Morgunblaðið - 25.07.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 43
DAGBÓK
Svanasöngur á heiði
Ég reið um sumaraftan einn
á eyðilegri heiði;
þá styttist leiðin löng og ströng,
því ljúfan heyrði’ eg svanasöng,
já, svanasöng á heiði.
Á fjöllunum roði fagur skein,
og fjær og nær úr geimi
að eyrum bar sem englahljóm,
í einverunnar helgidóm,
þann svanasöng á heiði.
Svo undurblítt ég aldrei hef
af ómi töfrazt neinum;
í vökudraum ég veg minn reið
og vissi’ ei, hvernig tíminn leið
við svanasöng á heiði.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. HilmarS. Skagfield, iðju-
höldur og aðalræðismaður,
er áttræður í dag, föstudag-
inn 25. júlí. Heimilisfang
hans er 425 Glenview Drive,
Thallahassee, Florida
32303. Sími: 001-850-385-
2729. Netfang: hss@tal-
star.com.
60 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 27. júlí verð-
ur Hjördís Guðbjörnsdóttir,
skólastjóri Engidalsskóla í
Hafnarfirði sextug. Af því
tilefni verður opið hús á
Skúlaskeiði 12, fyrir vini og
ættingja frá kl. 9 fyrir há-
degi til miðnættis á afmæl-
isdaginn.
Á TÍMUM Acol-kerfisins
breska var algengt að spila
geim á 4-3 samlegu í
trompi. Gömlu meistararnir
tileinkuðu sér þá tækni sem
til þurfti, en þótt þeir stæðu
á haus og klöppuðu saman
lófunum, dugði það sjaldn-
ast til vinnings, því inn-
byggðir veikleikar slíkra
samninga eru of miklir.
Einstaka sinnum er þó
nokkurt vit í því að spila í
4-3 „fittinu“:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 765
♥ D953
♦ 109
♣G543
Vestur Austur
♠ 843 ♠ K92
♥ KG6 ♥ 10874
♦ ÁK764 ♦ DG83
♣72 ♣108
Suður
♠ ÁDG10
♥ Á2
♦ 52
♣ÁKD96
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf
1 tígull Pass 3 tíglar 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Þrjú grönd vinnast ekki
af því einn litur er opinn, og
fimm lauf eru líka vonlaus
því vörnin á örugga þrjá
slagi. Það er þó alltaf mögu-
leiki í fjórum spöðum.
Spilið kom upp í tvímenn-
ingsmóti í Suður-Afríku ný-
lega. Vestur kom út með
tígulás og austur lét drottn-
inguna undir til að sýna
gosann.
Vestur nýtti sér þessa
innkomu makkers og spilaði
næst undan tíglinum, nánar
tiltekið sjöunni til að biðja
um hjarta til baka. Austur
hlýddi og sagnhafi staldraði
við. Laufgosinn var eina
augljósa innkoma blinds, en
það dygði aðeins til að ná
trompinu ef austur átti Kx.
Suður sá þó leið til að skaffa
blindum aðra innkomu.
Hann tók á hjartaás, síð-
an laufás og spilaði svo laufi
á gosann. Þetta virkar
glæfralegt, en úr því að
vörnin hafði ekki spilað
laufinu var líklegt að það
félli 2-2.
Næst svínaði sagnhafi í
spaða og spilaði svo hjarta
að drottningu blinds. Vest-
ur átti slaginn, en varð nú
að gefa sagnhafa innkom-
una sem hann þurfti til að
ná trompinu.
Fallega spilað, en auðvit-
að þurfti legan að vera góð.
Og þannig er það oftast í
þessum spilum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessir drengir söfnuðu kr. 1.388 krónum, með nytjamuna-
sölu, sem þeir gáfu Rauða Krossinum á Hvammstanga. Þeir
heita Sölvi Sigurður og Arnþór Egill.
1. d4 Rf6 2. Rf3 d6 3. g3 g6
4. Bg2 Bg7 5. O-O O-O 6.
c4 c6 7. Rc3 Da5 8. e4 e5 9.
He1 Rbd7 10. h3 exd4 11.
Rxd4 Re5 12. Bf1 Be6 13.
Rb3 Dc7 14. Rd2 d5 15.
cxd5 cxd5 16. f4
Rc6 17. e5 Rh5 18.
Kh2
Staðan kom upp
á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir
skömmu í Andorra.
Ivan Ivanisevic
(2563) hafði svart
gegn Jesus Rechi
(2130). 18...Rxe5!
19. Rb5? Mun betra
var að þiggja
mannsfórnina þó að
eftir 19. fxe5 Bxe5
20. Hxe5 Dxe5 21.
Df3 f5 að svartur stæði
betur. Eftir textaleikinn
er staða hvíts gjörtöpuð.
