Morgunblaðið - 25.07.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skalaberg kemur í
dag. Mánafoss og
Pippilotta fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Polar Amaroq kemur í
dag. Þór og Regina
fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Smíða-
stofan er lokuð til 11.
ágúst. Handa-
vinnustofan er lokuð
vegna sumarleyfa..
Púttvöllur opinn mánu-
dag til föstudags kl. 9–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Bingó
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað, kl.
9–16 opin vinnustofa.
Púttvöllurinn opinn frá
kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð frá
og með 30. júní til 6.
ágúst. Viðvera í Gjá-
bakka fellur niður á
sama tíma.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttæf-
ingar á Hrafnistuvelli
kl. 14–16
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dagsferð í
Landmannalaugar 7.
ágúst. Ekið um Þjórs-
árdal og Sigöldu Land-
mannalaugar. Farið
um Dómadal á heim-
leið. Kaffi og meðlæti í
Hesheimum. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Eigum laus sæti. Upp-
lýsingar og skráning á
skrifstofu FEB s. 588-
2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–16. Kl.
13.15 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan og
fótaaðgerðarstofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
10 pútt.
Hvassaleiti 58-60. Hár-
snyrting fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan er lokuð
frá 21 júlí til 5 ágúst.
Hárgreiðslustofan er
lokuð frá 15. júlí til 12.
ágúst
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 13.30–
14.30. Sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30–16 dans-
að í aðalsal í kaffitím-
anum við lagaval
Halldóru, góðar kaffi-
veitingar, allir vel-
komnir
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 13.30 bingó.
FEBK. Brid spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Lagt verður af stað í
„Óvissuferð“ til Njarð-
víkur laugardag 26. júlí
kl.12.50 frá Gullsmára,
en kl. 13 frá Gjábakka.
Komið verður heim kl.
16.30.
Klæðnaður samkvæmt
veðri. Takið með ykkur
nesti. Upplýsingar og
pantanir í Gjábakka
554 3400.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugar-
dögum.
Félagstarfið Furu-
gerði 1. Í dag kl. 9, að-
stoð við böðun, kl. 12,
hádegismatur, kl. 14,
Bingó og kaffiveitingar
kl. 15.
Minningarkort
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans Kópa-
vogi (fyrrverandi
Kópavogshæli), síma
560-2700 og skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551-5941 gegn
heimsendingu gíróseð-
ils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Í dag er föstudagur 25. júlí,
206. dagur ársins 2003, Jak-
obsmessa. Orð dagsins: Ég er
Drottinn, það er nafn mitt, og
dýrð mína gef ég eigi öðrum né lof
mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Á frelsi.is, heimasíðuHeimdallar, ritar
Kristinn Már Axelsson
grein um varnarmál.
Kristinn segir að skipta
megi rökfærslum um
hermálin í tvennt. Ann-
ars vegar sé um tæknileg
rök að ræða, þar sem
raunveruleg öryggis-
staða Íslands sé til álita,
og hins vegar pólitísk
rök.
Kristinn tiltekur fimmtæknilegar röksemd-
ir gegn veru hers á Ís-
landi: Í fyrsta lagi segir
hann að þörf á her á Ís-
landi hafi minnkað eftir
lok kalda stríðsins og að
engin skýr ógn steðji að
landinu. Í öðru lagi nefn-
ir hann að auðvelt væri
að flytja herlið hingað ef
á þyrfti að halda.
Í þriðja lagi nefnir
hann að Bandaríkjaher
sé mjög kostnaðarsamur
og nauðsynlegt fyrir
Bandaríkin að draga úr
þeim rekstri. Í fjórða lagi
segir Kristinn að framtíð-
arher Bandaríkjanna eigi
að vera „langdrægur í
þeim skilningi að óþarfi
sé að dreifa honum um
víða veröld“.
Fimmta tæknilega rök-
semdin gegn veru hers á
Íslandi er sú að vera okk-
ar í Nató sé nægjanleg til
að tryggja varnir lands-
ins.
Kristinn nefnir einnigtæknileg rök fyrir
veru hers í landinu. Þau
eru að hættur geti
skyndilega skapast. Í
öðru lagi að vafasamt
geti talist að hægt sé að
flytja her hingað til lands
með nægilega skömmum
fyrirvara. Í þriðja lagi
nefnir Kristinn að
hryðjuverkaógn steðji að
Íslandi eins og öðrum
vestrænum ríkjum.
Kristinn gagnrýnir aðpólitískar röksemdir
séu notaðar fyrir hern-
aðarútgjöldum og líkir
því við það ef ákveðið
yrði að fjölga ráðningum
kennara til þess að draga
úr atvinnuleysi eða bæta
samskipti á milli kenn-
araforystunnar og stjórn-
valda. „Pólitísku rökin
eru einfaldlega ekki
nægileg til þess að krefj-
ast áframhaldandi veru
hers hérlendis,“ segir
hann.
