Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 33
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 33 SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn sigr- aði á Norðurlandamóti taflfélaga sem fer fram fór laugardaginn 16. ágúst. Hrókurinn hlaut 22 vinninga, en Tafl- félagið Hellir lenti í öðru sæti með 19½ vinning, eftir að hafa haft forystu á mótinu lengst af. Norðurlanda- meistararnir frá því í fyrra, Sollent- una frá Svíþjóð, lentu í þriðja sæti. Mótið var afar spennandi eins og gert hafði verið ráð fyrir og úrslitin réðust ekki fyrr en í lokaumferðinni sem ein- kenndist af afgerandi úrslitum. Þann- ig fóru tvær af þremur viðureignum 6-0. Teflt var á Netinu. Lokaröð félag- anna varð þessi: 1. Skákfélagið Hrókurinn 22 v. 2. Taflfélagið Hellir 19½ v. 3. Sollentuna Schackklubb, Svíþjóð 17½ v. 4. Bergens Schakklub, Noregi 15½ v. 5. Jyväs-Shakki, Finnlandi 9½ v. 6. Havnar Tevlingarfelag, Færeyj- um 6 v. Leið Hróksmanna að titlinum reyndist nokkuð ævintýraleg. Í fyrstu umferð urðu Íslandsmeistararnir að sætta sig við tap gegn Taflfélaginu Helli, 4-2. Mesta athygli vakti skákin á efsta borði liðanna, þar sem stór- meistararnir Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson áttust við, en henni lauk með jafntefli. Hrókur- inn vann síðan nauman sigur á Soll- entuna í annarri umferð, 3½-2½ og voru þá komnir í fjórða sæti og efsta sætið á mótinu enn langt undan. Í þriðju umferð unnu þeir svo stórsig- ur, 5-1, gegn Norðmönnum. Norð- menn gerðu hins vegar athugasemd við það að borðaröð keppenda Hróks- ins í viðureigninni var ekki sú sem þeir höfðu gefið upp fyrir mótið. Varamaður hafði ekki komið inn á neðsta borði, heldur verið settur ofar í liðið. Hróksmenn töldu sig hafa leyfi til þess þar sem ekki var fjallað um þetta atriði í reglum mótsins. Norð- menn bentu hins vegar á að reglur keppninnar tækju einungis á sérstök- um þáttum hennar. Þar sem ákvæði skorti í reglurnar ætti því að fara eftir þeim reglum sem almennt tíðkuðust í alþjóðlegum liðakeppnum. Þar koma varamenn inn á neðstu borðum og oft ströng viðurlög við að víkja út frá því. Ekki tókst að leysa þessa deilu fyrir næstu umferð og því var viðureign Hróksins í fjórðu umferð frestað þar til mótinu var að öðru leyti lokið. Með stórsigri í fimmtu umferð, 6-0 gegn Færeyjum, og 5½-½ sigri í frestuðu viðureigninni gegn Finnunum tókst Hróknum í fyrsta skipti á mótinu að skjótast fram úr keppinautunum, en það var einmitt á rétta augnablikinum og Norðurlandameistaratitillinn var þeirra. Nasa (Helgi Ólafsson) sigraði á Borgarskákmótinu Nasa við Austurvöll sigraði á Borg- arskákmótinu sem fram fór föstudag- inn 15. ágúst, í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrir Nasa tefldi stórmeistarinn Helgi Ólafsson sem þar með hafði tvö- falda ástæðu til að fagna þennan dag, þar sem þetta var jafnframt afmæl- isdagur hans. Helgi hlaut 6½ vinning í 7 skákum. Í 2.-3. sæti urðu MP-verð- bréf (Þröstur Þórhallsson) og Bragi Þorfinnsson. Mótið var vel sótt eins og jafnan áður, en 70 skákmenn tóku þátt í því. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarsjórnar, lék fyrsta leiknum í skák Helga og Geirs Waage. Lokastaðan á mótinu: 1. Nasa við Austurvöll (Helgi Ólafs- son) 6½ 2.–3. MP Verðbréf (Þröstur Þór- hallsson), Bragi Þorfinnsson 6 v. 4.–8. Seðlabanki Íslands (Davíð Ólafsson), Skólabrú (Sigurbjörn J. Björnsson), Suzuki-bílar (Magnús Örn Úlfarsson), Slökkviliðsstöðin (Jón Viktor Gunnarsson), Mjólkur- samsalan (Ingvar Þór Jóhannesson) 5½ v. 9.