Morgunblaðið - 28.07.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Traustur banki
Taktu þátt í Sumarnetleiknum okkar og þú
gætir unnið glæsilegan vinning. Þú þarft
aðeins að fara inná www.bi.is og skrá þig í
þann netklúbb sem höfðar til þín.
Dregið verður 1. júlí, 1. ágúst og 1. september.
Þú gætir dottið í lukkupottinn!
Sumarnetleikur
Búnaðarbankans
Viðskiptavinir!
FLEIRI KÆRA NAUÐGUN
Um helmingur brotaþola nauðg-
unar árið 2002 lagði fram kæru, en
það er talsverð aukning frá árinu
2000. Tilkynntum nauðgunum til
lögreglunnar í Reykjavík fjölgaði
um 39% á síðasta ári. Það er svipuð
aukning og orðið hefur á málum sem
berast Stígamótum. Mun fleiri virð-
ast þekkja sinn rétt og vilja fylgja
máli sínu eftir.
SÞ hafi frumkvæðið
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að mikilvægt væri að
Sameinuðu þjóðirnar og nágranna-
ríki Líberíu hefðu frumkvæði að því
að stilla til friðar í Líberíu. Banda-
ríkjamenn hefðu ekki skorast undan
ábyrgð. Sextán manns, a.m.k., féllu í
átökum í höfuðborg landsins,
Monróvíu, í gær.
Bregðast við samkeppni
Hjörleifur Jakobsson, forstjóri
Olíufélagsins hf., segir öruggt að
fyrirtækið muni tryggja hagsmuni
viðskiptavina sinna nú þegar nýtt ol-
íufyrirtæki, Atlantsolía, hefur hafið
sölu eldsneytis.
540 verða látnir lausir
Ísraelar ætla að láta lausa 540 pal-
estínska fanga, þ.á m. 210 harð-
línumenn, að sögn ísraelsks embætt-
ismanns í gær. Ariel Sharon
forsætisráðherra hélt til Wash-
ington í gær.
Uppreisn lauk friðsamlega
Uppreisnarmenn sem tóku versl-
anamiðstöð á sitt vald í viðskipta-
hverfinu í Manila á Filippseyjum í
gær lögðu niður vopn án þess að til
átaka kæmi, eftir um 20 klukku-
stunda umsátur. Sættust for-
sprakkar þeirra á að koma fyrir her-
rétt, en þeir höfðu sakað forseta
landsins og varnarmálaráðherra um
spillingu og krafist afsagnar þeirra.
Engin sátt um sektir
Viðræðum milli Samkeppnisstofn-
unar og olíufélaganna um hugs-
anlega sátt vegna meints verð-
samráðs lauk án niðurstöðu þar sem
Samkeppnisstofnun taldi að félögin
ættu að greiða mun hærri sektir en
félögin töldu eðlilegt.
mánudagur 28. júlí 2003 mbl.is
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur
komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent
tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan
hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem
veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Lykillinn að
sparnaði, öryggi
og þægindum
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Ábyrgð — skyldur/
Þjóðarauður Íslendinga er að stórum hluta
falinn í fasteignum. Samningar sem gerðir
eru þar að lútandi eru því þýðingarmiklir í
lífi fólks. 5
// Hjólvæn borg/
Hjólreiðar almennings fara vaxandi sem
ferðamáti, nauðsynlegt sýnist því að leggja
fleiri hjólreiðastíga aðskilda frá bílaum-
ferð. 14
// Staðlar um lagnir/
Lagnakerfi húsa gegna mikilvægu hlutverki
og því nauðsynlegt að vanda jafnt undirbún-
ing, hönnun og framkvæmdir vegna
þeirra. 16
// Týsgata 3/
Ýmiss konar verslunar- og fyrirtækjarekstur
hefur í áranna rás verið á fyrstu hæðum Týs-
götu 3 en það hús hefur verið mikið endur-
nýjað á seinni árum. 22
!
"#$%&
'()&
*) !
+ ), $$&
-./0 01
)-./0 01
& 2
-./0 01
)-./0 01
3
33
305
3
35
!!!"
-/60
-/60
-/60
3-/60
7
7
555
355
3555
55
555
55
#
!
!
$%!
#
%
& '
30833
05 038
30 (
0- 0
(
(
08
304 035
NÝTT aðalskipulag Mosfellsbæjar hef-
ur verið staðfest af Siv Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra. Það var gert 8. júlí
sl.
„Aðalskipulagið gildir frá 2002 til
2024 og gerir ráð fyrir að byggð í Mos-
fellsbæ verði þéttari en fyrra aðalskipu-
lag gerði ráð fyrir,“ sagði Tryggvi Jóns-
son bæjarverkfræðingur hjá Mosfells-
bæ.
