Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 25 hafi upphaflega verið kúrdísk fjölg- aði arabískum meðlimum hennar mjög eftir að Bandaríkjastjórn réðst inn í Afganistan í október 2001. Starfa með Baath-liðum Þegar íslamskar hreyfingar hafa komið sér fyrir í Bagdad eða í svo- kölluðum „súnníta-þríhyrningi“ norður af höfuðborginni koma þær sér oft í samband við meðlimi fyrr- verandi Baath-stjórnar Saddams Husseins, fyrrverandi Íraksforseta, til að vinna að því sameiginlega markmiði að berjast við bandarískt herlið. Talið er að meðlimir Ansar al-Islam njóti hjálpar Íraka við að komast yfir landamærin á degi hverjum og að um 150 þeirra séu þegar komnir til landsins. Þá er áætlað að um 100.000 menn úr fyrr- verandi öryggisveitum Íraks séu at- vinnulausir um þessar mundir og segja íraskir embættismenn að um 2.000 þeirra séu líklegir til að slást í hóp með herskáum múslímum, sér- staklega þeir sem eygja enga von um atvinnu eða sakaruppgjöf hjá hernámsliðinu. Írak sagt „fullkomið“ fyrir hryðjuverkahópa „Fyrri reynsla af neðanjarðar- hreyfingum bendir til þess að þær blómstri í löndum þar sem skipulag öryggismála er í óreiðu, landamæra er ekki nægilega vel gætt og hefð- bundin ríkisstjórn er ekki við lýði. Allt þetta á við um Írak,“ sagði Muhammad Salah, sérfræðingur í hryðjuverkahópum og ritstjóri blaðsins Al Hayat í Kaíró. „Þetta er fullkomið umhverfi fyrir starfsemi og vöxt hryðjuverkahópa.“ Umsvif þeirra herskáu hópa sem eru starfandi í Írak um þessar mundir eru óljós en árásir á borð við þá sem átti sér stað í liðinni viku er bílasprengja sprakk utan við jórdanska sendiráðið og felldi 17 manns eru líklega verk þeirra. Íraskir embættismenn eru heldur ekki í vafa um að hóparnir eigi eftir að halda slíkum árásum áfram. Á vefsíðum sem talið er að al- Qaeda beri ábyrgð á er alveg ljóst hvert markmið herskárra hópa í Írak er. Á einni vefsíðunni segir: „Baráttan við Bandaríkjamenn verður að vera vel útfærð, við verð- um að nota „raflostsaðferðina“; við- stöðulaus lost alls staðar og um allt án þess að Bandaríkjamenn fái tækifæri til að ná fyrra jafnvægi eða krafti.“ Á SAMA hátt og ungir og herskáir múslímar börðust fyrir hugsjónum sínum í Afganistan eftir innrás Sov- étmanna inn í landið árið 1979 dreg- ur viðvera Bandaríkjamanna herskáa múslíma til Írak. Að sögn íraskra embættismanna finna þeir ýmsar leiðir til að komast yfir landamærin í litlum hópum með það að markmiði að berjast gegn her- setu bandarísks herliðs en íraskra landamæra er aðeins gætt að litlu leyti. Embættismennirnir segjast búast við því að múslimar með ólík baráttumál eigi eftir að halda áfram að streyma til Írak á næstunni og segja Ansar al-Islam, íslamska strangtrúarhreyfingu, skipuleggja neðanjarðarstarfsemi mismunandi hópa múslíma í landinu. Barham Saleh, forsætisráðherra þess hluta Íraks sem er Kúrdar stýra, sagði í viðtali við bandaríska blaðið The New York Times í gær að í Írak væru mörg gildi sem músl- ímar vilja berjast gegn, þ. á m. lýð- ræði, vestrið og ýmis pólitísk menn- ing. „Ef Bandaríkjamönnun tekst ætlunarverk sitt hér verður það mikið áfall fyrir allt sem þessir hryðjuverkamenn standa fyrir,“ sagði hann. Nýjar upplýsingar benda til þess að starf múslímanna sé vel skipu- lagt. Þeir klæðast ekki lengur skikkjum og eru hættir að vera með alskegg og nota í raun sömu aðferð og gerði þeim kleift að skera sig ekki úr í bandarísku samfélagi fyrir 11. september 2001. Þeir eru borg- aralega klæddir með vel snyrt skegg og hár. Vilja endurreisa kalífadæmið Trúarleiðtogi Ansar al-Islam hreyfingarinnar, Mullah Mustapha Kreikar, sagði í viðtali við líbönsku sjónvarpsstöðina, LBC, sl. sunnu- dag að átökin í Írak væru hápunkt- ur baráttu múslíma fyrir endur- reisn kalífadæmisins sem leið undir lok snemma á síðustu öld um leið og ottómanveldi Tyrkja. „Það er eng- inn munur á þessu hernámi og her- námi gömlu Sovétríkjanna í Afgan- istan árið 1979. Mótspyrnan er ekki einungis gegn yfirgangi Banda- ríkjamanna en er hluti af samfelldri baráttu múslima frá því kalífadæm- ið féll.