Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.regnboginn.is
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
FRUMSÝNING
SV. MBLHK. DV
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
MICHAEL DOUGLAS ALBERT BROOKS
Búðu þig undir versta brúðkaup
sumarsins þar sem allt getur gerst!
Ein besta gamanmynd sumarsins með
stórleikaranum Michael Douglas.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og
Powersýning kl. 11.35. B.i. 14 ára.
Englarnir eru mættir aftur!
Geggjaðar gellur í gæjalegustu
mynd sumarsins!
POWE
RSÝnI
NG
kl. 11
.35.
Á STÆ
RSTA
THX
tJALD
I LAND
SINS
SV. MBLHK. DV
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
MICHAEL DOUGLAS ALBERT BROOKS
FRUMSÝNING
Búðu þig undir versta brúðkaup
sumarsins þar sem allt getur gerst!
Ein besta gamanmynd sumarsins með
stórleikaranum Michael Douglas.
SMS–leikur
mbl.is
Taktu þátt og þú gætir unnið!
Smelltu þér á mbl.is
til að fá nánari upplýsingar
um leikinn.
Símtalið kostar 99 kr.
Þú sendir SMS
skeytið mblsms
inlaws í númerið
1910
og við látum
þig vita um
leið, hvort þú
hafir unnið.
200 heppnir
þátttakendur
vinna miða fyrir
tvo á myndina
The Inlaws.
ÞAÐ ER alveg óhætt að fullyrða að
ekki nokkur maður hafi spáð því er
þessi gleðisveit frá Húsavík, Greifarnir,
stóð upp’ á palli við Arnarhól í 200 ára
afmæli Reykjavíkurborgar og söng sig
inn í hjörtu íslenskrar æsku að hún ætti
eftir að verða enn að 17 árum síðar, árið
2003. En þar hafiði
það, nánast hvert
einasta sumar síðan
þá hefur Greifahrað-
lestin látið á sér
kræla, á blússandi
hraða fyrstu árin en
síðar fremur mjatlandi, með allnokkr-
um og mislöngum pissustoppum.
Eftir sveitina liggja 7 plötur, mis-
stórar og langar, um 60 lög, nokkur
hundruð dansleikir og þúsundir sællra
og glaðra ballgesta sem sungu sig hása
með lummum á borð við „Útihátíð“,
„Ég vil fá hana strax“, „Frystikistulag-
ið“, „Viltu hitta mig í kvöld„ og „Visku-
brunn“ – allt lög sem hvergi virka betur
en einmitt á frjálslegum dansleiknum
og voru enda flest hver einmitt samin
með það fyrir augum. Slíkri tónlist ber
líka að taka þannig og satt best að segja
erfitt að ætla að setjast niður og leggja
á hana dóm. Það er einfaldlega svo
margt sem vantar uppá.
En vissulega eru þessi 22 lög sem
finna er á safnplötunni misjafnlega góð,
sum hver bráðgrípandi smellir sem elst
hafa vel, önnur bókstaflega óheyrileg –
ekki hvað síst vegna ambögulegra
texta – svona á plötu eftir öll þessi ár.
Samt er það yfir það heila svo að þótt
hin eldri séu einfaldari og kannski
frumstæðari hvað útsetningar varðar
þá er meiri sjarmi yfir þeim – kannski
vegna þess að þau eru nær æsku und-
irritaðs.
Óperutónleikarnir gefa glögga mynd
af hljómsveit sem með tímanum hefur
orðið þéttari og betur spilandi. Enn-
fremur kemur þar sterkt í ljós hvaða
lög það eru sem uppúr standa, hver
þeirra hafa þolað bæði tímans tönn og
nýjar einfaldari útsetningar. Þar ber
fyrst að nefna besta lag sveitarinnar
„„Þyrnirós“, sem og „Viltu hitta mig í
kvöld“, „Ég vil bara þig“ og „Ást“.
Það sem uppúr stendur við að hlýða
á þessa ágætu órafmögnuðu tónleika er
að þar getur að heyra í fimm góðum
vinum að gera það sem þeim þykir
skemmtilegast að gera saman, standa
upp’á palli að spila saman og syngja
fyrir þakkláta og hressa áheyrendur.
