Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Halldórsson, for- maður Eldingar, félags smábátaeig- enda á norðanverðum Vestfjörðum, segir að með því að blanda saman umræðu um línuívilnun og byggða- kvóta sé sjávarútvegsráðherra aug- ljóslega að tefja fyrir framkvæmd línuívilnunar. Guðmundur segir að í tillögu sinni um línuívilnun á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins sl. vor hafi ekki ver- ið gert ráð fyrir að nýta byggða- kvóta til að koma á línuívilnun. Þó að í umræðu á fundinum hafi verið imprað á slíku hafi tillagan verið samþykkt eins og hann lagði hana fram, óbreytt. „Tillagan var sam- þykkt með mínum rökstuðningi en ekki annarra sem höfðu skoðun á málinu á fundinum. Þeir hefðu þá þurft að leggja fram breytingar- tillögu við mína tillögu og fá hana samþykkta. Það var hins vegar ekki gert.“ Hann segir að sjávarútvegs- ráðherra hafi með afar vafasömum úthlutunarreglum komið miklu óorði á byggðakvótann og ætli sér nú að slá hann af. „Umboðsmaður Alþing- is hefur sett ofan í við sjávarútvegs- ráðherra varðandi byggðakvótann en ráðherrann notar það sem rök fyrir því að ekki sé hægt að koma á línuívilnun. Það er bara rangt hjá ráðherranum. Umboðsmaður Al- þingis hefur ekki fjallað um línuí- vilnun, enda er hún ekki komin til framkvæmda. Þetta getur hins veg- ar reynst sjávarútvegsráðherra ban- vænn biti, þ.e. hann ræðst með því á tillögur Framsóknarflokksins um að auka byggðakvóta og lætur sig engu skipta orð forsætisráðherra um að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að línuívilnun komi á strax í haust. Sjávarútvegsráðherra er með öðr- um orðum að rugga því fleyi sem siglir ríkisstjórninni inn í nýbyrjað kjörtímabil.“ Guðmundur segir að í greinargerð með tillögu sinni á landsfundinum hafi hann skýrt kveðið á um að línu- ívilnunin yrði fyrir dagróðrabáta. Ekkert í tillögunni kveði á um að línuívilnun verði eingöngu fyrir smábáta. „Það sem fyrir mér vakti með tillögunni var að styrkja byggð- irnar og það með vistvænum veið- arfærum.“ Of mikil völd sjávarútvegsráðherra Guðmundur segir að sjávar- útvegsráðherra hafi orðið of rúmar heimildir til úthlutunar aflaheimilda og segist þeirrar skoðunar að lög- gjafarvaldið hafi afsalað sér of mikl- um völdum til framkvæmdavaldsins. Það sé að sínu viti í meira lagi vafa- samt. „Alþingi hefur ekki heimild til að afsala til sjávarútvegsráðherra þeim völdum sem felast í því að út- hluta svona miklum aflaheimildum. Nú þegar sjávarútvegsráðherra hef- ur úthlutað öllum veiðiheimildum næsta fiskveiðiárs getur Alþingi ekki ákveðið að koma á línuívilnun nema með því að gefa út nýjar heim- ildir.“ Guðmundur segir að sjávar- útvegsráðherra hafi haft svigrúm til að bíða með að úthluta hluta af afla- heimildum næsta fiskveiðiárs og bendir á að úthlutað sé byrj- unarkvóta í loðnu og innfjarðar- rækju en bætt við leyfilegan heildar- afla síðar á fiskveiðiárinu. „Að mínu mati hefði sjávarútvegsráðherra átt að virða þann rétt Alþingis til að fjalla um málið. Hann hefði átt að úthluta kvótanum en láta Alþingi um að úthluta þeim þorskkvóta sem bætt verður við á næsta fiskveiðiári sem eru um 30 þúsund tonn. Þannig hefði Alþingi haft svigrúm til að koma á línuívilnun, sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar og samþykktum beggja rík- isstjórnarflokkanna.