“ Tengsl Ansar al-Islam hreyfing- arinnar við al-Qaeda hryðjuverka- samtökin voru meðal þess sem George W. Bush Bandaríkjaforseti notaði til að réttlæta stríð í Írak. Og þrátt fyrir að hin íslamska hreyfing Reuters Íraskir lögreglumenn og bandarískir hermenn fyrir framan jórdanska sendiráðið í Bagdad. 13 fórust og margir slösuðust er bílsprengja lagði það í rúst að nokkru leyti snemma í þessum mánuði. Óttast er, að hryðju- verkum af þessu tagi eigi eftir að fjölga í Írak. Herskáir músl- ímar streyma til Íraks varðar kennslu. Það verður hins vegar að hafa í huga að 60% landsbyggðarinnar býr á höfuðborgarsvæðinu og þá kennara verður að mennta líka,“ segir Ólafur. Ekki fyrirfram ákveðið hversu marg- ir komast í fjarnám ár hvert „Það er ekki fyrirfram ákveðið hvað við tökum marga inn í fjarnám og staðbundið nám hverju sinni, það fer eftir umsækj- endum og hæfni þeirra. Þannig er það ekki öruggt að þótt við tækjum færri nemendur af höfuðborgarsvæðinu í fjarnám að við myndum taka inn fleiri nemendur af lands- byggðinni í fjarnámið, það gæti allt eins verið að við tækjum inn fleiri nemendur í staðnámið. Við getum ekki tekið einhvern af landsbyggðinni sem er með slakan und- irbúning en hafnað þeim sem er með góðan undirbúning af höfuðborgar- svæðinu. Við reynum að taka inn fólk í svipuðum hlutföllum við búsetu í landinu, þótt við vildum helst geta tekið miklu fleiri,“ segir Ólafur og bendir á að við fjarnám í skólanum séu nemendur frá um 60–70 stöðum af landinu, tíu mismunandi löndum og þremur ólíkum heimsálfum. s sem kalla megi nemendur í viðtal a hlutkesti gagnvart þeim umsækj- sem teljast jafnhæfir“. jendur af landsbyggðinni ekki forgang hvað varð- ám. r Proppé, rektor Kenn- óla Íslands, bendir hins að mikill meirihluti nem- fjarnámi sé af landsbyggðinni. „Ég na að framboð skólans á fjarnámi rbreytt stöðunni úti á landi hvað Morgunblaðið/Þorkell andsbyggð- ki forgangs dum upp á að taka ungur nemenda Há- mi og rúmlega helm- óla Íslands. Námið, fyrir fólk af lands- f höfuðborgarbúum m Kennaraháskólinn utan af landi. KHÍ hefur boðið upp á fjarkennslu í 25–30 ár gi en KHÍ var fyrstur til að bjóða slíkt nám TÆKNISTUTT fjarnám við Há- skóla Íslands hefur verið í boði síð- an 1998 en hingað til hafa ekki margar deildir innan skólans ráð- ist í fjarkennslu. Í vetur verður hægt að stunda nám í íslensku, ensku og sagnfræði auk þess sem fyrsti hópurinn í fjarkennslu í starfs- og námsráðgjöf lýkur námi um áramót og framhaldsnámskeið í hjúkrunarfræði hefst í haust. Ferðamálafræði, spænska og kennslufræði hafa einnig verið kennd í fjarnámi þótt svo verði ekki í vetur. Steinþór Jónsson, hjá Kennslu- miðstöð Háskóla Íslands, segir að það hafi háð fjarkennslu við skól- ann að hún hafi verið háð frum- kvæði einstakra deilda og náms- brauta sem verði að leita leiða til að fjármagna uppbyggingu henn- ar. „Það ber þó að hafa í huga að á síðustu árum hafa kennarar í auknum mæli nýtt sér kennsluvef vefkerfis skólans og það gerir nemendum auðveldara um vik að stunda sjálfsnám við deildir þar sem ekki er boðið upp á eiginlega fjarkennslu,“ segir Steinþór. Hann segir að talsvert sé um að nemendur sem stundi