Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tófu hefur fjölgað Náttúruleg stofnsveifla NOKKUÐ hefur ver-ið rætt um miklatófugengd á land- inu og þá ekki síst á Vest- fjörðum. Einnig hafa verið fréttir um að mikið sé af tófu í sumarbústaðalandi í Grímsnesi, auk þess sem bændur verði víða meira varir við tófu heima við bæi og að greni hafi jafnvel fundist niðri í byggð. Áki Ármann Jónsson hefur fylgst vel með vexti og við- gangi tófunnar í starfi sínu. Er tófu að fjölga í land- inu og er ástandið að verða alvarlegt? Ég held að ástandið sé ekkert alvarlegra en um 1960 þegar stofninn var síðast í hámarki. Þó eru vísbendingar um að stofn- inn sé líklega heldur stærri nú en útreikningar á stærð hans liggja þó ekki fyrir. Líklegast er hér um að ræða náttúrulega stofnsveiflu og kemur m.a. til af því að heiðar- gæs og fýl hefur fjölgað mikið frá þessum tíma. Er tófan að valda miklum usla í varpstöðvum sjófugla? Það eru engin ný sannindi, því tófan hefur alltaf gert það og mun gera það áfram í framtíðinni. Af- rán tófunnar á bjargfuglseggjum er hverfandi og hefur engin áhrif á stofnstærð sjófugla. Strandlengj- an á Vestfjörðum og Vesturlandi er mjög gjöful og lífsskilyrði tóf- unnar góð, þannig að þéttleiki hennar er trúlega meiri á þeim svæðum en um austanvert landið. Það eru vísbendingar um að fjölg- un tófunnar upp úr 1980 hafi hafist á vestanverðu landinu og náð há- marki fyrir 2-3 árum. Gotstærð hefur minnkað og geldum dýrum fjölgað, sem bendir til þess að landið sé orðið ofsetið. Tófan er óð- alsbundin, þ.e. hún merkir sér svæði með þvagi. Dýrin virða þess- ar merkingar nokkuð vel og það er lítið um áflog vegna svæða. Er tófan farin að færa sig nær mannabyggðum? Það gerist þegar stofninn stækkar og svæði sem eru fjærst mannabyggðum eru fullsetin. Tóf- an getur verið mannblendin, ekki síst á þeim stöðum þar sem hún er látin í friði, eins og á Hornströnd- um. En stafar mannfólkinu hætta af tófunni? Nei, það eru engar sögur til af því að hún hafi ráðist á fólk að fyrra bragði. Ég gat ekki annað en brosað þegar fréttir bárust af því á síðasta ári að fólk þyrði ekki að láta ungabörn sofa í vagni utan- dyra af ótta við tófu. Við vorum með skoðanakönnun meðal skotveiðimanna í fyrra þar sem við spurðum um þyngd refs- ins. Samkvæmt meðaltali könnun- arinnar er refurinn 7,5 kg sem er ansi langt frá sannleikanum, því hann er 2,5-4 kg. Þannig að dýrin vilja stækka nokkuð í umræðunni. En ræðst tófan á sauðfé? Tófan veiðir yfirleitt ekki í hópum. Ég hef aðeins einu sinni heyrt af því að tófur hafi ráð- ist á kindur í hópum en það kom fram í frétt frá Vestfjörðum í Morgunblaðinu ný- lega. Tófan tekur lömb ef henni býðst en slíkt heyrir þó frekar til undantekninga. Samkvæmt skýrslum frá sveitarfélögum drep- ur tófan 50-200 lömb á ári. Hvaða aðferð er notuð við veið- arnar og hversu mörg dýr eru drepin á ári? Það er aðeins löglegt að drepa tófu með skotvopni en þó er leyfi- legt að veiða tófu í lífgildru í rann- sóknarskyni. Veiðin er mjög mis- munandi á milli ára en hún náði hámarki á síðasta ári en þá voru drepin 5.000 dýr. Það hefur verið nokkuð í umræðunni að ástæðan fyrir stækkun refastofnsins sé sú að slakað hafi verið á í veiðinni en það er ekki rétt. Þegar stofninn var síðast í hámarki, árið 1958, voru veidd 3.500 dýr, þannig að það er mun meira veitt af ref nú en þá. Hverjir stunda refaveiðar? Refaskyttur eru ráðnar af sveit- arfélögunum sem jafnframt greiða þeim laun. Umhverfisstofnun end- urgreiðir sveitarfélögunum svo helminginn af þeim kostnaði, sam- kvæmt viðmiðunartaxta. Heildar- kostnaður við refaveiðar á síðasta ári nam 56 milljónum króna. Við veiðum ref til að lágmarka tjón m.a. í æðarvarpi og vegna dýrbíta en ekki til þess að halda stofn- stærðinni niðri. Er þá engin von til þess að hægt verði að útrýma tófunni? Úr því að það tókst ekki fyrir 1960 þegar veiðiálagið var svipað og nú en veiðiaðferðirnar fjöl- breyttari, á ég ekki von á því að það verði hægt. Enda er það ekki markmiðið, refurinn var hérna á undan okkur og hann er hluti