Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ GEYSIMIKILL viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar Boeing 747-400-breiðþota Air Canada með 282 menn innanborðs lenti þar heilu og höldnu tuttugu mínútur fyrir fimm í gær. Um klukkutíma áður hafði flugstjórninni í Reykja- vík borist skeyti frá vélinni þar sem lýst var neyðarástandi vegna reyks í farþegarými. Breiðþotan, sem var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Toronto í Kanada, var þá stödd um 570 sjómílur suð- vestur af Keflavíkurflugvelli. Skömmu eftir kl. 16 tilkynntu flug- menn að enginn reykur sæist leng- ur í farþegarými. Var breiðþotunni ekið að landgangi tiltölulega fljótt eftir lendingu og fóru farþegar þegar frá borði. Farþegar rólegir við komuna Farþegar vélarinnar virtust mjög rólegir við komuna í Leifsstöð og þeir sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að engin skelfing hefði gripið um sig við atvikið og menn hefðu haldið ró sinni. Þeir sögðu mjög sterka reykjarlykt hafa borist um farþegarýmið en sögðust hvorki hafa séð eld né reyk og súrefnis- grímur hefðu ekki fallið niður. „Þótt þetta sé ekki skemmtileg upplifun held ég að enginn hafi orð- ið raunverulega mjög hræddur,“ sagði einn farþeganna. Fólk úr áfallasveit Rauða kross Suðurnesja kom strax á staðinn og gekk um og ræddi við farþegana. Mikill viðbúnaður var í undirbún- ingi á meðan vélinni var flogið til Keflavíkur: slökkvilið var sett í við- bragðsstöðu á Keflavíkurflugvelli og sjúkrabifreiðum Slökkviliðs höf- uðborgarsvæðisins (SHS) stefnt til Straumsvíkur þar sem þær voru hafðar í viðbragðsstöðu í samræmi við viðbragðsáætlun almannavarna. Björgunarskip frá Grindavík, Sand- gerði og Reykjavík voru kölluð út ásamt öllum björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu og á Suður- nesjum. Björgunarsveitum á höf- uðborgarsvæðinu, tíu bílum með um fjörutíu manns, var safnað sam- an við álverið í Straumsvík ásamt sjúkrabílum. Þá var níu bílum með um fimmtíu manns frá björg- unarsveitum á Suðurnesjum safnað saman við þjónustuhlið við flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem þeir voru tilbúnir til aðstoðar. Fær- anlegt neyðarsjúkrahús Björg- unarsveitar Suðurnesja var einnig orðið tilbúið til uppsetningar en það getur sinnt tugum slasaðra á klukkustund. Læknar á Sjúkrahúsi Suðurnesja og sjúkraflutn- ingamenn frá Brunavörnum Suð- urnesja sjá ásamt björgunarsveit- armönnum um að manna sjúkrahúsið ef á þarf að halda. Neyðarástandi lýst yfir í breiðþotu Air Canada Gríðarlegur við- búnaður á Kefla- víkurflugvelli Breiðþota Air Canada í Keflavík. Morgunblaðið/Arnaldur Sjúkrabílar í viðbragðsstöðu við Álverið í Straumsvík. Heilsueflingarverkefnið „Hjólað í vinnuna“ hófst formlega í gær og stendur út þessa viku. Um er að ræða samstarfsverkefni fjölda fyr- irtækja og samtaka undir stjórn Ís- lands á iði, sem vekja á athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Átakið byggist á keppni milli fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla bílinn og nota hjólið til að komast í vinn- una. Að sögn Gígju Gunnarsdóttur hjá Íslandi á iði voru enn lið að skrá sig til þátttöku í gærmorgun. „Nú eru skráð 37 lið til þátttöku, og einhver fyrirtæki hafa fleiri en eitt lið innan sinna vébanda,“ sagði Gígja í sam- tali