Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR
48 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR Kvaran, forstjóri Sam-
skipa í Norfolk í Bandaríkjunum,
fór holu í höggi í fyrri viku, sló með
sex járni á 4. holu á Honey Bee-vell-
inum en hún er 150 metrar og par 3.
Eftir þetta afrek Gunnars hafa þrír
forstjórar íslenskra fyrirtækja á
svæðinu farið holu í höggi. Auk
Gunnars eru það Benedikt Sveins-
son, forstjóri Iceland Seafood, og
Garðar Þorsteinsson, forstjóri Eim-
skips í Bandaríkjunum.
HLYNUR Jóhannesson, þjálfari
kvennaliðs KA/Þórs í 1. deild í hand-
boltanum, hefur ákveðið að hætta og
þetta verði síðasti veturinn hans með
liðið en hann hefur séð um þjálfun
þess í fimm ár.
DAVE Jones, knattspyrnustjóri
Wolves, var vonsvikinn yfir því að lið
hans skyldi ekki ná að brjóta niður
þétta varnarlínu Íslendingafélagsins
Stoke City í leik liðanna í ensku 1.
deildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld.
Stoke náði markalausu jafntefli,
þriðja leikinn í röð, gegn einu af
efstu liðum deildarinnar.
JONES sagði að ef varnarmenn
Stoke hefðu einhvern tímann komist
alla leið fram á miðju vallarins í
leiknum hefðu þeir þurft áttavita til
að komast til baka. „En það var okk-
ar að brjóta þá niður og við gátum
það ekki, og þar með krækti Stoke
sér í gott stig. Hvort það dugar til að
halda liðinu í deildinni þegar upp
verður staðið er svo annað mál,“
sagði Jones.
MARCEL Desailly, fyrirliði
franska landsliðsins og Chelsea, var
ekki valinn í landsliðshóp Frakka
sem mætir Möltu og Ísrael í und-
ankeppni EM um mánaðamótin.
Desailly meiddist í leik Frakka við
Tékka í síðasta mánuði en kom inná
sem varamaður hjá Chelsea gegn
WBA um síðustu helgi. Jacques
Santini, þjálfari Frakka, telur hins
vegar að Desailly sé ekki tilbúinn
strax aftur í slaginn með landsliðinu.
DESAILLY þarf því að bíða um
sinn með að setja nýtt landsleikja-
met fyrir Frakkland en hann lék
sinn 103. landsleik gegn Tékklandi
og jafnaði þar með met Didiers
Deschamps.
EMMANUEL Petit, félagi Desaill-
ys hjá Chelsea, fékk heldur ekki náð
fyrir augum landsliðsþjálfarans, sem
valdi átta leikmenn enskra félaga í
hóp sinn. Þar af eru fjórir frá Arsen-
al, Patrick Vieira, Sylvain Wiltord,
Robert Pires og Thierry Henry.
JOHN Terry, varnarmaður
Chelsea, virðist hinsvegar vera á leið
í enska landsliðið á ný eftir 14 mán-
aða hlé. Talið er víst að Terry, sem
hefur leikið mjög vel í vetur, verði í
hópnum sem Sven Göran Eriksson
tilkynnir um næstu helgi fyrir leiki
Englands við Liechtenstein og
Tyrkland.
FÓLK
BAYERN München verður ekki
stórtækt í kaupum á knatt-
spyrnumönnum í sumar, þegar
opnað verður á ný fyrir kaup og
sölur á leikmönnum í Evrópu.
„Við verðum að spara eins og
aðrir, það verður ekki hjá því
komist,“ segir Franz Becken-
bauer, stjórnarformaður þýska
félagsins, sem reiknar með því að
almennt verði dauft yfir leik-
mannamarkaðnum í Evrópu á
þessu ári. Flest öll félög verði að
draga saman seglin eftir þenslu
síðustu ára.
„Við verðum ekki á mark-
aðnum í sumar nema þá í mý-
flugumynd,“ segir Beckenbauer,
en félag hans keypti knatt-
spyrnumenn fyrir um jafnvirði
tveggja milljarða króna á síðasta
sumri. Þegar hefur Bayern
tryggt sér kaup á tveimur leik-
mönnum fyrir næstu leik fyrir
rúmar 600 milljónir króna, við
það verður að öllum líkindum lát-
ið standa, segir Beckenbauer.
Fjárhagur Bayern er í þokka-
legu ástandi, eftir því sem Beck-
enbauer segir og væntir hann
þess að niðurstaða fjárhagsársins
verði í jafnvægi. Það hafi verið
mikið fjárhagslegt áfall að falla
úr Meistaradeild Evrópu í vetur
að loknum 32-liða úrslitum. Bay-
ern hefur yfirleitt komist mikið
lengra í keppninni og þar af leið-
andi notið þeirra gríðarlegu
tekna sem félögin fá fyrir þátt-
tökuna.
Þetta skilaði þeim 17 stiga forskotieftir fyrsta leikhluta 24:7 en
þegar nokkuð var liðið á annan leik-
hluta og forystan
komin í 26 stig misstu
heimastúlkur damp-
inn og Njarðvíkurlið-
ið með Ingibjörgu
Vilbergsdóttur í broddi fylkingar
skoraði 11 stig í röð og vakti nýja von
hjá gestunum.
Það má segja að það hafi viljað
Keflvíkingum til happs að fá leikhlé
eftir þennan góða kafla Njarðvíkinga,
leikmenn stemmdu sig saman í bún-
ingsklefanum og í síðari hálfleik var
ekkert hik á heimaliðinu, sem var vel
stutt af stuðningsmönnum sínum á
pöllunum, og innbyrtu Keflvíkingar
25 stiga sigur, 87:62.
