir okkur. Við munum
hafa séð fyrir okkar börn-
um fram að tvítugu í flest-
um tilvikum og það er dálít-
ið þungur baggi, því
fatnaður á skólafólk er ekki
ódýr.
Við eldri borgarar erum
búin að eignast okkar hús-
næði í gegnum árin og bú-
um í því og við höfum átt
einhvern pening eftir og við
borgum í lífeyrissjóð og það
er sá peningur sem við er-
um að nota og það þarf eng-
inn að kvarta undan því
sem bagga.
Ég vil taka fram að ein-
mitt þessi aldurshópur
þurfti að borga skatta af
því sem fór í lífeyrissjóð og
við borgum aftur skatta af
lífeyrisgreiðslum; erum
sem sagt tvísköttuð. Við
höfum reynt að fá leiðrétt-
ingu á þessu, þingmenn
sem aðrir, en enginn vill
leiðrétta þetta. Er sagt að
þetta sé erfitt mál en það er
ekkert mál að leiðrétta
þetta, því þetta er þjófnað-
ur.
Dettur í hug hvort for-
eldrum, öfum og ömmum
þessa unga fólks sem kallar
okkur bagga á þjóðfélaginu
finnist ekki erfitt að heyra
þetta frá börnum sínum.
Hratt flýgur stund og áð-
ur en þetta unga fólk veit af
er það orðið eldri borgarar
og „baggi“ á þjóðfélaginu.
Einn sagði að það væri
umhugsunarvert hvað
gamla fólkið lifir lengi. En
hvað á að gera – á að setja
okkur af?
Hefði gaman af að vita
hvað ríkisstjórnin gerir við
þessa peninga sem hún hef-
ur hlunnfarið okkur með.
Eldri borgari.
Tapað/fundið
Barnaskór í óskilum
ÞESSI skór fannst á gang-
stéttinni fyrir framan
Morgunblaðshúsið í fyrra-
dag um kl. 12.30. „Eigandi“
er beðinn að hringja í síma
897 9702.
Myndavél í óskilum
LÍTIL myndavél fannst á
horninu á Holtavegi og
Efstasundi. Hafið samband
við albsig@torg.is eða
hringið í 692 7902.
GSM-sími týndist
NOKIA silfurlitaður GSM-
sími týndist sl. sunnudags-
morgun, líklega í miðbæn-
um. Símkortið hefur upp-
lýsingar sem eru mikils
virði fyrir eiganda. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 551 7110. Fundarlaun.
Lúlli er týndur
LÚLLI, sem er steingrár á
lit með hvíta bringu, loppur
og trýni, týndist frá Vík-
urási 3, Seláshverfi, 13
mars sl. Hann er eyrna-
merktur R-9235 og með
bleika ól með upplýsingum.
Hans er sárt saknað. Þeir
sem hafa orðið varir við
hann hafi samband í síma
587-5065 og 516-6417.
Bangsi er týndur
BANGSI er 12 ára fress,
gulbröndóttur með hvítar
hosur. Hann er eyrna-
merktur. Hann týndist frá
Hrísrima í Grafarvogi 17.
mars. Þeir sem geta gefið
upplýsingar hafi samband í
síma 587 4472.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Þungur
baggi?
AÐ gefnu tilefni tel ég rétt
að fram komi opinberlega
að Trama barnarúm frá
Bébécar, sem seld eru í
barnavöruversluninni All-
ir krakkar í Hlíðasmára í
Kópavogi, uppfylla alla
ströngustu öryggisstaðla.
Á undanförnum mán-
uðum hef ég ítrekað orðið
var við að keppinautur á
markaði hefur sagt við-
skiptavinum að umrædd
rúm væru ekki örugg og
aðeins þau rúm sem hann
byði uppfylltu öryggis-
staðla. Þetta er einfald-
lega rangt.
Bébécar og Trama
barnavörur eru fram-
leiddar samkvæmt ISO
9002 gæða kerfi, sem er
viðurkennt af alþjóðlegum
IQ Net staðli.
Virðingarfyllst,
Jón Pétur Sveinsson,
verslunarstjóri
verslunarinnar
Allir krakkar.
Örugg barnarúm
LÁRÉTT
1 útlit, 4 amstur, 7 í átt til
baka, 8 óskar eftir, 9
veggur, 11 hluta, 13 lofs,
14 huldumaður, 15
spotta, 17 hrópar, 20
tímabils, 22 jöfnum hönd-
um, 23 hljóðfærum, 24
skyldmennið, 25 rás.
LÓÐRÉTT
1 stutt ræða, 2 Danir, 3
regla, 4 skúrar, 5 afkimi,
6 vesalings, 10 jarðarför,
12 ginning, 13 lík, 15 fjöl,
16 verkfærið, 18 hænan,
19 hæsi, 20 svifdýrið, 21
gauf.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 þarfaþing, 8 lagar, 9 íhuga, 10 gef, 11 sötra, 13
aftan, 15 starf, 18 skálm, 21 lát, 22 fitla, 23 iðinn, 24
þankagang.
Lóðrétt: 2 aðgát, 3 farga, 4 þrífa, 5 naumt, 6 slys, 7
barn, 12 rýr, 14 fák, 15 sefa, 16 aftra, 17 flakk, 18 sting,
19 árinn, 20 máni.
Krossgáta