Morgunblaðið - 11.06.2003, Síða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2003 41
DHLOPEN
Keppnin er 18 holu höggleikur og er leikin í I. og II. flokki.
Leikin er punktakeppni í báðum flokkum með 7/8 forgjöf.
I flokkur: grunnforgjöf lægri en 9,4
II flokkur: forgjöf 9,5 til 36
Sigurvegari mótsins í I. flokki, á besta skori, án forgjafar í
punktakeppni, vinnur þátttökurétt í "SHOOT-OUT"
sjónvarps- og boðsmóti Nesklúbbsins 2003, sem haldið
er til styrktar langveikum börnum.
Boðsmótið er styrkt af DHL.
Þátttökugjald er kr. 3.500 með veitingum.
Skráning á golf.is og fyrir I. flokk (forgangsskráning) í síma
561 1930.
DHL Golf á Nesvellinum, föstudaginn 13. og
laugardaginn 14. júní 2003.
Sólarhringsgolf - miðnæturgolf
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
si
a
.i
s
/
N
M
0
9
6
3
9
LOGI Ólafsson, annar af landsliðs-
þjálfurum Íslands, á ekki ýkja góð-
ar minningar frá viðureignum við
Litháa. Logi var landsliðsþjálfari
þegar þjóðirnar áttust við í und-
ankeppni HM 1996 og 1997. Litháar
fóru með sigur af hólmi í Vilnius,
2:0, 1996 og eftir markalaust jafn-
tefli í síðari leiknum á Laugardals-
vellinum 11. júní 1997 var Loga
sagt upp störfum og Guðjón Þórð-
arson ráðinn í hans stað. Þá var
Logi þjálfari ÍA þegar Akurnes-
ingar mættu Zalgiris frá Litháen í
1. umferð UEFA-keppninnar árið
1998. Skagamenn fóru með sigur af
hólmi, 3:2, á Akranesi í fyrri leikn-
um en töpuðu, 1:0 í Vilnius og féllu
þar með úr leik í keppninni.
Logi á ekki
góðar
minningar
ÍVAR Ingimarsson hefur fengið
bréf frá Wolves þar sem hann er boð-
aður til æfinga þann 8. júlí. Þá hefst
undirbúingur Úlfanna fyrir barátt-
una í ensku úrvalsdeildinni en Wolves
vann sér sæti í deild þeirra bestu eftir
16 ára hlé. Ívar lék sem lánsmaður
með Brighton stóran hluta nýliðinnar
leiktíðar.
FJÓRIR útileikmenn sem skipa
landsliðshópinn í dag hafa ekki náð að
skora í landsleik – Arnar Þór Við-
arsson, Marel Baldvinsson, Ívar Ingi-
marsson og Indriði Sigurðsson.
LANDSLIÐIÐ braut daginn upp í
gær og fór í heimsókn í dýragarðinn í
Kaunas. Ekki var heimsóknin þar
neitt til að hrópa húrra yfir. Mönnum
var hálf brugðið enda garðurinn illa
hirtur. Það sem mönnum þótti verst
að sjá var aðbúnaður dýranna þar
sem þau voru greinilega mjög illa
haldin. Flest dýranna voru skítug, illa
til reika og skorti greinilega fæðu.
FÓLK
landi en í dag er það aðeins einn úr
hópnum sem spilar heima, Birkir
Kristinsson. Ef þrír eða fjórir leik-
menn úr þessum hópi myndu meið-
ast þá kæmu jafnmargir atvinnu-
menn í stað þeirra þannig að þetta
hefur styrkst hjá okkur og menn
eru í dag almennt í betri æfingu og
eru yfirleitt í toppstandi allt árið um
kring. Hvað sem menn segja heima
á Íslandi þá hafa menn náð að bæta
sig með því að spila erlendis hvort
sem það er í Svíþjóð, Noregi eða á
öðrum stöðum.“ Eru einhverjir leik-
ir sem standa upp úr í minningunni
hjá þér þegar þú lítur yfir leikina 99
með landsliðinu? ,,Jafnteflisleikur-
inn á móti Sovétmönnum í Moskvu
líður mér seint úr minni.
Þar náðum við að jafna metin
undir lokin fyrir framan 70–80.000
manns. Ég fékk að spila í 10–15
mínútur en það var nóg. Stemningin
í klefanum fyrir og eftir leik var
mögnuð og mér er sérstaklega
minnisstætt brosið á Sigfried Held
eftir leikinn því yfirleitt stökk hon-
um ekki bros á vör. Leikirnir á móti
Frökkum, jafnteflisleikurinn heima
og 3:2 ósigurinn í París eru mér
einnig ofarlega í huga. Það voru frá-
bærir leikir af okkar hálfu og auð-
vitað man maður betur eftir góðu
leikjunum en þeim slæmu sem eru
mjög margir.“ Rúnar metur leikinn
í kvöld sem úrslitaleik fyrir íslenska
landsliðið.