–12. Samband íslenskra spari- sjóða (Hrafn Loftsson), Kaupþing Búnaðarbanki (Björn Þorfinnsson), Skjár einn (Guðmundur Kjartans- son), RST-net (Páll Þórarinsson) 5 v. 13.–19. Fjarhitun (Stefán Kristj- ánsson), Íslensk erfðagreining (Ög- mundur Kristinsson), Arnar E. Gunn- arsson, Gámaþjónustan (Tómas Björnsson), Sigurður Páll Steindórs- son, Íslandsbanki (Ingvar Ásmunds- son), Gatnamálastjórinn í Reykjavík (Júlíus Friðjónsson) 4½ v. 20.–31. Stefán Freyr Guðmunds- son, Bergsteinn Einarsson, Samfylk- ingin (Björn Freyr Björnsson), Fræðslumiðstöð Reykjavíkur (Kristj- án Örn Elíasson), Ölgerð Egils Skallagrímssonar (Tómas Atli Ponzi), Haraldur Böðvarsson (Stefán Briem), Humarhúsið (Róbert Harðarson), Ol- íufélagið (Sigurður E. Kristjánsson), Þorvarður F. Ólafsson, ÍTR (Páll Sig- urðsson), Perlan (Gunnar Skarphéð- insson), Bjarni Sæmundsson 4 v. 32.–38. Kjartan Másson, Kaffi Par- ís (Guðjón Heiðar Valgarðsson), VISA-Ísland (Jóhann H. Ragnars- son), Grand Hótel Reykjavík (Lárus A. Knútsson), Jómfrúin (Birgir Berndsen), Gissur og Pálmi (Andri Áss Grétarsson), Reykjavíkurhöfn (Sveinbjörn Jónsson) 3½ v. 39.–54. Vinnuskóli Reykjavíkur, Sensa, Starfsmannafélag Reykjavík- urborgar, Umhverfis- og tæknisvið Reykjavíkur, Hótel Borg, Olís, Toyota, Malbikunarstöð Reykjavík- ur, Sorpa, Hlöllabátar, Osta- og smjörsalan, Edda útgáfa, Opin kerfi, Rafhönnun, Reykjavíkurborg, Efling 3 v. 55.–57. Viðeyjarstofa, Orkaveita Reykjavíkur, Íslandspóstur 2½ v. 58.–65. Hitaveita Suðurnesja, BYKO, Tapas barinn, Félag bóka- gerðarmanna, Sveinn Arnarsson, Samiðn, Björn Gunnarsson, Sverrir Þorgeirsson 2 v. 66. Verkfræðistofa Sig. Thorodd- sen 1½ v. 67.–69. Námsflokkar Reykjavíkur, Verkfræðistofan Afl, Vínbarinn 1 v. 70. Landsbankinn 0 v. Skákstjórar voru Ríkharður Sveinsson og Gunnar Björnsson TV í undanúrslit hraðskákkeppni taflfélaga Taflfélag Vestmannaeyja er komið í undanúrslit eftir sigur á Taflfélagi Kópavogs í hraðskákkeppni tafl- félaga. Kópavogsbúar náðu ekki að manna liðið og gáfu því viðureignina án taflmennsku. Í gærkvöldi áttust við TR og Skákfélag Akureyrar. Að- alviðureign annarrar umferðar er hins vegar á milli Hellis og Hróksins en þessi lið mætast síðar í vikunni. Hrókurinn sigraði á Norð- urlandamóti taflfélaga Daði Örn Jónsson SKÁK Norðurlönd NORÐURLANDAMÓT TAFLFÉLAGA 2003 16. ágúst 2003. dadi@vks.is Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Há- teigskirkja, eldri borgarar. Pútt alla morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Fé- lagsvist mánudaga kl. 13, brids mið- vikudaga kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10- 12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand- bergi, Vonarhöfn frá kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Í sumar verður opið hús á vegum kirkjunnar fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13- 16. Spilað og spjallað. Þorlákur sér um akstur fyrir þá sem óska. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10-12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30- 19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Safnaðarstarf Kirkjustarf Frá eldri borgurum í Hafnarfirði. Spilað var þriðjudaginn 12. ágúst. Úrslit urðu þessi. NS Árni Bjarnas. – Þorvarður S. Guðm. 119 Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 116 Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundsson 90 AV Kristján Ólafss. – Bjarnar Ingimarss. 