Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 45
MICHAEL Phelps frá Bandaríkjunum setti
heimsmet í 200 metra fjórsundi í gær á
heimsmeistaramótinu sem fram fer í
Barcelona á Spáni. Þetta er annað heims-
metið sem Phelps setur í vikunni en hann
átti heimsmetið í 200 metra fjórsundi.
Hann kom í mark í dag í undanúrslitum
sundsins á 1.57,52 mín en gamla metið var
1.57,94 mín.
Kosuke Kitajima frá Japan setti einnig
heimsmet í gær, hann kom fyrstur í mark í
200 metra bringusundi á tímanum 2.09,42
mínútum en hann á einnig heimsmetið í
100 metra bringusundi sem hann setti fyrr
í vikunni í Barcelona.
Phelps og
Kitajima með
heimsmet ÞAÐ var heldur betur sögulegt sund hjá hinum 31 ársrússneska sundmanni Aleksander Popov þegar hann skautheimsmethafanum Pieter van der Hoogenband frá Hollandi
ref fyrir rass í 100 m skriðsundi á HM í Barcelona í gær.
Popov var þar með fyrsti sundmaðurinn til að verða þrisvar
heimsmeistari á vegalengdinni, en hann fagnaði einnig sigri
í 100 m skriðsundi á HM 1994 og 1998. Popov kom í mark á
48,42 sek. en Hollendingurinn á 48,68 sek.
Ástralinn Ian Thorpe varð þriðji á 48,77 sekúndum.
Van der Hoogenband tók ósigrinum karlmannlega og
sagði: „Ég sagði við Alex að ég væri ánægður með sigur
hans.“ Popov sagði að það væru frábærir meistarar, sem
gætu tekið ósigrum eins vel og sigrum.
Popov vann gullverðlaun í sömu grein í sömu keppnislaug
árið 1992 á ÓL í Barcelona og var honum fagnað gríðar-
lega þegar hann kom fyrstur í mark, en 11.500 áhorfendur
eru á áhorfendabekkjum Palau St. Jordi keppnislaugar-
innar. Þess má geta að Popov á enn heimsmetið í 50 metra
skriðsundi.
Sögulegt sund hjá
Aleksander Popov
FÓLK
OTYLIA Jedrzejczak varð í gær
fyrst kvenna frá Póllandi til þess að
vinna gullveðrlaun á Heimsmeistara-
móti í sundi. Jedrzejczak kom fyrst í
mark í 200 metra flugsundi.
Jedrzejczak varð önnur í 100 metra
flugsundi á eftir Jenny Thompson frá
Bandaríkjunum en Thompson varð
önnur í þessu sundi á sama tíma og
Eva Ristov frá Ungverjalandi. Jedrz-
ejczak synti á 2.07,56 mínútum en
Thompson og Ristov komu í mark á
2.08,08 mínútum.
EVRÓPUMEISTARINN Nina
Zhivanevskaya sigraði í 50 metra
baksundi á HM í Barcelona í gær og
eru þetta fyrstu gullverðlaun Spán-
verja frá upphafi í kvennaflokki á
HM. Zhivanevskaya synti á 28,48
sekúndum.
ZHIVANEVSKAYA keppti áður
undir merkjum Rússlands og varð
önnur á HM árið 1994 í 100 metra
baksundi en hún varð spænskur rík-
isborgari árið 1999 og fékk brons á
ÓL í Sydney árið eftir.
„EF þetta var ekki högg sem hefði
átt að koma fyrir fimm dögum þá veit
ég ekki hvað,“ sagði danski kylfing-
urinn Thomas Björn eftir að hann sló
boltann ofaní eftir högg úr sand-
glompu á 18. holu á fyrsta keppnis-
degi Opna írska mótsins og krækti
þar með í ellefta fugl dagsins. Daninn
„klúðraði“ málunum á Opna breska
meistaramótinu sl. sunnudag á loka-
degi mótsins þar sem hann notaði
þrjú högg í sandglompu á 16. braut og
missti þar með af titlinum. Björn er í
efsta sæti eftir fyrsta hring mótsins.
RAGNA Ingólfsdóttir, bad-
mintonspilari, hefur hækk-
að um 41 sæti á heimslista
Alþjóðabadmintonsam-
bandsins sem var gefinn út
um síðustu helgi. Ragna er í
46. sæti í einliðaleik á
heimslistanum. Sara Jóns-
dóttir er í 74. sæti en hún
hefur hækkað um 74 sæti á
þessu ári. Ragna og Sara
eru í 32. sæti á heimslist-
anum í tvíliðaleik, en fyrir
áramót voru þær í 62. sæti.
