Morgunblaðið - 20.03.2003, Síða 52
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 51
FÓLK
SIGMUNDUR Kristjánsson, leik-
maður 21 árs landsliðsins í knatt-
spyrnu, lagði upp annað marka hol-
lenska úrvalsdeildarliðsins Utrecht
þegar það sigraði Djurgården frá
Svíþjóð, 2:1, í æfingaleik í gær. Sig-
mundur leikur með 21 árs liði
Utrecht og hefur ekki fengið tæki-
færi með aðalliðinu í úrvalsdeildinni
til þessa.
ÍSLENSKA landsliðið í badminton
tapaði fyrir Ástralíu, 3:2, á heims-
meistaramóti landsliða í Eindhoven í
Hollandi í gær. Tómas Viborg sigr-
aði í einliðaleik og Helgi Jóhannes-
son og Drífa Harðardóttir í tvennd-
arleik. Í fyrrdag tapaði Ísland fyrir
Frakklandi í fyrstu umferð mótsins,
einnig 3:2. Þá vann Tómas í einliða-
leik og Ragna Ingólfsdóttir og Katr-
ín Atladóttir í tvíliðaleik kvenna.
Aðrar viðureignir töpuðust.
ALÞJÓÐA handknattleikssam-
bandið, IHF, hefur tilkynnt að ung-
verski landsliðsmaðurinn David
Katzirz hafi fallið á lyfjaprófi sem
tekið var af honum á heimsmeistara-
mótinu í handknattleik sem fram fór
í Portúgal fyrir sex vikum. Þar með
féllu tveir leikmenn á lyfjaprófi á
HM en sýni sem tekið var af Egypt-
anum Nabil Gohar reyndist jákvætt.
Báðir leikmennirnir hafa verið úr-
skurðaðir í tveggja ára keppnisbann.
SUPER Cup, þar sem nokkur af
bestu landsliðum heims í handknatt-
leik leiða saman hesta sína, fer fram
í Leipzig í Þýskalandi dagana 29.
október til 2. nóvember. Fimm efstu
þjóðirnar frá því á HM í Portúgal í
vetur keppa á mótinu, Króatar,
Þjóðverjar, Frakkar, Spánverjar og
Rússar og sjötta þjóðin eru Svíar.
Þýskaland, Rússland og Svíþjóð
leika saman í riðli og annars vegar
Króatía, Frakkland og Spánn.
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 7 mörk fyrir Tvis Holstebro
sem tapaði fyrir Ikast/Bording í
dönsku 1. deildinni í handknattleik í
gær. Hrafnhildur og stöllur hennar
eru í næst neðsta sæti með aðeins 5
stig í 21 leik en Odense er neðst með
3 stig. Ikast/Bording er í efsta sæti
ásamt Slagelse með 34 stig.
GUÐFINNUR Kristmannsson
skoraði 4 mörk fyrir Wasaiterna
sem sigraði Irsta, 34:28, í sænsku 1.
deildinni í handknattleik í gær. Was-
aiterna er í 7. sæti af 12 liðum.
PATRICK Vieira, fyrirliði Arsen-
al, og Sol Campbell urðu báðir fyrir
meiðslum í leiknum við Valencia og
er óvíst hvort þeir geta verið með í
leiknum við Everton á sunnudaginn.
RANGERS náði í gærkvöld sex
stiga forskoti á toppi skosku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu. Rangers
sigraði Motherwell, 2:0, með mörk-
um frá Peter Lövenkrands og
skoska landsliðsmanninum Barry
Ferguson.
SPÁNVERJAR og Ítalir eiga þrjú
lið hvor þjóð í 8 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu, Englendingar eitt og Hol-
lendingar eitt, en dregið verður til
8 liða úrslitanna á morgun.
Liðin átta sem verða í hattinum
eru: Real Madrid, Barcelona og
Valencia, öll frá Spáni. AC Milan,
Inter og Juventus frá Ítalíu, Man-
chester United frá Englandi og
Ajax frá Hollandi.
