Morgunblaðið - 25.07.2003, Síða 36
MINNINGAR
36 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ RagnheiðurBjörk Ragnars-
dóttir fæddist á
Skagaströnd 9. apríl
1939. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 18. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Ragn-
ar Magnússon, f. 4.
nóvember 1910, d. 14.
janúar 2000, og Stein-
unn Áslaug Jónsdótt-
ir, f. 8. júní 1909, d. 2.
febrúar 1975. Syst-
kini hennar voru: 1)
Karítas Una, f. 17.
september 1931, d. 6. janúar 1940.
2) Magnús Guðberg, f. 30. júní
1936, d. 20. janúar 1943. 3) Jón Jó-
hann, f. 4. ágúst 1937. 4) Gestur
Breiðfjörð, f. 9. apríl 1939. 5) Ólína
Guðbjörg, f. 4. febrúar 1944.
14 ára fluttist Ragnheiður með
foreldrum sínum og systkinum til
Grindavíkur og bjó þar alla tíð síð-
an.
Hinn 26. desember 1963 giftist
Ragnheiður Daníel Reyni Haralds-
syni, f. 17. september 1935, d. 2.
ágúst 1979. Foreldrar hans voru
Haraldur Daníel
Haraldsson, f. 29.
desember 1903, d.
21. september 1970,
og Arnfríður Guðleif
Daníelsdóttir, f. 13.
september 1908, d.
14. desember 1972.
Bræður hans voru
Guðmann Óskar, f.
19. ágúst 1928, d. 14.
júní 1993, og Einar
Kristinn, f. 9. apríl
1933. Ragnheiður og
Daníel eignuðust tvö
börn. Þau eru: 1)
Arnar, f. 17. júní
1963, kona hans er Eva Margrét
Hjálmarsdóttir, f. 23. mars 1968,
börn þeirra eru Daníel Reynir, f.
29. ágúst 1991, og Þórdís Una, f.
10. desember 1996. 2) Karítas Una,
f. 13. júlí 1967.
Ragnheiður vann ýmis störf,
sem matráðskona en þó lengst af
við verslunarstörf. Síðustu árin
starfaði hún á hótelinu Northern
Light Inn við Bláa lónið.
Útför Ragnheiðar verður gerð
frá Grindavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.00.
Þessa dagana stöndum við í miðju
sjónarspili náttúrunnar sem vefur um
okkur hlýleika bjartra nátta en um
leið minnir okkur á vanmátt og smæð
okkar frammi fyrir almættinu.
Þegar ég sit hérna og læt hugann
reika koma margar góðar og
skemmtilegar minningar upp í hug-
ann. Mér er það hugleikið er leiðir
okkar Ragnheiðar eða Röggu eins og
hún var alltaf kölluð lágu fyrst saman
þegar fjölskylda hennar fluttist frá
Skagaströnd að Búðum í Grindavík.
Þetta var fermingarár þeirra Gests
og Röggu. Eins og flestir unglingar í
þá daga unnu þau systkin við síldar-
söltun og þar kynntist ég þeim laus-
lega. Ég átti eftir að kynnast Röggu
betur seinna er við tengdumst fjöl-
skylduböndum.
Þegar við Gestur hófum búskap á
Mánagötunni kom Ragga oft á kvöld-
in „að spjalla um heimsins gagn og
nauðsynjar“ og sá ég þá fljótt að þar
var á ferð góður og traustur vinur,
með létta lund, greiðvikin og hjálp-
söm. Já, við vorum ekki síður góðar
vinkonur en mágkonur.
Eins og ég hef svo oft sagt dáðist
ég að dugnaði Röggu og af því hve
ráðagóð hún var og bar höfuðið hátt
þegar á móti blés. Þegar Daníel eig-
inmaður Röggu lést í blóma lífsins
stóð hún sig eins og hetja við að koma
börnum þeirra tveimur, Arnari og
Kaju, til manns eins og þau bera
henni glöggt vitni um. Ragga og
börnin voru alla tíð sérlega samrýnd
og ekki minnkaði samheldni fjöl-
skyldunnar þegar við bættist góð
tengdadóttir og seinna barnabörnin
tvö.
Þrátt fyrir erfiðleika lífsins bar hún
ávallt bjartsýni í brjósti og lét aldrei
bugast heldur tók á mótlæti því sem
hún mætti með mikilli reisn.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Nú er komið að leiðarlokum,
Ragga mín, og við Gestur þökkum
þér fyrir samfylgdina. Elsku Kaja,
Arnar, Eva, Daníel og Þórdís, kveðju-
stundin er erfið en eftir standa ljúfar
minningar um góða konu. Megi góður
Guð styrkja ykkur í sorginni.
Jóhanna Garðarsdóttir.