við Morgunblaðið. „Við erum mjög ánægð með þann árangur sem náðst hefur með keppninni, enda um tilraun að ræða. Við þurftum að undirbúa málið vel þar sem hjóla- menningin er ekki komin langt á veg hér á landi miðað við mörg önn- ur lönd. Mörg stór fyrirtæki taka þátt, til dæmis starfsmenn hjá Ice- landair, Skýrr og RARIK. Sömu- leiðis eru mörg smærri fyrirtæki sem hafa skráð starfsmenn til þátt- töku. Það er alveg tilvalið að nýta sér tímann sem hvort eð er fer til ferðar í og úr vinnu sem líkamsrækt fyrir daginn, og verkefnið allt á að benda fólki á það,“ segir Gígja. Að vikunni lokinni verða þau fyr- irtæki verðlaunuð sem hafa flesta hjólakílómetra eða flesta hjóladaga til vinnu að baki. „Þar að auki mun- um við verðlauna glæsilegustu liðin, það er lið sem skara fram úr í sam- stöðu, samheldni og hreysti,“ segir Gígja. Keppnin drífur marga á hjólið Dóra Hjálmarsdóttir, verkfræð- ingur hjá verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, segir um 20 starfs- menn frá fyrirtækinu hafa komið hjólandi í vinnuna í gærmorgun. Alls vinna um 80 manns hjá fyrir- tækinu í Reykjavík. „Það hefur tek- ist mjög vel að fá mannskap í keppnina,“ sagði Dóra í samtali við Morgunblaðið. „Við erum með tvö lið, og innan þeirra eru bæði starfs- menn sem hjóla til vinnu að stað- aldri og aðrir, sem ákváðu að slá til vegna keppninnar. Við höfum einn- ig trimmhóp innan fyrirtækisins, sem fer í Laugardalinn í hádeginu, og sumir þeirra hjóla líka. Að sjálf- sögðu er mjög misjafnt hve langt fólk hjólar í vinnuna, ég bý um tvo kílómetra frá, en aðrir hjóla um átta til tíu kílómetra,“ útskýrir Dóra. Að hennar sögn hefur keppnin komið hreyfingu á marga, og vakið lukku. „Við höfum einnig velt fyrir okkur að skora á aðrar verkfræði- stofur í keppni,“ bætti hún við. Morgunblaðið/Þorkell Starfsmenn Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddssen til í slaginn á hjólunum sínum. Starfsmenn í vinnuna á reiðhjólum Fyrirtæki keppa í hjólreiðum ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur setningarat- höfn alþjóðlegrar ráðstefnu vísinda- manna og for- ystumanna um málefni norður- slóða á öðrum degi opinberrar heimsóknar sinn- ar til Alaska í gær. Forsetinn flutti fyrirlestur um ný viðhorf á norðurslóðum og samvinnuverk- efni Íslands, Alaska, Rússlands og annarra norð- lægra ríkja. Einkum ræddi hann um nauðsyn þess að efla samvinnu á sviði umhverfis-, atvinnu-, byggða- og menningarmála. Á sunnudag var m.a. fundur for- seta og íslensku sendinefndarinnar með ráðherrum úr nýrri ríkisstjórn Alaska. Rætt var sérstaklega um orkumál, flugsamgöngur, nýtingu jarðvarma og samvinnu háskóla og rannsóknastofnana á norðurslóðum. Þá kynnti Gunnar Pálsson, sendi- herra og formaður Norðurskauts- ráðsins, þau verkefni sem Ísland leggur sérstaka áherslu á í for- mennskutíð sinni. Í gærkvöld sátu íslensku forsetahjónin kvöldverðar- boð Walter J. Hickels, fyrrum rík- isstjóra í Alaska og innanríkisráð- herra í ríkisstjórn Nixons. Í fyrramálið flytur forsetinn erindi á málþingi Commonwealth North, samstarfsvettvangs forystumanna í menntamálum, stjórnmála- og at- vinnulífi Alaska. Opinber heimsókn forseta Íslands til Alaska Fjallaði um ný við- horf á norðurslóðum Ólafur Ragnar Grímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.