Ragna Ingólfsdóttir mun
keppa á heimsmeistara-
mótinu í Birmingham í
næstu viku en hún er eini ís-
lenski badmintonspilarinn
sem hefur unnið sér keppn-
isrétt á mótinu.
Ragna
og Sara
bæta sig
ÍBV 2:1 Valur
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
11. umferð
Hásteinsvöllur
Fimmtudaginn 24. júlí 2003
Aðstæður:
Smá gjóla. 12 stiga hiti.
Áhorfendur: 430.
Dómari:
Gísli H. Jóhannsson, Kefla-
vík, 2
Aðstoðardómarar:
Erlendur Eiríksson, Gunnar
Gylfason
Skot á mark: 9(4) - 11(5)
Hornspyrnur: 2 - 3
Rangstöður: 5 - 3
Leikskipulag: 4-4-2
Birkir Kristinsson M
Unnar Hólm Ólafsson
Tom Betts
Einar Hlöðver Sigurðsson
(Ingi Sigurðsson 34.) M
(Pétur Runólfsson 90.)
Hjalti Jóhannesson M
Andri Ólafsson
Bjarnólfur Lárusson
Bjarni Geir Viðarsson
Atli Jóhannsson MM
Steingrímur Jóhannesson M
(Bjarni Rúnar Einarsson 84.)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson M
Ólafur Þór Gunnarsson M
Sigurður Sæberg Þorsteinsson M
Guðni Rúnar Helgason M
Ármann Smári Björnsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Stefán Helgi Jónsson
(Kristinn Ingi Lárusson 75.)
Sigurbjörn Hreiðarsson M
Jóhann H. Hreiðarsson
Ellert Jón Björnsson M
Hálfdán Gíslason
Tomas Maale M
(Matthías Guðmundsson 62.)
1:0 (5.) Atli Jóhannson vann boltann á miðju vallarins, sendi á Steingrím Jó-
hannesson sem gaf aftur út í hornið á Atla, hann sendi knöttinn inn
fyrir á Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem vippaði knettinum snyrtilega
yfir Ólaf í marki Vals.
1:1 (7.) Boltinn barst út á kant til Stefáns Helga Jónssonar sem sendi fyrir mark
ÍBV þar sem Tom Betts teygði sig í knöttinn, rak tána í hann og
framhjá Birki í marki ÍBV.
2:1 (71.) Eftir darraðardans í vítateig Vals sparkaði Ólafur markvörður knett-
inum frá þar sem Ingi Sigurðsson var, hann sendi innanfótarspyrnu
inn í teig Vals, enginn kom við boltann og hann rataði í fjærhornið.
Gul spjöld: Jóhann H. Hreiðarsson, Valur (9.) fyrir brot. Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV (49.)
fyrir brot. Atli Jóhannsson, ÍBV (51.) fyrir brot. Guðni Rúnar Helgason,
Valur (74.) fyrir óíþróttamannslega framkomu. Unnar Hólm Ólafsson, ÍBV
(76.) fyrir brot. Tom Betts, ÍBV (78.) fyrir töf. Ármann Smári Björnsson,
Valur (86.) fyrir brot. Ingi Sigurðsson, ÍBV (87.) fyrir brot. Rauð
spjöld: Engin
Leikmenn liðanna byrjuðu straxað leika af miklum krafti þegar
dómarinn Gísli Hlynur Jóhannsson
flautaði leikinn á.
Liðin virkuðu spræk
eftir ágæta hvíld á
Íslandsmótinu og áð-
ur en sjö mínútur
voru liðnar voru komin tvö mörk.
Fyrst skoraði Gunnar Heiðar Þor-
valdsson og kom heimamönnum yfir
eftir góðan undirbúning Atla Jó-
hannssonar. En Valsmenn voru ekki
lengi að svara fyrir sig, raunar var
það Eyjamaður sem það gerði fyrir
þá því Tom Betts skoraði sitt annað
sjálfsmark í sumar á sjöundu mínútu
en bæði í leikjum gegn Val.
Eftir markið sóttu liðin á víxl og
áður en stórskemmtilegum fyrri
hálfleik lauk höfðu bæði lið fengið
ákjósanleg færi til að komast yfir.
