Morgunblaðið - 20.03.2003, Qupperneq 53
FÓLK Í FRÉTTUM
52 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á VISSUM aldri er prump meiri-
háttar fyndið. Og þótt ég viðurkenni
að hafa smávegis fest á því aldurs-
skeiði, húmorslega séð, varð mér eig-
inlega um og ó í upphafi myndarinnar
um Þrumubrækurnar og vinina Alan
og Patrick. Síðan venst maður þess-
um endalausa viðrekstri og fer að lifa
sig inn í söguna.
Þannig er að Patrick greyið er
haldinn þeim sjúkdómi að hann
prumpar út í eitt. Honum er auðvitað
strítt í skólanum, þetta gerir heim-
ilislífið hið erfiðasta, og tilvera Pat-
ricks væri öll hin aumasta ef hann
ætti ekki góðan vin með ekkert lykt-
arskyn, undrabarnið og snillinginn
Alan A. Allen. Í tilraunum sínum not-
færir Alan sér þrumukraftinn sem
kemur úr óæðri enda vinar hans og
saman stefna þeir hátt.
Í raun er sagan um þá félaga falleg
og hefur gott uppeldislegt gildi. Hún
segir okkur að oft búa krakkar, sem
virðast uppburðarlitlir, yfir leyndri
snilligáfu og hæfileikum. Hún segir
krökkum að trúa á sjálfa sig – jafnvel
þótt fáir aðrir geri það – og vinna úr
því sem er einstakt í persónuleika
þeirra. Það er nú gott. Sagan er um
sanna vináttu og að ef vinir sameini
krafta sína séu þeir til alls líklegir.
Söguþráðurinn sjálfur er bæði ýkt-
ur og svolítil lágkúra. Eiginlega súr-
realískur, auðvitað væri aldrei hægt
að gera það sem þeir vinirnir gera, en
hvað með það? Þetta er ævintýri og
allt getur gerst. Hins vegar er hand-
ritið oft á tíðum hvorki nógu þétt né
skýrt, framvindan ekki nógu hnitmið-
uð og myndin dregst á langinn. Meiri
fórnfýsi í klippiherberginu hefði ef-
laust getað reddað því. Einnig þykir
mér endirinn full „amerískur“, en
hann virtist virka á krakkana.
Stíll myndarinnar er í anda ýktrar
sögunnar, bæði búningar og sviðs-
myndin öll minna helst á tímalausar
teiknimyndir og eru mjög vel gerð.
Stemmningin verður rétt, trúverðug-
leikinn eykst, þ.e manni er auðveldað
að komast inn í ævintýraheiminn.
Leikararnir eru allir hinir fínustu
og strákarnir standa sig bara þrumu-
vel. Og þótt Grint, sem leikur Alan,
hafi reynslu úr Harry Potter-mynd-
unum stendur Cook, sem leikur Pat-
rick, sig ekkert verr.
Þrumubrækur eru ekkert snilldar-
verk, og þótt handritinu sé ábótavant
og stundum smekklaust, hefur sagan
fallegan boðskap og fyndna prump-
brandara. Alls ekkert verri en margt
af því sem börnum er boðið upp á.
Falleg saga um prump
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Peter Hewitt. Handrit: Peter
Hewitt og Phil Hughes. Kvikmyndataka:
Andy Collins. Listræn stjórn: Tim Steven-
son. Aðalhlutverk: Bruce Cook, Rupert
Grint, Paul Giamatti, Simon Callow,
Bronagh Gallagher og Ned Beatty. 87
mín. England. United Artists 2002.
ÞRUMUBRÆKUR/THUNDERPANTS Patrick spókar sig glaður í nýju
þrumubrókunum sínum.
Hildur Loftsdóttir
ÓSKARSVERÐLAUNIN
verða veitt í Hollywood á
sunnudagskvöld. Talsmenn
verðlaunahátíðarinnar segja
að hún verði haldin þótt
hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna gegn Írak verði
hafnar, en umfangið verði
mun minna en venjulega.