“ Guðmundur segist sammála því að þeir sem hafi orðið fyrir skerð- ingum á aflaheimildum eigi að njóta þess í uppsveiflu. „Þetta á hins veg- ar einnig að ganga yfir byggðirnar, sem hafa orðið fyrir gífurlegri skerðingu. Þegar sjávarútvegs- ráðherra úthlutaði kvóta næsta fisk- veiðiárs var hann að fótumtroða rétt byggðanna.“ Ætlar að tefja málið Guðmundur segir greinilegt að sjávarútvegsráðherra ætli sér að tefja málið, enda sé hann aug- ljóslega á móti línuívilnun. Það hafi komið berlega komið í ljós í at- kvæðagreiðslu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. „Á fundi mín- um með ráðherranum fyrr í sumar kom fram að hann ætlar að taka sér góðan tíma í að semja reglur um lí- nuívilnunina og tefja málið fram til fiskveiðiársins 2005/2006. Hann seg- ist hafa vald til þess, jafnvel þó að Alþingi samþykki frumvarp um lí- nuívilnun nú í vetur.“ Guðmundur segir útlit fyrir að aflaheimildir verði skornar niður á fiskveiðiárinu 2004/2005, þar sem hinir sterku seiðaárgangar síðustu ára virðast ekki hafa komist á legg. „Dettur þá einhverjum í hug að sjávarútvegs- ráðherra taki aflaheimildir frá öðr- um og noti til línuívilnunar?“ Fer eftir kröfum LÍÚ Guðmundur segir að Árni M. Mathiesen hafi í ráðherratíð sinni farið í einu og öllu eftir kröfum Landssambands íslenskra útvegs- manna. „Það var krafa LÍÚ að frelsi þorskaflahámarksbáta í ýsu, ufsa og steinbít yrði afnumið. Sjávarútvegs- ráðherra kom því í gegn með afar vafasömum hætti, enda fékk málið ekki þinglega meðferð. Þessi frjálsa sókn í aukategundirnar hafði verið bjargræði sjávarbyggðanna á Vest- fjörðum og stuðlaði að uppbyggingu smábátaflotans. Þegar þetta frelsi var lagt af, að kröfu LÍÚ, var skert- ur mjög réttur byggðanna til að lifa af. Þá úthlutaði ráðherrann þessum svokallaða byggðakvóta til byggð- anna, svona til að setja plástur á sár- ið. Útvegsmenn hafa verið mjög andsnúnir byggðakvóta og róið að því öllum árum að fá hann afnuminn. Þeir hafa sömuleiðis lýst sig andvíga línuívilnun en segja þó að hún sé skömminni skárri en byggðakvóti. Margar stærri útgerðir hafa með samruna og kaupum stuðlað að því að leggja smærri sjávarbyggðir í rúst og eru svo á móti öllum umbót- um til hinna dreifðu byggða með þeim rökum að þeir eigi kvótann sem er sameign íslensku þjóð- arinnar. Þá er það skýlaus krafa LÍÚ að skerða mjög rétt sóknar- dagabáta til sjósóknar og sjávar- útvegsráðherra virðist því sammála þegar hann neitar að beita sér fyrir því að lagfæra veiðikerfi þeirra sem felur í sér brotthvarf 300 smábáta úr íslenskri útgerðarflóru, báta sem einungis er heimilt að nota handfæri við veiðar,“ segir Guðmundur. Guðmundur Halldórsson Segir ráðherra vera að tefja fyrir línuívilnun AFGREIDD húsbréf á reiknuðu verðu voru um 59% hærri í júlí 2003 en í júlí 2002. Innkomnar umsóknir voru um 20% fleiri í mánuðinum held- ur en í júlí í fyrra og heildarfjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta var um 71% hærri. Alls voru afgreidd húsbréf fyrir fimm milljarða í júlí sem er nýtt met, samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúða- lánasjóðs fyrir júlímánuð. Alls voru samþykkt skuldabréfaskipti fyrir sex milljarða í mánuðinum sem einnig er met. „Til samanburðar má benda á að það er svipuð fjárhæð og fyrstu 3 mánuðir ársins 1999 í tölum en þá hófst einmitt síðasta uppsveiflan í fasteignaviðskiptum, uppsveifla sem ekki virðist sjá fyrir endann á. Þó benda rannsóknir til þess að mikill fjöldi fasteignaviðskipta yfir ákveð- inn tíma leiði til fækkunar viðskipta á næsta tímabili,“ að því er