Morgunblaðið - 25.07.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 53
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
YFIR 42.000 GESTIR!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6 og 8.
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og
ColinFirth (Bridget Jones´s Diary)
SG. DV
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16 ÁRA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6.15 og 8
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. b.I. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA
SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND.
POWE
R
SÝNIN
G
KL. 12
.15.
Í SAM
BÍÓUN
UM
Kring
lunni
I
. .
.
Í
Í
ri l
i
FRUMSÝNING
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.15. B.i. 16 ára.
ALLS koma átta
plötusnúðar og þrír
tónlistarmenn fram á
tónlistarkvöldi
kenndu við 360 gráð-
ur á Grand rokki í
kvöld. Af þessu til-
efni stendur tæknó-
tónlistarmaðurinn
Exos fyrir útgáfu
fyrsta mixdisksins í
360 gráða seríunni.
„Þetta er fyrsti disk-
urinn af mörgum,“
segir Arnviður
Snorrason, eins og
Exos heitir fullu
nafni. Exos stefnir á
gefa út fleiri diska
með þeim plötusnúð-
um sem hafa verið að spila með hon-
um eins og „Frímanni, Bjössa og
Tómasi,“ útskýrir
hann.
Diskurinn inni-
heldur upptöku frá
því þegar Exos spil-
aði á hinum þekkta
tæknóklúbbi, Tres-
or, í Berlín. Exos
segir útgáfuna ekki
hafa verið mikið mál.
„Staðurinn tók þetta
bara upp og lét mig
fá upptökuna og ég
ákvað bara að gefa
þetta út,“ segir hann
og bendir á að disk-
urinn komi í tak-
mörkuðu upplagi.
Verður diskurinn fá-
anlegur í plötuversl-
uninni Þrumunni á Laugaveginum og
ennfremur á Grand rokki í kvöld.
Fram koma Twisted Mind Crew,
sem hefja leikinn ásamt plötusnúðin-
um Total Kaoz, DJ Richard, Bjössi
brunahani, svo spila Elektró-plötu-
snúðarnir Aurra sing og Zeus það
nýjasta úr elektróheiminum en þau
sækja sín áhrif til München í Þýska-
landi þar sem útgáfufyrirtækið Int-
ernational Deejay Gigalo er starf-
rækt.
Loks eru það harðhausarnir Exos
og Tómas T. H. sem koma með
tæknósyrpu og hita upp fyrir endur-
komu Árna Vectors og plötusnúðsins
Guðnýjar, sem gerðu garðinn frægan
á skemmtistaðnum Thomsen og á At-
óm-kvöldunum.
360 gráður standa fyrir tónlistarútgáfu
Dansað á Grand rokki
Raftónlistarmaðurinn Arn-
viður Snorrason, Exos, kemur
fram á Grand Rokki í kvöld
ásamt fleirum.
360 gráður á Grand rokki í kvöld
á milli kl. 22 og 4.
ÍSLENSK-danska
klezmersveitin
Schpilkas fagnar
nýútkominni plötu
sinni Sey mir ges-
unt með tónleika-
röð um landið
næstu vikurnar.
Fyrir þá sem
ekki vita á klezm-
er-tónlist uppruna
sinn í gyðinga-
samfélögum Aust-
ur-Evrópu og
verður best lýst
sem tregabland-
inni gleðitónlist.
Hljómsveitin er
skipuð þeim
Hauki Gröndal
klarínettuleikara,
Helga Svavari Helgasyni trommu-
leikara og dönunum Nicholas
Kringo harmónikkuleikara og Peter
Jörgensen á kontrabassa. Bandið
Schpilkas varð til í Kaupmannahöfn
síðla árs 2001 og tóku þeir upp
plötu í hljóðveri Didda fiðlu fyrr á
þessu ári.
Í tilefni af útgáfu nýju plötunnar
verða tónleikar í verslun 12 tóna við
Skólavörðustíg í kvöld, föstudags-
kvöld kl. 17.30. Enn seinna, eða kl.
23 verða tónleikar á Caffé Kúltúre
en á morgun kl. 16 á Jómfrúnni og
aftur kl. 23 á Kúltúre.
31. júlí spila Schpilkas á Lista-
sumri á Akureyri en 1., 2. og 3.
ágúst verða haldnir tónleikar á
Gamla bænum, Hótel Reynihlíð við
Mývatn og hefjast þeir allir kl. 20.
Tónleikar á 12 tónum og
Schpilkas „schpila“
Klezmersveitin Schpilkas leikur harmræna gleði-
tónlist með gyðinglegar rætur.
Ný plata Schpilkas, Sey mir ges-
unt, er komin í verslanir.
Caffé Kúltúre í kvöld
Mistök vegna erlendra
plötudóma
Í blaði gærdagsins voru birtir
þrír plötudómar vegna platna Sus-
umu Yokota, Philips Jeck og Sav-
inu Yannatou. Voru dómarnir
ranglega sagðir myndbandadómar
í haus.
Þá láðist að geta gagnrýnandans
en hann er Árni Matthíasson.
Rangt hljómsveitarnafn í
frétt um Innipúkann
Á miðvikudaginn var birt frétt
um inni-útihátíðina Innipúkann
sem fram fer um Verslunarmanna-
helgina. Rangt var farið með nafn
einnar sveitarinnar sem þar spilar.
Heitir hún Lovers without Lovers
en ekki Lovers eins og fram kom.
Er beðist velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT