Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.icelandair.is
Kaupmannhöfn
www.icelandair.is/kaupmannahofn
Fá þér smørrebrød og bjór hjá Idu Davidsen,
Store Kongensgade 70. Opið til kl. 17:00 virka
daga, lokað um helgar. Þar upplifir þú sanna
danska stemningu.
Í Kaupmannahöfn þarftu að:
Verð frá 29.900 kr.
á mann í tvíbýlí í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting
á Hótel Admiral, morgunverður,
flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Brottfarir 8. nóv., 16. jan. og 20. mars.
Christianshavn
Miðbærinn
Tívolí
Amalienborg
Plads
Kul
Torvet
Central
Station
Christiania
Kongens
Nytorv
Copenhagen
Admiral Hotel
Graa-
broedre
Torv
Latínu hverfið
Ny Carlsberg
Glyptotek
N
ør
re
V
ol
dg
ad
e
Str
øg
et
Ch
ris
tia
ns
Br
ygg
e
Ka
lve
bo
d B
ryg
ge
Ves
trbr
oga
de
Tie
tge
nsg
ade
Kon
geve
j
Ved
Ves
terp
ort
Kampmannsgade
Gothersgade
Bernstorffsgade
HC Andersens Blvd
Nyhavn
St
or
e
K
on
ge
ns
ga
de
Br
ed
ga
de
To
ld
bo
dg
ad
e
Købm
agergade
NyØstergade
Str øget
Øst
erga
de
Krø
npr
ins
en-
gad
e
Rådhus-
pladsen
Palace
Hotel
Imperial
Hotel
Hotel
Du Nord
DGI-byen
Hotel
Absalon
C
olbjö
rnsensgade
H
elgolandsgade
Vester
Farim
ags
gad
e
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
Bröltu út
um glugga
eftir bílveltu
ÖKUMAÐUR missti stjórn á bifreið
sinni í beygju við vegamót Skaga-
fjarðarvegar og Norðurlandsvegar
um klukkan fimm í gærmorgun.
Þrennt var í bílnum, tveir piltar og
stúlka. Bíllinn fór nokkrar veltur og
stöðvaðist loks á hvolfi á Norður-
landsvegi en honum hafði verið ekið
eftir Skagafjarðarvegi.
Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki gátu ökumaður og farþegar
brölt út um glugga á bílnum og voru
komin út þegar lögreglu og sjúkra-
flutningamenn dreif að. Þau voru öll
í bílbeltum og voru áverkar þeirra
ekki taldir alvarlegir.
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
alþingismaður, segir að kannanir
sem gerðar voru meðal foreldra um
hvaða tími hentaði þeim best varð-
andi lokanir í leikskólum í Reykjavík
í sumar sýni dæmi um að rétt um
20% foreldra barna í ákveðnum leik-
skólum vilji láta loka á þeim tíma
sem var svo lokað í sumar.
Í sumum skólum var þátttaka í
könnuninni léleg og í þeim skólum
byggist ákvörðun um lokun á af-
stöðu mikils minnihluta foreldra sé
tekið mið af heildarfjölda foreldra í
viðkomandi skóla, allt niður í um
20%.
„Þetta segir allt sem segja þarf
um hvað þetta kemur sér illa fyrir
barnafólk í borginni. Þetta er mun
meiri þjónustuskerðing heldur en
fólk almennt gerir sér grein fyrir ef
það stendur ekki í þessu sjálft.“
Guðlaugur segir að það sé í raun
ómögulegt að loka leikskólum í ein-
hvern tíma öðruvísi en það komi sér
illa fyrir fjölmarga foreldra: „Grunn-
urinn er náttúrulega sá að sumar-
lokanir eru mjög slæm hugmynd,“
segir Guðlaugur, og segir að engin
rök sem hann hafi heyrt hafi sann-
fært hann um nauðsyn sumarlokana.
„Ef við stjórnmálamenn í borginni
tölum um það að við viljum sjá fjöl-
skylduvænni borg og viljum að hér
sé gott að ala upp börnin okkar þá
eru þessar sumarlokanir algerlega
þvert á það markmið.“
„Við förum að sjálfsögðu eins mik-
ið eftir vilja foreldra og kostur er,“
segir Þorlákur Björnsson, formaður
leikskólaráðs. Hann segir að þetta
mál verði tekið upp aftur í haust,
enda hafi sumarlokanir í sumar að-
eins verið til reynslu.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Leikskóla Reykjavíkur, bendir
á að lagðar hafi verið kannanir fyrir
foreldra leikskólabarna og valinn sá
sumarleyfistími sem meirihluti for-
eldra kaus. „Við stjórnum því ekki
hversu margir foreldrar skiluðu inn
könnuninni. Reglurnar voru hengd-
ar upp á töflu þar sem foreldrar gátu
lesið þær. Leikskólaráð hefur sam-
þykkt að farið verði yfir málin að
loknum sumarleyfum upp á framtíð-
ina til að gera,“ segir Bergur.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
gagnrýnir lokanir leikskóla
Allt niður í um 20%
valdi þann tíma
sem lokað var á
ÞRÍR Bandaríkjamenn og einn
Breti hafa í sumar róið kajökum
sínum með ströndum Íslands, stað-
ráðnir í því að sigla í kringum eyj-
una. Bandaríkjamennirnir eiga
vart meira en viku eftir af ferðalag-
inu en Bretinn, sem er einn á ferð,
er heldur skemmra á veg kominn.
