Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTA HREFNAN Njörður Kó veiddi fyrsta hvalinn við Íslandsstrendur í fjórtán ár, lítið dýr, á Breiðafirði um fimmleytið í gærdag, um fimm klukkustundum eftir að hvalaskoðunarbátnum Eld- ingu II var snúið til lands en hann hafði fylgt Nirði með erlenda blaða- og myndatökumenn innanborðs. Þrjú hvalveiðiskip voru á mið- unum í gær í þeim tilgangi að veiða hrefnur í vísindaskyni. Friðarsamkomulag í Líberíu Fulltrúar stjórnar og uppreisnar- manna í Líberíu undirrituðu í gær friðarsamkomulag, sem vonast er til að bindi enda á langvarandi átök þar í landi. Verður mynduð þjóðstjórn, sem ætlað er að undirbúa kosningar eftir tvö og hálft ár. Gíslar fá frelsi 14 Evrópumenn, sem alsírskir uppreisnarmenn tóku í gíslingu í Sa- hara-eyðimörkinni fyrir um fimm mánuðum, voru látnir lausir í Malí í gær. Fullyrt var að gíslarnir væru við góða heilsu, þótt þeir væru upp- gefnir eftir þessa þrekraun. Sýndi ekki ógnina af Írak Í vitnaleiðslum í gær fyrir hinni svokölluðu Hutton-nefnd, sem rann- sakar andlát dr. Davids Kellys, kom fram að Jonathan Powell, starfs- mannastjóri Tonys Blairs, sagði yf- irmönnum bresku leyniþjónust- unnar að hann teldi að uppkast af skýrslu þeirra sýndi ekki að bráð ógn stafaði af Írak. Skýrslan sýndi ekki að Saddam Hussein hefði tilefni til að ráðast á granna sína, hvað þá Vesturlönd. Útgáfa húsbréfa eykst Mikil aukning var í samþykktri útgáfu húsbréfa í júlímánuði og nam útgáfan alls 5,5 milljörðum króna, samanborið við 3,2 milljarða í júlí- mánuði 2002. Aukningin er því um 71% í útgáfunni, en um skeið hafa yf- ir 30% nýrra útlána í húsbréfakerf- inu verið með viðbótarlánum. Offramboð á heyi Mjög góð spretta hefur verið á túnum í flestum landshlutum í sum- ar og mörg dæmi þess að bændur séu nú í þriðja slætti. Offramboð er því á heyi og líkur á að bændur verði að losa sig við þúsundir tonna. Neyðarástand í flugvél Mikill viðbúnaður var á Keflavík- urflugvelli þegar Boeing 747-400- breiðþota Air Canada með 282 menn innanborðs lenti þar heilu og höldnu tuttugu mínútum fyrir fimm í gær. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Viðskipti 14 Minningar 28/32 Erlent 15/16 Kirkjustarf 33 Höfuðborgin 18 Bréf 34 Akureyri 18 Dagbók 36/37 Suðurnes 19 Kvikmyndir 42 Landið 21 Fólk 42/45 Neytendur 22 Bíó 43/45 Listir 22/23 Ljósvakar 46 Forystugrein 24 Veður 47 * * * NORÐURLJÓS hafa hætt endur- varpi útvarps heimsþjónustu breska ríkisútvarpsins BBC (BBC World Service). Að sögn Kristjáns Jónsson- ar, forstöðumanns og markaðsstjóra dagskrárdeildar útvarpssviðs Norð- urljósa, var nauðsynlegt að hætta endurvarpinu vegna hagræðingar og breytinga á dagskrá útvarpssviðs. „Við urðum að taka þessa ákvörð- un í ljósi hagræðingar, enda hefur þetta einungis verið kostnaður fyrir okkur. Hins vegar vildum við veita hlustendum útvarpssviðs Norður- ljósa þessa þjónustu eins lengi og við gátum,“ segir Kristján. Að hans sögn hefur nokkuð borið á athuga- semdum hlustenda vegna þessa, en við það verði að sitja um óákveðinn tíma, að minnsta kosti meðan önnur útsendingartíðni liggi ekki á lausu. Rokkstöðin Skonrokk til starfa Á tíðninni 90,9, þar sem BBC World var áður send út, verður opn- uð ný útvarpsstöð á morgun, Skon- rokk. Að sögn Kristjáns verður það klassísk rokkstöð. „Þar verður spil- uð rokktónlist alveg frá um 1963 til um 1993,“ segir hann. Sigurjón Kjartansson og Dr. Gunni verða helstu umsjónarmenn stöðvarinnar. Breytingar á útvarps- sviði Norðurljósa BBC world ekki send út lengur FJÖLMARGAR fyrirspurnir og töluvert af bókunum bárust á borð söluskrifstofu Flugleiða í Frankfurt í Þýskalandi eftir að ákveðið var að hefja stutta markaðssókn vegna hitabylgjunnar þar í landi. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýs- ingafulltrúa Flugleiða, var efnt til getraunaleiks á útvarpsstöð á svæð- inu og sömuleiðis birtar auglýsingar. Guðjón segir Flugleiðir áður hafa nýtt sér mikla hita í Evrópu til mark- aðssóknar, og eru nú þýskir ferða- langar komnir eða við það að koma til landsins í kjölfar auglýsinganna. Þjóðverjar leita hingað í svalann VERÐ á ólöglegum vímuefnum á götunni var kannað hjá SÁÁ við lok júlímánaðar og segir Þórarinn Tyrf- ingsson, framkvæmdastjóri með- ferðarsviðs SÁÁ, þar mega sjá ár- lega hækkun sumra efna vegna verslunarmannahelgarinnar. Að öðru leyti sé verð mjög stöðugt, að undanskildu verði E-taflna, sem lækkað hefur töluvert. Segist Þórarinn eiga von á fleiri sjúklingum til innlagnar nú þegar líður að haustdögum. Bæði sé um að ræða einstaklinga sem átt hafi í erf- iðleikum í sumar og síðar sé von á ungu fólki sem ekki takist að halda sér í námi eftir að skólar hefjast. Verð á E-töfl- um lækkar VIÐ uppgröft í Bankastræti í sumar kom í ljós göngubrú yfir Lækjargötu, sem rekja má til fyrstu ára steinsteypuframkvæmda á Íslandi, líklegast frá öðrum áratug síðustu aldar. Fyrirfram var vitað að þar kynnu að leynast leifar af gamalli hlaðinni brú sem lá yfir lækinn milli Austurstrætis og Banka- strætis en ekki fannst tangur né tetur af henni. Í staðinn, og öllum að óvörum, rákust menn á steinsteypta brú sem var bæði gleymd og grafin. Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur hjá Forn- leifastofnun Íslands, segir að sennilega sé einhvers staðar að finna ljósmyndir af brúnni og heimildir um hana. Brúin, sem er steinsteypt bogabrú, er illa farin og aðeins annar boginn eftir. Hún mun líkleg- ast hafa verið notuð sem göngubrú yfir lækinn á ár- unum áður en Lækjargata var lögð. Eftir að forn- leifafræðingar höfðu rannsakað brúna og myndað var ákveðið að moka yfir hana aftur þar sem hún mun hvíla áfram óhreyfð á gatnamótum Banka- strætis og Lækjargötu. Óvæntur fundur við framkvæmdir í Bankastræti Göngubrú frá fyrstu árum steinsteypuframkvæmda Ljósmynd/Sigurður Skarphéðinsson ELLEFU árekstrar urðu víðsvegar um höfuðborgina í gær frá klukkan þrjú eftir hádegi og fram á kvöld- matarleytið. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er það óvenju mikið. Allir voru árekstrarnir minni hátt- ar og engum sögum fer af meiðslum á fólki. Lögreglan kann enga skýr- ingu á þessum fjölda og segir að þrátt fyrir smábleytu á götunum hafi ekkert verið að færð. Óvenju margir árekstrar í borginni ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ FIMM þotur Flugleiða eru nú í leiguflugsverkefnum víða um heim á vegum dótturfélagsins Loftleiða Ice- landic. Fyrir félagið starfa nú um 150 Íslendingar; flugmenn, flugliðar og tæknimenn. Meðal verkefna er flug með ferðamenn milli Portúgals og Kúbu, farþegaflug í Afríku, Evr- ópu og milli Suður- og Norður-Am- eríku. Að sögn Sigþórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Loftleiða Ice- landic, er verkefnastaðan góð og útlitið sömuleiðis gott fyrir veturinn. Leiguflugið frá Portúgal er fyrir þarlent flugfélag. Í sumar og fram á haust eru farnar allt að 15 ferðir til Varadero