„Á nýbyggingarsvæðum er heimiluð
blönduð byggð íbúða og athafnastarf-
semi.
Þetta skipulag var unnið af Teikni-
stofu Gylfa Guðjónssonar og félaga í
samvinnu við Mosfellsbæ, sem vann að-
alskipulagið.
Íbúðasvæði hafa verið stækkuð frá
því sem var í hinu fyrra. Alls verða ný-
byggingarsvæði 311 hektarar. Aðal-
uppbyggingarsvæðin á tímabilinu
verða Helgafellsland og Blikastaða-
land. Fyrr verður byggt á Blikastaða-
landi en áður var ætlað, en ráðgert er
nú að byggð hefjist þar á vegum Ís-
lenskra aðalverktaka þegar deiliskipu-
lag Blikastaðalands hefur verið sam-
þykkt, en áætlað er að uppbygging á því
landi standi yfir allt skipulagstímabilið.
Gert er ráð fyrir að alls verði á skipu-
lagstímabilinu byggðar 4700 íbúðir og
áætlað er að íbúar Mosfellsbæjar verði
árið 2024 tæplega 14 þúsund. Þetta
nýja aðalskipulag Mosfellsbæjar er
byggt á svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins 2001 til 2024 en meiri áhersla
er lögð á umhverfis- og útivistarmál í
nýstaðfestu aðalskipulagi Mosfellsbæj-
ar.“
Nýtt aðalskipulag Mosfellsbæjar staðfest
Þéttbýlisuppdráttur aðalskipulags Mosfellsbæjar 2002 til 2024.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 22
Viðskipti 11 Dagbók 24/25
Erlent 14 Þjónusta 25
Listir 15 Kirkjustarf 25
Umræðan 15 Fólk 26/29
Forystugrein 18 Bíó 26/29
Minningar 18/21 Ljósvakar 30
Hestar 21 Veður 31
* * *
ELDINGU laust niður í Fokker-
flugvél Flugfélags Íslands skömmu
eftir flugtak frá Reykjavíkurflugvelli
á laugardag og var henni þegar snúið
til baka. Um borð voru 28 farþegar
auk áhafnar. Árni Gunnarsson, sölu-
og markaðsstjóri FÍ segir að engin
hætta hafi verið á ferðum, flugvélin
hafi staðist skoðun flugvirkja og sé
nú í fullri notkun.
Flugvélin lagði af stað klukkan
16.25 áleiðis til Ísafjarðar. Elding-
unni laust niður eftir nokkurra mín-
útna flug. Árni segir að vélin sé búin
eldingavara og öryggi hennar því
engin hætta búin. Starfsreglur mæli
engu að síður fyrir um að vélinni
skyldi snúið við og lent við fyrsta
tækifæri. „En það er í raun og veru
engin hætta á ferðum því vélarnar
eru útbúnar fyrir þetta,“ segir Árni.
Vélin hefði lent á Reykjavíkurflug-
velli um klukkan 17. Fljótlega eftir
lendingu hefði flugstjóri safnað far-
þegum saman í flugstöðinni og út-
skýrt fyrir þeim hvað hefði gerst.
Aðspurður segir Árni að þegar eld-
ingu lýstur niður í flugvél sjái far-
þegar yfirleitt ljósleiftur og finni fyr-
ir höggi, álíka þungu og getur gerst í
ókyrrð. Hann telur þó að flestir far-
þeganna hafi lítið orðið varir við eld-
inguna. Slíkt gerist endrum og sinn-
um, hugsanlega einu sinni á ári hjá
FÍ, að sögn Árna.
Klukkan 17.40 fór önnur Fokker-
flugvél af stað til Ísafjarðar en fimm
farþegar vildu ekki fara um borð.
Árni segist ekki hafa öruggar upp-
lýsingar um hvers vegna fólkið
ákvað að verða eftir í Reykjavík.
Hugsanlega hafi töfin verið of löng
en væntanlega hafi flughræðsla ráð-
ið í flestum tilfellum. Haft verði sam-
band við fólkið og því boðin áfalla-
hjálp.
Eldingu laust niður í Fokker-flugvél
Farþegar fundu
fyrir högginu
LEITAÐ var að sprengju í Leifsstöð í gærmorg-
un í rúmlega tvo klukkutíma. Engin sprengja
fannst. Yfirlögregluþjónninn á Keflavíkurflug-
velli segir að ekki hafi verið hætta á ferðum og
því ekki þurft að rýma bygginguna. Hvorki urðu
truflanir á starfsemi í flugstöðinni né á milli-
landaflugi.
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar, sprengju-
leitarhundur og hundaþjálfari frá varnarliðinu
ásamt lögreglu hófu leit um klukkan tíu í gær-
morgun eftir að ábending barst um sprengju í
flugstöðinni. Leitinni lauk um hádegisbil.