Í lok greinar sinnar seg-ir Kristinn: „Nú viriðst
að fjölmargir, þar á með-
al stjórnarliðar á Alþingi,
telji nauðsynlegt að ís-
lenska ríkið tryggi varnir
landsins með vígbúnaði,
og þá helst orrustuþot-
um. Með öðrum orðum
telja þessir aðilar að
varnarþörf sé talsverð,
eða hitt sem verra er, að
þeir telji pólitísku rökin
sýna fram á nauðsyn þess
að hafa her hérlendis. [...]
Ef þeim mistekst [að fá
Bandaríkjaher til að vera
um kyrrt] verður fróð-
legt að sjá hvort þeir
krefjist þess að Ísland
eignist orrustuþotur eða
bjóði út varnarsamning
við Ísland.“
STAKSTEINAR
Rökræða um varnarmál
á Frelsi.is.
Víkverji skrifar...
FYRIR nokkru skrif-aði Víkverji um
kunningja sinn frá út-
löndum sem kvartaði
sárlega undan því að
geta ekki fengið nauð-
synlega þjónustu í mið-
bænum og þurfa í raun-
inni að vera á bíl til að
ná í það sem hann
þurfti.
Sigríður Jóhannes-
dóttir gerir athugasemd
við skrif Víkverja og
bendir á að vinur Víkverja þurfi
hvorki að fara í Kópavog eða á önnur
svæði því hægt sé að fá tölur og
hnappa í Seymu á Laugaveginum.
Þá bendir hún á að fólk á þessu svæði
þurfi ekki að svelta því í miðbænum
séu að minnsta kosti þrjár eða fjórar
matvöruverslanir, bakaríin séu
nokkur líka svo og fiskbúðir.
x x x
VÍKVERJI á ekki orð til að lýsahrifningu sinni á framtakssemi
þeirra sem búa í bæjum úti á landi og
standa fyrir hátíðahöldum þar á
sumrin. Dagskrárnar eru undan-
tekningalítið afar metnaðarfullar og
það sem Víkverja finnst skemmtileg-
ast er að það er hugsað svo vel um
börn þegar dagskráin er skipulögð.
Yfirleitt er þeim boðið upp á ýmis
tæki til að leika sér í og það er
bryddað upp á ótrúlegustu uppá-
komum sem höfða til þeirra.
Þessar uppákomur sem standa
orðið meira og minna allar helgar á
sumrin á mismunandi stöðum á land-
inu hljóta að laða að ótal ferðamenn,
bæði innlenda og erlenda. Vonandi
verða hátíðahöldin að árvissum við-
burðum.
x x x
VÍKVERJI var hinsvegar í útlönd-um nýlega og keypti þar í mat-
inn. Hann bókstaflega féll í stafi yfir
úrvalinu í sænska stór-
markaðnum sem hann
heimsótti. Þetta á reyndar
aðallega við þegar kom að
kjötborðinu og áleggsborð-
inu svo og deildinni þar sem
grænmeti og ávextir voru.
Þvílíkt úrval og þvílík
þjónusta og verðið sló
mann ekki útaf laginu.
Víkverji, sem er veikur
fyrir áleggsborðum, sá
þarna ótal skinkutegundir,
nautakjötsálegg og annað
sem freistaði og þarna kostaði kílóið
ekki á þriðja og fjórða þúsund eins
og hér heima heldur var verðið nokk-
uð skaplegt.
Þarna voru allir þeir ávextir sem
Víkverja dreymir um að sjá hér
heima í stæðum, glæný kirsuber,
kíwí sem eru gul að innan og sætari
en grænu kíwíin, ferskjur, nekt-
arínur, gular plómur, brómber og
hindber. Hindberin og brómberin
voru reyndar í litlum kössum því þau
eru viðkvæm fyrir hnjaski og því gat
maður ekki valið þau sjálfur.
Jarðarberin voru girnileg en ekk-
ert ódýrari en hér heima enda hefur
verðið á þeim verið mjög lágt í Bónus
undanfarnar vikur.
