Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ SÖGN Michael Bloombergs,
borgarstjóra New York-borgar, varð
brestur í öryggisgæslu ráðhússins til
þess að byssumaðurinn sem myrti
borgarfulltrúa í ráðhúsinu í fyrradag
komst vopnaður inn í bygginguna.
„Það hefur greinilega orðið brestur
einhvers staðar,“ sagði hann eftir at-
vikið. „Ég hef átt erfiða daga um æv-
ina en aldrei eins erfiða og daginn í
dag.“
Byssumaðurinn sem skaut borgar-
fulltrúann James Davis til bana í
fyrradag hét Othniel Askew og var 31
árs gamall andstæðingur hans í póli-
tík. Svo virðist sem Askew hafi fylgt
Davis inn í ráðhúsið sem gestur hans
og því ekki þurft að fara í gegnum
málmleitartæki öryggisvarða. Blo-
omberg tilkynnti í gær að allir starfs-
menn ráðhússins, þar á meðal hann
sjálfur, myndu héðan í frá og án und-
antekninga þurfa að fara í gegnum
málmleitarhliðið.
Að öllum líkindum má rekja morð-
ið á Davis til pólitískrar deilu hans og
Askews en sá síðarnefndi hafði þrem-
ur klukkustundum áður en morðið
var framið hringt á skrifstofu banda-
rísku alríkislögreglunnar (FBI) og
staðhæft að Davis áreitti sig vegna
komandi forkosninga en Askew ætl-
aði að bjóða sig fram gegn Davis sem
fulltrúa demókrata í borgarstjórn.
Hann hafði þó ekki lagt fram form-
legt framboð enda hafði honum ekki
tekist að skila inn undirskriftum til
stuðnings framboðinu í tæka tíð.
Mikil geðshræring
í ráðhúsinu
Að sögn vitna var Davis nýstaðinn
upp úr sæti sínu á áhorfendapöllum
fundarsalar borgarstjórnar, en þar
sátu hann og Askew saman, er Ask-
ew skaut hann í bakið og hélt hann
áfram að skjóta eftir að borgar-
fulltrúinn féll í gólfið. Óeinkennis-
klæddur öryggisvörður skaut þá sex
skotum að Askew og hæfðu fimm.
Mennirnir tveir voru fluttir á sjúkra-
hús þar sem þeir voru báðir úrskurð-
aðir látnir.
Mikil geðshræring greip um sig í
ráðhúsinu er skothríðin hófst um
miðjan dag í fyrradag enda var ekki
ljóst strax hvort byssumaðurinn
hefði komist undan. Fólk kastaði sér
niður, faldi sig undir skrifborðum og
öskur fólksins gerðu það að verkum
að lögreglan gat ekki með góðu móti
greint hvaðan skothljóðin bárust.
Lögreglumenn, minnugir hryðju-
verkaárásanna 11. september 2001,
fylltu nálægar götur á örskömmum
tíma og öllum útgönguleiðum úr ráð-
húsinu var lokað meðan byssumanns-
ins var leitað. Þá var neðanjarðar-
lestarstöðvum við ráðhúsið lokað í
klukkutíma sem og umferð um Bro-
oklyn-brúna.
Vildi taka sæti Davis
í borgarstjórn
Askew hafði sent borgarfulltrúan-
um bréf fyrr í þessari viku þar sem
hann fór þess á leit að hann sam-
þykkti að eftirláta sér sætið í borg-
arstjórn „kæmi eitthvað fyrir“ hann.
Starfsfólki borgarfulltrúans, sem tók
við bréfinu, fannst uppástungan und-
arleg og tók fram í viðtali við blaðið
Los Angeles Times, að Davis hefði
hafnað beiðninni. Engan grunaði þó
að samskiptum þeirra Askews og
Davis, sem kynntust fyrir aðeins
mánuði síðan, myndi lykta eins og
raun ber vitni.
Davis var 41 árs fyrrverandi lög-
reglumaður sem stofnaði árið 1991
samtök sem börðust gegn ofbeldi í
stórborgum Bandaríkjanna. Hann
hafði jafnframt lagt fyrir borgarráð
tillögur sem miðuðu að því að stöðva
ofbeldi á vinnustöðum. „Hann tileink-
aði líf sitt þeim málstað að stöðva of-
beldi,“ tjáði Geoffrey Davis, bróðir
hins látna fjölmiðlum. Hann furðaði
sig ennfremur á því að bróðir sinn
hefði verið felldur inni í opinberri
byggingu. „Hvernig gat þetta gerst?“
spurði hann og bætti við að Davis
væri látinn fyrir tilstilli „kerfisins“.
Morðinginn vildi sæti
borgarfulltrúans
Borgarstjórinn í New York herðir öryggisreglur í kjöl-
far morðsins sem framið var í ráðhúsbyggingunni
New York. AP, LATWP.
