Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 39
Í UNDIRRÉTTI OG ÆÐRI DÓMSTÓL NO. 4207 ÁRIÐ 2003
SÉRDEILD DÓMS FÉLAGARÉTTUR
MÁLIÐ VARÐANDI CNA INSURANCE COMPANY (EUROPE) LIMITED
- OG -
MÁLIÐ VARÐANDI CNA INSURANCE COMPANY LIMITED
- OG -
MÁLIÐ VARÐANDI LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG MARKAÐI FRÁ 2000
TILKYNNING
HÉR MEÐ TILKYNNIST að hinn 26. júní 2003 sótti CNA Insurance Company (Europe) Limited („CIE“) til undirréttar og æðra dómstólsins
um:
1. Tilskipun samkvæmt VII hluta laga um fjármálaþjónustu og markaði frá 2000 („lögin“), sem samþykki áætlun („áætlunin“)
með ákvæði um flutning til CNA Insurance Company Limited („CICL“) á öllum almennum vátryggingaviðskiptum
CIE; og
2. Tilskipun, sem gerir viðbótarákvæði í sambandi við framkvæmd áætlunarinnar samkvæmt 112. kafla laganna.
Væntanlegur flutningur mun leiða til þess að viðskipti, sem CIE rak áður fyrr í Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og Hollandi verða
rekin af CICL. Bæði CIE og CICL eru dótturfyrirtæki CNA Financial Corporation. Væntanlegur flutningur mun tryggja áframhald hverskyns
málaferla af hendi eða gegn CICL eða af hendi eða gegn CIE varðandi réttindi og skuldbindingar í sambandi við yfirfærðu viðskiptin. Allar
kröfur, sem afgreiddar eru fyrir yfirfærslu af hendi CIE munu að yfirfærslunni aflokinni afgreiddar af CICL; allar kröfur sem upp koma eftir
yfirfærsluna verða afgreiddar af CICL.
Umsókninni er beint til fyrirtöku hjá dómara félagsmálaréttar konunglegu dómstólanna, Strand, London WC2A 2LL hinn 2. október 2003 og
sérhver aðili (þ.á m. starfsmaður CIE eða CICL), sem telur að hann eða hún verði fyrir slæmum áhrifum við framkvæmd áætlunarinnar, getur
mætt við framangreint réttarhald sjálf(ur) eða látið lögmann mæta fyrir sig. Sérhver aðili, sem hyggst koma þannig í rétt og sérhver
skírteinishafi CIE eða CICL sem er andvígur áætluninni en ætlar ekki að mæta þannig í rétt ætti að tilkynna það skriflega með eigi skemmri en
tveggja heillra virkra daga fyrirvara eða tjá sig mótfallinn og geta ástæðna fyrir því. Tilkynningin sendist lögmönnunum sem um getur hér að
neðan.
Afrit af skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem samin er samkvæmt 109. kafla laganna („óháða sérfræðingsskýrslan“) og greinargerð um skilmála
áætlunarinnar er inniheldur ágrip af óháðu sérfræðingsskýrslunni er hægt að fá á
www.cnaeurope.com/transfer og láta undirritaðir lögmenn gögnin í té án afgjalds.
Fjármálaeftirlitið (FME) birti auglýsingu í Lögbirtingablaðinu varðandi vænatanlegan flutning hinn 11. júlí 2003
DAGSETT 25. dag júlí 2003
Lovells Atlantic House Holborn Viaduct London EC1A 2FG
Sími: +44 (0) 20 7296 2000 Fax: +44 (0) 20 7296 2001
Tilv.: C1/TJG Lögmenn fyrir CIE og CICL
Haustferð Kínaklúbbsins Kynn-
ingarfundur vegna fyrirhugaðrar
haustferðar verður haldinn í húsi
Kínaklúbbsins að Njálsgötu 33 kl.20.
Í DAG
Golfmót Nýherja Canon PRO AM
golfmót Nýherja verður haldið
mánudaginn 28. júlí nk. á Hvaleyr-
inni í Hafnarfirði en þá munu Justin
Rose og Peter Baker etja kappi við
fremstu kylfinga landsins.
