Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 15 ELDAR loguðu enn í gær í olíuleiðsl- unni sem liggur frá Írak yfir til Tyrk- lands, en um helgina var kveikt í olíu á tveimur stöðum þar sem leiðslan hafði verið skemmd. Olíuverð hækk- aði í gær er fregnir bárust um eldana. Talið er að um skemmdarverk sé að ræða en fyrstu eldarnir kviknuðu á föstudag, aðeins tveimur dögum eftir að olíuflutningur hófst að nýju til Tyrklands eftir stríðið. Talsmenn Bandaríkjahers hafa lýst yfir að tekið geti allt að mánuð að laga skemmd- irnar svo olíuflutningur geti hafist aft- ur. Þá muni kostnaður við viðgerðirn- ar nema allt að sjö milljónum dollara dag hvern eða rúmlega hálfum millj- arði íslenskra króna. Var einnig tilkynnt um það í gær, að vörðum við olíuleiðsluna yrði fjölg- að um helming. Var búist við því að flestir varðanna yrðu Írakar, ráðnir af bandarísku öryggisþjónustufyrirtæki sem hernámsyfirvöld hafa falið að sjá um gæsluna. Barni bjargað úr stálkassa Breskir hermenn í suðurhluta Íraks björguðu hvítvoðungi úr stál- kassa sem í voru geymd skotfæri og læstur var með hengilási, að því er breska varnarmálaráðuneytið greindi frá í gær. Tveir hermenn fundu stúlk- una þegar þeir voru við húsleit í Basra í suðurhluta Íraks í fyrradag. Stúlkan, sem var tveggja daga gömul, virtist nær dauða en lífi en hermenn- irnir, 18 ára og 21 árs, lífguðu hana við. Embættismenn segja að litla stúlk- an virðist hafa verið í kassanum í um tíu mínútur. Hermönnunum tókst síð- ar að hafa uppi á móðurinni og eru mæðgurnar á sjúkrahúsi í borginni. Liðsforingi í breska hernum segir að móðirin hafi tjáð hermönnum að faðir stúlkunnar hafi læst hana ofan í kassanum. Hann hefur verið hand- tekinn. Við húsleitina fundu her- mennirnir einnig vopn og sprengjur. 12 létust er vopna- geymsla sprakk Tólf Írakar fórust er vopnageymsla sem þeir voru að ræna sprakk í loft upp í þorpi nálægt Tíkrit, heimabæ Saddams Hussein, í fyrradag. Allir voru mennirnir fyrrum liðsforingjar í íraska hernum en Al-Jazeera sjón- varpsstöðin greindi frá því að þeir hefðu verið að leita að vopnum sem þeir gætu selt. Vatn var ekki komið á í mörgum hverfum Bagdadborgar í gær en spellvirkjar sprengdu aðalvatns- leiðslu borgarinnar á sunnudag með þeim afleiðingum að vatnslaust varð í borginni. Sprengt var gat á leiðsluna sem er um 1,5 metrar í þvermál. Vatn flæddi um götur og sums staðar náði það fólki upp á brjóstkassa. Vitni segjast hafa séð tvo menn á mótorhjóli skilja eftir poka með sprengiefnum við leiðsluna og síðan sprengt það nokkr- um mínútum síðar. Eldar loga enn í Írak Olíuverð hækkaði á mörk- uðum í gær Bagdad, Lundúnum. AP, AFP. Reuters Þyrlu beitt til að reyna að slökkva elda í olíuleiðslu í N-Írak. Leiðslan liggur til útflutningshafnar í Tyrklandi. Reuters Nýfædda stúlkan sem fannst læst niðri í málmkistu á sunnudag. LANDLÆKNIR Frakklands sagði af sér embætti í gær vegna háværra gagnrýnisradda um að heilbrigðisyf- irvöld hafi ekki brugðist nógu vel við ástandinu sem skapaðist í hitabylgj- unni í landinu. Nú ætla menn að tala látinna vegna hitans sé komin í 5.000 manns. Í uppsagnarbréfinu sem landlækn- irinn, Lucien Abenhaim, afhenti heil- brigðisráðherra landsins kemur fram að hann hafi ákveðið að segja af sér vegna deilna um hvernig taka hafi átt á ástandinu þegar fjöldi fólks lést vegna veikinda sem rekja má til hit- ans. Hann og embætti hans hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki tilkynnt stjórnvöldum að fjöldi fólks væri að deyja vegna hitans. Heilbrigðisráðherrann, Jean Francois Mattei, sagði í gær að líklegt væri að allt að 5.000 manns hefðu lát- ist vegna hitabylgjunnar og að margir af þeim væru eldra fólk. Hann bætti við að þetta væri reyndar einungis áætlaður fjöldi dauðsfalla en samt sem áður væri þetta líkleg tala. Ná- kvæmari tölur um fjölda látinna myndu verða birtar síðar í vikunni. Mattei viðurkenndi í útvarpsviðtali að gagnrýni frá læknum og stjórnar- andstöðunni, um að ekki hefði verið tekið nógu vel á málum, væri réttmæt en