Óskar Þórmundsson, yfirlögregluþjónn, sagði
að lögregla teldi fyrir bestu að gefa sem minnst-
ar upplýsingar um hvers eðlis ábendingin var eða
hvernig hún barst til lögreglu, m.a. vegna þess
að í þessum málum væri ávallt hætta á því að
einhverjir myndu vilja líkja eftir slíkum hót-
unum.
Ekki hefði verið talin hætta á ferðum og því
ekki gripið til þess ráðs að rýma bygginguna. Fá-
ir farþegar voru í flugstöðinni þegar leitin hófst.
Leitað að sprengju í Leifsstöð
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Bíl sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar var ekið kringum Leifsstöð þegar leitað var að sprengju.
UM HELGINA voru haldnir sigl-
ingadagar á Ísafirði. Að sögn
skipuleggjenda lögðu yfir fimm
hundruð manns leið sína niður að
höfn og Pollinum báða dagana. Á
laugardeginum var keppt í ýms-
um siglingaíþróttum, s.s. kajak-
róðri, en í gær voru meiri róleg-
heit yfir siglingadögunum. Þá
fengu ungir sem aldnir færi á því
að bregða sér í stutta siglingu á
ýmsum fleytum sem hægt var að
fá að láni. Veðrið lék við Ísfirð-
inga í gær og nutu margir þeirra
veðurblíðunnar á ljúfri siglingu á
firðinum.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Siglingadagar á Ísafirði
GÓÐAR horfur eru
varðandi korn-
uppskeru í sumar og
útlit er fyrir að upp-
skeran verði óvenju-
lega snemma á ferð-
inni. Ólafur
Eggertsson, bóndi á
Þorvaldseyri, telur
að víða verði met-
uppskera í haust
vegna eindæma veð-
urblíðu í vor og í
sumar. „Uppskera
verður fyrir miðjan
september, hugsanlega í byrjun september. Þetta gæti verið hálfum mán-
uði fyrr en venjulega,“ segir Ólafur.
Hann segir að oft sé hagstætt að bíða með uppskeruna eins lengi og
mögulegt er til þess að gefa korninu tíma til þess að þorna og þroskast til
fulls. Hins vegar hafi blíðan í vor verið slík að líklegt sé að uppskeran verði
fyrr á ferðinni en í venjulegu ári.
Ólafur segir að gæði kornsins verði líklega með besta móti, enda fari
vaxtarhraði og gæði gjarnan saman.
Vegna mikillar veðurblíðu í lok vetrar ákvað Ólafur að gera tilraun með
að sá í einn hektara óvenjulega snemma, eða 6. mars. Hann segir að sú til-
raun hafi gefist mjög vel. Kornið sem sáð var í mars hafi þroskast mjög vel
og sé mun lengra á veg komið en það sem sáð var á hefðbundnum tíma, um
miðjan apríl.
„Það snjóaði 1. maí og það gerði fimm frostnætur eftir sáningu og kornið
fraus eftir að það kom upp úr jörðinni,“ segir Ólafur. Hann segir að þetta
virðist þó engin áhrif hafa haft á kornið því það braggist ákaflega vel. „Ég
hefði getað sáð miklu meira í mars og þá verið kominn með uppskeru á
svipuðum tíma og í Danmörku,“ segir Ólafur.
Bóndinn á Þorvaldseyri sáði korni
í tilraunaskyni í byrjun mars
Til vinstri er kornið sem sáð var í tilraunaskyni í
byrjun mars. Það er mun lengra á veg komið.
Vetrarsáningin
lítur mjög vel út
Ljósmynd/Ólafur Eggertsson
2003 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
DORTMUND HEFUR ÁHUGA Á JÓHANNESI KARLI GUÐJÓNSSYNI / B3
BRYNJAR Björn Gunnarsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, sagði í gær að hann hefði ekki enn
sest niður með forráðamönnum enska 1. deild-
arliðsins Nottingham Forest til þess að ræða
samningsgerð en Brynjar hefur æft með liðinu
undanfarna daga. „Ég fer á æfingu á morgun (í
dag) og það verður síðasta æfingin hjá mér á
þessum reynslutíma. Forráðamenn liðsins munu
síðan gefa sér tíma í síðar í vikunni um hvert
framhaldið verður og ég hef því ekki hugmynd
um hvort mér verður boðinn samningur,“ sagði
Brynjar Björn. „Það er óvissuástand sem bíður
mín og ef ekkert verður úr þessu með Forest
verð ég að gera aðrar áætlanir. Það er ekkert
planað í vikunni um heimsóknir í önnur lið þar
sem ég ætla að klára þetta verkefni með Forest
og sjá til hvað verður,“ bætti Brynjar Björn við.