Á NÆSTUNNI
Ljóstraði ekki upp
Einar Þór Sverrisson hdl. verjandi
Danans sem situr í gæsluvarðhaldi
vegna smygls á 10 kílóum af hassi til
landsins, segir það rangt að maður-
inn hafi ljóstrað upp um aðild Íslend-
ings að málinu. Íslendingurinn var
handtekinn í Hvidovre í Danmörku í
síðustu viku. Þetta var fullyrt í dag-
blaðinu Hvidovre Avis sem Morgun-
blaðið vitnaði til í frétt sinni um mál-
ið í gær.
LEIÐRÉTT
HINN 23. júlí var ekið utan í rauða
Peugeot fólksbifreið þar sem hún
stóð við Brekkustíg 8 milli kl. 14:00
og 21:40. Tjónvaldur fór af vettvangi
án þess að tilkynna óhappið og er
hann og þeir sem upplýsingar geta
gefið um málið beðnir um að hafa
samband við lögregluna í Reykjavík.
Vitni óskast
FÉLAGAR í Samlaginu Listhúsi á
Akureyri verða með ný verk á sýn-
ingu á smáverkum, á Café Nielsen,
Tjarnarbraut 1, Egilsstöðum og
verður hún opnuð föstudaginn 1.
ágúst og stendur til 24. ágúst nk.
Þessi sýning er hluti af ferðalagi
sem 12 listamenn og félagar í Sam-
laginu Listhúsi á Akureyri tóku sér á
hendur og er einn parturinn enn þá
til sýnis í Gyllta salnum í Norska
húsinu í Stykkishólmi. Félagarnir
eru: AMÍ-Anna María Guðmann,
Anna Gunnarsdóttir, Anna Sigríður
Hróðmarsdóttir, Einar Helgason,
Guðmundur Ármann Sigurjónsson,
Guðrún Hadda
Bjarnadóttir, Hrefna Harðardótt-
ir, Hugrún Ívarsdóttir, H. Halldóra
Helgadóttir, Nanna Eggertsdótt-
ir, Ragnheiður Þórsdóttir og Rósa
Kristín Júlíusdóttir. Á sýningunum
eru málverk unnin með olíu, vatnslit,
akrýl og verk unnin í textíl, tré, leir,
grafík og ljósmyndatækni. Nýja sýn-
ingin er opin á afgreiðslutíma Café
Nielsen á Egilsstöðum.
Samlagið sýnir
á Egilsstöðum
GRUNDFIRÐINGAR halda bæj-
arhátíðina „Á góðri stund í Grund-
arfirði “ nú um helgina frá 25.-27. júlí
í sjötta sinn. Undirbúningur miðast
við að alls muni koma 5-6000 manns.
Reynslan sýnir að brottfluttir
Grundfirðingar, fjölskyldur þeirra og
vinir nota þessa hátíð til þess að sýna
sig og sjá aðra. Hátíðin hefst á föstu-
degi með athöfn í Bókasafni Grund-
arfjarðar sem minnist þess að 80 ár
eru liðin frá stofnun lestrarfélags í
Eyrarsveit og þar með upphafi bóka-
safns. Síðan rekja fjölbreyttir dag-
skrárliðir sig alla helgina. Má þar
nefna 5 ára afmælisgrillveislu versl-
unarinnar Tanga, tónleika, myndlist-
arsýningar, söngskemmtanir, dans-
leiki úti sem inni, bryggjuhátíð og
margt fleira. Nánar má sjá hvað í
boði er á heimasíðu Grundarfjarðar
(http://www.grundarfjordur.is).
Með stærri viðburðum helgarinn-
ar er opnun Sögumiðstöðvar í Grund-
arfirði sem stofnað var sjálfseignar-
félag um fyrr í sumar. Sögumiðstöðin
hefur aðsetur við Grundargötu 35
þar sem áður var verslunin Grund.
