Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Einföld og áhrifarík leið til grenningar Tilboð í Lýðmenntun Ráðstefna um Guðmund Finnbogason haldin í Stórutjarnaskóla 22. ágúst 2003 Dagskrá 9:00 - 9:30 Skráning. 9:30 - 9:40 Setning - Ólafur H. Jóhannsson, lektor. 9:40 - 9:50 Ávarp - Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra. 9:50 -10:20 Maðurinn og faðirinn Guðmundur Finnbogason - Finnbogi Guðmundsson, fyrrv. landsbókavörður. 10:20 -10:50 Drög að hugmyndasögulegri lýsingu á fræðistörfum Guðmundar Finnbogasonar - Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri. 10:50 -11:20 Menntahugtak Guðmundar Finnbogasonar - Kristján Kristjánsson, prófessor. 11:20 -12:00 Panelumræður: Stjórnandi Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarforseti. 12:10 -13:15 Hádegisverður. 13:15 -13:35 Sálfræði Guðmundar Finnbogasonar - Jörgen Pind, prófessor. 13:35 -13:55 Skólahugmyndir Guðmundar Finnbogasonar - Loftur Guttormsson, prófessor. 13:55 -14:55 Námskrá: ,,Og uppskeran verður eins og til er sáð". Hugmyndir Guðmundar Finnbogasonar um kennslu móðurmáls - Þórunn Blöndal, lektor. Túngrös og pálmaskógar. „Huginn og Muninn þurfa að fljúga hverjan dag út fyrir túngarðinn og sjá hvað um er að vera í heiminum". - Bragi Guðmundsson, dósent. „Með teikningu verður þekking ekki dauður bókstafur, heldur lifandi athöfn". - Rósa K. Júlíusdóttir, lektor. „Uppeldi líkamans svo hann verði sem fullkomnast verkfæri sálarinnar". - Kári Jónsson, lektor. 14:55 -15:15 Kaffi. 15:15 -15:35 Að vekja lestrarfýsn - um hlutverk skólabókasafna - Kristín Indriðadóttir, framkvæmdastjóri Menntasmiðju KHÍ. 15:35 -16:25 Panelumræður: Stjórnandi Ólafur H. Jóhannsson, lektor. 16:25 -16:35 Ráðstefnuslit - Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarforseti. 16:45 Móttaka í boði Þingeyjarsveitar. Ráðstefnustjórar: Guðmundur Heiðar Frímannsson og Ólafur H. Jóhannsson Skráning fer fram í Háskólanum á Akureyri s. 463 0929 einnig er hægt að skrá sig á http://vefir.unak.is/skolathroun/radstefnur/22agust03.htm Ráðstefnugjald er kr. 5.000 HÖFUÐBORGIN UNDANFARIN tvö ár hefur mikið tap verið á rekstri Norðlenska mat- borðsins ehf. og á aðalfundi félagsins 31. júlí sl. var markað upphaf að fjár- hagslegri endurskipulagningu fyrir- tækisins. Samþykkt var að allt hlutafé Norðlenska verði fært niður og leiða leitað til að fá inn aukið hlutafé. Kaldbakur er aðaleigandi fyrirtækisins og hefur þegar heitið hlutafjárframlagi. Sigmundur Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri Norðlenska, segist ekki mjög bjartsýnn á að nýir hlut- hafar gefi sig fram, enda eigi kjötiðn- aðurinn í heild í miklum rekstrarerf- iðleikum. Offramboð á kjöti undanfarin misseri með tilheyrandi verðlækkunum hafi bitnað á fram- leiðendum, sláturhúsum, vinnslum og verslun. Sigmundur segir að núna sé beðið eftir ákvörðunum ríkisvaldins um hver útflutningsskyldan á kjöti verður í haust og ekki síður hvort Byggðastofnun muni ábyrgjast af- urðalán, líkt og sl. 2 ár. Að sögn Sig- mundar er aðkallandi að þessi atriði skýrist sem fyrst, helst innan nokk- urra daga, því fyrr geti fyrirtækið ekki skipulagt næstu skref og rekst- urinn þoli óvissuna ekki mikið lengur. Þessu til viðbótar er ekki ljóst hvaða stefnu ríkisvaldið ætli að taka varðandi úreldingu þeirra sláturhúsa sem enn hafa ekki útflutningsleyfi. Aðeins sex sauðfjársláturhús af þeim sautján sem slátrað var í á síðasta ári höfðu útflutningsleyfi og afkastageta þeirra dugir til að anna útflutningn- um. Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnar- formaður Norðlenska, sagði á aðal- fundi fyrirtækisins að fregnir hefðu borist af afurðastöðvum sem hygðust leggja út í fjárfestingar til að uppfylla reglugerðir um svokölluð Evrópuhús. Með slíkum fjárfestingum er ljóst að fjölda afurðastöðva í landinu yrði við- haldið. Eiríkur sagði að slíkar ákvarð- anir væru ekki teknar á rekstrarleg- um forsendum. „Nei, á skammtíma byggðapólitískum eða hefðbundnum íslenskum hreppapólitískum forsend- um. Slíkt mun sem fyrr ekki hjálpa aðilum á kjötmarkaði, hvorki bænd- um né neytendum. Það er nauðsyn- legt að klára sem fyrst að fækka að- ilum á þessum markaði,“ sagði Eiríkur og sagði stefnu ríkisvaldsins einkennast af þögn eða úrræðaleysi. Nefnd um stefnumótun í sláturiðn- aði lagði til í skýrslu til landbúnaðar- ráðherra sl. vor að um 220 milljónum verði varið til úreldingar sauðfjárslát- urhúsa á þessu og næsta ári. Síðan hafa sláturleyfishafar beðið eftir ákvörðun stjórnvalda og nú þegar haustslátrun er að hefjast liggur hún ekki enn fyrir. Ráðgert er þó að til- lögur nefndarinnar verði teknar fyrir á ríkisstjórnarfundi í dag og málin gætu því skýrst. Stórsókn á Bandaríkjamarkað Ljósi punkturinn í starfsemi Norð- lenska undanfarið er velheppnaður útflutningur á kjötafurðum til Banda- ríkjanna. Um sé að ræða mikið unnar afurðir, sem hátt verð fáist fyrir, og hefur þessi þáttur rekstrarins skilað jákvæðri niðurstöðu. Áformað er að auka þennan útflutning til muna með stórsókn inn á markaðinn vestra og bindur Sigmundur miklar vonir við áframhaldið. Norðlenska matborðið ehf. Ákvarðana rík- isvaldsins beðið SLÖKKVILIÐ Akureyrar fékk til- kynningu seint á sunnudagskvöld um að eldur væri laus í bifreið sem staðsett var ofan við sorphauga bæjarins í Glerárdal. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þar var um að ræða sendiferðabifreið í eigu veitingahússins Bautans. Bíllinn er algjörlega ónýtur, því þeir sem tóku hann ófrjálsri hendi keyrðu hann eins langt og hægt var eftir slóð sem liggur niður í dalverpi í Glerárdal þar sem kveikt var í hon- um. Guðmundur Karl Tryggvason, einn eigenda Bautans, sagði við Morgunblaðið að það væri með ólík- indum að menn gætu tekið nýjan bíl og eyðilagt hann. „Eftir miðnætti aðfaranótt síð- astliðins sunnudags þá tókum við eftir því að bíllin var horfinn, en hann stóð á bílastæðinu bak við Bautann. Bíllinn, sem var Peugeot- sendibíll, var keyptur í nóvember síðastliðnum og var svo að segja glænýr,“ sagði Guðmundur. Í hádeginu á sunnudag fékk lög- reglan tilkynningu um að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur í Skóg- arlundi. Einn farþegi var fluttur á slysadeild, en hann kvartaði undan eymslum í hálsi. Lögreglan sagði að sennilega hefði verið um ölvunar- akstur að ræða. Morgunblaðið/Ásgrímur Örn Bifreiðin er algjörlega ónýt eftir að kveikt var í henni og stórt svæði í kringum hana er einnig brunnið. Kveikt í stolnum bíl SKIPULAGS- og bygginganefnd Reykjavíkurborgar veitti síðasta föstudag, 15. ágúst, viðurkenningar fyrir endurbætur á gömlum húsum og fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og bygginganefndar, afhenti viðtak- endum viðurkenningarnar við hátíð- lega athöfn í Höfða. Eftirfarandi að- ilar hlutu viðurkenningar: Viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa  Sóltún 11–13 Fékk viðurkenningu fyrir fallegan frágang á stórri fjölbýlishúsalóð. Gróðurval er fjölbreytt og lóðin í alla staði snyrtileg.  