Einn fallegasti og hlýjasti dagur
sumarins rann upp 18. júlí en um
miðjan dag dró ský fyrir sólu, Ragga
mágkona mín lagði af stað héðan í
sína hinstu för. Hún var mikill sól-
dýrkandi svo það var kannski ekki til-
viljun að hún kveddi þessa jarðvist á
slíkum degi. Eins og hún sagði svo oft
að sér þætti mest gaman að fara héð-
an í ferðalög til útlanda í góðu veðri.
Eftir langvarandi veikindi og
stranga lyfjameðferð kom kallið frá
þeim sem öllu ræður. Enda þótt við
sem eftir sitjum hefðum gert okkur
grein fyrir hversu alvarleg veikindi
Röggu voru, vonuðumst við samt öll í
hjarta okkar til að hún fengi að vera
lengur á meðal okkar.
Ragga var mikil fjölskyldumann-
eskja, frændrækin, hlý og nærgætin.
Hún var hógvær, prúð og afskaplega
dul.
Þó svo lífið væri ekki alltaf auðvelt
hjá henni, lét hún aldrei bilbug á sér
finna, hún var dugnaðarforkur.
Ragga var oft hnyttin í tilsvörum,
skemmtileg og hafði góðan húmor.
Það er margs að minnast og af
mörgu að taka.
Ungar að árum stofnuðum við
nokkrar vinkonur saumaklúbb og ég
held að ég geti talað fyrir munn okkar
allra að það var sérstakt tilhlökkun-
arefni að fara í saumaklúbb til Röggu
því matargerð var hennar sérfag, líf
og yndi, það var sama hvers kyns var,
matur, kökugerð, brauðtertur eða
danskt „smørrebrød“, hún var snill-
ingur í að laða fram slíkt góðgæti.
Ragga fór til Danmerkur á smur-
brauðsnámskeið, las mikið uppskrift-
ir úr dönskum blöðum og allar mat-
reiðslubækur og blöð sem hún náði í,
og oft var leitað til hennar ef aðstoða
þurfti við veislur.
Aðeins fertug að aldri varð Ragga
ekkja með tvö börn, þau Arnar og
Kaju, sem nú sjá á eftir móður sinni.
Ragga var umhyggjusöm, heima-
kær og góð móðir, einnig hefur hún
reynst góð tengdamóðir og amma.
Þau Arnar og Kaja reyndust móð-
ur sinni afar vel og eru vel af Guði
gerð. Einnig hefur Eva tengdadóttir
hennar reynst henni afar vel.
Að leiðarlokum vil ég þakka Röggu
mágkonu minni áratuga vináttu og öll
góðu ferðalögin okkar saman innan-
lands sem utan.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Elsku Arnar, Kaja, Eva, Daníel og
Þórdís, megi Guð styrkja ykkur í sorg
ykkar og ávallt vera með ykkur.
Kristín Th.
Kæra Ragga. Núna þegar þú ert
farin yfir móðuna miklu, langar okk-
ur saumaklúbbssysturnar að þakka
þér samfylgdina.
Okkur finnst raunar ótrúlegt að þú
sért farin frá okkur, enda þótt við
vissum reyndar nákvæmlega í hvað
stefndi. Þú varst svo sannarlega búin
að spyrna við fótum með ótrúlegum
dugnaði í þínum löngu og erfiðu veik-
indum en tapaðir að lokum. En svona
fór, kæra vinkona, og við söknum þín.
Það er svo margs að minnast eftir
áralanga samveru í saumaklúbbi.
Reyndar bar okkur ekki saman um
hversu margra ára saumaklúbburinn
er í dag.
Var hann stofnaður árið sem Eirík-
ur fæddist? Eða var það árið sem Ól-
ína fæddist? Einhvern veginn var það
fyrstu árin að við töluðum um börnin
okkar á meðan við stoppuðum í sokka
eða vorum með aðra handavinnu.
Minnisstæð er útsaumaða renni-
brautin þín.
Það var alltaf svo mikið og gott að
borða hjá okkur í saumaklúbbnum og
þess vegna settum við þær reglur að
ekki fleiri en þrjár sortir mættu vera
á borðum. Þú varst fljót að sjá við
þeim reglum, dreifst þig í að fara á
smurbrauðsnámskeið í Danmörku og
þar með gast þú af þinni alkunnu
matarsnilld komið með ótal margar
sortir sem allar heyrðu undir smur-
brauðið.
Þá eru ógleymanlegar utanlands-
ferðirnar sem saumakúbburinn fór,
það var alltaf jafn gaman, hvort sem
við vorum í Amsterdam, Hamborg
eða Glasgow. Við vorum alltaf að gera
svo góð kaup.