Þannig verður tískusýningin
óformlega, þegar gestir
ganga eftir rauðum dregli,
aðeins svipur hjá sjón í þetta
skipti og ekki er gert ráð
fyrir að fréttamenn geti
óhindrað tekið viðtöl við
stjörnurnar þegar þær mæta
til hátíðarinnar.
„Það verður dregið mjög
úr hefðbundinni skrúðgöngu
eftir rauða teppinu og hluta
af fréttamannasvæðinu verður lok-
að,“ sagði Gil Cates, sem stjórnar
hátíðahöldunum, á blaðamanna-
fundi. „Akademían gerir sér grein
fyrir, að mörgum af stjörnunum
mun finnast óþægilegt að koma til
hátíðarinnar í ár í upphafi umfangs-
mikils stríðs og mæta her frétta-
manna og ljósmyndara eins og ekk-
ert hafi í skorist.“
Skipuleggjendurnir sögðu þó að
allt yrði gert til að tryggja að verð-
launahátíðin fari fram eins og áætl-
að var og hún hefjist klukkan 1.30
aðfaranótt mánudags.
„En að því sögðu skiljum við öll að
land okkar er á barmi styrjaldar og
við kunnum að vera að senda banda-
ríska karla og konur í hættuför. Við
verðum að búa okkur undir að hátíð-
in verði haldin undir þeim kring-
umstæðum,“ sagði Cates.
Gert er ráð fyrir að frægum gest-
um verði ekki ekið að enda rauðs
dregils sem þeir síðan gangi eftir
inn í Kodak-leikhúsið í Hollywood
undir ljósblossum frá ljósmyndur-
um. Gestum verður þess í stað ekið
beint að inngangi leikhússins og þeir
munu ekki veita blaðamönnum við-
töl utan við leikhúsið. Lítill hópur
fréttamanna fær að vera við stiga í
anddyrinu og ræða þar við gesti áð-
ur en þeir ganga inn í salinn.
Óviðeigandi skrúðganga
Var þetta ákveðið eftir að margir
þeirra, sem boðið hefur verið til há-
tíðarinnar, lýstu þeirri skoðun að
það væri óviðeigandi að ganga eftir
rauðum dregli í hátískufötum með
skartgripi ef stríð væri í fullum
gangi í Írak. Nokkrir höfðu óskað
eftir því að fá að koma inn í leikhúsið
bakdyramegin og höfðu einnig spurt
Cates hvort þeir gætu komið í lát-
lausari fötum en vani er. Cates sagði
þó að enginn hefði afboðað komu
sína.
Cates sagði, að hann vildi helst að
sigurvegararnir ræddu ekki aðra
hluti en Óskarsverðlaunin í þeim 45
sekúndna þakkarræðum sem þeir
mega halda. Hann sagði þó að fólk
gæti talað um átökin í Írak ef það
kysi en það væri rangt og óviðeig-
andi fyrir þá sem afhenda verðlaun-
in að fara út fyrir handrit sín. Meðal
þeirra sem afhenda verðlaun í ár er
leikkonan Susan Sarandon sem er
yfirlýstur andstæðingur hernaðar-
aðgerða í Írak.
Hugsanlegt er að sjónvarpsút-
sendingin frá hátíðinni, sem um
milljarður manna um heim allan
mun fylgjast með, verði rofin af
fréttaskeytum frá Írak.
Frestur úti
Fresturinn til að skila inn atkvæð-
um fyrir meðlimi óskarsakadem-
íunnar rann út á þriðjudag. Price-
waterhouseCoopers (PWC) sér um
talningu atkvæðanna, sem eru alls
5.816 talsins. Niðurstöður talning-
arinnar verða síðan innsiglaðar í
sérstökum umslögum og verður
þeim haldið leyndum þar til 23.
mars. Til að auka á spennuna verða
sérlegir fulltrúar PWC, Greg Garri-
son og Lisa Pierozzi, þau einu sem
vita úrslitin þar til hátíðin fer fram.