AP
Borgarstjórinn í New York, Michael Bloomberg, fór í gegnum vopnaleit-
arhlið er hann mætti til vinnu í ráðhúsinu í gærmorgun.
AP
James Davis, borgarfulltrúi og
þekktur baráttumaður gegn stór-
borgarofbeldi, sem var myrtur í
ráðhúsi New York-borgar.
MYNDIR af blóðugum og af-
mynduðum andlitum sona Sadd-
ams Husseins, sem birtar voru
síðdegis í gær í Bagdad og sýndar
í sjónvarpi um allan heim, virðast
hafa sannfært flesta Araba sem
höfðu efasemdir um að þeir Uday
og Qusay hefðu í raun látið lífið í
átökum við bandaríska herflokka í
Mosul á þriðjudag. Myndirnar
hafa vakið sterk viðbrögð meðal
Araba, allt frá reiði til ánægju.
„Ég hafði efasemdir en nú er ég
viss um að þeir eru dauðir,“ sagði
Ameen Hmoud, starfsmaður flug-
málastjórnarinnar í Jemen.
„Endalok þeirra eru við hæfi mið-
að við líf þeirra. Þeir áttu þennan
dauðdaga skilinn.“
Í fyrrakvöld brutust mikil fagn-
aðarlæti út í Bagdad, þegar fréttir
bárust af dauða bræðranna, sem
voru alræmdir fyrir fantaskap,
einkum Uday, en margir sögðust
ekki myndu trúa þeim fréttum
fyrr en þeir sæju myndir af lík-
unum.
Þrátt fyrir að bræðurnir væru
illræmdir sagði Izzy Hussein, bíl-
stjóri í Jemen, að Arabar ættu að
vera reiðir yfir því að lík bræðr-
anna væru sýnd opinberlega.
„Þeir hefðu ekki átt að birta þess-
ar myndir. Allir múslimar ættu að
bregðast við. Það þarf að leita
hefnda. Enginn Íraki, Arabi eða
múslimi mun gleyma þessu.
Bandaríkjamenn verða að gjalda
fyrir þetta. Þeir eru skepnur,“
sagði Hussein. „Hatur á Banda-
ríkjunum hefur magnast. Ef þeir
væru á lífi og væru dregnir fyrir
rétt, væri það í lagi. En þetta er
hryðjuverkastarfsemi.“
Arabískar gervihnattastöðvar
sýndu myndirnar af líkum bræðr-
anna um leið og þeim var dreift til
fréttamanna í Bagdad. Sumir
áhorfendur minntu á athuga-
semdir Bandaríkjamanna þegar
arabískar sjónvarpsstöðvar birtu
myndir af líkum bandarískra her-
manna sem féllu í Íraksstríðinu.
Tony Sawaya, tryggingasali í Líb-
anon, sagði að þessi mál væru ekki
sambærileg.
„Þetta er sérstakt mál og þeir
hafa birt myndirnar eftir kröfu frá
almenningi,“ sagði hún. Hún
bætti við að auðvitað væri hægt að
breyta myndunum en hún teldi að
þær væru ósviknar þar sem
Bandaríkjamenn myndu ekki taka
áhættuna af lygum.
Sana Khalil, ríkisstarfsmaður í
Líbanon, sagðist einnig telja að
myndirnar væru ósviknar en þær
myndu ekki breyta skoðun þeirra
sem hefðu efasemdir um að þær
væru í raun af sonum Saddams.
Myndbirtingin
vekur sterk við-
brögð meðal araba
Kaíró. AP.
Qusay Hussein, til vinstri, og lík-
ið sem sagt er af honum, t.h.
Reuters
Uday Hussein, til vinstri, og líkið
sem sagt er af honum, til hægri.
ÍTALSKIR saksóknarar telja nú að
Roberto Calvi, oft nefndur „banka-
stjóri Guðs“, sem dó árið 1982, hafi
verið myrtur af
mafíunni en ekki
framið sjálfsmorð
eins og áður var
haldið. Calvi
fannst hangandi í
snöru undir brú í
London eftir að
Ambrosiano-
bankinn sem hann
stjórnaði varð
gjaldþrota í
stærsta fjármálahneyksli Ítalíu eftir
stríð en bankinn var nátengdur Páfa-
garði sem átti stóran hlut í honum.
Calvi var gjarnan nefndur banka-
stjóri Guðs vegna tengsla sinna við
Páfagarð.
Talið var að Calvi hefði hengt sig
en fjölskylda hans hefur alltaf haldið
því fram að hann hefði verið myrtur.