á Kúbu, skammt frá höf- uðborginni Havana. Íslenskir flug- menn sinna þessu flugi ásamt portú- gölskum flugfreyjum. Sigþór segir að í haust verði svo flogið til Kúbu fyrir ferðaskrifstofuna Úrval-Útsýn með íslenska ferðamenn, líkt og gert hafi verið í fyrra. Af fleiri áfangastöðum Loftleiða Icelandic um þessar mundir má nefna Brasilíu, Dóminíska lýðveldið, Boston og New York í Bandaríkjun- um, Grænhöfðaeyjar, Kaupmanna- höfn, London, Sierra Leone og Gambíu. Fjórar vélar af gerðinni Bo- eing 757-200 eru í þessum verkefn- um ásamt einni Boeing 767-breið- þotu. Að sögn Sigþórs er líklegt að fleiri vélar Flugleiða fari í verkefni fyrir Loftleiðir Icelandic. Um 150 Íslendingar í verkefn- um fyrir Loftleiðir Icelandic MIKIL aukning var í samþykktri út- gáfu húsbréfa í júlímánuði og nam útgáfan alls 5,5 milljörðum króna, samanborið við 3,2 milljarða í júlí- mánuði 2002. Aukningin er því um 71% í útgáfunni, en um skeið hafa yf- ir 30% nýrra útlána í húsbréfakerf- inu verið með viðbótarlánum. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs, sem kom út í gær. Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að mikil gróska einkenni fasteigna- markaðinn um þessar mundir. Síðan síðasta haust hafi verið brögð að því að lánþegar færi sig úr félagslega kerfinu og yfir í almenna kerfið. „Á milli 30 og 40% af öllum lánum sem við veitum eru með viðbótarlánum, sennilega nær 40%. Þá er eitthvað um að menn séu að greiða upp eldri lán, nú þegar yfirverð er á bréfum. Ég segi ekki að það sé mikið um það, en eitthvað verðum við vör við það,“ segir hann. Meirihluti með 80–90% lán „Við vitum sem fyrr segir að yfir þriðjungur af lánþegum okkar er með viðbótarlán og þannig 90% fjár- mögnun. Svo vitum við að annar þriðjungur er með 80–90% fjár- mögnun með lífeyrissjóðsláni. Þá er væntanlega eftir um þriðjungur og sumir þeirra lánþega þurfa e.t.v. ekki lán. Við höldum því að þessi um- ræða, um þensluáhrif og peninga- flóð, sé dálítið ofgerð. En þetta verð- ur auðvitað allt saman skoðað mjög gaumgæfilega og það er á borði stjórnmálamannanna,“ segir Guð- mundur. Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala, segir að mjög líflegt hafi verið á fasteignamarkað- inum að undanförnu. „Þá höfum við orðið varir við gríðarlega aukningu á viðbótarlánum. Við óttumst það ekki jafn mikið og sumir aðrir að það verði kollsteypur á markaðinum þótt boðið verði upp á 90% lán í íbúða- lánakerfinu,“ segir hann. Hann segist vera sammála því, sem kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs, að í mörgum tilvik- um fasteignaviðskipta sé í raun um að ræða 80–90% lánsfjármögnun, að teknu tilliti til beinna útlána lífeyr- issjóða. Fyrirhugaðar breytingar muni því hafa minni efnahagsleg áhrif en margir telji. Áhrif á lánshæfi Í Hálffimm fréttum Búnaðarbank- ans er sagt að fara verði varlega í sakirnar. „Aukin útgáfa ríkis- tryggðra skuldabréfa, auk aukinnar skuldsetningar heimilanna, getur haft áhrif á lánshæfiseinkunn lands- ins og haft áhrif á fjármagnsstöðug- leika. Einnig er hætta á því að ef ný- bygging húsnæðis eykst ekki samfara aukinni útgáfu verði meira fjármagn að eltast við jafnmargar íbúðir sem mun leiða til hækkunar húsnæðisverðs og verðbólgu sem getur eytt ávinninginum fyrir al- menning af hærra lánshlutfalli.“ Mikil aukning í útgáfu húsbréfa  Metmánuður/14 Yfir 30% útlána Íbúðalánasjóðs með viðbótarlán

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.