Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! Sýnd kl. 8 og 10.10. Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV YFIR 15000 GESTIR! Sýnd kl. 6. 19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 UPPSELT 20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 UPPSELT 21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 LAUS SÆTI ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA ! Bak við rimlana (Lockdown)  Glæpamynd Bandaríkin 2002. Skífan. VHS (106 mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: John Luessenhop. Aðalleikendur: Rich- ard T. Jones, De’aundre Bonds, Gabriel Casseus, Master P. LÍFIÐ innan múrveggja banda- ríska réttarkerfisins hefur löngum verið sýnt í óraunsæu ljósi í þarlend- um kvikmyndum. Annaðhvort er um að ræða gamanmyndir, stílfærðar hetjusögur af útsmognum flótta- mönnum eða yfirmáta óeðlilegan töffarahátt í litlu samhengi við raun- ir vistmanna. Af útliti kápunnar að dæma á mað- ur ekki von á miklum breytingum frá venjunni hvað snertir Bak við riml- ana. Það er ákaflega illa unnið svo ekki sé meira sagt. Innihaldið því betra. Myndin segir frá ægilegri lífs- reynslu þriggja félaga í blökku- mannahverfi í bandarískri stórborg. Avery (Jones), efnilegur sundmaður og heimilisfaðir sem hyggur á nám og betra líf fyrir sig og sína, flækist í vond mál ásamt félögum sínum. Dre (Bonds), er rótlaus en Cash (Cass- eus), er vandræðagepillinn í hópnum sem kemur þeim öllum í fangelsi, ákærðum fyrir morð á lögreglu- manni. Það sem við tekur er yfirgengilega bitur og átakanleg saga um brostna drauma, sólundað líf og grimma hversdagsbaráttuna bak við lás og slá. Þremenningunum vegnar mis- jafnlega, nokkuð hliðstætt við lífið utan veggjanna. Avery á einhverja von, alla vega áhorfendanna sem hljóta að vera slegnir yfir því ófegr- aða ofurraunsæi sem hellist yfir okk- ur í Bak við rimlana. Myndin er vel skrifuð, leikstýrð og einstaklega vel leikin, ekki síst af Casseus í hlut- verki ólánsmannsins Cash, sem virð- ist ekki eiga nokkra undankomuleið. Látið ekki ljóta kápu hindra ykkur ef þið viljið sjá trúverðugan ljótleika og ódramatíserað fangelsislíf. Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Grimm fangelsissaga BEST fyrir er norðlensk sveit, sem starfaði á árunum ’95–’96, skvt. upplýsingabæklingi. Lífið er aðeins … inni- heldur hins vegar spánýjar upptökur með endurreistri sveit en tökur fóru fram í vetur. Skemmst er frá því að segja að þetta er um margt glúrin plata og sker sig að ýmsu leyti frá venjubundnu (og oft þreytandi) popprokki. Tónlistin er melódískt rokk, ný- bylgjuskotið og einhverra hluta vegna dettur mér í hug New Jersey-sveitin ágæta The Smither- eens. Líklega vegna þess að stund- um gára nettar REM/háskóla- rokksöldur undir lögunum auk þess sem söngurinn er tilfinninga- ríkur og opinn, grófur og svona hæfilega lagviss. Þetta allt gæðir sönginn sjarma þó í einstaka til- fellum sé hann fullstirður. Í lögum eins og „Fram á veg“ og mig „Dreymdi þennan draum“ er styrkur Best fyrir greinilegastur. Metnaðarfullar lagasmíðar þar sem kaflaskiptingar eru þægilega ófyrirsjáanlegar, viðlög rödduð og þessi lög sitja ósjálfrátt eftir í huganum þegar þeim sleppir. „Möttu augun“ og „Gleðipillan“ eru í svipuðum farvegi; angistar- fullar smíðar og kröftugar. Textarnir eru þá verðugir at- hugunar. Það er orðið allt of sjald- gæft að íslenskar dægurlagasveitir bjóði upp á texta með einhverju innihaldi – í mesta lagi eru menn að stunda kersknislega orðaleiki. Best fyrir bjóða hins vegar upp á dimmúðlega texta sem fjalla um sorgbundin málefni eins og geð- sjúka vini, þunglyndi, vonlaus ást- arsambönd, ástarsýki, horfin æskuár, brostnar vonir o.s.frv., all- ir