Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. N EMENDUR af landsbyggð- inni eiga ekki forgang í fjar- nám í Kennaraháskóla Ís- lands en í ár voru teknir inn 187 nemendur í fjarnám við grunndeild skólans. Kennaraháskólinn hef- ur boðið nemendum sínum upp á fjar- kennslu í 25–30 ár, fyrst í formi bréfaskrifta en í seinni tíð hefur notkun Netsins og gagnvirks sjónvarpsbúnaðar breytt kennsl- unni til muna og nú eru nánast öll fög sem kennd eru við skólann kennd í fjarkennslu. Nemendum í fjarnámi hefur fjölgað en fyrst um sinn var kennslan einvörðungu hugsuð fyrir nemendur af landsbyggðinni, í þeim tilgangi að auka framboð af menntuðum kennurum á landsbyggðinni. Með auknum áhuga á fjarnámi og samhliða því að fram- haldsnám var tekið inn í fjarnámskennslu við skólann var tekin ákvörðun um að bjóða nemendum á höf- uðborgarsvæðinu upp á fjarnám. Kennaraháskólinn hefur nokkra sérstöðu miðað við aðra háskóla sem bjóða upp á fjar- nám sökum þess að hann þarf að hafna fjölda umsækjenda ár hvert, ólíkt t.d. Háskóla Íslands þar sem allir með stúd- entspróf geta hafið nám. Nú er svo komið auk þess og „beita endum Umsækj hafa því ar fjarná Ólafur araháskó vegar á enda í fj vil mein hafi gjö að KHÍ þarf að vísa tveimur af hverjum þremur nemendum frá og í heildina um þúsund manns, bæði af lands- byggðinni og af höfuðborgar- svæðinu. Í reglum skólans kem- ur fram að ef takmarka þarf inntöku nemenda í grunndeild, skuli líta til meðaleinkunnar á því prófi sem er krafist á við- komandi braut, auk árangurs í íslensku, annarrar menntunar, starfsreynslu og hæfni á sviði kennslu og annarrar reynslu Nemendur í fjarnámi í Kennaraháskólanum mættu í skólann í síðustu viku. Nemendur af l inni njóta ekk Fimm háskólar bjóða nemend ákveðin fög í fjarnámi. Um þriðj skólans á Akureyri er í fjarnám ingur nemenda í Kennaraháskó sem var fyrst um sinn hugsað byggðinni, er nú æ meira sótt a og margir þeirra nemenda sem þurfti að vísa frá voru u Sífellt fleiri höfuðborg- arbúar stunda fjarnám Fjölmargir nemendur stunda fjarnám á háskólastig RANNSÓKN HUTTONS LÁVARÐAR Rannsókn Huttons lávarðará dauða brezka vísinda-mannsins dr. Davids Kellys vekur athygli af mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi er athygl- isvert að sjá, hvaða meðferð deilumál af þessu tagi fær í Bret- landi. Sett er upp sérstök rann- sóknarnefnd undir forystu ein- staklings, sem nýtur almenns trausts. Rannsóknarnefndin hef- ur algerlega frjálsar hendur um, hvernig hún stendur að rann- sókninni. Hún getur kallað hvern sem er til að bera vitni fyrir nefndinni, jafnvel forsætisráð- herrann sjálfan. Augljóst er að mikil virðing er borin fyrir máls- meðferð þessari í Bretlandi. Rannsókn þessa máls fer að verulegu leyti fram fyrir opnum tjöldum. Þeir sem eru kallaðir til að svara spurningum verða að leggja fram allar upplýsingar, sem þeir hafa undir höndum, hvort sem um er að ræða minn- isblöð, tölvupóstssamskipti eða önnur gögn. Þetta á við um ráðu- neyti, sem aðra. Augljóst er að þessi aðferð til þess að fá niðurstöðu í alvarleg ágreiningsmál skiptir miklu máli fyrir lýðræðislega stjórnarhætti í Bretlandi. Aðferðina má ekki ofnota. Þá verður hún til lítils gagns en þegar henni er beitt er hún líkleg til þess að hreinsa and- rúmsloft og tryggja að upplýs- ingar komi fram og viðunandi niðurstaða fáist í hinum veiga- mestu og alvarlegustu ágrein- ingsefnum, sem upp koma. Í þessu tiltekna máli stendur yfir rannsókn, bæði á aðdragand- anum að dauða dr. Davids Kellys en í raun líka á vinnubrögðum bæði fjölmiðla og stjórnmála- manna. Þótt þessi rannsókn beinist annars vegar m.a. að vinnubrögðum starfsmanna BBC og ráðherra og aðstoðarmanna þeirra í ríkisstjórn Tonys Blairs fer ekki á milli mála, að hliðstæð- ur er hægt að finna í vinnubrögð- um bæði fjölmiðla og stjórnmála- manna í öðrum löndum. Veikleikar, sem fram koma í vinnubrögðum BBC, eiga eftir að verða fjölmiðlum um allan heim áminning um að horfa í eigin barm. Hæpnar starfsaðferðir