Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til þessarar heillandi borgar á hreint ótrúlegum kjörum. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara fyrir 1, og kemst til einnar fegurstu borgar Ítalíu á hlægilegu verði. Að auki getur þú valið um úrval hótela í hjarta Verona og bílaleigubíla frá Avis á einstaklega hagstæðu verði. Munið Mastercard ferðaávísunina Verona 6. ágúst frá kr. 19.950 Verð kr. 19.950 M.v. 2 fyrir 1. Fargjald kr. 32.200 / 2 = 16.100.- Skattar kr. 3.850.- Samtals kr. 19.950.- pr. mann. Gildir út 6. ágúst, heim 11./18. ágúst Almennt verð kr. 20.950.- Úrval hótela í boði. Síðustu sætin Atlantsolía leitar til einkaaðila um lóð undir bensínstöð Góð við- brögð við auglýs- ingunni ATLANTSOLÍA auglýsti í Morgunblaðinu í gær eftir lóð- um á höfuðborgarsvæðinu fyrir sjálfsafgreiðslustöðvar elds- neytis. Stefán Kjærnested, einn eigenda fyrirtækisins, sagði í samtali við Morgunblað- ið að nú þegar hefðu borist til- boð og hugmyndir um lóðir. Viðbrögð við auglýsingunni hefðu því verið góð. „Jafnframt höfum við haft samband við nokkur sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu varðandi lóðir undir bensín- stöðvar. Við ákváðum að aug- lýsa einnig eftir lóðum, vegna þess að margir aðilar eiga hent- ugar lóðir í sinni eigu fyrir starfsemi af þessu tagi,“ sagði Stefán. Meðal staða sem Stefán nefnir að borist hafi í tal eru söluturnar og verslanir við stórar umferðaræðar, þar sem ekki hefur verið bensínsala áð- ur. „Það er hagur beggja aðila að auka þjónustuna á staðnum og gefa neytendum færi á að dæla á bílinn í leiðinni,“ útskýr- ir Stefán. Breytingar þörf á deiliskipulagi Ef til lóðarkaupa eða sam- starfs kæmi um lóðarnýtingu segir Stefán að næsta skref væri að leita til viðkomandi sveitarfélags um breytingu á deiliskipulagi. „Það er ákveðið ferli sem tekur sinn tíma, en þar sem sveitarfélögin sem við höfum rætt við hafa verið mjög jákvæð gagnvart okkur býst ég við að þeirri vinnu verði hraðað eins og unnt er,“ sagði Stefán að lokum. LOKATÓNLEIKAR sjöundu Reyk- holtshátíðarinnar voru haldnir í gær. Efnisskrá hátíðarinnar var fjölbreytt og komu þar fram, ásamt íslenskum flytjendum hátíðarinnar, Brindisi tríóið frá Englandi og danski tenórinn Jens Krogsgaard. Í gær var meðal annars frumflutt verkið Höfundr aldar (Snorri Sturluson) eftir tónskáldið Hildi- gunni Rúnarsdóttur af þeim Huldu Björk Garðarsdóttur sópran, Stein- unni Birnu Ragnarsdóttur píanó- leikara og Bryndísi Höllu Gylfadótt- ur sellóleikara. Stjórnandi hátíðarinnar, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, segir í samtali við Morgunblaðið að aðsókn hafi verið með ágætum og fullt hús á lokatónleikunum. Hún segist þó auðvitað vilja sjá fleiri gesti yfir tón- leikahátíðina, því stemmningin margfaldist þegar margir séu í saln- um. Frá Englandi komu þrír tónlist- armenn, sem kalla sig Brindisi tríóið. Á píanó leikur Caroline Palm- er, Jacqueline Shave á fiðlu og Mich- ael Stirling á selló. Steinunn Birna segir flytjendur á hátíðinni oft vera fólk sem tengist hennar samstarfs- hópi á einn eða annan hátt, en hún hefur t.d. starfað mikið með Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara, sem er eiginkona Michael Stirlings og flutti ásamt tríóinu Píanókvartett eftir Brahms á þessum tónleikum. Steinunn telur hátíðina hafa getið sér gott orð erlendis, sérstaklega á Norðurlöndum, sem auðveldar henni að fá fólk til að koma fram á Reykholtshátíðinni. Talsvert sam- starf er til dæmis við Eystrasalts- löndin en Steinunn segist þó hafa ákveðinn metnað fyrir norrænu samstarfi, þar sem menningararf- urinn sé sameiginlegur og telur það að vissu leyti skyldu sína að auka samvinnu norrænna einleikara og kammerleikara. Þessa helgi flutti vel þekktur danskur tenór, Jens Krogsgaard, meðal annars sönglög eftir danska tónskáldið Heise. Á Reykholtshátíð eru farnir að koma gestir frá útlöndum gagngert til að njóta tónlistarhelgar í fallegu umhverfi segir Steinunn og framtíð- arhugmynd hennar er að hátíðin hafi einnig