19...Db6 20. De2 Rd3 21.
Hd1 Bf5 22. Rf3 Hfe8 23.
Dd2 Rf2 24. He1 Re4 25.
De3 Rexg3 26. Dxe8+
Hxe8 27. Hxe8+ Bf8 28.
Rbd4 Rxf1+ 29. Kg2 Be4
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
HLUTAVELTAN
KIRKJUSTARF
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
7. flokkur, 24. júlí 2003
Einfaldur kr. 2.656.000.- Tromp kr. 13.280.000.-
21106B kr. 13.280.000,-
21106E kr. 2.656.000,-
21106F kr. 2.656.000,-
21106G kr. 2.656.000,-
21106H kr. 2.656.000,-
vinnupallar
Sala - leiga
Sími 577 2050 · Fax 577 2055 · GSM 824 2050 · www.formaco.is
Fallegir skór - flottir litir
Bankastræti 11 • sími 551 3930
stærðir 35 - 42
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a
Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.isKung Fu
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
koma kl. 11. Bænastund þriðjud. kl.
20. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á
Útvarp Boðun FM 105,5.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Brynjar Ólafsson
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15.
Safnaðarheimili Aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðum: Hall-
dór Ólafsson
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/ Guðs-
þjónusta kl. 10.30. Ræðum: Eric Guð-
munds.
Krossinn: Hópur ungs fólks frá Kóeru á
vegum trúboðssamtakanna Youth
Witha Mission verða gestir á samkomu
kl. 20.30 á laugardagskvöld
Safnaðarstarf
SAFNAÐARFERÐ Nessóknar sunnudaginn 27. júlí. Lagt verður af stað kl.
12:30 frá Neskirkju að lokinni messu kl. 11:00 og léttum veitingum í safn-
aðarheimilinu. Ekið um Þrengslin til Eyrarbakka. Kaffiveitingar á hlað-
borði í Valhöll á Þingvöllum. Verð kr. 900.
Safnaðarferð Nessóknar
Morgunblaðið/ÓmarNeskirkja
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Háteigskirkju 29.
júní 2002, af sr. Jóni Helga
Þórarinssyni þau Guðrún
Magnúsdóttir og William H.
Clark. Heimili þeirra er að
Rósarima 6, 112 Reykjavík.
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugmyndaríkur ein-
staklingur og allir sem
þekkja þig vita að þú ert
heiðarleg(ur). Þú hefur einn-
ig ríka réttlætistilfinningu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það væri óviturlegt að taka
þátt í veðmálum í dag. Sýndu
varkárni í peningamálum og
ekki eyða um efni fram ein-
ungis til þess að skemmta
þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Örlæti er góður eiginleiki.
Það er í lagi að gefa fjöl-
skyldumeðlim einhverja gjöf.
Þú skalt þó ekki gefa meira
en þú ræður við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert jákvæð(ur) í dag og
hefur mikinn metnað til þess
að klára þau verk sem þú
byrjar á. Metnaður er góður
og því vilja margir njóta fé-
lagsskapar þíns.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Jafnvel þó að þú meinir vel og
viljir aðstoða aðra áttu það til
að ganga of langt. Í dag
skaltu því halda að þér hönd-
um og leyfa öðrum að klára
sín mál.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú finnur fyrir sigurtilfinn-
ingu í dag og átt auðvelt með
að setja hlutina í samhengi.
Láttu það þó ekki henda þig
að láta smáatriði fara
framhjá þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú átt auðvelt með að láta
þér líða vel í dag. Þú veist
sem er að þú átt að kunna að
meta það sem þú hefur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er tilvalið að ræða við vini
og kunningja. Aðrir kunna
einnig vel að meta þetta. Far-
ið saman á kaffihús og látið
ykkur líða vel.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur varla beðið eftir að
segja öðrum frá einhverri
uppgötvun sem þú hefur gert
í starfi. Gerðu það við fyrsta
tækifæri.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú finnur fyrir miklu um-
burðarlyndi í garð annarra í
dag. Þú virðir þær skoðanir
sem venjulega myndu reita
þig til reiði. Haltu áfram á
þessari braut.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er kjörið að eiga í við-
skiptum. Í dag mun þér reyn-
ast auðvelt að fá aðstoð frá
öðrum í sambandi við fjár-
festingar af ýmsum toga.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Mikil bjartsýni einkennir þig
í dag og fólk hrífst af því sem
þú hefur að segja. Þú veist að
forystusauðurinn er sá sem
sér best fram á veginn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það gengur allt vel fyrir sig í
vinnunni í dag. Samstarfs-
menn þínir leggja sig fram og
eru allir af vilja gerðir til þess
að aðstoða þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is