Sjö af liðunum átta hafa unnið
samtals 25 Evrópumeistaratitla,
Real Madrid flesta eða níu talsins
og þar á eftir AC Milan 5.
Valencia er eina liðið í 8 liða úr-
slitunum sem ekki hefur hampað
Evrópumeistaratitlinum, en á
þremur undanförnum árum hefur
Valencia tvívegis komist í úrslita-
leikinn en tapað í bæði skiptin.
Drátturinn fer þannig fram að
liðin sem urðu í efstu sætunum í
riðlinum, Barcelona, Valencia, AC
Milan og Manchester United, drag-
ast á móti liðunum sem urðu í öðru
sætinu, Inter, Ajax, Real Madrid
og Juventus. Þó geta lið sem voru
saman í riðlakeppninni ekki mæst.
Ljóst er að AC Milan og Real
Madrid geta ekki dregist saman,
sömuleiðis Manchester United og
Juventus og Valencia og Ajax.
Fyrri leikirnir í 8 liða úrslit-
unum fara fram 8. og 9. apríl
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, hefur sektað
skoska félagið Celtic um 5.000
evrur, 420 þúsund krónur,
vegna atviksins þegar El-
Hadji Diouf, leikmaður Liver-
pool, hrækti að áhorfanda á
leik liðanna í UEFA-bikarnum
í Glasgow í síðustu viku. Nið-
urstaða UEFA var að áhorf-
endur hefðu æst leikmanninn
upp með þessum afleiðingum.
Forráðamenn Celtic eru af-
ar óánægðir með þessa nið-
urstöðu því þeir telja sína
áhorfendur ekki seka um neitt
misjafnt. „Þeir voru bara á
léttum nótum þegar Diouf
lenti inni í hóp þeirra, en þeg-
ar hann hrækti að þeim, brug-
uðust einhverjir reiðir við.
Það var hinsvegar strax kæft í
fæðingu af öryggisvörðum.
Við erum steinhissa á þessari
ákvörðun UEFA, en við verð-
um að sætta okkur við hana og
ætlum að gera það,“ sagði Ian
McLeod, framkvæmdastjóri
Celtic.
Spennan í B-riðlinum fyrir leikinaí gær var gríðarleg enda áttu öll
liðin möguleika á að komast áfram.
Arsenal nægði jafntefli til að komast
í 8 liða úrslitin en gat einnig farið
áfram með tapi ef Roma hefði náð að
leggja Ajax að velli.
Í A-riðlinum unnust báðir leikirn-
ir á útivelli. Inter gulltryggði sæti
sitt í 8 liða úrslitin með 2:0 sigri á
Leverkusen í Þýskalandi og Evr-
ópuævintýri Newcastle lauk á
heimavelli þar sem liðið lá fyrir
Börsungum, 2:0.
Norski landsliðsmaðurinn John
Carew reyndist banabiti Englands-
meistaranna á Mestella leikvangin-
um í Valencia en þessi hávaxni fram-
herji skoraði bæði mörk Valencia.
Það fyrra á 34. mínútu og sigur-
markið á 57. mínútu en í millitíðinni
hafði Frakkinn Thierry Henry jafn-
að metin fyrir Arsenal. Carew er ef-
laust ekki vinsælasti maðurinn í aug-
um leikmanna og stuðningsmanna
Arsenal því hann skoraði einnig sig-
urmark Valencia þegar liðið sló Ars-
enal út í 8 liða úrslitum keppninnar
fyrir tveimur árum. Carew skoraði
þá sigurmarkið í 1:0 sigri í síðari leik
liðanna eftir að Arsenal hafði unnið
fyrri leikinn á Highbury, 1:0.
