Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 41
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Heimilisþrif
Heiðarleg og reglusöm húsmóðir tekur
að sér heimilisþrif. Uppl. í síma 895 2445.
Starfsfólk óskast
í söludeild okkar við
afgreiðslu pantana.
Upplýsingar gefur Sófus í síma 863 1938.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina
á Hólmavík fimmtudaginn 30. júlí nk kl. 13.00:
SA-211 BJ-788 UM-853
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
22. júlí 2003.
Áslaug Þórarinsdóttir.
Nauðungarsala
Framhald uppboðs á eftirtöldum fasteignum verður háð á
eignunum sjálfum sem hér segir:
Ljótsstaðir, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Jarðasjóðs ríkisins,
eftir kröfu Lánasjóðs ríkisins, föstudaginn 1. ágúst 2003, kl. 13.00.
Skálá, Sveitarfélaginu Skagafirði, 50% hl., þingl. eign Friðriks Þórs
Friðrikssonar, eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík, fimmtudaginn
31. júlí 2003, kl. 10.00.
Syðri-Breið, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Kjartans Björg-
vinssonar, eftir kröfu Búnaðarbanka Íslands hf. og Midt Factoring
á Íslandi, föstudaginn 1. ágúst 2003, kl. 11.00.
Sæmundargata 5F, Sauðárkróki, 50% hl., þingl. eign Jóns Geir-
mundssonar, eftir kröfu sýslumannsins á Sauðárkróki, fimmtudag-
inn 31. júlí 2003, kl. 13.00.
Sæmundargata 9, e.h., Sauðárkróki, þingl. eign Eyjólfs Guðna Björns-
sonar, eftir kröfu Ríkisútvarpsins og Sjóvár-Almennra trygginga
hf., föstudaginn 1. ágúst 2003, kl. 10.00.
Ægisstígur 5, neðri hæð og bílskúr, Sauðárkróki, þingl. eign Jóns
Geirmundssonar og Önnu Bjarkar Arnardóttur, fimmtudaginn
31. júlí 2003, kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
24. júlí 2003.
Ríkarður Másson.
TILKYNNINGAR Djúpvegur nr. 61:
Eyrarhlíð — Hörtná
í Súðavíkurhreppi
Mat á umhverfisáhrifum — athugun
Skipulagsstofnunar
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipu-
lagsstofnunar matsskýrslu um Djúpveg nr. 61
Eyrarhlíð — Hörtná í Súðavíkurhreppi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 25. júlí til 5. septem-
ber 2003 á eftirtöldum stöðum: Á Bæjar- og
héraðsbókasafninu Ísafirði og á skrifstofu
Súðavíkurhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er aðgengileg
á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða og
Vegagerðarinnar: www.nave.is og
www.vegagerdin.is .
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
5. september 2003 til Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn-
fremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur
í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur
þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um
leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í
jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og
starfa í Hafnarfirði.
Auglýsing um tillögu að
breytingu á Aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 1995-2015
vegna „suð-austur
Hvaleyrarholts“
Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði bæjarstjórnar
samþykkti á fundi sínum þann 3. júlí 2003, að
auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 1995-2015, vegna „suð-austur
Hvaleyrarholts“, samkvæmt 21. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felur í sér í meginatriðum að Þor-
lákstúni er breytt í samræmi við deiliskipulag
þ.e. að úr landnotkun stofnanalóðar verði
gert að „opið svæði til sérstakra nota“ til
samræmis við afmarkanir deiliskipulagsins.
Tillagan verður til sýnis frá 25. júlí–25. ágúst
2003 í afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs,
Strandgötu 8, þriðju hæð. Þeim, sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við breyting-
artillöguna. Frestur til að skila inn athuga-
semdum er til 8. september 2003. Skila skal
athugasemdum til bæjarskipulags, Strandgötu
8-10, Hafnarfirði. Þeir, sem ekki gera athuga-
semdir við tillöguna, teljast samþykkir henni.
Bæjarskipulag Hafnarfjarðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
www.fi.is
Dagsferð laugardaginn 26.
júlí — Vörðufell á Skeiðum
Gengið verður upp á Vörðufell
framhjá Úlfsvatni. Hækkun er
um 400 metrar og tekur ferðin
um 8 klst. Fararstjóri er Trausti
Pálsson.