Yfirleitt er hugsað fyrir metnaðarfullri dagskrá fyrir börn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árna
Sýnum
tillitssemi
ÉG KEYRI oftar sem ekki
bílnum mínum um götur
þessarar borgar og þarf nú
stundum að nota bílastæði
við staði eins og Kringluna
og Smáralind og líka fleiri
staði. Næstum því alltaf,
eða mjög oft, þegar ég er
búin að leggja í stæði og er
að fara ganga inn, þá tek ég
alltaf eftir stæðum sem eru
merkt fötluðum, stundum
er verið að nota þau. Í þess-
um tilfellum sem ég sé að
það er verið að nota þau þá
er það einstaklingur(ar)
sem er(u)ófatlaðir. Mér
blöskrar svo mikið þegar
ég sé þetta því að þetta er
ekkert nema óvirðing. Ég
hefði haldið að Íslendingar
gætu borið smávirðingu
fyrir fötluðum, en miðað við
það hvað ég sé þetta oft
gerast þá er það grenilegt
að svo er ekki. Íslendingar
þurfa að fara hugsa svolítið
um þetta og kannski hugsa
þetta þannig; „hvað ef ég
þyrfti að nota þetta stæði,
hvað ef ég myndi lenda í því
að vera fatlaður?“
Og það versta er að ef
maður kallar til lögregl-
unnar til að láta fjarlægja
svona bíl þá gerir lögreglan
ekki neitt, því að þeir segja
að beiðnin um að láta fjar-
lægja eða sekta þá sem
gera þetta verði að koma
frá þeim sem eiga viðkom-
andi bílastæði. Nú eru ör-
yggisverðir í Smáralindinni
mjög sýnilegir en þeir eru
þá væntanlega þeir sem
eiga að sjá um þennan hluta
en þeir virðast ekki gera
það. Það sem ég er að biðja
ykkur um kæru Íslending-
ar er að sýna smávirðingu
fyrir þeim sem þurfa að
nota þessi stæði, þau eru
sérstaklega merkt. Og ég
er viss um að mörg okkar
hafa bara gott af því að fá
sér smágöngutúr.
Einn ófatlaður
einstaklingur.
Fjölbreytni óskast
Í MBL. 20. júlí sl. fjallar
Víkverji í grein sinni m.a.
um það sem er í boði í því
sem hann kallar vegasjopp-
ur. Tek ég heilshugar undir
það. Var að koma úr nokk-
urra daga ferð um landið og
var oft lítið annað í boði fyr-
ir ferðalanga annað en
hamborgarar, samlokur,
pylsur og franskar. Ham-
borgari og franskar er við-
unandi á nokkurra vikna
eða nokkurra mánaða
fresti. En eftir tvær
sjoppuferðir var nóg að
standa fyrir utan sjoppuna
til að missa áhugann á að
fara innfyrir, ekki síst
vegna mikillar djúpsteik-
ingarfeitislyktar. Pasta,
salat og súpur væri fín til-
breyting, en þó ekki rjóma-
löguð sveppa- eða asp-
assúpa sem var víða einnig í
boði.
Einnig mættu þeir sem
bjóða uppá veitingar hafa
það í huga að lengri af-
greiðslu tími en til kl. 19 er
bráðnauðsynlegur á háor-
lofstíma.
Hálfundarlegt að halda
að fólk á ferðalagi sé búið
að skipuleggja kvöldverð
fyrir kl. 18:00.
Guðbjörg Magnúsdóttir
Tapað/fundið
Lyklakippa tapaðist
LYKLAKIPPA í svörtu
leðurhulstri tapaðist. Finn-
andi vinsamlegast hafi
samband í síma 893 9852.
Úr í óskilum
KVENÚR fannst við
Hörpugötu. Upplýsingar í
síma 552 1100.
Nike jakki týndist
NIKE jakki, blár að lit með
hvítum röndum á hliðum,
tapaðist á æfingasvæði HK
í Fagralundi í Kópavogi í
síðustu viku. Þetta er nýr
jakki og hans er sárt sakn-
að. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 554 4224 eða
868 6324.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
1 traustur, 8 rennur út, 9
sterk, 10 elska, 11 kapp-
klæðir, 13 endast til,
15 blett, 18 rýrð, 21
greinir, 22 stjórnar, 23
kjánann, 24 skömm-
ustulega.
LÓÐRÉTT
2 óbeit, 3 bjálfar, 4 login,
5 reyfið, 6 skinn, 7 gruna,
12 í tilbót, 14 tré,
15 gamall, 16 sjúkdómur,
17 kers, 18 matarsamtín-
ingur, 19 eru í vafa,
20 þyngdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 gifta, 4 gubba, 7 skinn, 8 jafna, 9 sjá, 11 alin,
13 hrun, 14 eflir, 15 traf, 17 ófár, 20 hal, 22 aumka, 23
jólin, 24 torga, 25 fjara.
Lóðrétt: 1 giska, 2 feiti, 3 agns, 4 gljá, 5 bifur, 6 afann,
10 julla, 12 nef, 13 hró, 15 trant, 16 armur, 18 fella, 19
renna, 20 haka, 21 ljúf.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16