aðdráttarafl fyrir er- lenda tónlistarunnendur. Fyrir- myndir séu til að slíkum hátíðum og nefnir hún sem dæmi hina árlegu tónlistarhátíð í Kuchmo í Finnlandi. Fullt hús á lokatónleikum Reykholtshátíðar Tónlistarmenn voru hylltir vel og innilega að loknum tónleikum í gær. FYRSTI Vestur-Íslendingadagurinn var haldinn hátíðlegur á Hofsósi í gær, að viðstöddu fjölmenni. Kvöldið áður var hitað upp með því að Freyvangsleikhúsið kom með sína frábæru sýningu um vestur-íslenska skáldið Káin, eftir sr. Hannes Bland- on, en Hannes var einmitt í gervi Ká- ins í sýningunni. Var húsfylli og við- staddir sýninguna voru sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, James I. Gadsden, og sendiherra Íslands í Kanada, Hjálmar W. Hannesson, auk félagsmálaráðherra, Árna Magn- ússonar, og fjölda gesta innlendra og erlendra. Á sunnudeginum fór svo fram há- tíðardagskrá í félagsheimilinu Höfða- borg, og var fjöldi gesta slíkur að hvert sæti var skipað og var setið í hverju horni. Valgeir Þorvaldsson framkvæmdastjóri Vesturfaraseturs- ins setti samkomuna og bauð gesti velkomna, en síðan stýrði Wincie Jó- hannsdóttir dagskránni. Merkilegur þáttur íslensks þjóðlífs Árni Magnússon félagsmálaráð- herra ávarpaði samkomuna fyrstur og lýsti þeirri von sinni að Íslend- ingadagurinn á Hofsósi mætti festast í sessi og verða árviss viðburður. Sagðist Árni hafa fylgst með fram- kvæmdum Valgeirs við að vinna Vesturfarasetrinu sess í þjóðlífinu, og benti á hve litlu hefði oft mátt muna á þeim erfiðu árum í sögu þjóðarinnar hvort núlifandi Íslendingar hefðu orðið Vestur- eða „Austur“- Íslendingar, þegar um fimmtungur þjóðarinnar flúði örbirgð og skort og flutti vestur um haf út í óvissuna í von um betri framtíð. Sagði Árni að með ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að fela Vesturfarasetrinu á Hofsósi að vera upplýsinga- og tengslamiðstöð vestur um haf væri komið á tengingu sem ekki mundi rofna, enda væri vel að verki staðið hjá heimamönnum. Nú sækti á annan tug þúsunda gesta setrið heim á hverju ári, og sagðist Árni sjá fyrir sér að þegar Hótel Karlsefni hefði verið reist mundi sá fjöldi að minnsta kosti tvöfaldast. „Hér er vel farið með merkilegan þátt í íslensku þjóðlífi, sem á eftir að eflast og styrkjast enn meir,“ sagði félagsmálaráðherra um leið og hann flutti árnaðaróskir ríkisstjórnar Ís- lands á þessu fyrsta Vestur- Íslendingadegi á Hofsósi. Þá fluttu ávörp sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, James I. Gadsden, og sendiherra Íslands í Kanada, Hjálmar W. Hannesson. Bill Holm skáld flutti erindi sem hann nefndi „Skál, to the ghosts“ og lét þar gamminn geisa, eins og honum einum er lagið. Fjölbreytt söngdagskrá New Iceland Youth Choir, frá Ár- borg í Manitoba, söng úrval laga eftir íslenska og erlenda höfunda, en þessi ungmennakór, sem söng hvert ís- lenska lagið á eftir öðru af stakri prýði, er undir stjórn frú Rosalind Vigfússon og varð kórinn að syngja nokkur aukalög, en einnig kom kór- inn inn í upplestur Davids Gislasonar bónda í Árborg, en hann las úr verki Halldórs Laxness „Nýja Ísland“ og söng þar lagið Búkolla eftir stjórn- andann frú Rosalind. Hjörleifur Hjartarson og Íris Ólöf Sigurjónsdóttir fluttu hluta af Söng- vöku prógrammi sínu, „A history of Icelandic songs,“ og að lokum söng Anna Sigríður Helgadóttir mezzó- sópran við undirleik Bills Holm nokk- ur lög, og endaði á að kalla inn ung- mennakórinn og lét svo alla syngja saman Litlu fluguna eftir Sigfús Hall- dórsson. Sendiherrar viðstaddir fyrsta Vestur-Íslendingadaginn „Hér er vel farið með merkilegan þátt í íslensku þjóð- lífi,“ sagði félags- málaráðherra Morgunblaðið/Björn Björnsson Fullt var út úr dyrum í Höfðaborg á Hofsósi og greinilegt að fólk var ánægt með daginn. David Gislason, bóndi í Kanada, og Rosalind Vigfússon kórstjórnandi. Vestur-Íslendingurinn Bill Holm komst „á flug“ í ræðustólnum. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Kanada, flutti ávarp. Hofsósi. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.