Lagt verður af stað kl. 9.00 frá
BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
Áætluð heimkoma er síðdegis.
Verð kr. 2.100/2.400.
Dagsferð sunnudaginn 27.júlí
— Móskarðshnúkar — Trana.
mbl.is
ATVINNA
NÝ fjarskiptalög taka gildi í dag og
verða þar með innleiddar fjórar til-
skipanir Evrópusambandsins um
fjarskipti og ein tilskipun um per-
sónuvernd í fjarskiptum. Löggjöfin
tekur gildi í öllum löndum Evrópu-
sambandsins í dag en hefur hins
vegar ekki ennþá tekið gildi á evr-
ópska efnahagssvæðinu vegna tafa í
samningaviðræðum milli Licht-
enstein og framkvæmdastjórnar
Evrópu. Lögin verða því túlkuð með
hliðsjón af eldri tilskipunum á sviði
fjarskipta þar til hinar nýju tilskip-
anir verða teknar upp í EES-samn-
inginn en þess er vænst að það ger-
ist í haust.
Að sögn Ragnhildar Hjaltadóttur,
ráðuneytisstjóra í samgönguráðu-
neytinu, er stærsta breytingin sem
verður við gildistöku nýju laganna
að Póst- og fjarskiptastofnun skil-
greinir nú þjónustu eða vörumarkaði
og landfræðilega markaði í samræmi
við meginreglur samkeppnisréttar
og skuldbindingar samningsins um
evrópska efnahagssvæðið.
Hingað til hefur 25% markaðs-
hlutdeild eða meira verið skilgreind
sem umtalsverð markaðshlutdeild. Í
nýju lögunum verður hins vegar
miðað við skilgreiningu samkeppn-
islaga á umtalsverðri markaðshlut-
deild, sem byggist á hegðun á mark-
aði og er þar af leiðandi matskennd-
ari.
Markaðir skil-
greindir í samræmi
við samkeppnislög
Ný fjarskiptalög taka gildi í dag
RÚMUR helmingur svarenda, eða
54%, í atvinnulífskönnun atvinnu-
málanefndar Ísafjarðarbæjar, sem
var framkvæmd af Netheimum ehf.
á Ísafirði, segja menningarframboð
í bæjarfélaginu til fyrirmyndar en
26% segja það gott. Í heildina lýsa
því 80% þeirra fyrirtækja sem svör-
uðu könnuninni yfir ánægju með
menningarframboð í bænum. Ein-
ungis 6% töldu það slakt eða mjög
slakt en 14% voru hvorki ánægðir
né óánægðir.
Í könnuninni var spurt um sjö
þætti í þjónustu og afþreyingu í
sveitarfélaginu sem hafa áhrif á bú-
setuskilyrði íbúa og skipta því máli
í samkeppni fyrirtækja um hæft
starfsfólk. Svarendur voru beðnir
að lýsa afstöðu sinni til gæða dag-
vistunar og menntunar, æskulýðs-
og íþróttastarfs, menningar-
framboðs, heilsugæslu, verslunar
og vöruverðs, húsnæðismarkaðar
og samgangna. Almennt fengu
þessir þættir mjög góða einkunn,
t.d. sögðu 69% svarenda dagvist-
unar- og menntunarmál vera í góðu
lagi eða til fyrirmyndar, 62% voru
sama sinnis um íþrótta- og æsku-
lýðsmál, 67% voru ánægðir með
heilsugæslu og jafn margir með
verslun og vöruverð.
Svarendur voru ekki eins ánægð-
ir með samgöngur og húsnæðis-
markaðinn. Rúmur þriðjungur
sagði húsnæðismarkaðinn vera
góðan eða til fyrirmyndar en 24%
töldu hann slakan, 39% aðspurða
voru ánægð með samgöngur en
35% töldu þeim ábótavant.
Skýrsluhöfundar segja að í heild-
ina verði ekki dregin önnur ályktun
en að þessir þættir í ytra umhverfi
séu í góðu lagi að mati forsvars-
manna fyrirtækjanna en 62–80%
þeirra telja fimm af sjö skilyrðum
góð eða mjög góð.
Ánægja með menning-
arframboð á Ísafirði
www.nowfoods.com
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111