Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10. Miðaverð 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i.12 ára. Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Fyndnasta mynd sumarsins frá leikstjóra Liar Liar og Ace Ventura Sýnd kl. 6. Yfir 25.000 gestir HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Miðaverð 500 kr. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. kl. 5.30, 8 og 10.20. Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Yfir 25.000 gestir SÝNING MIÐVIKUDAGINN 20/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 Örfá sæti SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 LAUS SÆTI ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA! ÞAÐ VAR undarlegt um að litast á ritstjórnarskrifstofum Morg- unblaðsins á sunnudag en þá stóðu yfir upptökur á nýrri ís- lenskri stuttmynd sem ber heitið Síðustu orð Hreggviðs. Eyjólfur B. Eyvindarson, oft titlaður Sesar A, er framleiðandi og aðstoðarleikstjóri mynd- arinnar: „Þetta er samtímamynd og fjallar um gamlan mann, fasta- penna, sem fellur frá þegar hann er að reyna að koma grein í Morg- unblaðið. Hann gengur síðan aft- ur og beitir yfirnáttúrulegum ráðum til að koma greininni að í blaðinu.“ Myndin er gerð eftir handriti Gríms Hákonarsonar sem einnig leikstýrir. Grímur var á sínum tíma öryggisvörður hjá Morg- unblaðinu og er því nokkuð kunn- ugur þar innanhúss en sagan er þó ekki sannsöguleg – svo vitað sé. Grímur á nokkurn feril að baki í kvikmyndagerð, gerði meðal annars Varði fer á vertíð og Varði goes Europe, en þeir félagar Grímur og Eyjólfur hafa unnið saman við fjölda stuttmynda eins og Efnislega ást sem fékk áhorf- endaverðlaun á stuttmyndadög- um 2000 og Stutt í hnakkann sem sýnd var á SkjáEinum. „Ég, Grím- ur og litli bróðir minn Erpur byrj- uðum að fást við kvikmyndir þeg- ar við vorum táningar, 14–15 ára, og gerðum helling af myndum,“ segir Eyjólfur. „Ég er búinn að vinna við kvikmyndagerð í fimm ár, mest auglýsingar og þess hátt- ar, og er að fara í leikstjóranám á næstunni.“ Eyjólfur starfrækir fyrirtækið Boris sem sinnt hefur kvikmynda- gerð og hljómplötuútgáfu, meðal annars komið að útgáfu platn- anna Rímnamín, Stormurinn á eftir logninu og Gerðu það sjálfur en Eyjólfur gerði einmitt mynd- bandið við titillag þeirrar plötu. Síðustu orð Hreggviðs hlaut styrk úr Kvikmyndasjóði fyrir hluta kostnaðar og lýkur tökum á næstunni en eftirvinna mun standa yfir í vetur. Von er á myndinni í sýningar með vorinu og verður hún tæpur hálftími að lengd. Aðalleikarar eru Þorsteinn Gunnarsson, Þorsteinn Guð- mundsson, Guðrún S. Gísladóttir og Ívar Örn Sverrisson. Um myndatöku sér Björn Helgason. Tökur standa yfir á nýrri stuttmynd Morgunblaðið/Sverrir Eyjólfur á tökustað (t.v). Við borðið situr Ívar Örn Sverrisson, á bak- við tökuvélina er Björn Helgason og Sigurður Kaiser ljósamaður og aðstoðar tökustjóri stendur hjá. Draugur gengur laus á Morgunblaðinu asgeiri@mbl.is KVIKMYNDIN Freddy og Jason (Freddy Vs Jason) fór óvænt á toppinn í Bandaríkjunum. Þessi hryllingsmynd slátraði samkeppn- inni, var vinsælasta mynd helg- arinnar og náði að ýta S.W.A.T. í annað sætið. Önnur ný mynd, vestrinn Í skotfæri (Open Range) með Kevin Costner, gekk ágæt- lega og fór í þriðja sætið en Ríku stelpurnar (Uptown Girls) fóru í fimmta sætið, fyrstu vikuna á lista. Freddy og Jason leiðir saman tvo þekktustu morðingja hryllings- myndaheimsins, Freddy Krueger úr Martröð við Álmstræti og hinn grímuklædda Jason Voorhees. Robert Englund og Ken Kirzinger fara með hlutverk þeirra en í öðr- um helstu hlutverkum eru Monica Keena og Jason Ritter. Ronny Yu leikstýrir myndinni, sem þrátt fyr- ir fremur slæma gagnrýni hlaut þessar góðu viðtökur. Í skotfæri heillaði hins vegar gagnrýnendur og markar endur- komu Costners á hvíta tjaldið, en hann leikstýrði myndinni auk þess að fara með aðalhlutverk. Myndin fjallar um fjóra kúreka sem ráðast gegn leiðtoganum í smábæ sem stendur ekki í stykkinu. Með önn- ur helstu hlutverk fara Robert Duvall, Annette Bening og Mich- ael Gambon. Í Ríku stelpunum leikur Britt- any Murphy ríka stelpu sem stundar félagslífið stíft þar til hún neyðist til að fá sér vinnu sem barnapía ungrar forstjóradóttur. Boaz Yakin leikstýrir myndinni en með önnur helstu hlutverk fara Dakota Fanning og Heather Locklear. Ef miðað er við tólf mest sóttu myndirnar er aðsóknin um þriðj- ungi meiri en sömu helgi fyrir ári, samkvæmt Screen Daily. Í næstu viku verða frumsýndar m.a. grínmyndin Marci X með Lisu Kudrow og Damon Wayans og Dóttir forstjórans (My Boss’s Daughter) með Ashton Kutcher og Töru Reid. Freddy og Jason á toppnum í Bandaríkjunum                                                ! ! ! ! ! ! ! ! ! !  ! ! ! ! ! ! ! ! ! !                       !!  "  #   $ %    !%#  & '()"$ * * ++          ',-. /0-, /.-/ /'-/ //-1 0-2 0-1 0-/ 2-1 '-1 ',-. 34-/ /.-/ 23-5 //-1 1.3-5 04-, 0'-/ 5,-0 /15-4 Mynd um hina óhugnanlegu Freddy Krueger og Jason Voorhees var sú vinsælasta í bandarískum kvikmyndahúsum um helgina. Slátruðu sam- keppninni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.