Hann gerir ráð fyrir að leggja af
stað frá Höfn á þriðjudag og róa
suður með landinu. Erfiðasti leggur
ferðarinnar er um það bil að hefj-
ast.
Morgunblaðið náði tali af Bret-
anum, Jonathan Burleigh, í gær þar
sem hann dvaldi í góðu yfirlæti í
heimahúsi á Höfn í Hornafirði. Bur-
leigh hóf róðurinn á Ólafsvík 4. júní
og segir að leiðangurinn hafi geng-
ið að óskum; hann hafi einungis
þurft að bíða af sér veður í sex
daga. „Það tók mig um eitt og hálft
ár að skipuleggja leiðangurinn.
Fólk víðsvegar um Ísland geyma
matarkassa fyrir mig sem ég kom
með frá Bretlandi en matnum er
skipt þannig upp að í hverjum
kassa eru 14 pokar, hver og einn
með nægum mat fyrir einn dag,“
segir Burleigh. Það er því ekki
flókið mál að ákveða hvað eigi að
vera í matinn en reyndar segir Bur-
leigh að maturinn sé býsna fábrot-
inn. Nokkrir þorskar og ýsur sem
hann veiddi á leiðinni hafa aðeins
aukið fjölbreytnina. „Það er miklu
betra en pasta og hrísgrjón,“ sagði
hann.
Tröllasögur um suðurströndina
Það er óhætt að segja að
Burleigh sé vel búinn og skynsamur
ferðalangur. Um borð í kajaknum
er gervihnattasími, tölva og farsími
sem hann hleður með sólarorku
auk matar og viðlegubúnaðar. Á
hverju kvöldi hefur hann samband
við Tilkynningarskylduna og lætur
vita af ferðum sínum og fær um leið
upplýsingar um veðurspá. Hann
segir að sér liggi ekkert á, ef veður
leyfir muni hann klára hringferð-
ina en annars ekki. Auðvitað langi
hann að loka hringnum en hann
muni ekki taka óþarfa áhættu. En
verður hann ekkert einmana? „Jú,
en ég hlakka til að hitta fólk á hin-
um mismunandi stöðum. En auðvit-
að verð ég einmana. Siglingin um
suðurströndina verður þolraun,
sérstaklega ef veðrið verður slæmt
og ég þarf að húka í tjaldinu í
nokkra daga. En ég hef bækur til
að lesa. Svo get ég sent tölvupóst.
Og ef ég er ekki að róa get ég notað
tækifærið til að ná upp svefni,“ seg-
ir hann.
Á þriðjudag hefur hann róður
fyrir suðurströndina sem er án efa
erfiðasti leggur leiðarinnar. Að-
spurður segir hann að hann kvíði
ekki fyrir ferðalaginu. „Það eru
augljósar hættur við suðurströnd-
ina en satt að segja eru þær sama
eðlis og þær hættur sem ég hef tek-
ist á við í ferðalaginu hingað til. Ég
hef þó örlítið meiri áhyggjur nú en
oft áður, ekki síst út af öllum trölla-
sögum sem fólk hefur sagt mér um
suðurströndina.“
Vika eftir
Bandaríkjamennirnir Chris Duff,
Shawna Franklin og Leon Sommé
eiga aðeins eftir um vikulangan
róður til að ljúka hringferð sinni
um landið, haldist veðrið sæmilega
gott. Á laugardagsmorgun reru
þau frá Húsavík og gætu verið
komin að Langanesi ef ekki lengra.
Í síðustu viku reru þau á einum
degi frá Siglufirði til Húsavíkur
sem telst dágóð dagleið.
Hringsiglingar kajakmanna ganga framar vonum
Þorskur og ýsa betri
en pasta og hrísgrjón
Shawna Franklin og Leon Sommé í
Húsavíkurhöfn eftir hraustlegan
róður frá Siglufirði. Chris Duff var
skammt undan.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
2
9 /
&)6 # &
2,#/&
:()&
&,(
';
< 2()&
)
(
*+ ,--.