125 Þórarinn Árnason – Jón Gunnarsson 105 Jón Ólafur Bjarnas. – Sófus Berthelsen103 Förstudaginn 15. urðu úrslit þessi Árni Guðmundsson – Ólafur Gíslason 102 Jón Gunnarsson – Kristján Þorláksson 102 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 100 Sveitir Subaru og Guðmundar Sveins mætast í átta liða úrslitum í bikarnum Dregið hefir verið í fjórðu um- ferð í bikarnum og vekur þar fyrst og fremst athygli leikur Subaru og Guðmundar Sveins Hermannsson- ar. Þessar sveitir hafa verið í fremstu víglínu í áraraðir og því útséð að önnur þeirra kemst ekki í undanúrslitin. Leikirnir í átta liða úrslitum eru þessir: Ógæfa ehf/Bj.M.Kristinss.-ÍAV/M.Þorv. Suðurnesjasv.- Sparisj.Sigl&Mýr./Ól.J. Subarusv./J.Bald.-Guðm.Sv.Hermannsson Félagsþj./Guðl.Sv. - Shellskálinn,Hús. Úrslitin í þriðju umferðinni urðu þessi: Ógæfa ehf-Aðalst.Sveinsson 116-112 Shell/R.Einars.-I.P.Jóhannsson 117- 52 Hársn.Vildísar-ÍAV/Matth.Þorv. 65-128 Félþj./Guðl.Sv.-TEYMI/Bern. Kr. 87- 32 Spsj.Sigl&Mýr/Ól.J-Skaginn/Þ.j. 68- 54 Guðm. Herm.-Strengur/Hr.Erl. 103- 79 Norðangarri-Suðurnesjasv. 100-119 Goði/Þórólfur.Jónass.-Subaru/Jón B. 23- 148 Síðasti spiladagur er 14.sept. Sumarbrids í Gjábakka Það mættu 20 pör sl. föstudag og að venju var spilaður Michell tví- menningur. Lokastaðan í N/S varð þessi: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 279 Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 245 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 240 Og lokastaða efstu para í A/V varð þessi: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 271 Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 251 Anna Lúðvíksd. - Kolbrún Ólafsd. 239 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Glæsibæ fimmtud.7. ágúst 2003. Spilað var á 8 borðum. Meðalskor 168 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 198 Björn E. Pétursson – Eysteinn Einarss. 182 Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 178 Árangur A-V: Alda Hansen – Jón Lárusson 193 Ingibjörg Stefánsdóttir – Halla Ólafsd. 174 Jón Karlsson – Valur Magnússon 172 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 172 Tvímenningskeppni spiluð fimmtud. 14. ágúst. Spilað var á 9 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 265 Sæmundur Björnsson – Olíver Kristóf. 254 Alda Hansen – Jón Lárusson 226 Árangur A-V: Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 269 Eysteinn Einarsson – Kristján Ólafss. 251 Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 232 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Ingibjörg Þeng- ilsdóttir, Erla Alexanders- dóttir, Katrín Sveinbjörns- dóttir, Matthildur Sveins- dóttir, tarrot-lesari og Garðar Björgvinsson, michael-miðill, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starf- semi þess, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga árs- ins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja ef- tir skilaboð á símsvara félagsins. Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. KENNSLA  www.nudd.is mbl.is ATVINNA TILKYNNT var um 14 innbrot, 21 skemmdar- verk og 18 þjófnaði í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Einn þjófn- aðurinn átti sér stað í brúðkaups- veislu í austurborginni á laugar- dag. Í ljós kom að morgungjöf brúðgumans, sem var hálsmen, armband og hringur, hafði verið stolið úr vasa föður hans. Um helgina var tilkynnt um 41 umferðaróhapp, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Í fjórum tilvikum var um meiðsli á fólki að ræða. Ekki var um alvarleg meiðsli að ræða. 22 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt. Um