Morgunblaðið - 28.07.2003, Page 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 11
HÚS nýrrar heilsuræktar World
Class, sem er að rísa í Laugar-
dalnum, er farið að fá á sig nokkra
mynd. Þakið er komið og verið að
glerja, en búist er við að húsinu
verði lokað fyrir mánaðamót. Stefnt
er að því að opna heilsuræktina 3.
janúar nk.
Að sögn Björns Leifssonar, eig-
anda heilsuræktarinnar, er þarna
komin „ný vídd“ í heilsurækt-
armarkaðinn. „Þetta verður fjöl-
skylduparadís,“ segir hann.
Við hlið heilsuræktarinnar reisir
Reykjavíkurborg yfirbyggða keppn-
islaug. Þar er búið að steypa alla
lagna- og tækjakjallara og brátt
verður farið að steypa sundlaug-
arkerfið. Stefnt er að því að laugin
verði tekin í notkun í byrjun sept-
ember 2004. Mannvirkið að utan
verður þó tilbúið um áramót, sem og
aðkoma og laugargarður sem er
sameiginlegur með heilsuræktinni.
Íþróttasalur fyrir börnin
Talsvert verður um nýjungar í
hinni nýju heilsuræktarstöð World
Class. Til að mynda verða þar þrír
mismunandi veitingastaðir og beint
aðgengi að inni- og útisundlaugum í
Laugardal. Einnig hárgreiðslu-,
snyrti- og fótaaðgerðastofa, 200 fer-
metra aðstaða fyrir nuddara og þrí-
skipt 200 fermetra barnagæsla með
sérstökum íþróttasal fyrir börnin.
Þá er enn óráðstafað útleigurými í
húsinu en til greina kemur að setja
þar upp m.a. golfherma og púttvöll.
Í sérstakri 500 fermetra baðstofu
verða sex mjög mismunandi gerðir
gufubaða og hvíldaraðstaða með
arineldi. Einnig pottur með sjáv-
arvatni og sex metra langur foss,
hvort tveggja hannað af Sigurði
Guðmundssyni listamanni. Hiti er í
öllum gólfum í baðaðstöðunni en
gólf búningsklefanna og gönguleiðir
eru lagðar graníti sem er sérslípað í
Kína. Gufuböðin verða hönnuð og
smíðuð í Þýskalandi og annað sem
viðkemur baðstofunni.
18 þúsund fermetra mannvirki
Hús heilsuræktarinnar er alls
7.150 fermetrar að flatarmáli og
nýja sundlaugin er 5.600 fermetrar.
Með gömlu sundlaugaraðstöðunni,
sem er um 5.800 fermetrar, verður
því í heildina um að ræða 18 þúsund
fermetra mannvirki. Heildarkostn-
aður nemur 2,5 milljörðum króna,
þar af eru 1.400 milljónir vegna
heilsuræktarinnar og 1.100 vegna
sundlaugarinnar.
Björn er þess fullviss að nýja stöð-
in í Laugardal muni hafa mikil áhrif
á heilsuræktarmarkaðinn á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann segist jafn-
framt gera sér grein fyrir að þau
áhrif muni ekki síður koma niður á
hans eigin stöðvum, þ.e. í Austur-
stræti og Spönginni, en annarra.
Stöðinni í Fellsmúla verður hins veg-
ar lokað við opnun nýju stöðv-
arinnar.
Í framhjáhlaupi má geta þess að
stöð World Class á Akureyri hefur
verið leigð út frá 1. ágúst með öllum
tækjum og búnaði. Við henni tekur
Guðrún Gísladóttir, margfaldur Ís-
landsmeistari í Fitness og heilsu-
ræktarkennari á Akureyri til
margra ára. Ástæðu þess að öðrum
er falinn reksturinn segir Björn vera
að stöðin hafi ekki gengið eins og
hann ætlaði sér og hann sjái ekki
ástæðu til að halda henni úti lengur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Talsvert verður um nýjungar í hinni nýju heilsuræktarstöð World Class. T.a.m. verða þar þrír veitingastaðir.
Björn Leifsson segist vera þess fullviss að nýja stöðin í Laugardal muni
hafa mikil áhrif á heilsuræktarmarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu.
„Fjölskylduparadís“
að rísa í Laugardal
VELTA hjá íslenskum Master-
card- og VISA-kreditkorthöfum
innan- og utanlands jókst um
12,4% í júní, miðað við júní 2002.
Samtals var veltan 13.686 milljón-
ir króna í júnímánuði 2003, sam-
anborið við 12.172 milljónir í júní-
mánuði 2002.
Inni í þessum tölum er notkun í
gegnum posa, hraðbanka og boð-
greiðslur, auk notkunar erlendis.
Tölurnar eru ekki leiðréttar með
tilliti til verðbólgu og gengis-
breytinga. Hafa verður í huga, að
aukin notkun kreditkorta þarf
ekki að gefa til kynna aukna
eyðslu, því hún kann að koma nið-
ur á öðrum greiðslumiðlum.
Kreditkortavelta
jókst í júnímánuði
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111