Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TEKIN var ákvörðun strax í upp-
hafi að blaðamenn fengju ekki að
vera um borð í hvalveiðiskipunum
en öryggissjónarmið ráða því að
hrefna er ekki skotin þegar aðrir
bátar eru nálægt hvalveiðibátun-
um. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir að
þar hafi ýmislegt komið til. s.s.
plássleysi og svo eins hitt að menn
séu einfaldlega að feta sig áfram
með veiðarnar eftir margra ára
hlé.
„Það er ekki þægilegt fyrir
menn sem eru að vinna vandasöm
störf við frekar erfiðar aðstæður að
vera með fréttamenn í kringum sig
á meðan þeir eru að ná upp færni
og góðu verklagi. Það réð úrslitum,
“ segir Jóhann.
Vissulega spurning um öryggi
Spurður um myndatökur af veið-
unum segir Jóhann það vera hreint
og klárt öryggisatriði og þess
vegna hafi verið óskað eftir því að
menn kæmu ekki inn fyrir einnar
sjómílna fjarlægð frá bátunum.
Aðspurður segir Jóhann menn
nota skutulbyssu með mjög öflugri
sprengihleðslu þótt skutlinum sé
skotið tiltölulega stutt. „Ef allt
gengur eftir drepst dýrið nær sam-
stundis af því skoti en ef það verð-
ur ekki hafa menn svokallaða fíla-
riffla, en það eru gríðarlega öflugar
byssur og af þeim getur líka stafað
hætta. Það er á hendi Hafrann-
sóknastofnunarinnar sem ber
ábyrgð á framkvæmd þessa verk-
efnis að meta öryggisþætti og það
höfum við vitaskuld gert með að-
stoð bestu sérfræðinga. “ Jóhann
segir hrefnuveiðibát sem elti
hrefnu geta þurft að beygja í allar
áttir „og það gengur einfaldlega
ekki að annar bátur sé að þvælast
fyrir, hvað þá ef búið er að setja
skotlínu út eða ef skutull springur
illa. Það kemur ekki til greina af
okkar hálfu að tefla mannslífum
eða öryggi viðstaddra í hættu.“
Aðspurður segir Jóhann að þótt
öryggissjónarmið sé úrslitaatriði sé
það ljóst að íslenskum hagsmunum
sé lítill greiði gerður með myndefni
sem hugsanlega gefi ranga mynd
af eðli þessara mikilægu rann-
sókna.
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar um myndatökur af hrefnuveiðunum
Öryggissjónarmiðin
vega langþyngst
Morgunblaðið/Alfons
Áhöfnin á Nirði KÓ á leið til lands með hrefnuna sem veiddist út frá Snæfellsnesi í gærdag.
Gengur ekki að
aðrir bátar séu að
þvælast fyrir
SENDIRÁÐI Íslands í Washington
hefur borist á annað þúsund tölvu-
skeyta þar sem hvalveiðum Íslend-
inga er mótmælt, þar af barst á
fimmta hundrað bréfa í gær. Að
sögn Guðna Bragasonar sendifull-
trúa hefur fjöldi skeyta stigmagnast
undanfarna daga og má jafnvel bú-
ast við að efnt verði til mótmæla
gegn hvalveiðum í Washington í dag
en símtal þess efnis barst sendi-
ráðinu í gær.
Að sögn Guðna hafa tveir ritarar
sendiráðsins ekki gert annað síð-
ustu daga en að svara tölvuskeyt-
um.
Flestar sendinganna eru bréf frá
ýmsum umhverfis- og dýraverndun-
arsamtökum sem senda út staðlað-
an texta til sinna fylgismanna sem
síðan senda hann áfram til sendi-
ráðsins. Leitast er við að svara öll-
um bréfum sem berast sendiráðinu.
Boðuð mótmæli í dag
Að sögn Guðna voru engin mót-
mæli við sendiráðið í gær
en ekki er útilokað að til tíðinda
gæti dregið í dag, að hans sögn.
Í gær var hringt í sendiráðið og
mótmæli boðuð í dag án þess að til-
greint væri nákvæmlega hvar eða
klukkan hvað. Að sögn Guðna
kenndi sá sem hringdi sig ekki við
nein hagsmunasamtök.
Tveir ritarar
í fullu starfi
við að svara
tölvupósti
BAKKAVÍK hf. í Bolungarvík hefur
undanfarið auglýst eftir starfsfólki.
Að sögn Agnars Ebeneserssonar,
forstjóra Bakkavíkur, er um tuttugu
til þrjátíu laus störf að ræða, bæði í
rækjuvinnslu og almennri fisk-
vinnslu.
Þegar hefur verið ráðið í nokkur
störf og útilokar hann ekki að Bakka-
vík þurfi að bæta við sig enn fleira
fólki á næstunni. Ástæðuna segir
hann vera aukningu í framleiðslunni.