af ís- lenskri náttúru. Er mikið um að eldisdýr sleppi frá refabúum? Það er örugglega eitthvað um það en þó ekki mikið. Blárefurinn hefur spjarað sig ágætlega í villtri náttúrunni og blandast íslenska stofn- inum ágætlega. Hversu marga yrðlinga eignast tófan og hvenær er gottíminn? Læðan eignast fjóra til sjö yrð- linga og gottíminn er á vorin. Fengitíminn byrjar í mars, læðan er móttækileg í 4-5 daga og ef hún ekki fær fang á þeim tíma þarf hún að bíða í eitt ár. Refurinn passar vel upp á læðuna sína á fengitím- anum, þannig að öruggt sé að hann eigi gotið. Áki Ármann Jónsson  Áki Ármann Jónsson er for- stöðumaður veiðistjórnarsviðs Umhverfisstofnunar. Hann var ráðinn til veiðistjóraembættisins árið 1995 til að sjá um veiði- kortakerfi skotveiðimanna en tók við starfi veiðistjóra árið 1998 og gegndi því til síðustu áramóta. Áki Ármann er líffræð- ingur frá Háskóla Íslands, fædd- ur 25. febrúar 1967. Hann er kvæntur Öldu Þrastardóttur og eiga þau saman tvö börn, rétt tæplega fimm ára dreng og eins árs stúlku. Áki Ármann á einnig 8 ára dreng frá fyrri sambúð. 5.000 dýr veidd á síð- asta ári FRAMKVÆMDIR við nýja brú yfir Þjórsá ganga vel, en áætlað er að brúin verði vígð í haust. Bogar brúar- innar eru komnir á sinn stað, og undirbúningur fyrir lagningu vegarins í fullum gangi. Nýja brúin verður 700 metrum neðar í ánni en sú gamla, og er um 170 metra löng. Báðar munu standa um ókomin ár, sú eldri fyrir hjólreiðafólk og hestamenn. Vélsmiðjan Normi úr Vogum á Vatnsleysuströnd sér um framkvæmdir á staðnum. Brúin er hönnuð af brúardeild Vegagerðar- innar, og á að standa af sér stóran jarðskjálfta. Morgunblaðið/Arnaldur Ný Þjórsárbrú tekur á sig mynd FRAMTÍÐ Löggildingarstofu verð- ur ákveðin á haustdögum en ým- islegt kemur til greina og þar á meðal að sameina starfsemina að einhverju eða öllu leyti öðrum stofn- unum, að sögn Valgerðar Sverris- dóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra. Valgerður segir að unnið sé í því hvernig starfsemi Löggildingarstofu verði best fyrir komið. Um unga stofnun sé að ræða og ekki sé óeðli- legt að menn velti því fyrir sér að fenginni nokkurra ára reynslu hvort starfsemin sé í réttum farvegi eða hvort hún að hluta til eða að öllu leyti eigi betur heima í öðrum stofn- unum eins og til dæmis Samkeppn- isstofnun. „Það er ýmislegt sem kemur til greina,“ segir hún og bendir á að margt, sem varði starf- semi Löggildingarstofu, hafi breyst á Evrópska efnahagssvæðinu síðan stofnunin hóf rekstur. „En það er ekki í raun verið að horfa á málið út frá því að leggja stofnunina niður, þó ekkert hafi verið útilokað fyrir- fram,“ segir hún. „Það hefur heldur ekki verið útilokað að það þurfi að auka einhverja þætti sem þarna eru inntir af hendi.“ Endurskoðunin hefur staðið yfir í nokkrar vikur og segir ráðherra að vonir standi til að niðurstaða liggi fyrir á haustdögum. Segir uppsögnina lögmæta Eins og greint var frá í gær vék iðnaðar- og viðskiptaráðherra Gylfa Gauti Péturssyni, forstjóra Löggild- ingarstofu, úr embætti vegna óreiðu á fjárreiðum stofnunarinnar. Val- gerður segir að forstjórinn hafi ver- ið á hálfum launum á meðan rann- sóknarnefndin hafi verið að störfum vegna málsins, en hann fái engar greiðslur eftir brottvikninguna. Ragnar H. Hall, lögmaður Gylfa Gauts, sagði við Morgunblaðið í gær að yrði Gylfa vikið úr starfi að fullu ætti hann engan annan kost en að höfða mál til heimtu bóta vegna ólögmætrar uppsagnar. „Ég geri mér grein fyrir því að það eiga allir þennan rétt að fara með mál sitt fyr- ir dómstóla og ef hann telur rétt að gera það þá gerir hann það,“ segir Valgerður. Hins vegar segir hún að lögð hafi verið mikil áhersla á vönd- uð vinnubrögð í þessu máli „og þeg- ar meirihluti nefndarinnar kemst að sömu niðurstöðu og ráðuneytið þá tel ég að við þurfum ekkert að ótt- ast,“ segir ráðherra og áréttar að ekki hafi verið um ólögmæta upp- sögn að ræða. Iðnaðarráðherra um framtíð Löggildingarstofu Kemur til greina að sam- eina öðrum stofnunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.