stjórnmálamanna og aðstoðar- manna þeirra í Bretlandi, ef fram koma, eiga eftir að verða stjórn- málamönnum í öðrum löndum umhugsunarefni. Við Íslendingar höfum ekki skapað þá hefð, sem orðið hefur til í Bretlandi um málsmeðferð sem þessa. Að vísu eru ákvæði í stjórnarskrá um sérstaka rann- sóknarnefnd Alþingis, en þeim ákvæðum hefur ekki verið beitt. Stundum hefur komið fram krafa um slíkt en þær kröfur hafa sjaldnast verið trúverðugar vegna þess, að þær hafa ekki snúizt um nægilega veigamikil mál. Eftir því, sem þjóðfélag okkar verður flóknara og margbrotn- ara, kann hins vegar að verða þörf fyrir að einstök veigamikil mál fái þá meðferð, sem nú má fylgjast með í brezkum fjölmiðl- um dag frá degi. Þess vegna er þessi aðferð Breta umhugsunar- efni fyrir okkur. GLÆSILEGUR ÁRANGUR Íslenska unglingalandsliðið íhandbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri vann mikið afrek þegar það tryggði sér Evrópu- meistaratitil með sigri á Þjóðverj- um á Evrópumeistaramótinu í Kosice í Slóvakíu á sunnudag. Að auki var einn leikmaður liðsins, Ásgeir Örn Hallgrímsson, marka- hæsti leikmaður mótsins og var hann ásamt Arnóri Atlasyni val- inn í úrvalslið keppninnar. Ís- lenskir handboltamenn eru marg- ir í fremstu röð og íslenska landsliðið hefur oft staðið sig vel á alþjóðlegum mótum. Það á einnig við um unglingalandsliðið, en það hefur þó aldrei náð jafn langt og íslensku strákarnir undir stjórn Heimis Ríkharðssonar í Slóvakíu. Heimir lýsir því í samtali við Morgunblaðið í gær að þessi ár- angur sé afrakstur þrotlausra æf- inga. Íslenska liðið hafi getað leikið af krafti út alla leiki, en önn- ur lið hafi ekki haft úthald til þess. Síðan segir Heimir: „Frábært starf í félögunum hefur einnig mikið að segja og það er að skila sér og skila okkur afreksmönnum sem eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.“ Þessi árangur lofar góðu um framtíð íslensks handknattleiks. Til að ná árangri þarf að leggja grunninn snemma og Evrópu- meistaratitillinn ber því vitni að hér eigi sér stað gott starf, sem halda ber áfram. Um leið er full ástæða til að óska unglingalands- liðinu til hamingju með glæsileg- an árangur. UNA Guðrún Einarsdóttir, sem er kenn- ari við grunnskólann í Bolungarvík, sótti um fjarnám við grunndeild Kennarahá- skóla Íslands í vor en komst ekki inn. Una, sem er 25 ára, hefur kennt einn vetur við grunnskólann og er með stúd- entspróf frá Fjölbrautaskólanum í Ár- múla. Hún segir að það sé afar óheppilegt fyrir kennara utan af landi að komast ekki að í fjarnámi, enda hafi þetta fólk sjaldnast aðra möguleika á að ná sér í menntun í faginu. „Mér finnst það mjög skrýtið hve margir nemendur af höfuðborgarsvæð- inu fara í fjarnám, enda hafa þessir nem- endur aðgang að náminu í sinni heima- byggð. Það er mjög óþægilegt fyrir fólk utan af landi að komast ekki í fjarnám, því það þarf þá að fara suður til að mennta sig og sárafáir snúa aftur eftir að hafa verið í námi í Reykjavík í nokkur ár,“ segir Una. Hún sótti einnig um fjarnám við kennsludeild Háskólans á Akureyri ásamt nokkrum öðrum kennurum frá Bolungarvík en þeir voru ekki nógu margir til að tæki því að taka upp fjar- kennslu á staðnum. Auk Unu sóttu tveir aðrir kennarar úr Bolungarvík um fjarnám við KHÍ en hvorugur komst að. „Önnur þeirra ákvað að flytja burt og fara í staðnám í öðrum háskóla og það er alls ekki víst að hún snúi aftur eftir þrjú ár. Það er okkur baráttumál að þurfa ekki að missa héðan fólk bara vegna þess að það þarf að leita sér menntunar annars staðar enda hafa stjórnmálamenn talað um að efla fjarnám úti á landi svo fólk geti stundað nám í sinni heimabyggð, þannig að maður átti nú ekki von á öðru en þetta mundi ganga,“ segir Una. Baráttumál að missa ekki fólk burt ÍSLENS upp á fj námskei skorin s hvað va Yngvi E fjarkenn irkomul hætti að kjarnan um en n valnáms Sveinn tækjabú sent sé ú til kenn hópur n ákveðnu fyrirlest lensku e Búnaður nemend Ísle

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.