Ingi Hans Jónsson, forstöðumaður
miðstöðvarinnar, sagði að í þessum
áfanga yrði opnuð svokölluð Bær-
ingsstofa sem varðveita mun ótrúlegt
safn mynda eftir Bæring Cecilsson
en auk þess ýmsa hluti úr fórum hans
sem tengjast myndatökuferli hans. Í
Bæringsstofu munu gestir geta
fylgst með myndum úr safninu í sér-
stökum kvikmyndasal sem tekur um
40 manns í sæti. Auk Bæringsstofu
verður tekin í notkun sérstök Gesta-
stofa sem verður andyri Sögumið-
stöðvar með upplýsingaaðstöðu fyrir
ferðamenn, gesti og gangandi. Að
sögn Inga verður síðan leitast við að
bæta við ýmsum sýningum í öðrum
sölum Sögumiðstöðvarinnar eftir því
sem efni og ástæður leyfa í framtíð-
inni.
„Á góðri stund
í Grundarfirði“
Grundarfirði. Morgunblaðið.
TIL landsins er að koma Danshópur
Bahá’í ungmenna, sem kallar sig
Steps To World Peace. Þetta er hóp-
ur ungmenna víðsvegar að úr heim-
inum, sem kemur saman og dansar
til að vekja umheiminn til umhugs-
unar. Þau nota dansinn sem tjáning-
arform þar sem þau taka fyrir
ákveðin félagsleg vandamál og koma
með lausnir á þeim. Dansarnir í sýn-
ingunni taka á málefnum eins og for-
dómum, fátækt, eiturlyfjaneyslu,
stríði , kynþáttafordómum, ójafn-
rétti milli kynjanna, einelti o.fl. Hóp-
urinn kemur til landsins í dag. Mun
hann m.a. sýna á Galtarlækjarhátíð-
inni um Verslunarmannahelgina,
föstudaginn 1. ágúst og á Menning-
arnótt í Reykjavík, og á Ingólfstorgi
fimmtudaginn 31. júlí kl 19. Einnig
verða sýningar víðsvegar um borg-
ina yfir þessar þrjár vikur s.s. í
Kringlunni og Firði Hafnarfirði.
Meðan á sýningu stendur eru þau
nær eingöngu með dansa til túlkunar
en eru jafnframt með útskýringar
milli dansa. Eftir sýningar er hóp-
urinn tilbúinn til að koma og spjalla
við áhorfendur um sýninguna.
Vekja umheim-
inn til umhugs-
unar með dansi
FYRIR skömmu gerðu skákfélagið
Hrókurinn og Ræsir hf. með sér
samkomulag um að Ræsir lánaði
Hróknum ökutæki til afnota fram
að áramótum. Bíllinn, sem er ný
Mazda, mun nýtast liðsmönnum
Hróksins hvað mest á haustmán-
uðum. En eins og síðasta vetur mun
Hrókurinn gefa öllum 3.-bekk-
ingum í landinu bókina Skák og
mát frá Eddu útgáfu.
„Við í Hróknum erum afar
ánægð með samstarf Hróksins og
Ræsis. Það auðveldar okkur barna-
starfið til muna og nú eigum við að
geta heimsótt hvern einasta skóla á
landinu í haust og í vetur,“ sagði
Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins.
Regina Pokorna skákdrottning og Ivan Sokolov stórmeistari í Mözdunni.
Ræsir hf. lánar Hróknum bíl
TUGIR þúsunda Íslendinga leggja
leið sína til sólarlanda ár hvert. Mik-
ilvægt er að þeir afli sér greinar-
góðra upplýsinga um sjúkra- og
slysatryggingar viðkomandi landa
fyrir dvöl, hafi meðferðis nauðsynleg
vottorð héðan og hugi að ferða-,
slysa- og farangurstryggingum. Á
þetta er bent á heimasíðu Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Of mörg
dæmi eru þess að ferðalangar verði
fyrir miklum útgjöldum vegna þess
að þeir hafa ekki hugað nægilega vel
að tryggingum fyrir brottför.
Til þess að geta nýtt sjúkraþjón-
ustu á sömu kjörum og heimamenn
þarf viðkomandi að framvísa sér-
stöku vottorði sem nær til sjúkdóms-
eða slysatilvika, þ.e. E-111 vottorði.
Það fæst án endurgjalds í Trygg-
ingastofnun eða umboðum hennar.
Nánari upplýsinga má leita á vef
Tryggingastofnunar, www.tr.is.
Með E-111
vottorð í sólina