Raunar voru Eyjamenn ívið sterkari
og fékk Steingrímur Jóhannesson
tvö mjög góð færi en náði ekki að
nýta þau. Næst því að skora komst
þó Atli Jóhannsson besti leikmaður
ÍBV í leiknum þegar hann spólaði sig
í gegnum vörn Vals og átti aðeins
Ólaf í markinu eftir en hann sá við
honum og varði glæsilega. Besta
færi Vals í fyrri hálfleik fékk Stefán
Helgi Jónsson þegar hann fékk bolt-
ann einn og óvaldaður utarlega í teig
Eyjamanna en skot hans fór rétt
framhjá. Jafnt þegar flautað var til
leikhlés og gerðu menn sér vonir um
aðra eins skemmtun í seinni hálfleik.
Sú varð ekki raunin þó liðin hafi sýnt
á köflum ágætis tilþrif. Gestirnir
voru sterkari og sóttu hart að Eyja-
markinu en náðu ekki að koma bolt-
anum framhjá Birki sem varði oft á
tíðum stórglæsilega.
Þar var svo þvert á gang leiksins
sem Eyjamenn komust yfir og var
það heldur skondið mark, eins og
sagt var frá í byrjun greinar, 2:1.
Valsmenn sóttu hart það sem eftir
lifði leiks, Guðni Rúnar Helgason
átti hörkuskot eftir aukaspyrnu en
Birkir sýndi glæsileg tilþrif og sló
boltann yfir. Hættulegasta færi
Valsmanna kom svo þegar sex mín-
útur voru eftir af leiknum en þá
skallaði Ellert Jón Björnsson í
þverslá Eyjamarksins og niður og
vildu Valsmenn meina að boltinn
hefði verið inni en dómarinn var ekki
á sama máli og því fögnuðu Eyja-
menn sigri að lokum. Þrátt fyrir op-
inn leik var hann líka talsvert grófur
og fengu átta leikmenn gult spjald
og hefði auðveldlega verið hægt að
vísa að minnsta kosti einum leik-
manni útaf fyrir glórulausa tækl-
ingu.
Eyjamenn lyftu sér upp af mesta
hættusvæðinu í bili en ljóst er að
botnbarátta bíður Valsmanna sem
duttu niður í níunda sæti.
Óheppnin elti okkur
Þorlákur Árnason, þjálfari Vals,
var allt annað en sáttur við úrslit
leiksins miðað við hvernig leikurinn
þróaðist. „Við vorum miklu betri í
seinni hálfleik sem var mjög góður af
okkar hálfu. Óheppnin elti okkur og
boltinn vildi bara ekki inn og í stað-
inn fáum við á okkur frekar skondið
mark, sem var grátlegt.“
„Þetta var mjög ljúft og sætt,“
sagði Magnús Gylfason, þjálfari
ÍBV, að leikslokum, léttur á brún.
„Strákarnir börðust vel – það var
sterk liðsheild sem skilaði þessum
sigri.“
Ingi var hetja
Eyjamanna
INGI Sigurðsson, fyrrverandi
bæjarstjóri Vestmannaeyjar,
fagnaði merkum áfanga í gær-
kvöld er hann skoraði sigur-
mark ÍBV gegn Valsmönnum í
Eyjum, 2:1 – í sínum 200 leik í
efstu deild. „Þetta er örugglega
með skondnari mörkum sem ég
hef skorað. Þetta átti reyndar
að vera sending. Ég viðurkenni
það alveg og hún var ætluð
Gunnar Heiðari. Ég sá á eftir
knettinum hafna í markinu, sem
var bara hið besta mál,“ sagði
Ingi hinn rólegasti eftir leikinn.
Hann sagði þó að það hefði ver-
ið rosalega ljúft að ná að fagna
þessum áfanga með marki þótt
það skipti ekki máli þegar upp
er staðið hver skorar mörkin.
Sigursteinn
Þórðarson
skrifar
Kylfingar!
Golfunnendur!
Opið golfmót, punktakeppni
Styrktaraðilar:
Laugardaginn 26. júlí verður afmælismót
GHG á Gufudalsvelli, Hveragerði
í tilefni 10 ára afmælis klúbbsins.
Rástímar 8.00-10.00 og 13.00-15.00
Hámarksforgjöf, karlar 24 – konur 28
Í verðlaun er m.a. Macgregor járnsett,
burðarpoki og fleygjárn.
Skráning í síma 483 5091 og á golf.is,
gsm 659 4022
Þátttökugjald 2.500