þeirra haglega saman settir. Góðu heilli fylgja textarnir með og þeim fylgja skýringar sem ramma umfjöllunarefnin skemmtilega inn. Í myrkustu köflunum er næstum eins og hemjulaus biturð búi við- komandi skáldum en textar eins og „Mig dreymdi þennan draum“ og „Brosið“ vísa þó sem betur fer veginn til heilnæmrar bjartsýni og raunsæis. En vegna þessa gráa andrúms- lofts, sem er ráðandi fremur en hitt er heildarsvipurinn þokkalega dökkur. En sá andi disksins er þó fremur aðlaðandi en hitt og ljær honum heillandi sérstöðu. Þegar mátulega er liðið á disk- inn fer hugmyndaþurrðar að gæta lítillega, söngurinn verður einhæf- ur og sömuleiðis lagasmíðar. Helsti löstur plötunnar liggur þó í upptökunni sem er ójöfn og full þungbúin (og mátti gripurinn þá ekki við miklu). Lífið er aðeins… er eins og lesa má fjarri því einhver „drullukaka“ eins og stundum er haft á orði í Dalvík. Þvert á móti er hér á ferð- inni athyglisverð og bara skrambi fín plata þar sem ákefð og greini- legur áhugi flytjenda fyrir því sem þeir eru að gera bætir upp þá litlu hnökkra sem eru á heildarmynd- inni. Tónlist Vagg og vangaveltur Best fyrir Lífið er aðeins … þessar stundir Frostgat 2003 Hljómsveitin Best fyrir er í dag skipuð þeim Elmari Eiríkssyni, Brynjari Davíðs- syni og Atla Rúnarssyni. Elmar og Brynj- ar semja lög og texta nema að Adam Sandler á eitt þeirra. Brynjar sér um söng og raddir, Elmar leikur á bassa, kassa- og rafgítar og leggur til söng í einu lagi. Atli spilar á trommur, hljómborð, raddar auk þess að leika lítillega á rafgítar og bassa. Brynjólfur Brynjólfsson leikur á sólógítar í tveimur lögum. Upptökustjórn var í höndum Atla en um hljóðböndun sáu Atli og Kristján Örnólfsson. Arnar Eggert Thoroddsen ÞAÐ verður forvitnileg stemmning á Gauki á Stöng annað kvöld, þegar þeir Áki Ásgeirsson trompetleikari, Helgi Hrafn Jónsson básúnuleikari og Stefán Jón Bernharðsson horn- leikari stíga á svið. Þeir drengir munu flytja sjö ný íslensk tónverk fyrir málmblásturshljóðfæri og raf- hljómgjafa. Auk blásaratríósins koma fram Heimilistækja- hljómsveitin Moulinex og DJ Krampi. „Við höfum mjög gaman af svona tilraunastarfsemi,“ segir Helgi og bætir við að þeir vilji fara í aðrar áttir en að spila fyrir sama „sígilda“ áhorfendahópinn. Stefán tekur und- ir með honum. „Við hefðum getað haldið tónleika í einhverri kirkju um miðjan laugardag í klassísku samhengi, en við ákváðum að flytja þetta á Gaukinn og hafa þetta klukkan tíu um kvöld.“ Fjölbreytt og krefjandi prógramm Tríóið flytur bæði verk eftir sjálfa sig og önnur tónskáld, þar á meðal Kolbein Einarsson, Hilmar Þórð- arsson, Davíð B. Franzson, Inga Garðar Erlendsson og Ólaf B. Ólafs- son. Ungu blásararnir segja pró- grammið afar krefjandi og mörk hljóðfæranna þanin til hins ýtrasta auk þess sem samspilið við raf- tónlistina geri verkin mjög spenn- andi. „Við erum þó ekki að tala um einhverja fælandi nútímatónlist eins og fólk gæti ímyndað sér í þessu samhengi,“ segir Áki og Helgi bætir við: „Þó við séum alvarlegir hljóð- færaleikarar þá viljum við skila hljómlistinni frá okkur á skemmti- legan og aðgengilegan hátt.“ Tónleikarnir verða, eins og áður sagði, á þriðjudagskvöld kl. 22 á Gauki á Stöng. Morgunblaðið/Svavar Þessir brosmildu blásaradrengir munu bregða á leik á Gauknum næsta þriðjudag. Frískur lúðra- þytur á Gauknum Blásarar leika listir sínar á Gauki á Stöng HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14  X-IÐ 97.7  SV MBL  ÓHT RÁS 2  HK DV Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. kl. 6, 8.30 og 11. Stríðið er hafið! Sýnd kl. 6. Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV YFIR 15000 GESTIR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.