/01
0
/+
20
+
3
+
=
& 2
'(
)2()&
Illa slasaður
eftir árás
RÚMLEGA tvítugur maður hlaut
svo þung högg í átökum hjá Grófinni
í Keflavík snemma í gærmorgun að
hann kinnbeinsbrotnaði og a.m.k. ein
tönn brotnaði. Kunningjar hins slas-
aða óku honum á Heilsugæslustofn-
un Suðurnesja en þaðan var hann
fluttur með sjúkrabíl á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi.
Lögreglan í Keflavík fékk ekki
veður af árásinni fyrr en hún var yf-
irstaðin og maðurinn kominn á
sjúkrahús. Að sögn lögreglu varð
fjölmennur hópur ungmenna vitni að
atburðum og frá upphafi ljóst hver
það var sem réðst á manninn. Í gær-
kvöld hafði ekki tekist að hafa uppi á
hinum grunaða og eftir var að ræða
við vitni en svo virðist sem þrasi og
illsku hafi lokið með því að mennirnir
flugust á.
Robertson í
kveðjuheimsókn
FRAMKVÆMDASTJÓRI Atlants-
hafsbandalagsins, George Robert-
son lávarður, kemur í kveðjuheim-
sókn til Íslands í dag. Gert er ráð
fyrir að Robertson láti af störfum í
árslok. Hann mun eiga fund með
Davíð Oddssyni, forsætisráðherra,
og Halldóri Ásgrímssyni, utanríkis-
ráðherra, á Þingvöllum.
UNDANFARNAR vikur hefur
verið nokkuð um að hundaeig-
endur leiti til dýralæknis með
hunda sína vegna gruns um
spóluormasmit. Spóluormar
eru frekar algeng sníkjudýr í
hundum og köttum og því gott
að hafa varann á.
„Það er ekki meira um spólu-
orma nú en oft áður. En nú er
grilltíminn og fólk er að henda
alls kyns grillkjöti í hunda og
ketti sem þau æla síðan upp. Þá
verður fólk áhyggjufullt og
kemur með dýrin hingað,“ seg-
ir Hanna Arnórsdóttir, dýra-
læknir hjá Dýralæknastofunni í
Garðabæ. „En gæludýraeign er
líka orðin almennari og fólk al-
mennt orðið meðvitaðra um
hvað getur leynst í dýrunum og
farið að veita hægðunum meiri
athygli. Þess vegna heyrir mað-
ur af fleiri tilvikum. Það er
hægt að segja mikið til um heil-
brigði gæludýra með því að
skoða hægðirnar. Við brýnum
fyrir fólki að gefa dýrum sínum
reglulega ormalyf til að forðast
óþægilegar afleiðingar orma.
Egg orma geta leynst í feldi
dýra og því er mikilvægt, sér-
staklega þegar um ung dýr er
að ræða, að halda dýrunum
hreinum. Það er samt engin
ástæða til að örvænta eða ótt-
ast. Þessir ormar geta ekki
valdið sjúkleika í fólki nema hjá
ungum börnum eða fólki með
skert ónæmiskerfi.“
Langur lífferill
Spóluormar geta smitast í
fólk, aðallega til barna undir
fimm ára aldri.
Spóluormur í hundum og
köttum getur orðið allt að 18
cm langur. Eggin berast í lík-
amann með saur eða sýktri
bráð. Eggin klekjast út í smá-
þörmunum og bora lirfurnar
sig í gegnum þarmaveggina og
berast með blóðrás til lifrarinn-
ar. Þaðan berast þær til
lungnanna. Í lungunum fara
þær inn í berkjurnar og berast
þaðan um barka upp í kok. Lirf-
unum er kyngt og úr maga ber-
ast þær til smágirnis, þar sem
þær verða kynþroska ormar,
sem verpa eggjum. Eggin ber-
ast síðan út með saur. Egg
spóluorma eru lífseig og lifa ár-
um saman jafnt úti sem inni og
þola þau frost, hita, sól og þrif.
„Þegar við mennirnir inn-
byrðum egg, nær ormurinn
ekki að verða kynþroska, held-
ur færir hann sig út í vefi og
sest þar. Lífshringur ormsins
nær einungis að fara alla leið í
náttúrulegum hýslum, þ.e.a.s.
hundum og köttum. Ormar
geta líka smitast yfir í afkvæmi
í gegnum fylgju, þannig að
hvolpar geta fæðst með orma.
Því er mikilvægt að gefa dýr-
unum reglulega ormalyf til
þess að fyrirbyggja smit.“
Morgunblaðið/Ingó
Það er mikilvægt að orm-
hreinsa hundana reglulega.
Mikilvægt
að orm-
hreinsa
hunda
Talsvert um spólu-
orma í gæludýrum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