helgina voru 7 ökumenn kærðir, grunaðir um að vera ölvaðir við aksturinn. Á föstudaginn um miðjan dag var tilkynnt um að brotist hafi ver- ið inn í einbýlishús vestur á Mel- um. Þar hafði verið brotin rúða í svalahurð og stolið skartgripum, tölvu og myndavél, alls að verð- mæti um 350 þúsund krónur. Um klukkan fjögur á laugardag var tilkynnt um ofurölvi mann í af- greiðslu BSÍ. Er lögreglumenn komu á staðinn svaf maðurinn ölv- unarsvefni í afgreiðslunni og hjá honum var dóttir hans 4 ára. Vista varð manninn í fangageymslu en barninu var komið fyrir hjá frænku stúlkunnar. Aðfaranótt sunnudags kom til átaka milli fólks á Lækjartorgi. Enduðu átökin með því að kona var slegin niður og lá í götunni. Var hún flutt á slysadeild. Annað lunga hennar mun hafa fallið saman og eins voru á henni nokkrir áverkar. Árásarmaður var handtekinn. Þá var sömu nótt kvartað undan bjölluónæði í Þingholtunum. Kom í ljós að ölvaður maður hafði farið húsavillt. Hugðust nú lögreglu- mennirnir aðstoða manninn við að komast heim til sín. Það gekk þó ekki eftir því áður en til þess kom náði maðurinn að sparka í andlit annars lögreglumannsins. Var hann því handtekinn og færður á lögreglustöð. Á sunnudagsmorgun var maður á gangi á Hverfisgötu, nokkuð ölv- aður. Rakst hann utan í bifreið sem ekið var framhjá honum. Kvaðst hann hafa reiðst við það og spark- að í bifreiðina. Hafi bifreiðin þá verið stöðvuð og út komu tveir menn sem gengu í skrokk á mann- inum svo flytja varð hann á slysa- deild. Hann var meðal annars kjálkabrotinn. Nokkur fíkniefnamál komu upp um helgina. Meðal annars var bif- reið stöðvuð á föstudagskvöld vegna gruns um fíkniefnadreifingu ökumannsins. Í ljós kom að mað- urinn hafði í fórum sínum sjö skammta í söluumbúðum, ásamt töluverðu af peningum. Í framhaldi var gerð húsleit heima hjá viðkom- andi en þar fannst ekkert af efn- um. Lögreglunni á Selfossi þykir ótrúlegt hversu margir storka ör- lögunum með því að aka bifreið eft- ir að hafa drukkið áfengi, en hún hefur kært á annað hundrað manna á árinu vegna meints ölvunarakst- urs, þar af fjóra í nýliðinni viku. Í dagbók hennar segir enn fremur: „Vikan gekk að mestu stóráfalla- laust fyrir sig þrátt fyrir fjölda verkefna sem lögregla sinnti. Hald- ið var að vanda uppi öflugu eftirliti með umferð um vegi í Árnessýslu. Allmargir voru kærðir fyrir að aka of hratt en samtals mega 63 öku- menn eiga von á að þurfa að greiða sekt fyrir hraðakstur. Þetta er auð- vitað allt of há tala, ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar að hraðakstur stóreykur líkur á alvarlegum slys- um ef eitthvað ber út af í umferð- inni. Fjórir ökumenn voru kærðir fyr- ir að aka undir áhrifum áfengis í vikunni og er tala þeirra sem lög- reglan í Árnessýslu hefur kært fyr- ir ölvunarakstur á þessu ári komin á annað hundrað! Ótrúlegt hvað margir storka örlögunum með því að aka bifreið eftir að hafa drukkið áfengi. Tólf umferðaróhöpp urðu í lið- inni viku. Í einu þeirra urðu slys á fólki þegar bifreið sem ekið var um götu í Þorlákshöfn fór útaf og valt. Ætla má að ökumaðurinn hafi ekki sýnt nægjanlega aðgæslu og ekið ógætilega. Tveir farþegar voru í bifreiðinni og voru þeir fluttir á sjúkrahús í Reykjavík. Af öðrum verkefnum lögreglu má nefna að 5 þjófnaðir voru kærð- ir og þrjú tilvik komu upp þar sem eignaspjöll voru unnin.“ Dagbók lögreglu helgina 15.–18. ágúst Morgungjöf brúð- gumans stolið í brúðkaupsveislu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.