Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 49
50.000,- kr. afslátt
af s íðustu 4 manna
pottunum af e ldri gerð
Rafkyntu nuddpottarnir frá
Softub verða héðan í frá með
stafrænu stjórnborði og
svo gott sem hljóðlausir. Að
auki verða sex manna pottarnir
með ljósum. Nýju pottarnir
verða boðnir á sama verði og
áður út sumarið.
Ný sending
BREYTTIR POTTAR
Lynghálsi 4 110 Reykjavík Símar: 588 8886 - 867 3284
Bjóðum
Flugþreyta
(Décalage horarie/Jet Lag)
Mynd sem gengur alls ekki upp. Sem róm-
antísk gamanmynd virkar hún alls ekki, fram-
vindan er ótrúverðug og engan veginn fyndin.
(H.L.) ½
Sambíóin.
Hollywood endir
(Hollywood Ending)
Þunnur þrettándi. Auðvitað bráðfyndin af og
til, en oft og tíðum illa leikin.(H.L.) Háskólabíó.
Matrix endurhlaðið
(The Matrix Reloaded)
Á heildina litið er Matrix endurhlaðið langt frá því
að vera jafnheilsteypt, -öguð og -hugvekjandi
og forverinn. (H.J.) Sambíóin.
Töfrabúðingurinn
Byggð á gömlu áströlsku ævintýri. Ekkert stór-
kostlegt listaverk, hún er lítil og bara ansi lífleg
og hjartnæm teiknimynd. (H.L.) Smárabíó.
Símaklefinn
(Phone Booth)
Óvenjuleg spennumynd. Fjallar undir niðri um
falska öryggiskennd og næfurþunna grímu yf-
irborðsmennskunnar. (S.V.) Smárabíó, Regnboginn.
Að hrekja burt gæja
á 10 dögum
(How to Lose a Guy in 10 Days)
Hugmyndin að þessari rómantísku gaman-
mynd er sniðug en langsótt. Bráðskemmtileg á
köflum en lendir í vandræðum í lokin. (H.J.)
½
Háskólabíó.
Andardráttur
(Respiro)
Mynd sem er sterk, falleg, tilgerðarlaus.(H.L.)
Háskólabíó.
Nói albínói
Frumleg og vel gerð mynd í alla staði. Magnað
byrjandaverk. Nú sýnd með enskum texta.
(S.V.) Háskólabíó.
Heimskur, heimskarari:
Þegar Harry hitti Lloyd
(Dumb and Dumberer:
When Harry Met Lloyd)
Hefur litlu við upprunalegu gamanmyndina að
bæta. (H.J.) Smárabíó.
Of fljót og fífldjörf
(2 Fast 2 Furious)
Eftir situr pirringur í garð þeirrar vanvitalegu
ranghugmyndar sem liggur myndinni til grund-
vallar, þ.e. að bílar séu leikföng.
(H.J.) Sambíóin.
Dökkblár (Dark Blue)
Spilling í lögregluliði Los Angeles-borgar er
slitið efni. (S.V.) ½
Háskólabíó.
Englar Kalla gefa í botn
(Charlie’s Angels: Full Throttle)
Kvenhetjur sem virðast ekki vera annars
megnugar en að geta sparkað hátt...(H.J.) Smárabíó, Laugarásbíó, Regnboginn, Borg-
arbíó Akureyri.
Ussss
Raunveruleikinn fær langt nef frá ungu og
óreyndu en oft fyndnu og drífandi íslensku
kvikmyndagerðarfólki. (S.V.) ½
Háskólabíó.
Allt að verða vitlaust
(Bringing Down the House)
Klaufaleg gamanmynd. (H.J.) Sambíóin.
Tortímandinn 3 (Terminator 3)
Skopskynið er horfið en átökin eru jafnhressi-
leg sem fyrr.(S.V.) Regnboginn, Smárabíó, Laugarásbíó, Borg-
arbíó.
Kengúru-Kalli
(Kangaroo Jack)
Eins brandara, fjölskylduvæn Bruckheimer-
mynd um þjófótta kengúru og tvo hrakfalla-
bálka. Fyrir smáfólkið. (S.V.) Sambíóin.
Hulk
Útlitslega er Hulk vel útfærður en það vantar í
hann þyngdartilfinninguna.(H.J.) Sambíóin, Háskólabíó.
Lizzie McGuire
(The Lizzie McGuire Movie)
Afskaplega stöðluð, klippt og skorin unglinga-
mynd. Leikkonan duff býr þó yfir nægum
"sjarma" til að halda myndinni uppi.
(H.J.) Sambíóin.
Reiðistjórnun
(Anger Management)
Sandler kominn í gamla, góða formið. Gamli,
góði Nicholson hins vegar víðsfjarri í
hugmyndasnauðri en ágætis dægrastyttingu.
(H.L.) Regnboginn.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Höfnun
(Abandon)
Spennumynd
Bandaríkin 2002. Myndform. VHS (98
mín.) Bönnuð yngri en 12 ára. Leikstjóri:
Stephen Gaghan. Aðalleikendur: Katie
Holmes, Benjamin Bratt, Zooey
Deschanel.
HÆFILEIKASKORTUR ætti
ekki að hrjá hópinn á bak við Höfn-
un, enda ýmislegt vel gert þótt
myndin gangi ekki upp. Handrits-
höfundur er Stephen Gaghan, Ósk-
arsverðlaunahafi í þeirri grein fyrir
Traffic (’00), hann leikstýrir jafn-
framt í fyrsta sinn og tekst öllu
verr til á þeim
vígstöðvum. Leik-
hópurinn er
prýddur ungu og
upprennandi
fólki: Katie Holm-
es (Símaklefi, The
Wonder Boys og
Dawson’s Creek á
skjánum), Benj-
amin Bratt (Pin-
ero, Traffic), Charlie Hunnam
(Kaldbakur – Cold Mountain), Zoo-
ey Deschanel (Gæðablóð – The Go-
od Girl), og þéttir aukaleikarar á
borð við Philip Bosco, Fred Ward
og Tony Goldwyn fylla út í mynd-
ina.
Meðal framleiðenda eru sjóuð
nöfn Lyndu Obst og Edwards
Zwyck og tökumaðurinn Matthew
Libatique á að baki fína vinnu í
Símaklefa, Tigerland, Pi o.fl. at-
hyglisverðum myndum. Mannvalið
dugar ekki til.
Holmes leikur Katie Burks, bráð-
efnilega stúlku sem er að útskrifast
úr háskóla og hæfileikasnatar stór-
fyrirtækjanna eru komnir á hæla
henni þótt hún sé ekki búin að ljúka
prófum. En það er ýmislegt fleira
sem eltir stúlkuna og sumt miður
gott.
Einkum Embry Larkin (Charlie
Hunnam), gamall kærasti sem
hvarf á dularfullan hátt fyrir tveim-
ur árum en er nú nýbyrjaður að
ásækja hana.
Þá gefur lögreglumaðurinn
Handler (Bratt), henni glöggt auga
því Katie er grunuð um að eiga þátt
í hvarfi Larkins.
Sjálfsagt ekkert verra efni en
margt annað ef Gaghan hefði tekist
betur upp. Hann fer á kostum í ör-
fáum atriðum, einkum upphafinu en
Höfnun er aldrei grípandi sálfræði-
tryllir né tiltakanlega spennandi og
endirinn skilur mann eftir óánægð-
an. Bratt, Holmes og ekki síst
Deschanel eiga betra skilið.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Grimm