Og fyrir þessa áheyrendur og alla
aðra sem hafa skemmt sér vel á balli
með Greifunum í gegnum tíðina er
þessi útgáfa kjörgripur og hreint
ómissandi í partíin.
Umbúðir hefðu þó mátt vera betur
úr garði gerðar, hönnunin svo sem lát-
laus en upplýsingar, á borð við útgáfu-
ár laga og uppruna, af alltof skornum
skammti, sem rýrir mjög heimildar-
gildi slíkrar safnútgáfu.
Tónlist
Vonandi
skemmtið’
ykkur vel
Greifarnir
Upp’á palli
Íslenskir tónar
Tvöföld plata með Greifunum. Fyrri plat-
an inniheldur 22 vinsælustu lög sveit-
arinnar og sú seinni 14 lög sem flutt voru
á órafmögnuðum tónleikum sem fram
fóru í Íslensku óperunni haustið 2001
(upplýsingar sem merkilegt nokk fylgja
ekki með útgáfunni). Greifarnir eru Krist-
ján Viðar Haraldsson söngur, hljómborð,
raddir, Sveinbjörn Grétarsson gítar, raddir
söngur, Gunnar Hrafn Gunnarsson tromm-
ur, raddir, Jón Ingi Viðarsson bassi, Ing-
ólfur Sigurðsson ásláttur, hljómborð,
raddir, söngur. Með þeim söng Felix
Bergsson 1986, 1987 og 1996. Öll lög
og textar eru eftir Greifana, nema lagið
við „Eina nótt með þér“ sem er erlent.
Skarphéðinn Guðmundsson
Hljómsveitin Greifarnir.
ÁRIN 1970–1975 naut Osmond-fjöl-
skyldan frá Utah mikilla vinsælda í
poppheimum. Þegar mest var sungu
þau sjö saman og voru þau og eru
heittrúaðir mormónar og hreinlíf-
ispostular hinir mestu. Saklaus
sjarminn og samheldni systkinanna
heillaði margan poppáhugamanninn
og einhverra hluta vegna nutu þau
mikilla vinsælda í Bretlandi, sem
var einhvers konar heimavöllur
hvað plötusölu og almenna aðdáun
varðaði.
Um daginn kom út safnplatan
Ultimate Collection og skipti engum
togum að platan fór beinustu leið í
fimmta sæti breska vinsældalistans.
Ekki nóg með það því þegar einn
bræðranna, Merrill Osmond, kom
til Bretlands til að kynna plötuna
var hann eltur á röndum af kven-
fólki á fertugsaldri og sátu þær
meira að segja fyrir honum á hót-
elinu hans.
Vinsældir safnplötunnar eru
reyndar hvílíkar að Osmond-bræð-
urnir fimm eru að velta fyrir sér
endurkomutónleikum á næsta ári –
hugsanlega ásamt Jackson 5.
Þrátt fyrir að gjöfulustu árin séu
nú að baki hafa fjölskyldumeðlimir
engu að síður verið iðnir við kolann.
Donny hefur verið mest í sviðs-
ljósinu. Hann átti sæmilegasta sóló-
feril auk þess að gera nokkur lög
vinsæl ásamt systurinni Marie. Jay,
Merrill og Wayne reka The Osmond
Family Theater í Branson, Miss-
ouri, á meðan Jimmy, jafnan kall-
aður „Litli Jimmy“ er farsæll við-
skiptajöfur sem lifir eftir mottóinu
„ráðvendni, heilnæm skemmtun og
vinnusemi“. Elsti bróðirinn Alan
skrifar hins vegar siðavandar
barnabækur og rekur sjóð, sem
styrkja á fjölskyldur. Hann heldur
líka utan um sveitina The Osmonds
– Second Generation sem er skipuð
sonum hans átta. Nýjasta plata
þeirra heitir I Love America og
inniheldur lög eins og „Everyday
Heroes“, „America United“ og „God
Bless Our Home And Families“.
Endurkoma The Osmonds
„Heilnæm
skemmtun“
Osmond-fjölskyldan
www.osmond.com