„Við vorum tilbúnar í leikinn, ætl-
uðum að keyra hratt á þær og það
kom ekkert annað en sigur til greina,“
sagði Erla Þorsteinsdóttir, leikmaður
Keflavíkur. „En þegar við vorum bún-
ar að ná góðri forystu kom upp dálítið
kæruleysi hjá okkur sem á ekki að
gerast. Boltinn hætti að rúlla og það
gekk ekkert eins og við ætluðum.“
Njarðvík er annað tveggja liða sem
hafa náð að leggja ykkur að velli í vet-
ur, er það ekki áhyggjuefni að þið
skulið missa dampinn á þennan hátt?
„Í leiknum sem við töpuðum í vetur
vorum við sjálfum okkur verstar. Ef
við mætum tilbúnar í leikinn á föstu-
dag og leikum eins og við eigum að
okkur þá vinnum við leikinn. Það
kemur ekki til greina að missa þetta í
þrjá leiki,“ sagði Erla.
Keflavíkurliðið er ekki árennilegt
eins og það lék í upphafi þessa leiks
og lengst af síðari hálfleiks. Og ef liðið
heldur einbeitingu og krafti út allan
leiktímann verður vandfundið það lið
sem nær stöðva sigurgöngu þeirra í
úrslitunum. Leikreyndustu leikmenn
liðsins, þær Erla Þorsteinsdóttir og
Birna Valgarðsdóttir léku best, ásamt
þjálfaranum Önnu Maríu Sveinsdótt-
ur og Sonja Ortega er sívaxandi við-
bót í þennan sterka hóp.
Hjá Njarðvík lék Ingibjörg Vil-
bergsdóttir best og þær Helga Jón-
asdóttir og Krystal Scott áttu sömu-
leiðis góðan leik.
Morgunblaðið/Golli
Hálfdán Þórðarson var FH mikilvægur í 31:23-sigri á Aftureldingu í gærkvöldi. Honum héldu engin
bönd – og þá hvorki Haukur Sigurvinsson né Sverrir Björnsson, sem hér reyna að halda í kappann.
Keflavíkurliðið
vann fyrsta
grannaslaginn
KEFLVÍKINGAR unnu granna sína úr Njarðvík, 87:62, í fyrsta leik lið-
anna í undanúrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik, en liðin
mættust í Keflavík í gærkvöldi. Keflavíkurstúlkur sem hafa haft
mikla yfirburði í deildarkeppninni í vetur byrjuðu leikinn af miklum
krafti. Þær keyrðu sóknirnar hratt og örugglega í gegn og varn-
arlega spilaði liðið feikilega vel.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Bayern
verður
að spara
ELÍN Jóna Þorsteinsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu
úr KR, meiddist á hné á æf-
ingu í Bandaríkjunum í
fyrradag. Ekki er ljóst
ennþá hversu alvarleg
meiðslin eru eða hvort hún
þarf að gangast undir að-
gerð á hnénu. Elín Jóna, sem
er 21 árs varnarmaður, var í
byrjunarliði Íslands gegn
Bandaríkjunum í síðasta
mánuði, sem og í öllum leikj-
um Íslands í undankeppni
HM á síðasta ári, en hún á 9
A-landsleiki að baki og 15
leiki með 21 árs landsliðinu.
Elín
meiddist
á hné
DANIR unnu Pólverja í tveimur
vináttuleikjum sem fram fóru í
Danmörku í gær og fyrradag. Í
gærkvöld áttust þjóðirnar við í
Farum og þar unnu Danir stór-
sigur, 43:26, en í fyrrakvöld var
leikurinn jafnari en þá mættust
þjóðirnar í Kolding og unnu Danir,
33:26.
Danir höfðu mikla yfirburði í
gær og eftir 15 mínútna leik má
segja að þeir hafi verið búnir að
gera út um leikinn, en staðan var
þá 20:10. Í síðari hálfleik juku
heimamenn muninn jafnt og þétt
og áttu Pólverjar ekkert svar við
stórleik heimamanna og ekki kom
að sök að í lið þeirra vantaði Joach-
im Boldsen og Lars Krogh Jeppe-
sen sem urðu fyrir smá hnjaski í
fyrri leiknum. Torben Winter þjálf-
ari Dana var mjög ánægður með
sóknarleik sinna manna en 6:0 vörn
Pólverja átti engin svör við honum.
Sören Stryger var markahæstur
í liði Dana með 7 mörk, Lars
Christiansen, markahæsti leik-
maður þýsku Bundesligunnar,
skoraði 6 sem og Torsten Laen.
Hornamaðurinn knái, Nicolaj Jac-
obsen, lék sína fyrstu landsleiki í
hálft annað ár og skoraði hann 4
mörk í leiknum í gær og 3 í fyrra-
kvöld.
Sautján marka
sigur Dana
Byrjað í Grindavík
DAGSETNINGAR á undanúrslitaleikjum karla á Íslandsmótinu í
körfuknattleik voru staðfestar í gær. Grindavík mætir Tindastóli í
Grindavík á laugardaginn klukkan 16 og Keflvíkingar taka á móti
Njarðvíkingum á sunnudagskvöldið klukkan 19.15.
Sömu lið mætast aftur á þriðjudag og miðvikudag, og í þriðja
sinn á fimmtudag og föstudag, en þrjá sigra þarf til að komast í úr-
slitaeinvígið. Ef grípa þarf til fjórða leiks verður hann í báðum til-
fellum sunnudaginn 30. mars, og ef oddaleiki þarf til að knýja fram
úrslit verða þeir leiknir þriðjudagskvöldið 1. apríl.