Arsenal byrjaði betur og áður en
Carew kom heimaliðinu yfir hefðu
ensku meistararnir hæglega getað
verið komnir í 2:0. Smátt og smátt
náðu liðsmenn Valencia tökum á
leiknum og mark Carews hleypti
enn meira lífi í leik þeirra. Arsenal
byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og
eftir fjögurra mínútna leik skoraði
Henry snoturt mark. Við markið
efldust Spánverjarnir og Carew var
aftur á ferðinni 13 mínútum eftir
jöfnunarmark Arsenal. Eftir markið
drógu leikmenn Valencia sig aftar á
völlinn og náðu að halda fengnum
hlut.
„Mér fannst Valencia hreinlega
spilla leiknum þegar það komst í 2:1.
Því eftir markið drápu þeir leikinn
niður og það var erfitt fyrir okkur að
spila knattspyrnu. Mér fannst við
ekki verðskulda að tapa og frá mín-
um bæjardyrum séð þurfum við ekk-
ert að skammast okkar þó svona hafi
farið,“ sagði Arsene Wenger, stjóri
Arsenal eftir leikinn. Wenger bætti
við: „Auðvitað eru vonbrigðin mikil
að vera úr leik og allir berum við
ábyrgð á því, leikmenn sem og þjálf-
arar. En við höfum að ýmsu meira að
keppa þó svona hafi farið. Við erum í
baráttu á tvennum vígstöðvum og
ætlum okkur að verja þá titla.“
Óskabyrjun Ajax
Ajax fékk óskabyrjun á móti
Rómverjum því eftir 34 sekúndna
leik kom Andy van der Mayden Hol-
lendingunum yfir. Antonio Cassano
jafnaði metin fyrir Roma á 24. mín-
útu og þar við sat.
Newcastle átti veika von um að
komast áfram en til þess þurfti liðið
að sigra Barcelona á heimavelli og
stóla á að Inter næði ekki að vinna
Leverkusen í Þýskalandi. Þetta
gekk ekki eftir hjá lærisveinum
Bobby Robsons. Börsungar höfðu
betur, 2:0, með mörkum Thiago
Motta og Patrick Kluivert á sama
tíma vann Inter öruggan sigur á
Leverkusen, 2:0. Börsungar hafa nú
unnið 14 leiki í röð í Meistaradeild-
inni og eru greinilega til alls líklegir.
Sáttur við árangurinn
„Við áttum alls ekki að tapa leikn-
um en óheppnin elti okkur. Við sköp-
uðum okkur mörg góð færi en mörk-
in sem við fengum á okkur voru af
ódýrari gerðinni. Nú er þessu æv-
intýri lokið og ég held að þegar öllu
er á botninn hvolft getum við verið
sáttir við árangurinn. Við unnum
mörg góð lið og mætum reynslunni
ríkari til leiks á næstu leiktíð,“ sagði
Sir Bobby Robson, stjóri Newcastle.
18 ára nígerískur framherji í liði
Inter stal senunni í 2:0 sigri liðsins á
Leverkusen. Hann skoraði fyrra
mark sinna manna, lagði upp það
síðara fyrir Emre Belozoglu, og fisk-
aði vítaspyrnu sem Domenico
Morfoeo misnotaði.
Reuters
Norski landsliðsmaðurinn John Carew, hetja Valencia, fagnar síðara marki sínu á móti Arsenal í gær.
Aftur var Carew ör-
lagavaldur Arsenal
DRAUMUR Englands- og bikarmeistara Arsenal um að hampa
Evrópumeistaratitlinum á Old Trafford í vor varð að engu í gær-
kvöldi þegar liðið féll úr leik í keppninni eftir 2:1-ósigur gegn
Valencia á Spáni. Sigurinn færði hins vegar Valencia farseðilinn
í 8 liða úrslitin og þar sem Ajax náði jöfnu gegn Roma á Ítalíu
fylgir Ajax Spánverjunum áfram.
Sigursæl lið í
8 liða úrslitunum
Celtic sekt-
að vegna
Dioufs