Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 55
HIN stórskemmtilega kvikmynd
Löggilt ljóska (Legally Blonde) er á
dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Í aðal-
hlutverki er hin sykursæta Reese
Witherspoon en hún leikur Elle
Woods, sem er ljóshærð Kaliforn-
íustúlka sem hefur margt til brunns
að bera. Hún er formaður systra-
félagsins í skólanum sínum, Hawa-
iian Tropic-stúlka og ungfrú júní í
skóladagatalinu. Hún er líka á föstu
með sætasta stráknum í skólanum,
Warner Huntington III, sem er af
virtri ætt af austurströndinni. Það
er aðeins eitt sem kemur í veg fyrir
að Warner (Matthew Davis) beri
upp bónorðið, Elle er alltof mikil
ljóska.
Þrátt fyrir það að alast upp hjá
sjónvarpskónginum Aaron Spell-
ing, sem þykir fínn pappír í Los
Angeles, hefur það ekkert að segja
í hinni „aðalsbornu“ austurstrand-
arfjölskyldu Warners. Warner held-
ur því á brott í laganám í Harvard
og endurnýjar kynnin við gamla
kærustu. Elle lætur sér ekki segjast
og sækir einnig um skólavist í Har-
vard. Hún þarf að taka á honum
stóra sínum til að reyna að ná War-
ner aftur, standa sig í náminu og
síðast en ekki síst að standa upp
fyrir réttindum ljóshærðra kvenna
hvarvetna.
Með önnur helstu hlutverk fara
Luke Wilson og Selma Blair. Mynd-
in er frá árinu 2001 og naut mikilla
vinsælda, svo mikilla að búið er að
gera framhaldsmynd um lagaleg
ævintýri Elle, sem nú heldur til
Washington. Myndin verður frum-
sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum
í næstu viku.
Reese Witherspoon í hlutverki sínu,
sem Elle Woods, í Löggiltri ljósku.
Ævintýri
ljósku í
lagaheimi
Löggilt ljóska er á dagskrá
Stöðvar 2 kl. 00.05 í kvöld.
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 55
@>,-
-./
0
0
- 1.--2 .0
-
3
5
&5
5
5
5 5 5 "5 )5 5 5 &5 5 5
/*@$A :$
AB/C)/
D')AB/C)/
AE(D:F')/
,$6 , 7 8+
9:7 6
;
31;< &
(&
& &
)
" &
&)
&
) &
=
%%&
< <.&=
;
=
+
<
"
"
&
)
" "
&
" )
("
(
(
(&
(
()
(
()
(
("
(
()
(
("
-#
$6
44<
6+
,
=
> =,!" ;,! 44<
6+
(
, <
+
%&<;<03;77< <
3 04"$50
-) -
3* "+4"!
<;<03;77< < G<< ;<
?0
44<
# + ;
HI :
HI :
HI :
/,
* $
G ;
A
<J,
K
! .>
L
$
%
.;
&
)
&
< < @+ 7
>
= @+ < !<
$ < $ < $ < .
#
'
(
>
#
:
)
)
)
!< < < < < < < !< $ J <(
N
JN
/
,
O
J
#>
M<@ I.N F
&
)
)
$ !< !< !< < !< < @+ < !<
% 6
90
(&) : +
,=
(>
>,
-&
J&
6
() :+
=
,6 ,
( 9 +
A ,
% 6
() :(+
,
(< +
>,
-,=
"++
## ##!
ÚTVARP/SJÓNVARP
ARNOLD Schwarz-
enegger hefur sannarlega
vítt svið sem leikari. Hann
getur leikið austurrískt
vöðvabúnt sem berst við
geimveruveiðimenn, aust-
urrískt vöðvabúnt sem
berst við vélmenni og
austurrískt vöðvabúnt
sem vinnur sem leikskóla-
kennari. Í dag sýnir Bíó-
rásin síðastnefnda hlut-
ann af túlkunarlitrófi
Arnolds með myndinni
Kindergarten Cop sem
heitað gæti á íslensku
Leikskólalöggan.
John Kimble er grófur
og groddalegur lögreglu-
maður sem hefur árum
saman elst við eiturlyfja-
stórlaxinn Cullen Crisp. Hann hefur
uppi á honum en svo virðist sem eina
manneskjan sem geti borið vitni
gegn Crisp sé fyrrverandi eiginkona
hans. Hún hefur hins vegar horfið
sporlaust og eina vísbendingin sem
Kimble hefur er að barnið hennar er
við nám í vissum barnaskóla.
Upphefst þar með spaugileg at-
burðarás að hætti Arnolds sprelli-
gosa sem endrum og sinnum hefur
reynt fyrir sér í gamanbransanum
líkt og í myndinni Twins, hinni glað-
væru jólamynd Jingle All the Way
og Junior, þar sem Arnold verður
óléttur! Óhætt er hins vegar að segja
að Kindergarten Cop sé hátindurinn
á gamanmyndaferli Arnolds.
Arnold og
ódælu börnin
Ég heiti Arnold. Ég verð kennarinn ykkar í dag.
Leikskólalöggan (Kindergarten
Cop) er á dagskrá Bíórásarinnar
í dag kl. 12.00 og 18.00.
SAGAN af Önnu í Grænuhlíð er
mörgum landsmönnum hjartfólgin.
Ríkissjónvarpið sýnir í kvöld annan
þáttinn í teiknaðri þáttaröð um
Önnu litlu Shirley.
Sögurnar um Önnu eiga sér stór-
an hóp aðdáenda um heim allan og
flykkjast ferðamenn í hópum til
Avonlea í Kanada á söguslóðir
bókaflokks Lucy Maud Montgom-
ery.
Anna er óvenjuleg ung stúlka og
munaðarlaus en ættleidd af syst-
kinum sem búa á sveitabæ. Sagan
er að hluta byggð á æskuárum höf-
undarins, Lucy Maud, frá því hún
var lítil stelpa á Prince Edward
eyju. Bækurnar um Önnu slógu
strax í gegn bæði hjá ungum og
öldnum og skrifaði hún sex fram-
haldsbækur sem fylgdu Önnu frá
barnæsku til fullorðinsára.
Þegar Marilla og Matthew Cuth-
bert taka fyrst við Önnu litlu lýst
þeim ekki á þessa hnátu, enda áttu
þau von á að fá strák sem gæti
hjálpað þeim við bústörfin. En Anna
vinnur fljótlega hug og hjarta þeirra
og allra þar í kring, þar á meðal
hjarta piltsins Gilberts Blythes.
Hér er á ferð yndisleg saga sem
yngsta kynslóðin fær að kynnast í
þessari 26 þátta teiknimyndaröð.
Það er ekki heldur úr vegi fyrir þá
sem ekki hafa vitjað Önnu í langan
tíma að rifja upp söguna af lífi
hennar í Grænuhlíð.
Sagan af Önnu
í Grænuhlíð
Anna í Grænuhlíð (Anne: The
Animated Series) er á dagskrá
Ríkissjónvarpsins kl. 18 á föstu-
dögum.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050