Rannsókn á dauða hans hófst aftur
þegar ítölsk yfirvöld skipuðu fyrir um
að lík hans skyldi grafið upp til rann-
sóknar árið 1998. Nú hafa réttarsér-
fræðingar staðfest að enga áverka
eftir hengingu hafi verið að finna á
hálsi hans. Líklega hafi hann verið
kyrktur og síðan hengdur upp svo liti
út fyrir að hann hefði svipt sig lífi.
Fjórir grunaðir um morðið
Fjórir menn eru grunaðir um
verknaðinn, m.a. dæmdur mafíósi,
Giuseppe Calo. Hann er talinn hafa
framið morðið en að hinir þrír hafi
ginnt Calvi til London þar sem hann
var drepinn.
Ambrosiano-bankinn varð gjald-
þrota eftir að 1,3 milljarðar punda
hurfu þaðan. Banki Páfagarðs féllst
að lokum á að greiða lánardrottnum
Ambrosiano-bankans 250 milljónir
punda en neitaði þó sök í málinu.
Erkibiskupinn Paul C. Marcinkus,
sem stjórnaði banka Páfagarðs, neit-
aði einnig sök. Nú telja menn að mafí-
an hafi myrt Calvi vegna þess að
hann tapaði peningum hennar og
vissi of mikið um hagi hennar. Einnig
hefur komið fram sú tilgáta að hann
hafi dregið sér fé sem hann átti að
hvítþvo fyrir mafíuna.
Myrti mafían
„bankastjóra Guðs“?
Róm. AP.
Roberto Calvi
MAHMOUD Abbas, forsætisráð-
herra palestínsku heimastjórnarinn-
ar, kom til Washington í gær en hann
mun eiga viðræður við George W.
Bush Bandaríkjaforseta í dag. Lík-
legt er talið að Abbas muni leggja
áherslu á að Bandaríkjamenn beiti
áhrifum sínum til að Ísraelar sleppi
fleiri palestínskum föngum. Ísraelar
og Palestínumenn eru enn langt frá
því að komast að sameiginlegri nið-
urstöðu um þann fjölda fanga sem
Ísraelum beri að sleppa.
Um 500 meðlimir palestínskra
harðlínusamtaka á borð við Hamas
og Íslamska Jihad efndu til mót-
mæla fyrir framan skrifstofur Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) í Gaza-borg í
gær. Tilgangurinn var að krefjast
þess að öllum föngum sem haldið er í
ísraelskum fangelsum og tilheyra
hreyfingunum verði skilyrðislaust
sleppt en ísraelsk ráðherranefnd
hindraði í fyrradag áform um að
sleppa meðlimum hinna herskáu
samtaka.
Silvan Shalom, utanríkisráðherra
Ísraels, varðist í gær gagnrýni
Bandaríkjastjórnar á girðingu sem
ísraelska stjórnin hefur komið upp á
landamærum Ísraels og Vestur-
bakkans. Hann sagði tilgang girð-
ingarinnar að verjast hryðjuverkum.
„Bandaríkjamenn misskilja tilgang
girðingarinnar vegna þess að þeir
þekkja ekki allar hliðar þessa verk-
efnis,“ sagði ráðherrann í viðtali við
ísraelska herútvarpið að loknum við-
ræðum við Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í Wash-
ington. Áður hafði Powell sagt á
blaðamannafundi að skoða þyrfti
hvort girðingin „hjálpar friðarferl-
inu“.
Abbas og Bush funda í
Washington í dag
Forsetinn
beiti sér
fyrir lausn
fanga
Gazaborg. AFP.
FRADRIQUE de Menezes, forseti
vestur-afríska eyríkisins Sao Tome
og Principe, sneri aftur til síns heima
í fyrrakvöld, einni viku eftir að hann
flúði land vegna valdaráns í landinu.
De Menezes skrifaði fyrr um daginn
undir samkomulag við leiðtoga
valdaránsins og þykir sennilegt að
hann taki við embætti sínu á nýjan
leik.
De Menezes flaug til Sao Tome frá
höfuðborg Gabons, Libreville, og var
Olusegun Obasanjo, forseti Nígeríu,
með í för.
„Það er búið að skrifa undir sam-
komulagið,“ sagði Rodolphe Adada,
utanríkisráðherra Kongó, en hann
kom að sáttaumleitunum. Hann
sagði þó ekki hvað fælist nákvæm-
lega í samningum de Menezes og
valdaræningjanna. Fernando Per-
eira, leiðtogi uppreisnarmanna,
sagði samkomulagið hins vegar fela í
sér almenna sakaruppgjöf til handa
valdaræningjunum. Ekki kom fram
hvort de Menezes tæki aftur forseta-
embættinu en líklegt þótti, að það
hefði orðið niðurstaðan.
Samkomulag und-
irritað á Sao Tome
Sao Tome. AFP.