Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 9 AÐ undanförnu hefur verið unnið að því að flytja laxaseiði frá Silfur- stjörnunni í Öxarfirði til Sæsilfurs í Mjóafirði. Flutningur seiðanna fer fram með skipinu Snæfugli og hefur hann gengið vel, eftir örlitla byrj- unarörðugleika, að því er fram kem- ur á vefnum dettifoss.is. Seiðunum er dælt upp í tank við Silfurstjörn- una og þaðan renna þau eftir röri um eins kílómetra leið niður í fjöru í 1.000 rúmmetra kar. Eftir eins til tveggja daga hvíld eru seiðin látin renna eftir röri út í skip um 450 metra, þannig að ferðalag seiðanna er um 1,5 km. Hvergi í heiminum er fiski dælt slíka vegalengd. Alls verða flutt um 1.200 þúsund seiði til Mjóafjarðar í ár og er þegar búið að flytja um helming þeirra með þess- ari aðferð. Ráðgert er að ljúka flutn- ingunum í október nk. Snæfugl hét áður Guðmundur Ólafur ÓF og var gerður út til loðnuveiða en skipinu var breitt í brunnbát í Póllandi. Vefurinn dettifoss.is var formlega opnaður sl. föstudag og honum ætl- að að verða svæðinu til framdráttar og auka frétta- og upplýsingagildi þess. Seiðunum dælt til skips um 1,5 km leið Seiðunum er dælt í tank við Silfurstjörnuna og þaðan í kar niður í fjöru. Eftir að þau hafa hvílt sig í karinu í 1 til 2 daga er þeim svo dælt til skips. Laxaseiði flutt til Mjóafjarðar AÐ jafnaði eru milli sjötíu og áttatíu mál til umfjöllunar á samkeppnis- sviði Samkeppnisstofnunar og hefur þessi fjöldi mála hefur verið lítt breyttur um árabil. Stofnunin skilaði nýlega af sér frumskýrslu um rannsókn á meintu verðsamráði olíufélaganna en rann- sókn málsins hefur tekið um eitt og hálft ár. Að sögn Georgs Ólafssonar, forstjóra Samkeppnisstofnunar, er kostnaður við jafnstóra rannsókn og mál olíufélaganna mikill enda þurfi bæði fólk með þekkingu á sviði við- skipta-, tölvunar- og lögfræði til að starfa að rannsókninni sem veldur því að ekki er hægt hjá jafnlítilli stofnun að sinna öðrum málum af fullum krafti á meðan. Þetta hefur því kallað á aukna forgangsröðun verkefna. Auk rannsóknar á málefnum olíu- félaganna stendur nú yfir rannsókn á meintu samkeppnisbroti Eim- skipafélagsins í sjóflutningum, sem hófst fyrir tæpu ári og jafnframt er í gangi rannsókn á málefnum trygg- ingarfélaganna, sem tekið hefur á sjötta ár en er nú á lokastigi. Georg segir að mikið álag sé á starfsmönnum sem vinni að rann- sókn svo viðamikilla mála en af 23 starfsmönnum Samkeppnisstofnun- ar vinna tíu við eftirlit með sam- keppnishömlum en innan stofnunar- innar eru einnig markaðs- og stjórnsýslusvið sem meðal annars sinna eftirliti með villandi auglýsing- um og öðrum blekkingum í markaðs- starfsemi fyrirtækja, ástandi verð- merkinga í verslunum og gerð verðkannanna. Að mati Georgs væri æskilegt ef stofnunin hefði meira fjárhagslegt svigrúm til að taka upp mál að eigin frumkvæði líkt og gert var með mál olíufélaganna. „Við þurfum að vera í stakk búin til þess að geta brugðist skjótt við ef við verðum áskynja um óeðlilega háttsemi á mörkuðum sem skipta neytendum miklu máli, án þess að það komi niður á afgreiðslu annarra erinda sem til umfjöllunar eru hjá stofnunni á sama tíma,“ segir Georg. Samkomulag getur orðið um að styrkja stofnunina Framlög til Samkeppnisstofnunar á fjárlögum 2003 nema 154 milljón- um króna. Til samanburðar má nefna að áætlaður rekstrarkostnað- ur Fjármálaeftirlitsins, sem er sam- bærileg stofnun með ívið fleiri starfsmenn eða 32, var 268,6 millj- ónir fyrir árið 2003. Þess ber þó að geta að stofnanirnar eru ólíkar að því leyti að Fjármálaeftirlitið er rekið af eftirlitsskyldum aðilum en Sam- keppnisstofnun er rekin á fjárlögum. Valgerður Sverrisdóttir, við- skiptaráðherra, segist gera sér grein fyrir því að miklar annir séu hjá Samkeppnisstofnun og að hana megi styðja enn frekar en nú er gert. Val- gerður tekur þó fram að í hennar tíð hafi Samkeppnisstofnun verið studd, enda hafi ekki verið vanþörf þar á. „Ég geri mér grein fyrir því að fjár- hagurinn hjá Samkeppnisstofnun er þröngur og þess vegna hef ég lagt mig fram eins og ég get við að styrkja hana,“ segir Valgerður. Aðspurð hvort hún telji að áhrif rannsóknar Samkeppnisstofnunar á málefnum olíufélaganna muni koma af stað umræðu um stöðu stofnunar- innar, segist hún trúa því að sam- komulag geti orðið um að styrkja stofnunina eftir þá gífurlegu vinnu sem fram hafi farið í sambandi við málið. Mikið annríki vegna fjölda mála hjá Samkeppnisstofnun Að jafnaði eru 70-80 mál til rannsóknar Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Bankastræti 14, sími 552 1555 Útsala 50-80% afsláttur Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. 50% afsláttur eða meira af öllum vörum Engjateigi 5, sími 581 2141. Enn meiri verðlækkun á útsölu Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—15 Kringlunni & Hamraborg 568 4900 552 3636 ÚTSÖLULOK 20% AUKA AFSLÁTTUR VIÐ KASSA Útsala 15% aukaafsláttur Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga 11-16 Glæsibæ – Sími 562 5110 ÚRSKURÐUR Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í vik- unni, þar sem nauðasamningur Móa hf. fuglabús við lánar- drottna var staðfestur, verður kærður til Hæstaréttar af hálfu Reykjagarðs hf. og Ham- ars ehf., sem voru tveir af þremur varnaraðilum málsins. Þriðji varnaraðilinn, Mjólkur- félag Reykjavíkur svf., unir hins vegar niðurstöðu héraðs- dóms. Mótmæltu staðfestingu Í málinu var því mótmælt af hálfu allra varnaraðil að nauða- samningurinn yrði staðfestur þar sem þeir töldu m.a. að grunsemdir væru um að Móar hefðu brotið gegn lögum um gjaldþrotaskipti með því að hafa boðið ákveðnum kröfuhöf- um, Sorpu hf. og Orkuveitu Reykjavíkur, ívilnun um greiðslu gegn afturköllun krafna þeirra. Héraðsdómur taldi slíkt ósannað, enda hefði það eitt komið fram að kröfurnar hefðu verið afturkallaðar. Kæra úr- skurð vegna Móa hf. til Hæstaréttar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.