Agnar segir að eingöngu Íslend-
ingar hafi sótt um störfin, enda hafi
fyrirtækið aðeins auglýst hér á landi
en ekki erlendis.
Hann segist greina mun á atvinnu-
ástandinu nú og frá því á sama tíma í
fyrra. Nú sé erfiðara að fá fólk til
starfa og það sé ef til vill merki þess
að atvinnuástandið á landsbyggðinni
hafi batnað.
Vantar fólk í vinnu
í Bolungarvík
LANDSFUNDUR Samfylk-
ingarinnar verður haldinn á Ás-
völlum í Hafnarfirði helgina 31.
október til 2. nóvember nk., en
það var ákveðið á fundi fram-
kvæmdastjórnar flokksins í
gær. Karl Th. Birgisson, fram-
kvæmdastjóri flokksins, segir
að um 700 manns hafi verið við
setningu landsfundarins í fyrra
og að í ár sé búist við fleirum.
Framboðsfrestur til embætt-
is formanns og varaformanns
Samfylkingarinnar verður
ákveðinn á fundi framkvæmda-
stjórnar í næstu viku, en allir
flokksmenn kjósa um þessi tvö
embætti í allsherjarkosningu.
Landsfund-
ur Samfylk-
ingar í lok
október
GREINT var frá því í fjölmiðlum
víðs vegar um heim í gær að Ís-
lendingar hefðu hafið hvalveiðar á
þremur hvalveiðibátum úti fyrir
ströndum Íslands.
AFP- og Reuters-fréttastofurnar
sögðu frá því síðdegis að stjórnvöld
í Bandaríkjunum hefðu ítrekað von-
brigði sín með þá ákvörðun Íslend-
inga að hefja hvalveiðar og að Ís-
lendingar gætu átt á hættu að sæta
viðskiptaþvingunum af hálfu
Bandaríkjamanna á grundvelli svo-
nefndra Pelly-lagaviðbóta.
Í vefútgáfu The Washington Post
sagði m.a. að Íslendingar hefðu
neitað að gefa upplýsingar um stað-
setningu hvalveiðibátanna og hefðu
„reynt að koma í veg fyrir umfjöll-
un fjölmiðla“ um málið.
Haft var eftir Chris Carter, nátt-
úruverndarmálaráðherra Nýja-Sjá-
lands, í nýsjálenskum fjölmiðlum í
gær að Íslendingar græddu engar
upplýsingar á því að rannsaka
magainnihald hvala umfram þá
vitneskju sem þegar væri fyrir
hendi. „Það er hægt að rannsaka
hvali án þess að drepa þá,“ sagði
ráðherrann.
„Reynt að
koma í veg
fyrir um-
fjöllun fjöl-
miðla“
♦ ♦ ♦
BÆNDUR á Mælivöllum á Jök-
uldal eru byrjaðir að smala. Þeir
hyggjast senda lömb í sumarlógun
hjá Norðlenska, sem hefur lofað að
borga vel fyrir þrátt fyrir greiðslu-
erfiðleika og tap á síðasta ári. Fyr-
irtækið býður 245 kr. á kílóið af
útflutningskjöti, sem er með því
hæsta sem þekkist, eða milli 45 og
50 krónum yfir markaðsverði.
Jón Helgi Björnsson hjá Norð-
lenska segir í bréfi til kjötinnleggj-
enda að mikil óvissa ríki nú á kjöt-
markaði og um hvaða verð muni
greitt fyrir afurðir í haust. Þó sé
ekki hjá því komist að gefa bænd-
um upp verð í ágústslátrun og for-
slátrun í september. Greitt verði
sem nemur 90% af verði síðasta
árs og álag ofan á það. Ef end-
anlegt verð hækki í sláturtíð muni
verða greidd uppbót til þeirra sem
slátra í ágúst.
Vantar kjöt á
Bandaríkjamarkað
Ástæða þess að Norðlenska ætl-
ar að greiða verulega hærra verð
fyrir útflutning en aðrir, segir Jón
Helgi vera að félaginu sé lífs-
nauðsynlegt að fá inn fé til slátr-
unar á þessu tímabili til útflutn-
ings á Bandaríkin. Þar sé
fyrirtækið í sókn með aukinni
markaðssetningu og innkomu í
fleiri verslanir en verið hefur.
Stefnt sé að því að senda kjötið
gaspakkað með skipum til Banda-
ríkjanna og verði það grunnurinn
að því að hægt sé að greiða hærra
verð og verulegan hluta útflutn-
ings fyrir áramót.
Norðlenska borgar vel fyrir útflutningskjöt
Jökuldælingar byrjaðir
að smala í sumarlógun
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Feðgarnir Sigurður Jónsson og Jón Hallgrímsson ásamt aðstoðarmönnum
taka sláturlömb í réttinni á Mælivöllum á Jökuldal.
Jökuldal. Morgunblaðið.