réttlætti einnig viðbrögð yfirvalda við ástandinu. „Við höfðum ekki þær upplýsingar og viðvaranir sem við hefðum átt að fá,“ sagði hann. Allt að 5.000 manns taldir hafa látist í hitunum í Frakklandi Franski landlækn- irinn segir af sér París. AFP. AP Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands (t.h.), réttir öldungi vatnsglas á elliheimili í Fleury sur Ouche nærri borginni Dijon í Mið- Frakklandi í gær. Ríkisstjórn Raffarins hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að bregðast seint við afleiðingum hitabylgjunnar sem nýgengin er yfir landið. TYRKNESK yfirvöld hafa hvatt klerka um allt Tyrkland til að fordæma knattspyrnu- bullur og vaxandi ofbeldi og skrílslæti í tengslum við kapp- leiki. „Ljótt orðbragð og skríls- læti sumra knattspyrnuáhuga- manna eru óvirðing við trúna,“ sagði í yfirlýsingu frá trúmála- yfirvöldunum. „Spámaðurinn segir líka, að það sé mikil synd að bölva öðrum múslíma.“ Ofbeldi í tengslum við knattspyrnuleiki er vaxandi vandamál í Tyrklandi og hafa yfirvöld þungar áhyggjur af væntanlegum landsleik Tyrk- lands og Englands í október. Fyrr í þessum mánuði var 22 ára gamall maður stunginn til bana í borginni Izmir og árið 2001 fór eins fyrir tveimur Bretum í Istanbul í átökum milli stuðningsmanna Leeds og tyrkneska liðsins Galatas- aray. Fótbolta- bullur for- dæmdar Ankara. AFP. FJÓRTÁN evrópskir ferðamenn sem verið hafa í haldi íslamskra öfga- manna í Alsír í nærri sex mánuði voru látnir lausir í gær. Staðfesti talsmað- ur þýska utanríkisráðuneytisins þetta í gærkvöld. „Ráðuneytið getur staðfest að for- seti Malí hefur fullvissað þýska að- stoðarutanríkisráðherrann Jürgen Chrobog um að allir gíslarnir fjórtán séu nú í höndum yfirvalda í Malí,“ sagði talsmaðurinn. Chrobog, sem hefur farið fyrir samningaumleitunum um lausn gísl- anna fyrir hönd þýskra stjórnvalda, hélt til Bamako, höfuðborgar Malí, á sunnudag. Þýsk herflugvél hafði verið send til bæjarins Gao í Malí til að sækja gísl- ana og átti að flytja þá heim á leið í gær en fréttir bárust af því í gær- kvöldi að vélin hefði farið aftur án þeirra. Var þess vænst að hún færi aðra ferð í dag eða á morgun til að sækja þá. Stífar samningaviðræður stóðu á milli mannræningjanna og fulltrúa þýskra stjórnvalda sem komu til Malí um helgina til að reyna að fá gíslana látna lausa. Evrópsku ferðamannanna hefur verið saknað frá því snemma á árinu, en þeim var rænt í febrúar og mars, er þeir voru á ferð um Sahara-eyði- mörkina í Alsír, án leiðsögumanns. Hinir yngstu í gíslahópnum eru tveir 19 ára gamlir Svisslendingar en hinir elstu eru þýskt par 62 og 64 ára. Einn gísl lést Hafa menn haft vaxandi áhyggjur af heilsufari þeirra, sérstaklega Svisslendings sem haldinn er sykur- sýki. Þýsk kona, 46 ára gömul, lést í haldi mannræningjanna eftir að hafa fengið aðsvif vegna hita. Fram hefur komið að gíslarnir séu þreyttir og veikburða eftir dvölina í eyðimörk- inni en séu þó við nokkuð góða heilsu miðað við aðstæður. Alsírsk yfirvöld segja að mann- ræningjarnir tilheyri öðrum af tvenn- um öfgasamtökum múslima sem hafa staðið fyrir blóðugri uppreisn í land- inu í áratug eða síðan ríkisstjórnin ógilti kosningar sem hefðu komið ísl- ömsku samtökunum hvorum tveggja til valda. Þau eru einnig talin tengjast al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum. Gíslar látn- ir lausir í Malí Gao. AFP. Evrópskir ferða- menn voru í haldi alsírskra öfgamanna í nær hálft ár EIN kona lést og sex manns særðust í sprengingu við veitingastað í Tel Aviv í gær. Telur lögreglan, að glæpamenn hafi staðið að tilræðinu. „Allt bendir til, að glæpamenn hafi verið hér að verki,“ sagði talsmaður lögreglunnar. „Meðal annars vegna kringumstæðnanna og sprengiefnis- ins, sem notað var.“ Að sögn ísraelska útvarpsins var sprengjunni ætlað að granda for- stjóra innheimtufyrirtækis í borg- inni og ekkert bendir til, að tilræðið tengist pólitískum átökum Ísraela og Palestínumanna. Sprenging í Tel Aviv Tel Aviv. AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.