,,Þetta er gríðarlega mikilvægur
leikur. Við eigum enn möguleika en
það hefur reynst okkur erfitt að
sækja stig á útivelli. Það er
áhyggjuefni en Ásgeir og Logi hafa
reynt að innprenta í okkur að við
verðum að leggjast allir á eitt í
svona verkefni og þjappa okkur
saman. Litháar eru þjóð sem við
eigum alveg að geta unnið, hvort
sem það er heima eða úti en að sjálf-
sögðu þurfum við að ná toppleik til
að leggja þá að velli hér í Kaunas.
Það er auðvelt að misstíga sig í
svona leikjum og því er mjög mik-
ilvægt að menn verði með 100% ein-
beitingu allt frá fyrstu mínútu,“ seg-
ir Rúnar sem ekki gat tekið þátt í
3:0 sigrinum á Laugardalsvelli síð-
astliðin haust vegna meiðsla.
um tala sínu máli og fara þarf allt
til ársins 2001 til að finna íslenskan
sigur á erlendri grundu en þá voru
Maltverjar lagðir að velli. Enginn
sigur í síðustu níu útleikjum, hvort
sem það hafa verið vináttuleikir
eða leikir í undankeppni HM og
EM, eru staðreyndir sem segja að
útivallargrýla hefur gert íslenska
landsliðinu óleik en vonandi tekst
nú að kveða hana í kútinn.
Ásgeir Sigurvinsson landsliðs-
þjálfari sagði í samtali við Morgun-
blaðið að lykillinn að því að ná góð-
um úrslitum á móti Litháum væri
öflug liðsheild þar sem menn fórn-
uðu sér hver fyrir annan og með
þessum orðum held ég að Ásgeir
hafi hitt naglann á höfuðið. Keðjan
verður að vera traust því ef einn
hlekkur gefur sig er hætt við keðj-
an slitni. Tveir leikmenn íslenska
liðsins leika tímamótaleiki í kvöld.
Rúnar Kristinsson nær þeim frá-
bæra árangri að leika sinn 100.
landsleik og Guðni Bergsson leikur
kveðjuleik sinn með liðinu. Þessir
heiðursmenn eiga það skilið að
leikurinn verði þeim eftirminnileg-
ur og það verður ekki nema félagar
þeirra berjist allir fyrir einn og lið-
ið nái að laða það besta fram í leik
sínum.
Knattspyrnan er óútreiknanleg
og það gerir þessa íþrótt svo
skemmtilega.
Eftir tapleikinn gegn Skotum í
Glasgow var mikið rætt um að
möguleikar Íslendinga á að blanda
sér í toppbaráttu riðilsins væru fyr-
ir bí en úrslitin í undanförnum
leikjum í riðlinum sýna það svart á
hvítu að möguleikarnir eru fyrir
hendi. Þjóðverjar geta til að mynda
ekki bókað sigur í Færeyjum annað
kvöld og takist íslensku landsliðs-
mönnunum að þjappa sér saman og
sýna virkilega hvað í þeim býr er
aldrei að vita nema litla Ísland
tróni á toppi 5. riðilsins eftir leikina
annað kvöld. Stutt er á milli hláturs
og gráts í íþróttunum. Þrjú stig
yrðu gríðarlegur sigur fyrir ís-
lenska liðið, eitt stig viðunandi en
tapið sár vonbrigði eftir allt sem á
undan er gengið. Íslensku lands-
liðsmennirnir eru sér meðvitandi
um mikilvægi leiksins og ekki hef-
ur verið annað að sjá í undirbún-
ingi liðsins hér í Kaunas en góður
andi ríki í íslenska hópnum og
menn séu virkilega tilbúnir að gefa
sig af fullu afli í verkefnið. Ekki
veitir af. Getan er fyrir hendi en nú
þurfa hjörtu leikmanna íslenska
liðsins að slá í takt.
Takist það er möguleiki á að ís-
lenska landsliðið komist á rétta
sporið og reki af sér slyðruorðið
sem einkennt hefur það und-
anfarna mánuði.
Guðmundur Hilmarsson
Tekst að kveða
útivallargrýl-
una í kútinn?
Morgunblaðið/Einar Falur
Rúnar Kristinsson á ferðinni í Evrópuleiknum gegn Færeyingum á Laugardalsvellinum á laugardaginn , 2:1.