óeiginlegt fjarnám séu jafnvel búsettir annars staðar á landinu, nálgast glósur og kennsluefni á Netinu og mæta ein- göngu í skólann til að taka prófin. Hann segist hafa tekið eftir því undanfarin ár að meira af nem- endum búsettum á höfuðborg- arsvæðinu leiti í fjarnám, miðað við það sem áður var, þegar fjarnám var aðallega nýtt af landsbyggð- arnemendum. „Nemendahópurinn er breiðari en áður og fleiri eiga þess nú kost að stunda há- skólanám,“ segir Steinþór. Fjarkennsla háð frumkvæði ein- stakra deilda VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bif- röst hefur boðið upp á fjarnám fyrir nemendur sína síðan 1998 en nemendur geta lokið BS-prófi í rekstrarfræði í fjarnámi við skól- ann og munu 55 nemendur nýta sér þann möguleika nú í vetur. Auk þess býður skólinn upp á meistaranám í viðskiptafræði og hagnýtum hagvísindum, sem 23 nemendur munu sækja í vetur en námið er sambland af staðbundnu námi og fjarnámi og er meðal ann- ars kennt á sumrin. Sambland af stað- bundnu námi og fjarnámi HÁSKÓLINN í Reykjavík býður upp á fjarnám í kerfisfræði innan tölvunarfræðideildar og hefur gert síðan 1998. Alls verða hundrað nemendur í slíku námi í vetur en námið tekur fjórar annir og er kennt á hálfum hraða miðað við eðlilega náms- framvindu. Í fyrra tók skólinn að bjóða upp á nám með vinnu fyrir nemendur sína og var það einkum hugsað fyrir þá nemendur sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Fjarnám með og án vinnu SKUSKOR Háskóla Íslands býður arkennslu í nær öllum sínum iðum á BA-stigi og segja má að sé lengst komin innan háskólans rðar „fjarnámsvæðingu“. Sveinn Egilsson, sem er umsjónarmaður nslu við skorina, segir að fyr- lag kennslunnar sé með þeim ð nemendur taki svokölluð námskeið í greininni á tveimur ár- nemendur geta jafnframt tekið skeið í fjarnámi. n segir að í Háskólanum sé únaður til fjarfundarhalda og að út á ákveðnum tímum vikunnar slumiðstöðva á landinu þar sem nemenda safnist saman á um tímum vikunnar og hlusti á trana en kjarnanámskeiðin í ís- eru kennd með þessum hætti. rinn er gagnvirkur, þannig að dur geta varpað fram spurningum til kennarans. Að sögn Sveins er reynt að hafa námið eins þægilegt og hægt er fyrir nemendur, kennt er á milli 17 og 19 á daginn þannig að nemendur geti komið eftir vinnu og sótt tímana. Kennsla valnámskeiða í íslensku fer hins vegar oft þannig fram að kennari heldur úti heimasíðu sem nemendur geta náð í kennsluefni á auk þess sem kennari er í tölvupóstssambandi við nemendur. Spurður um hvers vegna svo vel hafi gengið að halda úti fjarnámi í íslensku segir Sveinn einkum tvennt koma til, að kennarar í íslensku hafi verið áhuga- samir um fjarkennslu auk þess sem ís- lenskan sé vinsælt fag og ágætlega til þess fallin að kenna með þessum hætti. Sveinn segir það þó alls ekki vera svo að íslenskan sé eina fagið sem tekið hafi upp fjarnám, aðrar greinar innan Há- skólans hafi einnig þróað kennsluna í þessa átt. enskukennsla nær öll í fjarnámi RÚMLEGA þriðjungur nemenda við Háskólann á Akureyri verður í fjarnámi nú í vetur, eða 537 af 1.404 nemendum. Skólinn notast við fjarfundabúnað við kennslu í hjúkrunar- og kennslufræði en rekstrar- og auðlindafræði er einnig kennd í fjarnámi og er þá notast við netið auk þess sem nem- endur hittast nokkrum sinnum yf- ir önnina. Fjarnámsnemendur við Háskólann á Akureyri eru hvað- anæva af landinu og ásókn í námið hefur aukist til muna undanfarin ár en þegar skólinn bauð fyrst upp á fjarnám árið 1998 skráðu sig að- eins 12 nemendur. Rúmlega þriðj- ungur nemenda í fjarnámi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.