Sennilega voru bestu kaupin þegar
okkur var boðið á Saga Class ef við
vildum fljúga á Frankfurt í staðinn
fyrir Kaupmannahöfn á leiðinni til
Hamborgar. Svo mikil var gleðin í
bakaleiðinni þegar við allar mættum í
köflóttum jökkum að við fengum
sömu Saga Class-þjónustuna þótt við
værum í almenningnum.
Já, kæra vinkona, við þökkum þér
allar glöðu og góðu stundirnar.
Dáðrík gæðakona í dagsins stóru önnum,
dýrust var þín gleði í fórn og móðurást.
Þú varst ein af ættjarðar óskadætrum sönnum,
er aldrei köllun sinni í lífi og starfi brást.
(Ingibjörg Sig.)
Innilegar samúðarkveðjur til Kaju,
Arnars, Evu, Daníels, Þórdísar og
annarra aðstandenda.
Megi Guð styrkja ykkur í sorginni.
Saumaklúbburinn.
Kveðja frá
Kór Grindavíkurkirkju
Látin er langt um aldur fram, kær
vinkona okkar Ragnheiður Björk
Ragnarsdóttir eftir löng og erfið veik-
indi. Hún háði baráttu sína af mikilli
elju og dugnaði, allt þar til yfir lauk.
Það sýndi sér best í því að vinnu
sótti hún þó hún væri orðin mjög veik,
fór í lyfjameðferðir og mætti oft til
vinnu næsta dag á eftir.
Ragga var mikill vinur vina sinna,
stutt í brosið sem var bæði einlægt og
fallegt. hún lét fara lítið fyrir sér, en
hafði gaman af að vera í glöðum hópi
á góðri stundu,söngelsk mjög og hafði
fallega söngrödd og söng sópran rödd
í kórnum okkar.
Ragga átti fallegt heimili sem hún
ann, enda mikil húsmóðir.
Við þökkum Röggu hjartanlega
samverustundirnar. Hennar er sárt
saknað.
Sendum börnum hennar og fjöl-
skyldu allri einlægar samúðarkveðj-
ur og biðjum vinkonu okkar, Guðs
blessunar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjörn Egilsson.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
RAGNHEIÐUR
BJÖRK
RAGNARSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Ragnheiði Björk Ragn-
arsdóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AUÐUR VILHELMSDÓTTIR,
Háuhlíð 5,
Sauðárkróki,
sem lést mánudaginn 14. júlí, verður
jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 26. júlí kl. 14.00.
Hróbjartur Jónasson,
Ingi Vilhelm Jónasson, Carina Törnblom,
Ingibjörg Elín Jónasdóttir, Jens Andrés Jónsson
og barnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
VALGERÐUR KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR
frá Skarði,
Hlíðarvegi 25,
Kópavogi,
sem andaðist föstudaginn 18. júlí, verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 28. júlí
kl. 13.30.
Jarðsett verður í Kotstrandarkirkjugarði í Ölfusi.
Kristinn Kristjánsson,
Magnús Sigurjónsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Kristján Kristinsson,
Gunnlaugur Kristinsson, Björk Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
FJÓLA SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 18. júlí.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 28. júlí kl. 13.30.
F.h. aðstandenda,
Björk Kristjánsdóttir,
Stefanía Kristjánsdóttir, Ásgeir Þór Hjaltason,
Sigurlaug Jakobsdóttir, Bragi Már Bragason,
Valdimar G. Jakobsson.
Elsku litli drengurinn okkar, bróðir okkar,
mágur og barnabarn,
BRYNJAR PÁLL GUÐMUNDSSON,
sem lést af slysförum sunnudaginn 20. júlí sl.,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar-
daginn 26. júlí kl. 11.00.
Áslaug Pálsdóttir, Guðmundur Jónsson,
Jón Ingibergur Guðmundsson,
Þórhildur Svava Svavarsdóttir, Torfi Ragnar Sigurðsson,
Páll Jónsson, Þórhildur Svava Þorsteinsdóttir,
Bryndís Sveinsdóttir.
Ástkær unnusta mín, dóttir, stjúpdóttir, systir,
barnabarn og tengdadóttir,
TINNA HRÖNN TRYGGVADÓTTIR,
Háteigi 21,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju í dag,
föstudaginn 25. júlí kl. 15.00.
Haukur Aðalsteinsson,
Hrafnhildur Bjarnadóttir, Ólafur Ragnar Elísson,
Tryggvi Þórir Egilsson, Ásta Sigríður Guðmundsdóttir,
Bjarni Þór Ragnarsson, Egill Tryggvason,
Signý Ósk Ólafsdóttir, Ásgeir Tryggvason,
Ólafur Hrafn Ólafsson, Stefanía Ásta Tryggvadóttir,
Tómas Orri Ólafsson,
Margrét Jensdóttir,
Egill Sveinsson, Brynja Tryggvadóttir,
Aðalsteinn Guðbergsson, Guðríður Hauksdóttir.