Morgunblaðið - 20.03.2003, Side 54
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 53
Miðaverð á tónleikana kr. 3.500. Með mat kr. 6.400. Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.30.
Einstakt tækifæri til að heyra þessa frábæru og sögufrægu
hljómsveit flytja sígilda rokksmelli sína eins og For Your Love, Heart
Full Of Soul, Good Morning Little Schoolgirl, Shapes Of Things, Still
I'm Sad, Over Under Sideways Down og marga fleiri, auk nýs efnis
af væntanlegri plötu, þeirri fyrstu sem The Yardbirds senda frá sér
frá árinu 1968.
Tryggið ykkur miða í tíma! Aðeins einir tónleikar!
„Yardbirds ruddu brautina fyrir súrt rafgítarrokk og
almenna rokkframúrstefnu. Í breskri blúsrokksögu
eru Yardbirds fremstir meðal jafningja og ótrúlegt til
að vita að þeir Jeff Beck, Jimmy Page og Eric Clapt-
on hafi allir verið í sömu hjómsveitinni.“
- Árni Matthíasson, Mbl
„Ein af þeim minnisstæðustu ...“
- Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
„Yardbirds eru bresk uppspretta sem hafði og hef-
ur enn áhrif á rokksöguna um allan heim og hefur
getið af sér mikið af því allra besta sem komið hefur
fram í rokktónlist síðan 1964.“
- Rúnar Júlíusson, tónlistarmaður
„Eric Clapton, Jimmy Page og Jeff Beck spiluðu
allir með Yardbirds á sínum tíma. Þarf að segja
meira?“
- Ólafur Páll Gunnarsson, Rás 2
„Án efa ein mikilvægasta hljómsveit Bítlaáranna!“
- Jón Ólafsson, tónlistarmaður
„Yardbirds eru kannski ævintýralegasta sveit 7.
áratugarins; uppeldisstöð þriggja gítarhetja sem á
sínum tíma vísaði veginn að því hvernig standa beri
að tilraunamennsku innan popp- og rokktónlistar.“
- Arnar Eggert Thoroddsen, Mbl
„Yardbirds höfðu áhrif á allar hljómsveitir, sem
komu frá Bretlandi á 7. áratugnum, allt frá Bítlunum
til Rolling Stones.
- Ásmundur Jónsson Smekkleysu
Söguleg rokkveisla á með
Fimmtudagskvöldið
27. mars
kl. 22.00
Miðasala er hafin á í síma 533-1100. Fax 533-1110 og í bókabúðum Máls og menningar Laugavegi, Mjódd og Síðumúla.
SJÁIÐHEIMILDAÞÁTTINNUM SÖGUTHE YARDBIRDSÍ SJÓNVARPINUÍ KVÖLD!
SJÓNVARPIÐ hefur keypt yfir 200
kvikmyndir af Sambíóunum og Há-
skólabíói. Að sögn Bjarna Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins er hér um að ræða
einn allra stærsta sjónvarpssamn-
ing sem gerður hefur verið við inn-
lenda dreifingaraðila.
Hann segir kvikmyndirnar jafn
ólíkar og þær eru margar. Um sé
að ræða afþreyingarmyndir af ýms-
um toga; spennumyndir, hasar-
myndir, gamanmyndir, rómantískar
myndir, barna- og fjölskyldumyndir
sem og listrænar kvikmyndir frá
Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.
Allen, Amélie, Ástríkur
og Aðlögun
Flestar eru myndirnar nýjar eða
nýlegar og nokkrar eru meira að
segja enn á framleiðslustigi. Í næst-
um öllum tilvikum er um að ræða
frumsýningar í íslensku sjónvarpi.
Meðal góðkunnra og athyglis-
verðra mynda í pakkanum stóra
eru franska verðlauna myndin
Amélie, Þögli Ameríkaninn (The
Quiet American), Njósnaleikur (Spy
Game), Mothman-spádómarnir
(The Mothman Prophecies), Stúlka
á brú (La fille sur Le point), Svefn-
vana (Insomnia), Ali, Aðlögun
(Adaptation), Woody Allen-
myndirnar Smákrimmar (Small
Time Crooks), Hollywood-endir
(Hollywood Ending), Dómsdagur
nú – sérútgáfa (Apocalypse Now
Redux), K-Pax, Ástríkur og Kleó-
patra (Asterix and Obelix: Mission
Cleopatra), önnur mynd Lukasar
Moodyssons Tillsammans og
spænska verðlaunamyndin Alein
(Solas).
Aðspurður segir Bjarni rösklega
70% myndanna vera bandarísk og
tæp 30% frá öðrum heimshlutum.
Fyrstu sýndar í sumar
Fyrstu myndirnar birtast fljót-
lega eða um mitt þetta ár og segir
Bjarni að áhorfendur Sjónvarps
muni því njóta góðs af fjölbreyttu
kvikmyndaúrvali á næstu árum.
Ekki segir Bjarni neina ákvörðun
hafa verið tekna um fjölgun bíó-
mynda eða breytt sýningarfyrir-
komulag í kjölfar innkaupanna, að
jafnaði verði frumsýndar 5 myndir
á viku og tvær endursýningar.
Nýjar myndir úr öllum áttum
Morgunblaðið/Kristinn
Guðmundur Ingi Kristjánsson, Björn Árnason og Bjarni Guðmundsson við
undirritun samningsins stóra í útvarpshúsinu í gær.
Sjónvarpið kaupir 200 bíómyndir
ÁLFABLÓM
ÁLFHEIMUM 6
553 3978
7 rósir á 500 kr.
Blóm og skreytingar
Heimsendingarþjónusta