Látlausari Óskarsverðlaunahátíð en venjulega
Starfsmaður tekur niður rauð tjöld í kring-
um hið hefðbundna svæði uppi við rauða
dregilinn. Umfang þessa hluta 75. Óskars-
verðlaunahátíðarinnar verður talsvert
minna en áður.
Engin tískusýning
á rauða dreglinum
AP
FASTEIGNIR
mbl.is
Í kvöld kl. 21, AUKAS. Örfá sæti
föst 21/3 kl. 21, UPPSELT,
lau 22/3 kl, 21, Örfá sæti
fim 27/3 kl. 21, AUKAS. UPPSELT
föst 28/3 kl, 21, UPPSELT
lau 29/3 kl, 21, UPPSELT
föst 4/4 kl, 21, Örfá sæti
lau 5/4 kl. 21, Laus sæti
föst 11/4 kl, 21, Nokkur sæti
fim 17/4, SJALLINN AKUREYRI
lau 19/4, SJALLINN AKUREYRI
FORSALA Á MIÐUM Í SJALLANN FER
FRAM Í PENNANUM/EYMUNDSSON
GLERÁRTORGI.
Stóra svið
PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Frumsýning í kvöld kl 20 UPPSELT
2. sýn fi 27/3 kl 20 gul kort
3. sýn su 30/3 kl 20 rauð kort
4. sýn fi 3/4 kl 20 græn kort
5. sýn su 6/4 kl 20 blá kort
Fi 10/4 kl 20, Su 13/4 kl 20
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Láru Stefánsd. og Ed Wubbe
Su 23/3 kl 20,
Lau 29/3 kl 20
Fö 4/4 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 21/3 kl 20, UPPSELT
Lau 22/3 kl 20,
Fö 28/3 kl 20,
Lau 5/4 kl 20,
Fö 11/4 kl 20,
Lau 12/4 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 23/3 kl 14
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Fö 21/3, fyrirhuguð sýning fellur niður.
Mi 26/3 kl 20,
Mi 2/4 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 21/3 kl 20, Fö 28/3 kl 20, Su 30/3 kl 20,
Su 5/4 kl 20
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 22/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 22/3 KL. 14, UPPSELT
Lau 29/3 kl 14 UPPSELT, Lau 29/3 kl 15 UPPSELT
Lau 5/4 kl 14, Lau 12/4 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Su 23/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20, Lau 5/4 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
sýnir í Tjarnarbíói
Undir hamrinum
„Frábær skemmtun". SA, DV.
fös. 21. mars kl. 20
sun. 23. mars kl. 20
lau. 29. mars kl. 20
fim. 10. apríl kl. 20
Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í s. 551 2525 eða á hugleik@mi.is
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýningardaga.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Sími 562 9700. beyglur@simnet.is
„Engum er hollt að hlæja
samfellt í lengri tíma“
S. H Mbl
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Fim 20/3 kl 21
Fös 21/3 kl 21
Fös 28/3 kl 21
Fim 3/4 kl 21Síðustu
sýningar
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Sun. 23. mars. kl. 20. örfá sæti
Sun. 30. mars. kl. 20.
Lau 4. apríl kl. 20.
Miðasala 5523000 - www.madeinusa.is
SÝNT Í LOFTKASTALNUM
Næstu sýningartímar
Í dag fim 20.3 kl. 20 Aukasýning
fös 21.3 kl. 20 Lokas. UPPSELT
Síðustu sýningar
SÖNGLE
IKUR
EFTIR
JÓN
GNARR
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ
Laugard. 22 mars kl:14 og 17
Sunnud. 23 mars kl:14 og 17
Laugard. 29 mars kl:14
Sunnud. 30 mars kl: 14
Laugard. 5. apríl kl:14
Laugard. 12 apríl kl:14
Miðasala allan sólarhringinn
í s í m a 5 6 6 - 7 7 8 8