Óvissu-ástand
hjá Brynjari
Jean-Patrick Nazon frá Frakk-landi vann síðustu sérleiðina
en sérleiðirnar voru alls 20. Arms-
trong, er 31 árs gamall og keppir
fyrir US Postal liðið, sagði hann
við fjölmiðla að hann myndi mæta
til leiks að ári til þess að verja tit-
ilinn. „Ég er þreyttur en ánægður
og þessi keppni er sú erfiðasta
sem ég hef tekið þátt á mínum
ferli. En ég mun örugglega mæta
til leiks á næsta ári til þess að
bæta við sjötta titlinum í safnið,“
sagði Armstrong.
Ýmis önnur verðlaun voru af-
hent í gær að loknum síðasta
keppnisdeginum. Frakkinn
Richard Virenque var kosinn
„konungur fjallanna“. Besti ungi
keppendinn kom frá Rússlandi,
Denis Menchov. Alexandre Vino-
kourov frá Kasakstan var sagður
vera ákafasti keppandinn en CSC-
liðið frá Danmörku var besta liðið
að þessu sinni.
Armstrong bætti því við að hann
vildi leggja áherslu á það hann
væri fyrsti sigurvegarinn á þessu
móti sem hafi barist við krabba-
mein. „Í raun skiptir engu máli
hve oft ég hef unnið á þessu móti.
Það sem mestu skiptir er að ég hef
sigrast á krabbameinsæxlum sem
voru á heila, í lungum og í eista.
Vonandi verður árangurinn hvatn-
ing fyrir þá sem glíma við sama
sjúkdóm og lagði mig næstum að
velli,“ sagði Armstrong.
Lance Armstrong kom í mark á
83 klukkustundum, 41 mínútu og
12 sekúndum. Annar varð Jan Ull-
rich frá Þýskalandi, 1,01 mínútu á
eftir Armstrong.
Þriðji varð Alexander Vinokurov
frá Kasakstan, 4,14 mínútum á eft-
ir Armstrong.
Armstrong að hlið Indurain
LANCE Armstrong skráði nafn sitt í sögubækurnar í gær þegar
hann tryggði sér sigur í Frakklandshjólreiðakeppninni, Tour de
France, fimmta árið í röð. Aðeins Spánverjinn Miguel Indurain getur
státað sig af álíka árangri en hann vann í keppninni fimm ár í röð,
fyrst árið 1991 og síðast árið 1995. Þeir Jacques Anquetil, Eddy
Merckx og Bernard Hinault hafa allir unnið fimm sinnum í þessari
keppni en þeir náðu ekki að vinna fimm ár í röð líkt og Armstrong og
Indurain.
KNATTSPYRNULIÐ
Skagamanna varð fyrir
miklu áfalli um helgina
þegar ljóst var að Grétar
Rafn Steinsson, miðvall-
arleikmaður liðsins, er
með slitið krossband í hné
og rifinn liðþófa. Hann
mun því ekki leika meira
með liðinu á þessari leik-
tíð. Grétar, sem er 21 árs
gamall, meiddist í sig-
urleik gegn Þrótti á
fimmtudag.
„Nú taka við sex til átta
mánuðir af endurhæfingu.
Ég er staðráðinn í að koma
tvíefldur til baka. Ég hef
aðgang að mjög hæfum
lækni og svo er séð vel um
mig hér á Akranesi. Þann-
ig að ég hef engar áhyggj-
ur af þessu og lít á þessi
meiðsli aðeins sem enn eitt
fjallið til að klífa,“ sagði
Grétar Rafn Steinsson, í
samtali við Morgunblaðið
en hann vonast til þess að
fara í aðgerð á hnénu eftir
eina til tvær vikur.
Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari Skagmanna og ung-
mennalandsliðs Íslands,
sagði að vissulega væru
meiðsli Grétars gífurlegt
áfall fyrir bæði fyrir ÍA og
ungmennalandsliðið en
„maður kemur í manns
stað“ eins og Ólafur orðaði
það í samtali við Morg-
unblaðið.
Grétar
Rafn er
með slitið
kross-
band
Kylfingarnir Birgir Leifur Haf-
þórsson, GKG og Ragnhildur Sig-
urðardóttir GR, létu ljós sitt skína í
Vestmannaeyjum á Íslandsmótinu í
höggleik þar sem þau fögnuðu Ís-
landsmeistaratitli í sínum flokki.
Birgir Leifur vann Íslandsmótið í
Eyjum árið 1996 í fyrsta og bætti
öðrum titli sínum í safnið á sama
stað sjö árum síðar. Ragnhildur
hefur tvívegis áður unnið Íslands-
mótið en hún setti glæsilegt vall-
armet á þriðja keppnisdegi móts-
ins.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Efst á palli
í Eyjum