Reykás 22–26 Fær viðurkenningu fyrir fallega og vel gróna lóð. Gróðurval er óvenju fjölbreytt og garði vel við haldið. Viðurkenningar fyrir lóðir stofnana og fyrirtækja  Sóltún 2 Lóð hjúkrunarheimilisins Sóltúns fær viðurkenningu fyrir fallega og vel skipulagða lóð. Vandað hefur ver- ið til við allan yfirborðsfrágang og gróðurval, sem myndar fallega og snyrtilega umgjörð um bygginguna. Útisvæði hjúkrunarheimilisins eru skjólsæl og nýtast vel.  Stekkjarbakki 4–6 Lóð Garðheima fær viðurkenn- ingu fyrir fallegan frágang á aðkomu að verslun fyrirtækisins, þar sem rými er gott og tré og annar gróður fær notið sín. Viðurkenningar fyrir end- urbætur á eldri húsum  Grjótagata 12 Húsið að Grjótagötu 12 fær við- urkenningu fyrir vel heppnaða end- urbyggingu. Það var byggt af bjarna Jónssyni snikkara árið 1890 og hefur nýlega verið endurbyggt af fag- mennsku og alúð. Það er nú til prýði umhverfi sínu.  Skólavörðustígur 35 Húsið fær viðurkenningu fyrir góða endurbyggingu. Það var byggt árið 1908 eftir teikningum Samúels Jónssonar, föður Guðjóns Sam- úelssonar, húsameistara ríkisins. Á síðustu árum hefur það verið end- urbyggt í upprunalegum stíl.  Eskihlíð 14 og 14a Fjölbýlishúsið fær viðurkenningu fyrir góða endurbyggingu á steinuðu fjölbýlishúsi eftirstríðsáranna. Það var byggt árið 1945 eftir teikningum Guðmundar H. Þorlákssonar bygg- ingameistara. Árið 2002 var húsið endursteinað og endurnýjað á ýms- an hátt í upprunalegri mynd. Vandað til verks við endurbyggingu Að sögn Páls V. Bjarnasonar, arkitekts hjá Árbæjarsafni, hafði verið mjög vel vel unnið að endurbót- um á gömlu húsunum og að því stað- ið á réttan hátt. „Það hefur aukist mjög mikið á síðustu árum að hús séu endurbyggð og það hefur einnig aukist að þau séu gerð upp í upp- runalegri mynd og öll smáatriði rétt gerð eins og húsin voru í upphafi, en það er höfuðáherslan hjá okkur núna. Fyrir 15 til 20 árum var áherslan meira lögð á að sannfæra húseigendur um að hús væru þess virði að gera þau upp, en nú er sú barátta unnin, svo við leggjum aðal- áherslu á aðferðir og útfærsluatriði. Það er líka orðið mun meira um fræðslu um endurbyggingar.“ Stjórn skipulags- og bygginga- nefndar lýsir yfir þeirri von að við- urkenningarnar virki hvetjandi á húseigendur og forráðamenn stofn- ana og fyrirtækja í Reykjavík, enda séu falleg hús og lóðir lyftistöng fyrir umhverfi sitt. Hlutverk viðurkenn- ingarinnar sé að hvetja aðra til dáða að leggja sitt af mörkum til fegrunar borgarinnar. Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar árið 2003 Viðurkenningar hvetji til dáða Reykjavík Morgunblaðið/Arnaldur Húsið við Grjótagötu 12 þótti sérlega vel endurnýjað og segir í umsögn vinnuhóps að það hafi verið endurbyggt af fagmennsku og alúð og sé það til prýði í umhverfi sínu. Næstkomandi laugardag verður Heljuhlaup 2003 þreytt í Svarf- aðardal. Mæting er á Dalvík en kl. 8:00 er farið í bíl yfir í Kolbeinsdal. Hlauparar verða ræstir um kl. 10:30 við Steinréttina í Kolbeinsdal og hlaupið endar við Atlastaði í Svarf- aðardal, leiðin er um 15 km og hækkun er um 700 m á leiðinni. Skráningargjald er kr. 1.000 og inni- falin er ferðin frá Dalvík í Kolbeins- dal. Einnig er tilvalið fyrir þá sem ekki vilja keppa að ganga upp á heið- ina til að fylgjast með og njóta fjallanna. Þeir sem stunda fjallahjól- reiðar geta einnig hjólað yfir. Vert er að geta þess að í ár eru 800 ár lið- in frá því Guðmundur góði varð bisk- up á Hólum en þá var leiðin um Helju helsta samgönguæðin milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Tekið er á móti skráningu hjá Þórði í síma 897-4757 eða á netfanginu thordur@dalvik.is. Síðasti skráning- ardagur er 21. ágúst. Á NÆSTUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.