segir í mán- aðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Yfir 650 milljónir króna voru lán- aðar út í yfir 350 viðbótarlánum í júlí. Um langt skeið hefur yfir þriðjungur nýrra útlána í húsbréfakerfinu verið með viðbótarlánum. „Viðbótar- lánþegar skulda í dag Íbúðalánasjóði ríflega 60 milljarða, þar af eru viðbót- arlánin sjálf í tæpum 15 milljörðum. Reynslan af þessu 90% lánaflokki, sem hóf göngu sína 1999, er til dags einstaklega góð. Þannig eru vanskil viðbótarlána lægri en meðaltal van- skila allra viðskiptavina Íbúðalána- sjóðs. 3ja mánaða vanskil og eldri í viðbótarlánum eru aðeins um 0,12% af lánaflokkum eða aðeins tæpar 20 milljónir króna. Samkvæmt tölum úr ársskýrslu Fasteignamats ríkisins hefur fjöldi viðskipta á fasteigna- markaði verið á bilinu 10–12 þúsund á undanförnum árum, þ.e. í tíð við- bótarlánaflokks Íbúðalánasjóðs. Við- bótarlán voru um 3.000 talsins á síð- asta ári hjá Íbúðalánasjóði og lánsfjárhæðin var alls um 5 milljarð- ar króna. Bein útlán lífeyrissjóða, sem flest eru í kringum fasteigna- kaup, voru um 15 milljarðar króna á síðasta ári. Því má draga þá ályktun að í meirihluta fasteignaviðskipta sé því í raun um að ræða 80–90% láns- fjármögnun og fyrirhugaðar breyt- ingar munu því hafa minni efnahags- leg áhrif en talið hefur verið. Fjármagnskostnaður heimila mun hins vegar lækka umtalsvert,“ að því er segir í mánaðarskýrslunni. Áætluð skuldabréfaútgáfa 110- 120 milljarðar í ár Þar kemur einnig fram að áætluð heildarútgáfa á skuldabréfamarkaði hérlendis er um 110 til 120 milljarðar á þessu ári. „Aukist skuldabréfaút- gáfa vegna hugmynda um útfærslu á 90% lánaflokki með hækkun há- markslána um í heild sinni 20- til 30 milljarða á ársgrunni frá núverandi tölum er ekki um mikla aukningu að ræða heldur hægfara aukningu í út- gáfu á komandi árum. Á sama tíma stækkar eftirspurnarhlið fjármagns- markaðarins töluvert innanlands af eðlilegum ástæðum í gegnum aukið ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna. Að auki færast að stórum hluta bein út- lán lífeyrissjóðanna einnig yfir á fjár- festingarstefnu þeirra hvað varðar kaup á skuldabréfum og hlutabréfum hérlendis og erlendis. Einnig má benda á að vænt stækkun eftirspurn- ar erlendra fjárfesta bætist einnig í þann hóp. Eftirspurnarhlið stækkar því líklega hraðar en framboðshliðin á komandi árum þó að hugmyndum um breytingar á lánakerfinu verði hrundið í framkvæmd,“ segir í mán- aðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Morgunblaðið/Ásdís Mun fleiri húsbréfaumsóknir voru afgreiddar í júlí en í sama mánuði í fyrra. Metmánuður hjá Íbúðalánasjóði Þriðjungur nýrra lána 90% lán ÚR VERINU HAGNAÐUR Kögunar samstæð- unnar nam 81 milljón króna á fyrri helmingi ársins en nam 57 millj- ónum króna á sama tíma árið áður og jókst því um 42% milli tímabila. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 511 milljónum króna en 495 milljónum árið áður. Rekstrargjöld drógust saman um tæp 3%, voru 434 milljónir á fyrri helmingi ársins en 447 milljónir króna á sama tíma- bili 2002. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 82 milljónir króna á tímabilinu eða 16% af rekstrartekjum. Sama tala í fyrra var 69 milljónir króna eða 14% af rekstrartekjum. Afskriftir námu fimm milljónum en 22 milljónum í fyrra. Eignir Kögunar námu samtals 853 milljónum króna í júnílok en á sama tíma í fyrra námu þær 841 milljón króna. Skuldir samstæðunn- ar hafa aukist um 1,5% og námu 236 milljónum króna í lok tímabils- ins. Eigið fé samstæðunnar er 617 milljónir en var 608 milljónir í fyrra. Veltufé frá rekstri nam tæpum 68 milljónum króna á tímabilinu en það er 16% minna en á sama tíma 2002. Veltufjárhlutfall Kögunar er 3,8 en var 2,9 á fyrri helmingi síðasta árs. Eiginfjárhlutfall var 72% og hækkaði úr 66% í fyrra. Arðsemi eigin fjár hækkaði einnig úr 24% á fyrstu sex mánuðum ársins 2002 í 29% á fyrri helmingi þessa árs. Í tilkynningu frá Kögun kemur fram að tekjur, gjöld og afkoma á fyrri helmingi 2003 séu í samræmi við áætlanir. Verið er að endur- skoða áætlun fyrir síðari helming ársins, einkum vegna sölu á Navis- ion Ísland ehf. og kaupa á Ax hug- búnaðarhúsi, að því er fram kemur í tilkynningu. Kögun seldi allt hlutafé í Navis- ion Ísland til Microsoft Corporation í byrjun júlí sl. Söluhagnaður þeirra viðskipta nemur 140 milljónum króna og bókfærist á þriðja fjórð- ungi ársins. Kaup á Ax hugbún- aðarhúsi koma einnig inn í reikn- inga í þriðja ársfjórðungi en Kögun greiddi 123 milljónir króna fyrir 99,43% hlut í félaginu. Hagnaður Kögun- ar eykst um 42% Áætlun fyrir síðari hluta ársins endurskoðuð ● SMÁSÖLUVÍSITALA dagvöru á föstu verðlagi hækkaði um 5,4 pró- sentustig (4,75%) frá júlí 2002 til júlí 2003, að því er fram kemur í frétt frá Samtökum verslunar og þjónustu. Á sama tímabili lækkaði verð matvæla skv. neysluverðs- vísitölu Hagstofu Íslands um 3,2 prósentustig (2,54%) og tekur áð- urnefnd hækkun dagvöru á föstu verðlagi mið af þessu. Smásöluvísitala áfengis hækk- aði á föstu verðlagi um 12,1 pró- sentustig (8,9 %) á milli ára og hef- ur þá verið tekið tillit til 1,8 prósentustiga (1,55%) hækkunar smásöluverðs á sama tíma miðað við neysluverðsvísitölu Hagstofu Ís- lands. Smásöluvísitala lyfjaverslana breytist lítið á milli mánaða, en út- reikningur smásöluvísitölu lyfja- verslunar hófst ekki fyrr en í sept- ember 2002 þannig að ekki liggja enn fyrir samanburðartölur frá fyrra ári. Verðvísitala lyfja og lækn- ingavöru hefur frá september 2002 til júlí 2003 hins vegar hækkað um 6,6 prósentustig (4,7%). Í fréttinni frá SVÞ segir: „Smá- söluvísitalan er reiknuð af IMG samkvæmt upplýsingum sem ber- ast beint frá fyrirtækjunum og ÁTVR. Miðað er við að a.m.k. 80% af veltu í greininni skili sér með þessum hætti. Venjulega er þetta hlutfall nokkuð hærra.“ Aukin smásala í júlí ● ÚRVALSVÍSITALA aðallista hækk- aði um 1,12% í gær og var loka- gildi hennar 1.609,23 stig. Hefur hún ekki verið hærri frá því í maí árið 2000, samkvæmt upplýs- ingum frá Kauphöll Íslands. Vísital- an hefur hækkað um 19,02% frá áramótum og um 26,02% síðustu tólf mánuði. Í gær námu viðskipti með hluta- bréf í Kauphöll Íslands 1.362 millj- ónum króna. Mest viðskipti voru með bréf Pharmaco eða fyrir um 475 milljónir króna og hækkuðu þau um 2,3%, úr 25,60 í 26,20. Markaðsverðmæti Pharmaco er því rúmir 78 milljarðar króna, rúm- lega tíu milljörðum meira en Kaup- þing Búnaðarbanki sem er næst- verðmætasta fyrirtækið í Kauphöll Íslands. Hampiðjan hækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í gær eða um 7% en í litlum viðskiptum. Einungis þrjú félög lækkuðu í verði í gær: Flugleiðir um 2,9%, Og fjarskipti um 2,1% og Opin kerfi um 2,8%. Flugleiðir munu birta sex mánaða uppgjör í dag og Og fjar- skipti munu einnig birta uppgjör í þessari viku. Úrvalsvísitalan ekki hærri í rúm 3 ár ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.